Morgunblaðið - 31.05.1985, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 31.05.1985, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 120. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaósins Þjóðín er ekki agndofa heldur lömuð af skömm — sagði Thatcher, forsætisráðherra Breta, um harmleikinn í Brussel Hörmuleg endalok Belgískir slökkviliðsmenn bera á brott ungan mann sem beið bana á HeyseMeikvanginum í Brussel í fyrrakvöld. 37 menn aðrir létu lífið í óeirðunum sem urðu fyrir leik Liverpool og Juv- entus og 375 slösuðust. Þar af eru 100 enn á sjúkrahúsi. Bresk knattspyrnulið í leikbann í Evrópu? Londoa, Bruwel og Titer, 30. ui AP. FÓLK um Evrópu alla harmaði í dag atburðinn á knattspyrnuleikvanginum í Brussel í gcr og fordemdi bresku ofbeldisseggina, sem með framferði sínu ollu því, að 38 manns týndu lífi og 375 slösuðusL Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, sagði, að ihangendur Liverpool-liðsins hefðu orðið þjóð sinni til þeirrar skammar, að seint fyrntist yfir, og talsmaður belgísku ríkisstjórnarinnar tilkynnti, að ikveðið hefði verið að banna breskum knatt- spyrnuliðum að leika í landinu. Er búist við, að fleiri muni fara að hennar daemL Margaret Thatcher, forsætis- ráðherra Breta, sagði i dag, að óaldarlýðurinn, sem valdið hefði hörmungunum í Brussel, hefði sér ekkert til málsbóta. „Breska þjóðin er ekki aðeins agndofa, heldur beinlínis lömuð af skömm og hneisu. Élg vil, að þeir, sem áttu upptökin að óeirðunum, verði dregnir fyrir rétt og dæmdir til þyngstu refsingar," sagði hún. í breskum blöðum kemur það fram, að Bretar geti sjálfum sér um kennt ef breskum knattspyrnu- liðum verður bannað að leika utan heimalandsins. Andre Collard, talsmaður belg- ísku ríkisstjórnarinnar, skýrði frá því i dag, að ákveðið hefði verið að banna breskum knattspyrnuliðum að leika í landinu og að það yrði tilkynnt formlega eftir ríkisstjórn- arfund á morgun. Jacques Georg- es, formaður UEFA, Knattspyrnu- sambands Evrópu, sem 34 þjóðir eiga aðild að, gaf einnig í skyn, að á stjórnarfundi sambandsins 2. júlí nk. myndi hann leggja til, að breskum knattspyrnuliðum yrði bannað að leika um gervalla Evr- ópu og er búist við, að slíkt bann standi í þrjú ár. Tuttugu og sex þeirra 38 manna, sem létust á leikvanginum í Bruss- el, voru ítalskir og ríkir nú í landi þeirra mikil sorg og mikil reiði í garð Breta. Hafa stjórnvöld fyrir- skipað opinbera rannsókn á at- burðinum með það fyrir augum að sækja upphafsmennina til saka fyrir morð. Um alla Evrópu eru menn sammála um, að atburður- inn í Brussel marki þáttaskil í sögu knattspyrnunnar, sem á stundum hefur verið nokkuð blóð- ug. Nú sé mælirinn fullur og að grípa verði til ráða, sem dugi til að koma í veg fyrir, að svona atburð- ur endurtaki sig og til að bjarga framtíð knattspyrnunnar sem íþróttar. Sjá aórar fréttir i bls. 23 og 24, 54 og 55 og forystugrein í mióopnu. Beirút: Ægilegt ástand í flóttamannabúðum AP/Símamynd Assad, SýrlandsforsetL tók Gemayel, Líbanonforseta, tveimur höndum þegar hann kom til Damaskus. Gemayel slapp í fyrradag naumlega úr forsetahöllinni í Beirút en þi rigndi yfir hana sprengikúlum fri einhverjum þeirra sem nú berast i banaspjót í borginni. Beirút, 30. nuú. AP. GRIMMILEGIR bardagar geisuðu enn í dag í Beirút og létu hermenn shíta sprengikúlunum rigna yfir fióttamannabúðir Palestínumanna í Réttarhöldin í Róm: Stoðum rennt undir samsæriskenningu Kom, 30. mai. AP. —* RÉTTARHÖLDUNUM vegna bana tilræðisins við Jóhannes Pil pifa fyrir fjórum árum var haldið ifram í dag í Róm og spurði þi saksóknarinn m.a. einn tyrknesku sakborninganna hvað hann og Agca, sem reyndi að riða pifa af dögum, hefðu verið að gera samtímis í Búlgaríu. Omar Bagci, sem ásamt þremur Búlgörum og fjórum Tyrkjum er sakaður um að hafa tekið þátt í samsæri um að myrða páfa, hélt því fram, að hann hefði aðeins ver- ið í Búlgaríu í nokkra klukkutíma en saksóknarinn, Antonio Marini, lagði fram vegabréf Bagcis, sem sýndi, að hann hefði verið í land- inu í a.m.k. sólarhring í ágústlok árið 1980. Hann vakti einnig at- hygli á því, að þeir Agca hefðu ver- ið á sama stað á þessum tíma. Marini spurði Bagci einnig nán- ar um byssuna, sem notuð var við tilræðið, en hann hefur viðurkennt að hafa farið með hana frá Sviss til Mílanó á Ítalíu þar sem hann afhenti Agca hana fjórum dögum áður en hann beindi henni gegn páfa. Marini saksóknari sagði i dag, að vitnisburður Bagcis varpaði nýju ljósi á málið og sýndi, að treysta mætti framburði tilræð- ismannsins, Mehmet Ali Agca. borginni. Gemayel, Líbanonsforseti, I og Assad, forseti Sýrlands, ræddust í dag við í Damaskus um leiðir til að koma i vopnahléi og hvernig unnt er j að koma í veg fyrir, að Líbanonsríki liðist alveg í sundur. Shítar héldu í dag uppi látlausri stórskotahríð á palestínsku flótta- mannabúðirnar í Beirút og beittu fallbyssum, sprengjuvörpum og skriðdrekum. Astandið í búðunum er óskaplegt. Hluti þeirra er ein rjúkandi rúst en menn, konur og börn hafast við í húsakjöllurum innan um hundruð særðra manna og deyjandi. Ekki er um neina læknishjálp að ræða og hafa shítar meinað Rauða kross-fólki að fara inn í búðirnar. Þeir forsetarnir, Gemayel og Assad, Sýrlandsforseti, hafa ræðst við í allan dag en ekki var vitað um árangur af viðræðum þeirra. Orð- rómur var þó um, að Gemayel myndi biðja Sýrlandsforseta að stilla til friðar í landinu en í líb- anska ríkisútvarpinu sagði, að þeir hefðu verið sammála um, að „Líb- anon væri líkt og tímasprengja, sem koma yrði í veg fyrir að spryngi og kæfði landið í blóði“. w Arás á Kharg-eyju? BafdaA. Irak, 30. maí. AP. ÍRASKA herstjórnin tilkvnnti í dag, að herþotur hennar hefðu rið- ist á olíuútflutningshöfn írana i Kharg-eyju og að mörg mannvirki þar stæðu nú í Ijósum logum. Á eyjunni er mesta oliuút- flutningshöfn Irana og ef rétt reynist að Irakar hafi ráðist á hana, er styrjöld þjóðanna kom- in á nýtt og alvarlegra stig. Á olíunni hvílir efnahagur Irana að miklu leyti og án hennar biði þeirra ekkert nema gjaldþrot. Fyrir ári kváðust trakar hafa gert árás á Kharg-eyju en tranir báru á móti því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.