Morgunblaðið - 12.05.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.05.1985, Blaðsíða 42
42 ' MORGITNBLADID, SUNNUDAGtJR 12. MA11985 JT I vinnustofu Sigrúnar Eldjárn Áhöld sem notuð eru við gerð messotintu. Fyrst er platan ýfð upp með þar til gerðu áhaldi klukkustundum saman SÁLDÞR YKK, KOPARSTUNGUR OG MESSOTINTA Sigrún Eldjárn opnadi fyrstu stóru einkasýningu sína í Listmunahúsinu um sl. helgi. Á sýningunni eru teikningar og þrjár gerðir grafíkmynda, sáldþrykk eda silkiþrykk í lit, koparstungu- myndir og svokölluð messo- tinta, en það er rúmlega 350 ára gömul grafíkaðferð, fundin upp 1624. Sigrún kynnti sér þessa grafíkaðferð sérstaklega er hún fór til framhaldsnáms í Póllandi að loknu námi í Myndlista- og handíðaskólanum. Við sótt- um Sigrúnu heim í sólbjartar stofur hennar á Laufásvegin- um er hún var að leggja síð- ustu bönd á undirbúning sýn- ingarinnar. »Jú, þetta er dálítið spenn- andi,“ svarar hún spurningu um hvort þetta sé ekki stór stund í lífi hennar um leið og hún hellir sjóðheitu kaffi í skemmtilega skakka hvfta kaffibolla, á þeim eru svartir blettir á víð og dreif, svona eins og fyrir tilviljun, og Sigrún segist hafa fengið þá í skiptum fyrir myndverk hjá stöllu sinni úr Langbrókum, Borghildi Óskarsdóttur. Hún bætir við að fleira sé á döfinni hjá sér, hún ætii að giftast nú- verandi sambýlismanni sínum Hjörleifi Stefánssyni arkitekt. Og hjónavígslan fór fram rétt fyrir opnun sýningarinnar og sá fulltrúi borgardómara um at- höfnina. „Það er ágætt að skella þessu öllu saman, við erum búin að búa saman í nokkur ár og ákváðum að fara að bæta úr þessu synduga líferni." Þið hafið ekkert verið að hugsa um kirkjubrúðkaup? „Nei, það er allt of mikið til- stand.“ Þau Sigrún og Hjörleifur eru bæði með vinnustofur i húsinu og eru því eflaust ein af fáum foreldrum sem þurfa ekki að aka með börn í gæslu fram og til baka og fara til vinnu eins og margir aðrir höfuðborgarbúar. Grímur sonur þeirra hefur því um tvær vinnustofur að velja ef hann vill heimsækja foreldra sína í vinnuna, en hann er á leikskóla fyrir hádegi og þann tíma nota foreldrar hans að von- um mest til vinnu. „Það kemur meira í minn hlut að vera með börnin eftir hádeg- ið, og við reynum því að nýta tímann fyrir hádegi vel, byrjum gjarnan upp úr átta. Mér finnnst mikill lúxus að fá að vinna við það sem ég hef mestan áhuga á, og mér hefur gengið þolanlega að lifa á þessu, hef selt grafík ágætlega, skrifað og mynd- skreytt nokkrar barnabækur sem ég hef fengið ágætlega borg- að fyrir og unnið við fleiri bóka- skreytingar. Það er þó ekki hátt ... og myndir fullgerð Morgunblaðið/Árni S»berv; kaup sem ég er með miðað við aðra, en ég lifi á þessu.“ Og hvað heita svo barnbæk- urnar sem hún hefur samið og myndskreytt? „Allt í plati, Eins og í sögu, Langafi drullumallar og Langafi prakkari.“ — Eru þetta einhverjar móralsögur? „Nei, það er ekkert alvarlegt i þeim, ég reyndi bara að semja skemmtilegar barnabækur. Börnin mín eiga hluta í sögu- þræðinum. Það var verið að biðja mig um daginn að skrifa bók fyrir unglinga, en þar sem ég á engin börn á þeim aldri, dóttir mín er 9 ára og sonur minn þriggja, þá treysti ég mér ekki til þess, ég þekki ekki nægi- lega mikið til þess hvernig krakkar á þessum aldri hugsa.“ Á miðju borðstofuborðinu bíða nokkrar grafíkmyndir innrömm- unar og á gólfinu eru innramm- aðar stórar teikningar. „Á sýningunni verða annars vegar teikningar og hinsvegar grafíkmyndir unnar með mis- munandi aðferðum. Hér eru t.d. nokkrar koparstungumyndir, aðrar unnar með sáldþrykki eða silkiþrykki og enn aðrar með messotintu." — Hvernig er messotinta unnin? „Þetta er frekar seinleg að- ferð. Notuð er koparplata sem er ýfð upp með þar til gerðu áhaldi, þetta tekur langan tlma, líklega heilan vinnudag ef setið er við, en þetta er þó ekkert leiðinlegt, ég nota tímann til að hugsa um hvernig myndin á plötunni á að vera. Mér finnst þó lang- skemmtilegast að teikna, sér- staklega þessar stóru myndir eins og þær sem bíða hér inn- rammaðar á gólfinu." — Þú ert núbúin að fá starfs- laun rithöfunda? „Já, Þegar ég er búin að koma þessari sýningu frá mér ætla ég að semja nýja barnabók og myndskreyta hana með litmynd- um. Hingað til hef ég bara notað einn lit í myndskreytingarnar, og þarf því helst að geta gefið bækurnar út í nokkrum löndum til að fá fyrir útgáfukostnaði." VJ ... þá er borin sverta á plötuna og skafið af henni þar sem fletirnir eiga að vera hvftir ... ... myndinni á koparplöt- unni þrykkt á pappír ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.