Morgunblaðið - 12.05.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.05.1985, Blaðsíða 35
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1985 Pltrgw Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 25 kr. eintakiö. ísland og Rockall Eftir að baráttu okkar ís- lendinga fyrir viðurkenn- ingu annarra þjóða á 200 mílna fiskveiðilögsögu okkar lauk með fullum sigri og síð- asti brezki togarinn sigldi á brott af íslandsmiðum, hefur athygli manna beinzt að öðr- um hugsanlegum réttindum okkar á hafsvæðum og hafs- botni út frá íslandi. Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismað- ur og formaður utanríkis- málanefndar Alþingis hefur verið fremsti forystumaður okkar á þessu sviði og mikill baráttumaður fyrir því að kynna rétt íslands innanlands og utan. Þingmaðurinn beitti sér í upphafi fyrir kynningu á rétt- indum okkar á Jan Mayen- svæðinu. Það frumkvæði leiddi til samninga við Norð- menn um það svæði svo að réttindamál okkar þar komust í höfn á ótrúlega skömmum tíma. Síðustu árin hefur Eyj- ólfur Konráð einbeitt sér að kynningu á réttindum okkar á svonefndu Hatton-Rockall- svæði. Sl. fimmtudag lýsti ríkis- stjórnin formlega yfir rétti ís- lands á þessu svæði með út- gáfu reglugerðar um afmörk- un landgrunns til vesturs, í suður og til austurs. Geir Hallgrímsson utanríkisráð- herra sagði á fundi með blaða- mönnum við það tilefni: „Með þessari reglugerð erum við ís- lendingar að tryggja okkur þann rétt, sem alþjóðalög leyfa. Hatton-Rockall-svæðið er að vísu lítt rannsakað en það væri ábyrgðarleysi af okkar hálfu, ef við helguðum okkur ekki þann rétt, sem al- þjóðalög mæla fyrir um að við eigum. Þetta svæði er eðlilegt framhald af landgrunni ls- lands. Okkar réttur er tví- mælalaust meiri en til dæmis íra og Skota, en réttindi þeirra takmarkast af svokölluðu „trogi“ og eins takmarkar Færeyjasundið rétt Dana fyrir hönd Færeyinga á þessu svæði." Á þessum sama blaða- mannafundi sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, að sam- kvæmt hafréttarsáttmálanum ættu þjóðir allar lífverur á botni landgrunns síns og bætti við, að það væri sín skoðun, að fyrr eða síðar mundi sjórinn þar fyrir ofan tilheyra land- inu. í skýrslu sinni til Alþingis um utanríkismál minnti Geir Hallgrímsson utanríkisráð- herra á ályktanir Alþingis frá því í marz 1983 um hafsbotns- réttindi íslands í suðri og á Reykjaneshrygg og rakti hvernig unnið hefði verið að framgangi þessara mála síðan. í skýrslu utanríkisráðherra segir: „Hinn 5. júlí sl. var Dön- um/Færeyingum, Bretum og írum afhent til kynningar greinargerð varðandi afmörk- un íslenzka landgrunnsins suður af landinu. Jafnframt var því lýst yfir að íslenzk stjórnvöld teldu eðlilegt, að fulltrúar þessara ríkja rædd- ust við um sameiginlega hags- muni og éreining er varðar réttindi á Hatton-Rockallsv- æðinu og gerð yrði tilraun til að ná samkomulagi um sam- eiginlega nýtingu svæðisins og skiptingu afraksturs auðlinda hafsbotnsins. Fyrstu viðbrögð íra og Breta í ágúst og nóv. /des. sl. hafa verið að and- mæla þeim grundvelli, sem réttindakröfur íslands eru byggðar á og hafa þeir með því einnig hafnað formlegum við- ræðum á grundvelli krafn- anna. Er raunar ágreiningur milli Breta og íra innbyrðis um réttindi á þessu svæði, sem þeir hafa haft í hyggju að láta gerðardóm skera úr en undir- búningur undir störf gerðar- dómsins dregizt á langinn. Af hálfu Dana/Færeyinga hafa komið fram sérstök sjónarmið varðandi afmörkun land- grunns Færeyja." Nú fyrir nokkrum dögum settu Danir formlega fram kröfu um réttindi á þessu svæði fyrir sína hönd og Fær- eyinga. Brezka ríkisstjórnin hefur mótmælt þessari kröfu- gerð Dana og jafnframt munu Bretar óformlega hafa sett fram mjög hörð mótmæli við íslenzk stjórnvöld áður en reglugerðin um rétt íslands var gefin út á dögunum. Tals- maður brezka utanríkisráðu- neytisins sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að vænta mætti frekari mótmæla Breta á næstu dögum. Af þessari framvindu mála er ljóst, að ágreiningur þessara þjóða allra um rétt til Hatton- Rockall-svæðisins verður í brennidepli á næstunni og skiptir þá míklu að fast sé haldið á málstað íslands. Elztu heimildir um bú- setu og mannfjölda á ís- landi eru frá árinu 1703. Þá töldust íslendingar rúmlega 50.000. Ekki fjölgaði landsmönnum á átjándu öldinni, heldur fækkaði. Árið 1785 eru þeir tæplega 40.700. Talið er að að um 9.000 manns eða tæplega fimmtungur þjóðarinnar hafi fallið á um það bil tveimur árum í kjölfar Skaftárelda og annarra harð- inda, 1783—1785. Landsmönnum fækk- að um tæpan tug þúsunda 1703—1785. Fræðimenn telja að í lok landnáms- aldar hafi íslendingar verið um 70—80.000. Hvort sem sú tala er nær eða fjær hinu sanna skal ósagt látið. Hitt er ljóst, að landið bar breytilega tölu íbúa í tímans rás. Lægst mun íbúa- talan hafa verið rúmlega 40.000. Nú býr í landinu sex sinnum stærri þjóð, eða vel 240.000 manns. Samt erum við að töl- unni til eins og smávaxið sveitarfélag í fjölmennustu ríkjum heims. En við ger- um sömu kröfur til samfélagsins og gerðar eru til fjölmennustu og ríkustu ríkja heims. Horft um öxl Hvað ber þetta land, gögn þess og gæði, fjölmenna þjóð? Þeirri spurningu verður ekki svarað hér, heldur horft lítið eitt um öxl — með hana í huga. Allt frá landnámstíð og fram um síð- astliðin aldamót sóttu lslendingar að langstærstum hluta fæði og klæði til landbúnaðar, þó sjósókn væri hliðarbú- grein alla tíð. Á morgni þeirrar aldar, sem nú lifa af fimmtán ár, bjuggu enn 73% þjóðarinnar í strjálbýli. Veðurguð- ir héldu örlögum fólks í hendi sér. Orfá hitastig, til eða frá í meðalhlita, réðu árferði í landinu, hvort þjóðin hafði til ihnífs og skeiðar — eða lapti dauðann úr Iskel. Þegar eldgos og hafís, sem heyra til íslenzkum veruleika, mættu til leiksins, kanske á kuldaskeiðum í sögu þjóðar- innar, harðnaði á dalnum, búsmalinn féll, fólkið fór á vergang, hrundi oftlega niður. Það var ekki einsdæmi fyrr á tíð að talað var um árið þegar sumarið kom ekki. Ofan á veðurfarslegt harðæri bættust síðan drepsóttir, sem hjuggu stór skörð í þjóðina, svo lá við landauðn víða. Saga okkar, baksvið dagsins í dag, geymir fleira en litklæði og list á lúnum skinn- um. En það er nauðsynlegt að þekkja þessa sögu. í samansafnaðri reynslu kynslóðanna er grunnurinn að þekkingu samtíðar og framtíðar. Margt hefur breytzt Margt hefur breytzt í íslenzku sam- félagi í tíð tveggja, þriggja kynslóða. Segja má að þjóðin hafi á 50 til 75 árum horfið frá fátækt og fábreytni í atvinnu- háttum, sem svip settu á ísienzkt sam- félag frá landnámi, og haslað sér völl með velferðarríkjum. Sem dæmi um, hve gjörbreytt samfélagið er, má nefna, að 1901 bjuggu þrír af hverjum fjórum íslendingum í strjálbýli en einn í þétt- býli. Nú búa níu af hverjum tíu í þétt- býli, einn í strjálbýli. Samfélag okkar hefur gjörbreytzt á nær öllum sviðum. Þjóð, sem taldi 78.500 einstaklinga 1901, státar nú af milli 240—250.000 manns, sem ofan í kaupið hafa meiri líkur til langlífis en flestar þjóðir heims. Hver var sá töfrasproti sem breytti einhæfu fátæktarsamfélagi, efnahags- lega, í allsnægtaland? Hann var ofinn úr ýmsum þráðum. Við fengum heima- stjórn 1904, fullveldi 1918, lýðveldi 1944. Fullveldi þjóðarinnar og frelsi einstakl- inganna til framtaks eiga ríkan hlut að máli; samhliða fjármagnsmyndun í landinu, en fjármunir eru afl þeirra hluta sem gerðir eru. Aukin menntun og þekking þjóðarinnar vísaði veginn. Þyngst vó ör tækniþróun í atvinnu- greinum landsmanna, sem margfaldaði þjóðarframleiðslu á hvern vinnandi ein- stakling og þær þjóðartekjur, sem til skiptanna komu og ráða lífskjörum í raun, þegar grannt er gáð. Það er ekki hægt að semja um skipt- ingu verðmæta, sem ekki eru til. Þá slíkt hefur verið gert varð niðurstaðan smækkun gjaldmiðils okkar, þ.e. lækkað kaupgildi krónunnar, og verðbólga. Vördur viö veginn Á síðara helmingi 19. aldar var veð- urfar með eindæmum kalt með tilheyr- andi harðindum. Talið er að þá hafi milli 10 og 15 þúsund íslendingar flutzt til Ameríku. Árferði er enn misjafnt, þó tækniund- ur samtímans létti þjóðinni lífsbjarg- arróðurinn. Þegar harðnaði á dalnum, eins og gerðist á seinni hluta sjöunda áratugarins, vegna aflasamdráttar, m.a. hruns síldarstofnsins, og verðfalls út- fluttrar sjávarvöru, þá losnaði um land- ann, rétt eins og á tímum Ameríkufar- anna. Þeir vóru ófáir sem leituðu þá atvinnu og tímabundinnar búsetu er- lendis, einkum í Svíþjóð. Við tölum ógjarnan um þetta „útstreymi", né hliðstæður fyrr og síðar. Það er feimn- ismál. Það er engu að síður varða við veginn, sem verð er íhugunar. Tæknin gerði okkur kleift að nýta auðlindir láðs, þ.e. jarðargróður, og lag- ar, þ.e. fiskistofna, svo að segja til botns. Velmegun, sem þessari tækni fylgdi, blasir hvarvetna við. Nú eru fiskistofnar fullnýttir, sumir máske ofnýttir. Búvörur gera betur en að full- nægja innlendri eftirspurn. Þær stand- ast hinsvegar ekki verðsamkeppni við sams konar vöru erlendis. Verðbólgan hefur skellt dyrum á búvöruútflutning, nema með himinhárri meðgjöf, sem er skattþegum ofviða. Aflatakmarkanir og takmarkanir í framleiðslu búvöru setja svip á líðandi stund. Þjóðin er þar á vegi stödd sem blasa við þrjár vörður, þrír vegvísar, sem lesa verður rétt af: • Þjóðartekjur hafa skerzt þrjú ár í röð — 1982,1983 og 1984 — m.a vegna afla- samdráttar, verðþróunar erlendis og ekki sízt skuldastöðu þjóðarinnar út á við. • Kaupmáttur útflutningstekna hefur þrengzt af sömu ástæðum. Hið sama gildir um kaupmátt launa. Við getum deilt um launaskiptingu í landinu. Um hitt verður ekki deilt að skertar þjóðar- tekjur þýða óhjákvæmilega skertan kaupmátt launa, á heildina litið. • Samkvæmt mannfjöldaspám Áætl- anadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins getur mannfjöldi á íslandi árið 2003, þ.e. eftir 18 ár, orðið frá 276 til 290 þúsund, en er í dag rúmlega 240.000. Ef við eigum að tryggja áfram at- vinnuöryggi í landinu, samhliða því að ná sambærilegum „lífskjörum" og bezt þekkjast með ríkustu þjóðum heims, þ.e. fyrirbyggja „útstreymi" fólks úr landi, þurfum við ekki aðeins að fjölga störf- um um ca. 20—25 þúsund fram til alda- móta, heldur stórauka framleiðni, hag- vöxt og þjóðartekjur. Við þurfum fyrst og síðast að huga að arðsemi fjárfestingar þannig að hún skili sér í bættum kjörum en verði ekki baggi, jafnvel framtíðarbaggi, á samfé- laginu, eins og of oft hefur gerzt á sl. áratug og þessum. Þróunarfélag - nýsköpun í byrjun september 1984 gerðu stjórn- arflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, með sér samkomu- lag um aðgerðir í efnahags— og at- vinnumálum. Sérstakur kafli samkomu- lagsins fjallaði um nýsköpun í atvinnu- lífi og uppstokkun sjóðakerfis. Þar sagði m.a.: „Stofnað verði sérstakt fyrirtæki, þróunarfélag, ríkis, banka, almennings og aðila í atvinnurekstri til að greiða fyrir nýskipan í atvinnulífinu.“ MORGUNm.AÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1985 35 REYKJAVÍKURBRÉF laugardagur 11. maí Ríkisstjórnin hefur nú lagt fram „frumvarp til laga um þátttöku ríkisins í hlutafélagi til að örva nýsköpun í at- vinnulífi og um heimildir annarra aðila til þáttöku í félaginu", eins og segir í fyrirsögn þess. í greinargerð frumvarpsins segir m.a.: „Með frumvarpi þessu er aflað laga- heimildar til þess að ríkisstjórnin hafi forgöngu um og leggi fram hlutafé í hlutafélagi er hafi það markmið að örva nýsköpun í íslenzku atvinnulífi og efla arðsama atvinnustarfsemi. Þá miðar frumvarpið að því að greiða fyrir sem víðtækastri þátttöku annarra aðila í hlutafélaginu, annars vegar með því að lögfesta heimild til handa viðskipta- bönkum, vátryggingarfélögum, líftrygg- ingarfélögum og fjárfestingarlánasjóð- um til þess að gerast hluthafar í hluta- félaginu og hins vegar með því að heim- ila ríkisstjórninni að veita einstakling- um og félögum í atvinnurekstri lán til allt að fjögurra ára til kaupa á hluta- bréfum í umræddu hlutafélagi. Loks er með frumvarpinu veitt heimild til þess að ríkisstjórnin láni hlutafélaginu allt að 200 milljónir króna án sérstakrar tryggingar til 5—7 ára, verði eftir því leitað af félagsins hálfu eftir að það hef- ur starfsemi og/eða veita ríkisábyrgð fyrir láni eða lánum er hlutafélagið kynni að vilja taka til starfsemi sinnar að fjárhæð allt að 300 m.kr. eða jafn- virði þess í erlendri mynt. Láns- og ábyrgðarheimildin miðar að því að skapa hlutafélaginu aukna möguleika á að rækja hlutverk sitt“. Spor til réttrar áttar Framkvæmd fyrirætlana, hvort held- ur þær er festar í lög eða ekki, skiptir meira máli en bókstafurinn, þó orð séu til alls fyrst. Þessvegna er of snemmt að leggja dóm á þetta frumvarp, sem og hliðarfrumvörp um Byggðastofnun og Framkvæmdasjóð ríkisins. Þessi þrjú frumvörp eru engu að síður viðleitni, sem fagna ber. Er þess að vænta að Alþingi skoði þau vandlega og afgreiði í þeim búningi, sem bezt gagnast tilgang- inum. Við eigum ótvírætt ýmsa möguleika til að skjóta nýjum stoðum undir at- vinnu- og efnahag landsmanna og styrkja þær, sem fyrir eru. Menntun, þekking, rannsóknir og hátækni ýmiss konar, sem nú leiðir þróaðar þjóðir inn í framtíðina, vitna um spor til réttrar áttar. Arðsemi fjárfestingar verður að ráða ferð. Við höfum ekki efni á fjárfest- ingarmistökum, sem hrannazt hafa upp í erlendum skuldum og rýra þjóðartekj- ur og kjör í landinu; flytja ómælt fjár- magn úr landi. Það er og óhjákvæmilegt að virkja alla heilbrigða hvata, sem búa í einstaklingunum, til framtaks og áræðis, og lina á fjötrum miðstýringar í þjóðarbúskapnum. Atvinna og afkoma skipta miklu máli, bæði fyrir einstaklinga og þjóðarheild, og eru þungamiðja þessa bréfs. En mað- urinn lifir ekki á brauðinu einu saman. íslenzk þjóð á önnur verðmæti, sem meiru varða, tungu, sögu og land. Það er menningarleg arfleifð þjóðar- innar, sem við þurfum að varðveita, sem við verðum að þróa til framtíðar, þ.e. komandi kynslóða, er þyngst vegur. Þjóðin er hinsvegar betur í stakk búin til að þjóna því meginhlutverki ef hún tryggir efnahagslegt sjálfstæði sitt út á við og efnahagslegt sjálfstæði og af- komuöryggi þegna sinna inn á við. „Atvinna og af- koma skipta miklu máli, bæði fyrir ein- staklinga og þjóðarheild ... E n maðurinn lifír ekki á brauði einu saman. íslenzk þjóð á önnur verðmæti, sem meiru varða, tungu, sögu og land. Það er menningarleg arfíeifð þjóðar- innar, sem við þurfum að varðveita, sem við verðum að þróa til fram- tíðar, þ.e. kom- andi kynslóða, er þyngst veg- ur. Þjóðin er hinsvegar bet- ur í stakk búin til að þjóna því meginhlut- verki, ef hún tryggir efna- hagslegt sjálf- stæði sitt út á við og efna- hagslegt sjálfstæði og afkomuöryggi þegna sinna inn á við.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.