Morgunblaðið - 12.05.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAl 1985
59
Hjálpræðisherinn á íslandi 90 áræ
Samkomur og tónleikar
í tilefni afmælisins
f DAG, 12. maí, eru 90 ár liðin frá
því að Hjálpræðisherinn hélt sína
fyrstu samkomu hér á landi.
Hjálpræðisherinn hóf brátt
starf úti á landi, m.a. á ísafirði,
á Seyðisfirði, í Hafnarfirði, á
Siglufirði og á Akureyri. Auk
þess var um tíma starfað við
Fellsströnd undir handleiðslu
Matthíasar frá Orrahóli.
f dag er Hjálpræðisherinn
með starf í Reykjavík, á ísafirði,
Akureyri og á Seltjarnarnesi, en
fer oft á aðra staði til að halda
samkomur, m.a. á Siglufjörð þar
sem hann á samkomusal.
í tilefni af þessari 90 ára af-
mælishátíð komu margir gestir í
heimsókn. Samkomur og tónleik-
ar verða bæði á Akureyri og í
Reykjavík. Lúðrasveit kemur frá
Noregi og er það 30 manna
lúðrasveit Musterisins í Osló,
Templet Hornorkester. Þessi
lúðrasveit á sér langa sögu, því
hún hefur starfað frá árinu 1888.
Þó gömul sé eru flestir meðlimir
hennar ungir hermenn, og má
þar m.a. nefna hinn unga hljóm-
sveitarstjóra, Yngve Slettholm.
Hann er tónskáld og forseti i
„Foreningen Ny Musikk".
Meðlimir hennar leika ekki
eingöngu á blásturshljóðfæri, og
í lúðrasveitinni er konsertpían-
isti og söngfólk. Aðalritari
Hjálpræðishersins í Noregi,
Færeyjum og á fslandi, ofursti-
lautinant Einar Madsen, og kona
hans, Bergljót, verða aðalræðu-
menn á hátíðarsamkomunum.
Ofurstilautinant Guðfinna Jó-
hannesdóttir er heiðursgestur
hátíðarinnar, og mun hún
stjórna og prédika á samkomun-
um.
Á Akureyri verður haldin
söng- og hljómleikasamkoma f
Akureyrarkirkju þriðjudagirin
14. maí klukkan 21.00 og einnig
miðvikudaginn 15. maí klukkan
20.30. Útisamkoma og herganga
verður í miðbænum 15. maí
klukkan 16.00.
í Reykjavík verður fagnaðar-
samkoma f Neskirkju á upp-
stigningardag klukkan 20.30. Á
þjóðhátíðardegi Norðmanna, 17.
maí, verður 17. maf-hátíð f Nes-
kirkju klukkan 20.30. Hátiðin fer
fram á norsku og veitingar verða
í boði að lokinni hátfð.
Á laugardaginn 18. maí verður
sérstök söng- og hljómleika-
samkoma klukkan 20.00 i Fíla-
delfíu. Á sunnudaginn 19. maf
verður útvarpsguðsþjónusta i
Neskirkju klukkan 11.00 og há-
tíðarsamkoma klukkan 20.30.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, og biskupinn
yfir fslandi, herra Pétur Sigur-
geirsson, munu vera viðstödd
þessa hátiðarsamkomu ásamt
fleiri gestum. Verður það síðasta
samkoman f þessum hátíðar-
höldum.
Lúðrasveitin sem kemur frá
Noregi leikur á öllum samkom-
unum og einnig leikur hún
sunnudaginn 16. mai klukkan
16.00 á útisamkomu á Lækjar-
torgi og 17. maí við hátíðarhöld
Norðmanna f Fossvogskirkju-
garði og við Norræna húsið.
Sveinbjörn Þór við verk sín í Eden.
Sveinbjörn Þór
sýnir í Eden
HreragerAi, 8. nuí.
SVEINBJÖRN Þór Einarsson myndlistarmaður opnaði sýningu í Lista-
mannaskálanum í Eden í Hveragerði þ. 1. maí sl. og lýkur henni nú um
helgina og eru því síðustu forvöð að sjá hana. Á sýningunni eru 77 málverk
og eru öll til sölu, en 55 verk eru þegar seld.
Listamaðurinn bauð mér að
skoða sýninguna og bað ég hann
að gefa örlitlar upplýsingar um
sýninguna. Hann sagði svo frá:
„Þetta eru allt landslags-smá-
myndir, sem unnar eru með olíu-,
akril-, vatns- og tempeva-litum og
einnig eru á sýningunni nokkur
verk unnin með „air brush“- og
„flow prasil“-tækni, sem ekki hef-
ur sést á sýningu, svo vitað sé,
hérlendis frá því að Sverrir Har-
aldsson sýndi verk um 1952 í
Li8tamannaskálanum í Reykjavfk
máluð með sömu tækni, þó ekki
með „flow prasil", en þessi tækni
er mikið notuð samhliða annarri
tækni af bandarískum og evrópsk-
um myndlistarmönnum f dag.
En hvað viltu segja okkur um
sjálfan þig?
Foreldrar mínir eru Einar
Hjörleifsson og Helga Svein-
björnsdóttir frá Teigi í Fljótshlíð
og eru þau komin af miklum lista-
mannaættum úr Hrunamanna-
hreppi, má þar til nefna grein um
afkomendur Guðrúnar frá Tungu-
felli, sem góð skil voru gerð f
Morgunblaðinu fyrir skömmu. En
þar eru nefndir listamennirnir
Einar Jónsson frá Galtafelli, Ás-
grfmur Jónsson, Guðmundur
Thorsteinsson, Muggur, Jóhann
Briem, Eiríkur Smith og fl. og má
sjá að „sjaldan fellur eplið langt
frá eikinni“.
Ég stundaði nám í málaradeild
við Myndlistarskólann i Reykjavík
veturna 1963—67. Helstu kennar-
ar mínir voru þeir Hafsteinn
Austmann, Valtýr Pétursson,
Hringur Jóhannesson, Kjartan
Guðjónsson og síðar Sverrir Har-
aldsson í einkakennslu.
Mestu áhrif frá mínum kennur-
um voru frá Jóhanni Briem, sem
kenndi teikningu og myndbygg-
ingu við Gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar á námsárum mínum þar, og
Valtý Péturssyni, sem ég tel vera
frábæran kennara.
Einnig hef ég farið í námsferðir
til Englands og Ítalíu. Sfðastliðið
sumar fór ég til Italiu og Spánar
og kynnti mér liti og efni sem þar
eru notuð og er þessi sýning
árangur af þeirri reynslu sem ég
aflaði mér þar.
Ég hef síðastliðin tvö ár alveg
helgað mig myndlistinni og hyggst
reyna að gera það í framtfðinni.
Þessari sýningu hefur verið vel
tekið og virðist myndefnið falla í
góðan jarðveg hjá fólki. Seldar eru
55 myndir af 77 sem á sýningunni
eru, en henni lýkur sunnudaginn
12. maí.
Ég þakka gestum minum fyrir
komuna og mörg falleg orð sem
þeir hafa látið falla um þessi verk
mín.“
Þess má að lokum geta að
rammar og allur frágangur mynd-
anna er sérstaklega vandaður og
smekklegur, hefur þar ekkert ver-
ið til sparað.
fire$tonc
® S-211
5
!
D
r
i
i
k
Ol
|
ER FJÖLSKYLDA WN
„ GOÐRA
HJOLBARÐA VIRÐI ?
Firestone S-211 radial hjólbarðarmr eru framleiddir
undir ströngu gæðaeftirliti sem tryggir öryggi þitt
og fjölskyldu þinnar.
Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt
bæði á malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks
öryggi og þægindi í akstri, innanbæjar sem utan.
Firestone S-211 eru einu radial hjólbarðarnir sem eru
sérhannaðir jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki.
Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og
endist og endist . . .
Nýbýlavegj 2
Kópavogi
UMBOÐSMENN
UM LAND ALLT!
Sími 42600
JÖFUR HF.
Sigrún