Morgunblaðið - 30.04.1985, Page 63

Morgunblaðið - 30.04.1985, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. APRlL 1985 63 Fréttir á táknmáli komast vel til skila Vilhjálmur G. Vilhjálmsson, formaður Félags heyrnarlausra skrifar: Hinn 18. apríl 1985 er fyrir- spurn frá „gömlum vesturbæingi með fulla heyrn“ um fréttir fyrir heyrnarskerta í sjónvarpi. í þessu sambandi vill Félag heyrnar- lausra taka fram eftirfarandi: Við erum ánægð með fréttirnar, við fáum nýjustu fréttir fluttar af heyrnarlausu fólki og fréttirnar komast þannig vel til skila. Við gerum okkur grein fyrir þeim vandamálum að láta myndir fylgja með, svo stuttu fyrir aðal- fréttatíma sjónvarps. Vissulega væru þær til bóta, en myndirnar koma nokkrum mínútum eftir að fréttaágrip á táknmáli er flutt, svo við höfum því fengið góðan undirbúning til að átta okkur á fréttamyndinni. Við teljum þessa tímasetningu rétta og að það yrði ekki til bóta að færa fréttatímann aftur fyrir aðalfréttatímann. Bréfritari vill að einstaklingurinn fái að ráða því sjálfur hvort hann drekkur sterkt vín eða bjór. Bjór eða ekki bjór Hins vegar gætum við hugsað okkur aðeins lengri tíma í sumum tilfellum. Veðurfregnir eru ekki sagðar á táknmáli en benda má á að veð- urkort með tilheyrandi merkjum og texta eru auðskilin fyrir heyrn- arlausa. Að lokum viljum við þakka fyr- irspyrjanda áhugann og sjón- varpinu og starfsfólki þess sér- staklega fyrir góða þjónustu hvað varðar fréttaútsendingu til okkar. Við treystum því að með auk- inni tækni verði innlent efni text- að þannið að heyrnarskertir geti haft full not af því og jafnframt verði meiri textun á ýmsum frá- bærum fræðsluþáttum sem sjón- varpið sýnir og teljum við að slík þjónusta myndi koma mjög fjöl- mennum hóp að gagni. GIM skrifar: Mig langar að benda á í upphafi að þó svo að „Wham!“ sé vinsæl- asta hljómsveitin á rás 2, þá er ekki eins mikið að marka þennan vinsældalista eins og haldið er fram. Það er svo mikið af smá- krökkum, 9, 10 og 11 ára, sem hringja í rás 2 og kjósa „Wham!“. En aftur á móti þegar maður fer í eldri bekkina, fækkar „Wham!“- og „Duran Duran“-aðdáendum stórlega, en hljómsveitir eins og „Frankie goes to Hollywood" eiga mikið meira upp á pallborðið þar. Þess vegna eru Frankie-aðdáend- urnir ekkert mikið færri en Duran Duran-aðdáendur. Óskar Arason skrifar: Kæri Velvakandi. Bjórmálið svonefnda hefur ver- ið ansi tíðrætt að undanförnu og finnst mér of mikið á einn veg. Margir hafa látið álit sitt í ljós hér á síðum Valvakanda og er það af hinu góða, en þeir hafa hins vegar verið duglegri við skriftir sem eru andvfgir bjórnum. Nýleg- ar skoðanakannanir sýndu eins og menn vita að meirihluti þjóðar- innar vill bjórinn. Ég hef reynt að fylgjast vel með þessu máli og les- ið greinar fræðimanna sem ann- arra um þetta efni og finnst mér sumir skrifa misjafnlega réttlát- lega um málið. HS skrifar þann 19. apríl ’85 „að fjöldi fólks kjósi ekki þá menn sem greiði bjómum atkvæði" en hvað þá um þann meirihluta sem vill bjórinn? Ég er ansi hræddur um að sá meirihluti kjósi ekki þá menn sem greiða atkvæði á móti bjórnum. HS segist ennfremur „... halda að heilinn snúi öfugt í þeim þingmönnum sem eru fylgj- andi bjórnum". Ég held því fram að enginn þingmaður vilji aukna drykkju- sýki eða aukinn drykkjuskap — það vill enginn. Er ekki spursmál- ið um það frekar hvort hver ein- staklingur fyrir sig sé fær um að ráða því sjálfur hvort hann drekk- Hljómsveitin „Frankie goes to Hollywood" var á miklu hljóm- leikaferðalagi um Evrópu í sl. mánuði og þessum. Einnig fer hljómsveitin til Svíþjóðar í vor og þá spyr ég: Af hverju ekki til ís- lands líka? Það kom enginn til landsins á listahátið og þó Thomas Ledin hafi komið, nýtur hann ekki al- mennra vinsælda hjá unglingum. Ég vil því biðja Mbl. um að koma þessu til skila til þeirra sem sjá um þessi mál og ég hvet alla þá sem dá hljómsveitina að láta í sér heyra. Það bítur enginn í gegnum símann eða bréfin. ur bjór eða sterkt vín? Er hægt að færa rök fyrir því að einstaklingur megi frekar velja á milli sterks víns og létts eða sterks víns og bjórs, mér er spurn? Aftur á móti tel ég að verði bjórinn leyfður sé rétt að hafa hann aðeins á bilinu 4—5% að styrkleika og að hann verði aðeins seldur í verslunum ÁTVR. Ástandið eins og málum er hátt- að í dag er algjör fásinna. Furðu- legt er að maður skuli geta farið á veitingastaði og verslað þar eitt- hvert bjórlíki en venjulegan góðan bjór fá ekki nema nokkrir útvald- ir. Alþjóð veit að eitthvað er höndl- að með smyglaðan bjór en það er ekki á færi allra að versla svoleið- is enda mun gangverð á bjórkassa á svörtum markaði vera um 2.000 til 2.500 krónur. Varðandi þjóðaratkvæða- greiðslu um bjórinn ætti það að- eins að vera sanngjarnt enda þurfa bjóráhugamenn varla að kviða úrslitum hennar. Varðandi það atriði hvort drykkjan myndi aukast hjá ungl- ingum með tilkomu bjórsins, þá hef ég meiri áhyggjur af því hversu mikil aukning er á notkun eiturlyfja hjá yngri aldurshópum og tel að meiri áróður megi reka gegn því böli. En það hafa ekki sést margar greinar undanfarið varðandi það mál og finnst mér að fróðir menn um skaðsemi eitur- lyfja mættu koma með nokkrar greinar um það efni. Magnús Guðmundsson skrifar í Velvakanda þann 24. apríl ’85 „Vilji þjóðarinnar skal vera grundvöllur að valdi ríkisstjórnar- innar.“ Ég er Magnúsi alveg sam- mála í þessu og þar sem allt bend- ir til þess að meirihluti þjóðarinn- ar vilji sterkan bjór, af hverju ekki láta fara fram áreiðanlega könnun á því og dæma svo? Ég álít að það séu góðir menn sem sitja við stjómvöl þjóðarinn- ar og ég treysti þeim alveg að dæma rétt í þessu máli, hvernig sem það fer. Og að lokum vil ég hvetja sem flesta til að tjá sig um málið — og bjóráhugamenn, ætlið þið að láta mótherja ykkar hafa síðasta orðið í þessum umræðum? Ég segi að við eigum að geta valið og hafnað sjálf og því greiði ég bjórnum mitt atkvæði. „Frankie goes to Hollywood“ til íslands Leiga — Laugavegurinn Til leigu er 80 fm verslunarhús- næði miðsvæðis við Laugaveg. 5 ira leigusamningur. Uppl. í síma 11232 — 75234 eftir kl. 18.00. Stjórnunar- fræðsla ENSK VIOSKIPTABREF Námskeiðiö er ætlaö riturum sem þurfa aö semja og skrifa ensk viöskiptabréf. Námskeiöiö fer fram á ensku. Tilgangur námskeiösins er aö gera þátttakendur hæfari í aö rita ensk viöskiptabréf, meö þaö fyrir augum aö auka gæöi þeirra. Efni: Hvaö er viöskiptabréf? Mikilvæg tæknileg atriöi viö gerö viöskiptabréfa. Ensk málfræöi og setningafræöi. Uppsetning og útlit bréfa. Æfingar. Mismunur breskra og bandarískra viöskipta- bréfa. Leiöbeinandi: Dr. Terry Lacy. Doktor í félagsfræöi frá Colorado State University. Kenndi viöskiptaensku viö Department of Techn- ical Journalism í Colorado State University. Starfar nú sem stundakennari í ensku viö heimspekideild Háskóla Islands og er annar höfundur ensk-íslenskrar viöskiptaoröabókar. Tími: 14., 16., 22. og 24. janúar 1985 Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfsmenntunarsjóöur Starfsmannafélags Ríkisstofnana styrkja félagsmenn sína til þátt- töku á þessu námskeiði. Upplýsingar gefa viökomandi skrifstofur. Tilkynnið þátttöku f sfma 82930 STJÓRNUNARFÉIAG ISLANDS SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 82930 Arkitektar, ognuitníar í by§gingamefndum Á ykkur hvílir sú ábyrgð að glæða dauðan bókstaf lífi. Hafið jafnan í huga ákvæði byggingarreglugerðar um tillittil fatlaðra: Allar íbúðir: Salerni eigi minni en 4m2 henti einnig hreyfihömluðum. (gr. 6.4.3.). Fjölbýlishús: A.m.k. ein íbúð á jarðhæð henti hreyfihömluðum (gr. 6.1.1.). Sérmerkt bílastæði nálægt inngangi (gr. 5.2.4.). Opinberar byggingar, þjónustumiðstöðvar, samkomuhús, verslunar- og atvinnuhúsnæði: Ákvæði um bílastæði (gr. 5.2.2. og 5.2.3.) úti- og innihurðir (gr. 6.3.5.) salerni (gr. 6.10.1.2., 6.10.2.7. og 6.10.5.4.), aðkomu (gr. 6.10.1.4.) rými fyrir hjólastóla (gr. 6.10.2.6.) lyftur (gr. 6.10.1.5. og gr. 8.2.2.9.) íbúðir sem ætlað er að fullnægja kröfum hreyfihamlaðra: (gr. 6.3.6,6.4.5. og 8.2.1.27.). Til athugunar fyrir alla sem hanna og byggja nýtt húsnæði og breyta gömlu. Vilji þinn skiptir lika máli SAMSTARFSNEFND UM FERLIMAL FATLAÐRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.