Morgunblaðið - 12.05.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.05.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1985 Karlakórinn Þrestir ásamt stjórnanda og undirleikara. Karlakórinn Þrestir með samsöng KARLAKÓRINN Þrestir f Hafn- arfirði heldur sína irlegu vor- samsöngva fyrir styrktarfélaga og aðra velunnara á miðvikudag, 15. maí, kl. 20. 30, á fostudag, 17. maí, kl. 20.30 og á laugardag, 18. maí, Id. 16. Sungið verður í Hafn- aríjarðarbíói. Á efnisskrá kórsins verða lög úr ýmsum áttum, bæði innlend og erlend. Karlakórinn Þrestir er elsti starfandi karlakór landsins, var stofnaður 1912. Söngmenn kórsins eru 45. Friðbjörn G. Jónsson, tenórsöngvari, syngur einsöng. Stjórnandi Þrasta er John Speight og undirleikari Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir. Atvinnuástand batnaði verulega í aprílmánuði í APRÍLMÁNUÐI sl. voru skráðir rösklega 18 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu öllu. Þetta jafngildir þvf að 850 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá allan mánuðinn, eða sem svarar 0,7 % af áætluðum mannafla á vinnumarkaði samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. Samkvæmt þessu hefur at- vinnuástandið breyst mjög til betri vegar frá fyrri mánuði, en skráðir atvinnuleysisdagar voru nú 28 þúsundum færri en í mars- mánuði og meðaltal atvinnulausra lækkaði um 1300 manns milli mánuða. Skráðir atvinnuleysis- dagar i marsmánuði sl. voru alls 46 þúsund, enda gætti þá áhrifa verkfalls sjómanna, auk staðbund- inna vandamála á einstökum stöð- um. Auk þess sem skráðum at- vinnuleysisdögum hefur fækkað frá fyrri mánuði eru þeir nú um 7 þúsund dögum færri en i sama mánuði í fyrra og 3 þúsund færri en í aprílmánuði árið 1983. Er það svipuð þróun og í öðrum mánuðum þessa árs, að marsmánuði undan- skildum, en aukningu atvinnuleys- isins þá verður fyrst og fremst að rekja til verkfalls sjómanna eins og áður er getið. Á þeim stöðum sem átt hafa við erfitt vandamálaástand að búa undanfarið gætti verulegs bata i aprílmánuði, s.s. í Hafnarfirði, Akranesi, Akureyri og Keflavík, en miðað við skráningu síðasta virkan dag aprílmánaðar virðist atvinnuástand á þessum stöðum hafa breyst mjög til batnaðar. Víða um land gætir verulegrar eftirspurnar eftir vinnuafli sem væntanlega verður fullnægt með þeim sem koma á vinnumarkað næstu vikur þegar skólum lýkur, en á þessum árstíma má gera ráð fyrir að mannafli á vinnumarkaði aukist um 10 þúsund manns að meðaltali. Jean Roche ■ Einn hæsti fáanlegur gæöaflokkur stíl- húsgagna á heims- markaönum. húsgögn Ármúla 44 — Símar65153 og 32035 Nýr sendiherra Bandaríkjanna á íslandi NÝR sendiherra Bandaríkjanna á ís- landi tekur væntanlega við starfí hér ó hausti komanda. Þá mun núverandi sendiherra, Marshall Brement, halda beim eftir fjögurra ára dvöl. Geir Hallgrímsson utanrlkisráð- herra staðfesti í samtali við Mbl. að utanríkisráðuneytið f Washington hefði ðskað eftir því að ráðuneyti sitt viðurkenndi formlega nýjan sendiherra hér, eins og venja er með mál af þessu tagi. Marshall Brement mun verða pró- fessor við háskóla vestra fljótlega eftir heimkomuna. Ekki er vitað með vissu hvern Bandarikjastjórn hyggst gera að sendiherra sínum á íslandi í stað Brements. Ágúst Guðmunds- son fær Bröste- verðlaunin ÁGÚSTI Guðmundssyni, kvik- myndagerðarmanni, hafa verið veitt bjartsýnisverðlaun Bröste fyrir árið 1985. Verðlaunin, 25 þúsund dansk- ar krónur, verða afhent í Kaupman- nahöfn þann 11. júní næstkomandi. Ágústi eru veitt verðlaunin fyrir myndína Land og synir. I greinagerð með verðlaununum segir meðal annars: „íslendingar hafa ávallt verið bókaþjóð — allt frá Snorra Sturlusyni til Halldórs Laxness. önnur list hins vegar, — myndlist, tónlist og leiklist — náði ekki að festa rætur á íslandi fyrr en á þessari öld og kvikmyndagerð er nú fyrst að skjóta rótum, full lífsgleði og krafti — bjartsýnin er aðalsmerki hennar."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.