Morgunblaðið - 04.05.1985, Page 37
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUQARDAGUR 4. MAÍ 1985
37
MorKunbladid/Júlíus
Fulltrúar Vestfirskrar ferðaþjónustu frá vinstri: Hörður Guðmundsson framkvæmdastjóri Flugfélagsins Arna, Úlfar
Ágústsson ferðamálafulltrúi Vestfjarða, Sverrir Hestnes viðtakandi framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu Vestfjarða, Arn-
heiður Guðnadóttir gistiheimilinu Breiðuvik, Arnór Jónatansson umdæmisstjóri Flugleiða á Vestfjörðum, Reynir
Adolfsson framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Vestfjarða og Jóhannes Ellertsson sérleyfishafi á Vestfjarðaleið.
Kynna ferðamögu-
leika á V estfjörðum
ÞESSA dagana eru vestfirskir ferða-
málamenn með Vestfjarðakynningu
í Reykjavík.
1 gær, föstudag, kynntu þeir þjón-
ustu sína og ferðamöguleika fyrir
starfsmönnum ferðaskrifstofa og
fréttamönnum.
í kvöld, laugardag, ætla þeir að
halda ferðakynningu fyrir al-
menning í Víkingasal Hótels Loft-
leiða. Þar tefla þeir fram vest-
firskum listamönnum, alþingis-
mönnum kjördæmisins sem m.a.
telja tvo ráðherra og forseta sam-
einaðs þings. Þar mun Reynir
Adolfsson, framkvæmdastjóri
Ferðaskrifstofu Vestfjarða, kynna
ferðamöguleika um Vestfirði á
komandi sumri og starfsmenn ým-
issa þjónustufyrirtækja í fjórð-
ungnum munu kynna starfsemi
sína.
Karlakór
Þingeyrar
á LoftleiÖum
syngur
Þingejri, 3. mai.
Ferðamálakynning Vestfjarða efnir
til kvöldvöku á Hótel Loftleiðum.
Meðal þess sem boðið er upp á er
söngur Karlakórs Þingeyrar. Hann
líkist að einu leyti Framsóknar-
flokknum, hann er „opinn í báða
enda“. Menn detta inn í kórinn eftir
því hvernig á stendur hjá þeim og
hverfa síðan án hurðarskella þegar
flutt er búferlum eða farið á sjóinn.
Fasti kjarninn heldur áfram að
syngja og fagnar nýjum eða heim-
komnum kórfélögum þegar allt
„smellur". 1. maí hafði Hesta-
mannafélag Þingeyrar opið hús í
Haukadal í elsta samkomuhúsi
hreppsins, sem Kvenfélagið Hug-
rún í Haukadal lét byggja eftir
1930. Þetta hús er nú í eigu hesta-
mannafélagsins. Þangað fjöl-
menntu Þingeyringar, keyptu sér
kaffi eða kakó með heimabökuðum
kökum og hlustuðu á karlakórinn
„æfa sig“, en þannig var uppákom-
an auglýst. Stjórnandi kórsins er
Tómas Jónsson. Harmonikukarl-
arnir, eins og þeir nefna sig, spil-
uðu undir stjóm Guðmundar Ingv-
arssonar. Og síðan tóku menn í
nikkuna á víxl meðan setið var
undir borðum. í þetta sinn spiluðu
10 karlar en stundum verða þeir
jafnmargir postulunum. Það mátti
vel heyra að báðir þessir hópar
hafa æft eitt kvöld í viku allan vet-
urinn og að jafnframt hafi margir
stundað bæði söng og harm-
onikkuna. Það væri synd að segja
að menn væru hér við eina fjölina
felldir. Kórfélagarnir sem fljúga
héðan í dag eru 21 og tveir nýflutt-
ir Dýrfirðingar bætast í hópinn í
Reykjavík. Nokkrar eiginkonur fé-
laganna slást í hópinn, en aðrar
hyggjast fjölmenna með Kvenfé-
laginu Von til Vestmannaeyja um
aðra helgi. Áður en kórinn flýgur
suður verður tekin upp messa í
Þingeyrarkirkju til flutnings í út-
varpinu. Og nú liggja Þingeyringar
á bæn og biðja um gott veður þess-
ar tvær helgar svo allt gangi upp.
Hulda
Hjólreiðakeppni
grunnskólanna
HJÓLREIÐAKEPPNI gninnskól-
anna, undankeppni, verður háð í
dag, laugardag, við Austurbæjar-
skólann í Reykjavík og á Akureyri.
Þetta er 10. árið, sem keppni þessi
fer fram um land allt, en hún kemur
í kjölfar spurningakeppni 12 ára
barna í grunnskólum landsins undir
umsjón Umferðarráðs. Sigurvegarar
úr spurningakeppninni komast
áfram í keppnina.
í Reykjavík verður keppnin
milli 13.30 til 15.00 og er með því
sniði að keppt er í góðakstri og
þrautum. Sigurvegarar keppa síð-
an til úrslita í haust. Endanlegir
sigurvegarar taka þátt í alþjóð-
legri hjólreiðakeppni á næsta ári
og verður hún í Helsingfors í
Finnlandi. Börn frá Akureyri báru
sigur út býtum í síðustu keppni og
taka þau þátt í alþjóðlegri keppni
í Portúgal, sem fram fer síðar í
þessum mánuði.
Hjólreiðadagurinn:
Enn eftir að skila
1210 seðlum
SKIL vegna hjólreiðadagsins hafa
verið afar slæm. Enn eiga börn eftir
að skila 1.210 seðlum, að sögn að-
standenda hjólreiðadagsins.
Vegna þessa hefur verið ákveðið
að hafa opið í dag klukkan 13 til 16
hjá Styrktarfélagi lamaðra og
fatlaðra, Háaleitisbraut 13. Það er
von þeirra sem að hjólreiðadegin-
um stóðu að börnin komi i dag og
geri skil á þeim peningum sem
söfnuðust og einnig þarf að skila
seðlum þótt viðkomandi hafi engu
safnað. Fyrr verður ekki hægt að
draga í happdrætti dagsins.
Tónleikar í Njarðvíkum
SIGURÐUR Pétur Bragason barí-
tonsöngvari og Þóra Fríða Sæm-
undsdóttir píanóleikari halda tón-
leika á vegum Tónlistarskóla
Njarðvíkur í Ytri-Njarðvíkurkirkju
í dag, laugardag, klukkan 16.00.
Sigurður er nýkominn frá ít-
alíu þar sem hann stundaði nám
hjá einum af frægustu söng-
kennurum Italíu, Pier Miranda
Ferraro. Þóra stundaði nám í
tónlistarháskólanum í Stuttgart
þar sem hún hafði ljóðaundir-
Gyífí
formaður
í MYNDATEXTA með frétt í
blaðinu í gær um setningu sýn-
ingar á stangveiðivörum var farið
með rangt nafn formanns Lands-
sambands stangveiðimanna, sem
setti sýninguna. Hann er Gylfi
Pálsson skólastjóri. Blaðiö biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
leik að sérfagi. Kennari hennar
var prófessor Konrad Richter.
Á efnisskránni eru ítölsk lög
og óperuaríur ásamt íslenskum
lögum.
Vindlingamerk-
ingar 1. júlí
ÞANN 1. júlí n.k. eiga að vera
komnar viðvörunarmerkingar
á alla vindlingapakka sem hér
eru seldir. Jón Kjartansson,
forstjóri Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins, sagði í sam-
tali við Mbl. að öllum innflytj-
endum hefði verið gerð grein
fyrir nýju tóbaksvarnalögun-
um og átti hann ekki von á
öðru en þeir færu að lögunum,
enda yrðu vindlingar án þess-
ara viðvörunarmerkinga ekki
fluttar til landsins eftir 1. júlí.
Hagkaup og FÍI:
Átak í sölu og kynningu á
íslenskum iðnaðarvörum
DAGANA 7.—18. maí nk. efnir Hagkaup til stórátaks í
sölu og kynningu á íslenskum iðnaðarvörum í öllum versl-
unum sínum, í samvinnu við Félag íslenskra iðnrekenda.
Mbl./Árni Sæberg
Frá fréttafundinum, f.h. Gísli Blöndal, fulltrúi framkvæmdastjóra Hag-
kaups, Víglundur Þorsteinsson, formaður FÍI, Gunnar Árnason, sölustjóri
hjá Hagkaup, Þorsteinn Pálsson, innkaupastjóri hjá Hagkaup og Bjarni
Þór Jónsson frá FÍI.
Á fundi sem haldinn var með
fréttamönnum í vikunni, sagði
Gísli Blöndal, fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Hagkaups, að
fyrirtækið hefði komist að þeirri
niðurstöðu að framleiðendur ís-
lenskra iðnaðarvara hefðu ekki
staðið sig nógu vel, hvað varðaði
sölu og markaðssetningu á inn-
lendum markaði. Ætti þetta ekki
síður við um Hagkaup en aðra
framleiðendur, en um 12—13%
af heildarsölu fyrirtækisins er
eigin framleiðsla. Því hefði verið
ákveðið að skipuleggja stórátak í
sölu og kynningu á íslenskum
iðnaðarvörum í samvinnu við
framleiðendur, starfsmenn FÍI
og Hagkaups.
Átakið verður sem fyrr segir í
öllum verslunum Hagkaups, i
Skeifunni, í Kjörgarði við
Laugaveg, í Lækjargötu, að Fitj-
um í Njarðvík og á Akureyri.
Allar (slenskar vörur í verslun-
unum verða auðkenndar með
skiltum, borðum o.fl. þannig að
menn átti sig á því hvað 'er ís-
lenskt. Vörukynningar verða i
verslununum alla dagana þar
sem íslenskir framleiðendur
kynna vöru sína og bjóða í mörg-
um tilfellum sérstakt kynn-
ingarverð. Alla dagana verða
tiskusýningar og/eða uppákom-
ur af ýmsu tagi i versluninni í
Skeifunni en einnig eru fyrir-
hugaðar sýningar og annað í
öðrum verslunum Hagkaups.
Sagði Gísli að það markmið
hefði verið sett að ekki kæmu
færri en 150.000. viðskiptavinir í
verslanirnar fimm þessa 12
daga.
þriðjudaginn 7. maí kl. 9 verð-
ur formleg opnunardagskrá i
versluninni í Skeifunni. Lúðra-
sveit mun leika við innganginn
og á eftir stuttum ávörpum mun
iðnaðarráðherra, Sverrir Her-
mannsson, opna kynninguna
formlega. Á þessa opnunardag-
skrá verður boðið sérstaklega
fulltrúum framleiðenda, Alþing-
ismönnum, forvígismönnum í
iðnaði og verslun, fulltrúa neyt-
enda og síðast en ekki síst við-
skiptavinum Hagkaups. Að
ávörpum loknum verður farin
kynnisferð um verslunina þar
sem í gangi verða vörukynn-
ingar, tískusýning o.fl. Dagskrá
hvers dags verður síðan kynnt í
fjölmiðlum.
Víglundur Þorsteinsson, for-
maður FÍI, kvaðst vona að fólk
færi nú að beina athyglinni að
íslenskri framleiðslu í ríkari
mæli en verið hefði. Sagði hann
að markaðshlutdeild íslenska
iðnaðarins væri um 50% en í ná-
grannalöndunum hefði þarlend-
ur iðnaður markaðshlutdeildina
70—80%. Tækist okkur að lyfta
markaðshlutdeild íslenskrar
framleiðslu upp í 70—80%, ætti
það að nægja til að eyða við-
skiptahalla þjóðarinnar. Það
væri sannarlega verðugt verk-
efni.