Morgunblaðið - 30.04.1985, Page 37

Morgunblaðið - 30.04.1985, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. APRÍL 1985 37 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Er ekki óhjákvæmi- legt að Líbanon líði undir lok? Múslímahermenn kæra sig ekki um stuðning Sýrlendinga, svo fremi sem hægt er að alhæfa um hermenn þeirra vegna þess að þar logar allt í deilum eins og annars staðar. Ýmsir forsvars- menn hafa reynt að bera klæði á vopnin, þó ekki væri nema til þess að þeir stæðu sameinaðir gegn kristnum mönnum í Suð- ur-Líbanon. Það hefur komið fyrir litið eins og önnur viðleitni. Þó er sennilegt að innan allra þessara fylkinga, sem nú berjast í Líbanon, séu drúsar þeir einu sem eru verulega hlynntir skipt- ingu landsins og þeir hafa ekki farið í launkofa með þær skoð- anir. En reyni menn, hvort sem þeir eru Líbanir eða ekki, að velta fyrir sér hvernig eigi að brjóta upp landið svo að komið verði á friði er líka auðsætt að það er hægara ort en gert. Hvernig á að skipta Beirút? Hvernig á að tryggja rétt Sunni-múslíma sem eru fjöl- mennir í þremur stórum borgum landsins, Beirút, Sídon og Trip- oli, en hafa ekkert eigið land- svæði nú? Geta maronitar sem hafa fram á siðustu daga ráðið lögum og lofum á strandlengj- unni komið í veg fyrir að kristnir menn annars staðar í landinu verði einangraðir eða hreinlega keyrðir í kaf af shitum? Og myndu shitar, sem eru fjölmenn- astir allra í landinu sætta sig við eitt fylki í suðrinu? Á að leysa málið með því að flytja fólk til í landinu eftir trúarskoðunum og hver er þá kominn til með að segja að réttlætis verði gætt? Og hvaða samband gætu Svo fylkin eða kantónur þessar haft sin á milli og hver væru þeirra efna- hagslegu tengsl. Og hvar væri yfirstjórn þessara héraða og hvernig væri hægt að tryggja að allir sættu sig við hana? Við þessu eru engin svör. En því lengur sem menn berjast því skýrara virðist koma fram að það er nöturlegur skrípaleikur að tala um Líbanon sem ríki. Líbanon er land í andarsiitrun- um og dugir ekkert annað en kraftaverk til að koma í veg fyrir að það leysist upp. (Newsweek, Economist, AP.) UMRÆÐUR um framtíð Líbanons hafa allra síðustu vikur beinzt í annan farveg en áður eftir að sáttastjórn Rashid Karamis forsætisráðherra hefur gefizt upp. Kristnir menn í Suður-Líbanon eru tugþúsundum saman á flótta undan sveitum múslíma, Amin Gemayel forseti hefur glatað stuðningi meirihluta sveita kristinna manna, sveitir shita-múslíma og sunni-múslíma berjast innbyrðis. Þá er líkast til orðið tímabært að horf- ast í augu við að Líbanon er land í andarslitrunum. Oft hefur útlitið verið dökkt en aldrei eins og nú og ekki örlar á raunverulegum áhuga stríðandi fylkinga til að friður komist á. Ibrezka blaðinu Economist sagði nýlega að þó svo að það hljómaði grimmdarlega mætti spyrja, hvaða tilgangi það þjón- aði að reyna að halda saman sem ríki þessu hrjáða og blóði drifna landi. Þá var ástandið í Suður- Líbanon milli Líbana innbyrðis þó ekki komið á það stig sem það hefur færzt á allra síðustu daga. f fljótu bragði sagði Economist að erfitt væri að finna rök fyrir því. Bandaríkjamenn hefðu reynt að halda lffinu í Líbanon og þeim hefði mistekizt. fsraelar hefðu talið að þeir gætu kveðið niður deilurnar í Líbanon. Þeim hefði mistekizt það og aðgerðir þeirra fyrir þremur árum ættu sinn þátt í því hvernig komið væri nú. Þó skyldi skuldinni ekki skellt á neinn einstakan aðila. Ágreiningur Líbana innbyrðis væri óhugnarlega djúpstæður og sáttavilji væri enginn þrátt fyrir ólýsanlegar hörmungar I heilan áratug því sýndist það eitt vera í sjónmáli að Líbanon leystist endanlega upp. Séu líbanskir borgarar inntir eftir því hver sé þeirra framtíðarsýn, er svarið að það sé sterkt, sameinað Líbanon. Svo fer það eftir því hvort rætt er við kristna menn, shita-mú- hameðstrúarmenn, sunni-mú- hameðstrúarmenn eða drúsa hverjir eiga að stjórna þessu sterka og sameinaða ríki. Og sundurlyndið er auðvitað alvarlegast meðal stjórnmála- mannanna. Þeir geta ekki komið sér saman um leiðir til að endur- reisa Libanon. Margir voru vongóðir þegar Karami tók að sér að mynda stjórn. Fáir efa að karami gekk heill að því sem honum var falið. En flesta aðra virðist hafa skort heilindi og dug til að vinna að því verkefni. Sumir fréttaskýrendur segja, að eina vitið nú sé að reyna að Rashid Karami ganga frá skiptingu landsins á eins friðsamlegan hátt og hægt er. Þar sem Sýrlendingar sýna merki þess að þeir séu að gefast upp á því metnaðarsama hlut- verki sem þeir ætluðu sér í Líb- anon verður brátt síðasta hindr- unin í brottu, að sögn frétta- skýrenda. Því að fram á síðustu vikur hefur ástandið í landinu verið Assad Sýrlandsforseta þóknanlegt, veik stjórn undir forsæti ennþá veikari forseta, sem virtist sætta sig við að þiggja leiðsögn Sýrlendinga. Sveitir líbönsku stjórnarinnar sýndu hollustu fyrst eftir að Karami tók við. En ekki leið þó á löngu unz herinn fór að molna, í shita-múslíma, sunni-múslíma, kristna maronita og skyndilega voru Palestinumenn komnir I spilið, en áttu þó flestir að hafa verið hraktir á brott í innrás ísraela. Garöabær: Samið við Hagvirki um lagnavinnu BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hefur samið við verktakafyrirtækið Hagvirki hf. í Hafnarfirði um lagnavinnu (holræsi og vatnslagnir) á byggingasvæði fyrir ungt fólk í Garðabæ. Verkið var boðið út og bárust sex tilboð í það. Lægsta tilboðið var frá Sand- sölu Jóhannesar Hannessonar, 3.387 þúsund kr. Tilboð Hagvirkis var 5.198 þúsund kr., Gunnar og Guðmundur buðu 5.123 þúsund kr. og Borgarvirki bauð 4.951 þúsund kr. Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri í Garðabæ, sagði í samtali við Mbl. að bæjarstjórnin hefði ekki treyst sér til að taka tilboði Sandsölunnar, sem þó var lægst. Tilboðið hefði verið óeðlilega lágt, fyrirtækið ætti ekki nauðsynleg tæki og yrði því að byggja á leigu- tækjum auk þess sem þeir sem verkið ætluðu að vinna hefðu ekki unnið saman að slíkum verkum áður. Hann sagði að undirbúning- ur byggingarsvæðisins hefði geng- ið illa, tíminn væri orðinn naumur og hefðu menn ekki talið þorandi að eiga það á hættu að þetta verk færi úr skorðum. Hann sagði að þeir þrír verktak- ar sem ættu næstu tilboð væru allt virtir verktakar sem Garðbæ- ingar hefðu átt ágæt viðskipti við. Eftir viðræður við þá um lánstíma og greiðslukjör hefði niðurstaðan orðið sú að tilboð Hagvirkis væri hagstæðast. Þar við bættist að Hagvirki tengdist öðrum þáttum þessa verks sem verktaki, bæði undirbúningi og frágangi. „Með lögguna á hælunum“ í Tónabíói TÓNABÍÓ hefur tekið til sýninga frönsku myndina „Meó lögguna á hælunum“, (La Carapate) eftir Ger- ard Oury. Myndin gerist í Frakklandi árið 1968 þar sem mikil ólga ríkir I kjölfar óeirða stúdenta. Sagan segir síðan frá Martial Gaulard sem situr i fangelsi dæmdur til dauða og lögmanni hans, Jean Philippe Duroc. Gaulard sleppur úr prísundinni og saman lenda þeir félagarnir I ýmsum ævintýr- um. Með aðalhlutverk fara Pierre Richard, Vicitor Lanux, Raymond Bussieres og Yvonne Gaudeau. PÖBB-3HR í vikunni í dag þriðjudaginn 30. apríl Leikfélag Hafnarfjaröar leikur og syngur lög úr söngleiknum „Rockhjartað slær“ í kvöld kl. 20.00. Hinrik D. Bjarnason leikur klassíska gítartón- list fyrir matargesti frá kl. 18.00. Pöbb-bandiö sér síöan um tónlistina eftir söng- leikinn. Það veröur opiö hjá okkur í dag frá kl. 12.00—15.00 og í kvöld frá kl. 18.00—03.00. Ath. aðgangur ókeypis. Ódýr og góöur matur framreiddur í hádegi. Kvöldveröur á gjafveröi (kr. 390.-) framreiddur í kvöld frá kl. 18.00. Pantiö í tíma borö í síma 19011. Ódýr og góö skemmtun fyrir t.d. starfsmanna- hópa. Pöbb-inn Miövikudaginn 1. maí hátíöisdagur verkamanna. Opiö í hádegi frá kl. 12.00—15.00. Opiö um kvöldiö frá kl. 18.00—01.00. Hinrik D. Bjarnason leikur klassíska tónlist fyrir matargesti. Pöbb-bandiö sér um tónlistina um kvöldiö af sinni alkunnu snilld. Ódýr og góöur matur öll hádegi og öll kvöld. Pantið í tíma borö í síma 19011. ) PÖBB-INN MINN A blNN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.