Morgunblaðið - 12.05.1985, Blaðsíða 1
112SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
106. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sakharov úr
akademíunni?
Waahington, 11. mní. AP.
EDWARD Lozansky, frarakvsmda-
stjórí Andrei Sakharov-stofnunarinn-
ar í Washington, sagði í dag að Sakh-
arov væri álitinn hafa sagt sig úr sov-
ézku vísindaakademíunni. Með því
vildi Sakharov mótmæla synjun yfir-
valda um leyfi fyrir konu sína til að
leita sér lækninga utan Sovétríkj-
anna.
Lozansky sagði „mjög öruggar
heimildir" hafa sagt fyrir þremur
vikum að Sakharov segði sig úr
akademíunni 10. maí ef ekkert
hefði verið aðhafst í máli konu
hans, Yelenu Bonner. Lozansky
segir frú Bonner þurfa að gangast
undir hjartaaðgerð.
„Sakharov er maður orða sinna,"
sagði Lozansky og kvað engan efa á
því að Sakharov hefði sagt sig úr
sovézku vísindaakademíunni.
Kvaðst hann ekki geta staðfest það
og sömu sögu er að segja úr
bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Úrsögn úr sovézku vísindaaka-
demíunni hefur ekki átt sér stað í
260 ára sögu hennar. Akademían
nýtur mikillar virðingar heima
fyrir og úrsögn Sakharovs því mik-
il hneisa fyrir yfirvöld. Orðrómur
hefur verið á kreiki þess efnis að
Sakharov yrði tafarlaust rekinn úr
landi við úrsögn úr akademíunni.
Kosið í Rhein-
Westfalen
Bonn, 11. mai. AP.
Kristilegir demókratar, flokkur
Helmuts Kohl kanzlara, vonast til
að Bitburg-heimsókn Kohls og Ron-
alds Reagan, forseta Bandaríkjanna,
verði flokknum til framdráttar í kosn-
ingum til ríkisþings Rhein-Westfal-
en.
Rhein-Westfalen er fjölmenn-
asta ríki sambandslýðveldisins og
kosið verður til ríkisþingsins, sem
hefur aðsetur í Dusseldorf, á
sunnudag. Bitburg-heimsóknin
lífgaði upp á kosningabaráttuna,
sem verið hafði tilþrifalaus.
Talið var nær öruggt að Johann-
es Rau forsætisráðherra næði
endurkjöri. Hann er fulltrúi Jafn-
aðarflokksins, en frambjóðandi
Kristilegra demókrata er Bern-
hard Worms.
Fyrsta af þremur bryggjum fyrir sportbáta hefur verið tekin í notkun við Elliðaárvog. Morgunbiaðið/Ol.K.M.
Öryggisráðið ræddi viðskiptabannið á Nicaragua:
Páfi í Hollandi:
Hollenskir
kaþólikkar
mega ekki
fjarlægjast
kirkjuna
VeldboreD, Hollandi, 11. mai. AP.
JÓHANNES Páll páfi kom í dag í
opinbera heimsókn til Hollands,
hina fyrstu sem páfi kemur í til þess
lands. Adrianus Simonis, kaþólski
biskupinn yfir Hollandi, og Hans
Van Den Broeck, forsætisráðherra
landsins, tóku á móti páfa, sem
sagði við komuna, að hinir frjáls-
lyndu kaþólikkar Hollands mættu
alls ekki fjarlægjast kirkjuna um of.
Heimsókn páfa til Hollands hef-
ur verið umdeild, því kaþólikkar í
landinu fara sínar leiðir í mörgum
málum, ekki síst „fjölskyldumál-
um“, en þar þykir páfi íhaldssam-
ur. Hafa hollenskir kaþólikkar
margir spaugað með heimsóknina
og auk þess hafa nokkrar morð-
hótanir borist. öryggisgæsla er
mikil, einhver hin mesta í sögu
Hollands. Á næstu dögum mun
páfi einnig heimsækja Belgíu og
Lúxemborg.
Síkhar auka
fólskuverkin
Ddhi, II. mal. AP.
Á SJÓTTA hundrað meintra öfga-
manna síkha voru handteknir í dag í
tengslum við hryðjuverk, sem kostað
hafa a.m.k. 73 menn lífið í höfuð-
borg Indlands og nágrannabæjum
síðustu daga.
Bandaríski fulltrúinn sam-
og neitaði á
SomeiooAu þjóðunum, 11. maf. AP.
BANDARIKIN beittu neitunarvaldi þrívegis á fundi öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna í dag, til þess að koma í veg fyrir að ráðið samþykkti þrjá liði í 16
liða tillögu þar sem viðskiptabann Bandaríkjanna við Nicaragua er gagnrýnt
og þeir hvattir til að aflétta því þegar í stað.
Eftir að hafa stöðvað framgang
umræddra liða tillögunnar
greiddu Bandaríkin atkvæði með 8
liðum hennar en sátu hjá fimm
sinnum. Síðasti liðurinn var sam-
þykktur einróma af öllum 15 að-
ildarþjóðum öryggisráðsins, þar
var samþykkt að leita með öllum
leiðum að friðsamlegri lausn á
vanda Mið-Ameriku, hvetja
Contadora-ríkin til að halda
áfram friðarþreifingum sínum og
hvetja „öll ríki“ til þess að hafa
alls ekki í frammi aðgerðir, efna-
hagslegar, hernaðarlegar eða
stjórnmálalegar, sem gætu tor-
veldað friðsamlegar lausnir á
þessum slóðum.
Fulltrúi Bandaríkjanna, Jose
Sorzano, kom mjög á óvart með
þessari málsmeðferð og gerði
nokkra lukku meðal margra full-
trúa ráðsins, meðal annars þess
franska, sem sagði Bandarikin þar
hafa sýnt víðsýni og virkilegan
vilja til að tryggja farsæla lausn
án þess þó að ganga í berhögg við
sannfæringu sína. Sorzano sagði
að með þessum hætti vildu Banda-
ríkin að það kæmi skýrt fram að
þau væru ekki á öndverðum meiði
við Nicaraguastjórn í einu og öllu.
Sá kafli tillögunnar sem mestu
skipti fyrir Bandaríkjamenn
hljóðaði á þá leið, að öryggisráðið
„harmaði viðskiptabannið og aðr-
ar efnahagsþvinganir sem brytu í
bága við alþjóðareglur um að
þjóðir ættu ekki að reyna að hafa
áhrif á innanrikismál annarra
þjóða með slíkum hætti“. Ellefu
aðildarþjóðir ráðsins voru sam-
þykkar tillögu um að Bandaríkin
yrðu hvött til að aflétta hömlum
sínum og þvingunum á Nicaragua.
Tillagan náði þó ekki fram að
ganga, því Bretland, Thailand og
Egyptaland sátu hjá í atkvæða-
greiðslu.
Indlandsher hefur tekið sér
stöðu í borgarhverfum, þar sem
hætta var talin á að út brytust
átök síkha og hindúa. Gerðar hafa
verið ýmsar varúðarráðstafanir til
að hindra átök.
Á annan tug sprengna sprakk í
gærkvöldi í Delhí og nágranna-
ríkjunum Haryana og Uttar Pra-
desh. Hafa sikhar látið til skarar
skriða i járnbrautum og strætis-
vögnum. Tímasprengjur hafa
venjulegast verið faldar i litlum
útvarpstækjum.
Alls fórust 40 manns í gær og
nótt í þessum aögerðum síkha í
höfuðborginni. Er það mesta
manntjón í aðgerðum af þessu
tagi frá því síkhar hófu baráttu
fyrir sjálfsforræði. Barátta þeirra
hefur einkennst af miklu ofbeldi.
Hafa aðgerðir þeirra hingað til
takmarkast við ríkið Punjab, þar
sem síkhar eru fjölmennir, en nú
eru þeir farnir að færa sig upp á
skaftið.