Morgunblaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, POSTUDAGUR 31. MAÍ 1985 39 Kæru ráðamenn: Er ekki tilveran dásamleg? — eftir Þórð Kristinsson Longum hafa menn verið sam- mála um þann tilgang samfélags að létta þegnum lífsbaráttuna og að í slíku félagi sé einnig leitast við að auka yndi lífsins. Hugtakið lífsbarátta merkir það eitt að komast af í veröldinni; hafa í sig og á og skjól veðra og vinda. Yndi lífsins er það almennt sem menn eiga kost á er þeir hafa undirtökin í lífsbaráttunni; t.a.m. hverskyns skemmtan og menningarviðleitni. Það er nú allt og sumt og ekki langsótt. í samfélagi sem ber nafn með rentu er því fyrsta áherslan sú að fullnægja þessum þremur for- sendum mannlífs — fæði, klæðum og húsaskjóli, þ.e.a.s. menn leggja sig í líma við að búa svo um að mannlífið snúist alls ekki einvörð- ungu um öflun þessara gagna, heldur eru þau gerð sem aðgengi- legust og auðfengnust. í það leggja menn metnað sinn og vit. í slíku samfélagi þykir t.a.m. ekkert til- tökumál að félagsmenn sjái lífs- viðurværi sínu borgið af dag- vinnulaunum einum saman og eigi afgang til yndisauka — i senn tíma, orku og lausa aura. Þar þyk- ir sú þversögn ekki dyggð, að slíta sér út til að mega vera til. Enda ræðst gróska garðsins af aðhlynn- ingunni. Og í þessu samfélagi siðaðra manna sitja þeir ekki og biða eftir vandamálum sem koma þeim í opna skjöldu er þau birtast og bregðast við með máttlitlu klóri í bakkann — yfirklóri sem gerir illt verra — nei, þeim er kunnugt um það að vandamál verða ekki til af Þórður Kri.stins.son „Töfrasprotar og upp- hrópanir eru þeim fram- andi stjórntæki á vett- vangi dagsins — aðferð þeirra er sú að hugsa áður en þeir tala, þ.e.a.s., þeir leita leiða til nýbreytni áður en þeir ráðast í hana, taka áttir áður en þeir stíga út í óvissuna.“ engu, heldur má yfirleitt sjá þau fyrir. Þess vegna einbeita þeir sér að þvi að leita þau uppi áður en þau ná að dafna — og kæfa þau í fæðingu — eða láta þau aldrei verða til. Þeir hugsa semsé sífellt fram í tímann um það eitt að fryKffla að mannlífið megi vera sem léttbærast fyrir hvern og einn, með þá vitneskju að leiðar- Ijósi að ekki dugir í nútíðinni að vera vitur eftir á. Það nægir nefnilega ekki. Þeir skilja semsé tilgang samfélagsins — enda auð- skilinn. Töfrasprotar og upphróp- anir eru þeim framandi stjórn- tæki á vettvangi dagsins — aðferð þeirra er sú að hugsa áður en þeir tala, þ.e.a.s., þeir leita leiða til nýbreytni áður en þeir ráðast í hana, taka áttir áður en þeir stíga út í óvissuna. Og þeir búa sig und- ir hið óvænta: Þeir eru menntaðir menn sem vita hvað menntun er og til hvers. Þeim er sem sé tam- ara að spyrja til hvers? — fyrir- fram, en af hverju? — eftir á. Enda kemur þeim fátt á óvart. Siðaðir menn hafa það að reglu að vera vandir að virðingu sinni: Lífið og samfélagið er þeim fjár- sjóður sem framar öllu ber að vernda og varðveita; valdi þeir hinsvegar ekki því verki er þeim fundið annað sem betur hæfir þeim — því þeir vita sem er að sé ekki að gætt kann samfélagið að liðast í sundur og týnast. Og með því að ekki má mikið út af bregða gera þeir skarpan mun á orðum og verkum; segja einungis það sem þeir eru menn til að standa við. Tilvera samfélags þeirra ræðast af því. Höfundur er prótstjóri rið Hóskólu íslands. 190 AR — eftir Árna Helgason Hjálpræðisherinn hefir flutt okkur landsmönnum boðskap Jesú Krists í 90 ár. Hve mörgum fræ- kornum hann hefir sáð í sálir landsmanna þeim til blessunar og vegvísis verður ekki sagt og í sjálfu sér skiftir það ekki öllu máli, heldur hitt hversu herinn hefir alltaf sótt á brattann og aldrei hikað. Fundið gleði í því að beina fólki á hollar brautir. Fyrir það vil ég þakka og biðja þess af heilum hug að starf hans megi um langan aldur færa blessun yfir okkar góða land og eina mörgum að friðar- og fagnaðarstóli Jesú Krists. f því róti sem nú er í þjóð- lífi voru, þar sem allskonar óhreinir og afvegaleiðandi vindar blása, er mikil þörf fyrir starf Hjálpræðishersins og það finna þeir sem þar eru í forystu og sjá stóran mannlífsakur að erja á. Ég vil á þessum tímamótum færa mínar þakkir og blessunar- óskir. í æsku minni var starf Hjálpræðishersins á Austfjörðum í mikilli grósku. Tvær stöðvar hans voru á Norðfirði og Seyðis- firði, þar sem hann átti góða að- stöðu og einnig mikinn skilning. Á Eskifjörð komu hermennirnir með lúðra sína, söng og boðskap og við æskuna töluðu þeir á máli sem hún skildi og því var alltaf mikil sókn á barnasamkomurnar og það notaði ég mér vel og eins vinir mínir, og þegar þeir fóru fundum við oft tómarúm. Svo komu þeir aftur og þráður- inn var tekinn upp á ný. Þessar stundir eru letraðar ljósum stöf- um í hugarheimi mínum. Á þess- um árum var Lúðrafélag Eski- fjarðar stofnað. Fyrsti leiðbein- andi var forstöðumaðurinn á Norðfirði. Já, það eru góðar minningar um starf Hjálpræðishersins. Og enn heldur hann áfram, trúr sinni köllun að flytja landsmönnum ómengaðan boðskap Jesú Krists, beina þeim að lindum lífsins. Gleðin yfir hverjum unnum sigri gefur kraftinn. Og enginn friður er varanlegri en sá sem Kristur veitir. þetta hafa allar aldir sannreynt. Það eru því sérstök forréttindi að fá að vera í baráttusveit Krists fyrir bættu mannlífi. Kærar kveðjur. Ilötundur er fyrrrenndi póst- og símstjóri í Stykkishólmi. Atvinnuleys- ingjum fækkar innan EB Lúlemborg, 29. nui. AP. Atvinnuleysingjum í aðildar ríkjum Kvrópubandalagsins fækkaði um 370 þúsund á tímabilinu mars- aprfl á þessu ári. Eru þeir nú 12,6 milljónir að tölu. Hlutfallslega eru flestir atvinnu- leysingjar í Irska lýðveldinu. Eru þeir 17,6 prósent af vinnandi mönn- um þar í landi. Á síðasta ári fjölgaði atvinnu- lausum verulega á Italíu og í Lúx- emborg, og lítillega í Irska lýð- veldinu, Þýskalandi, Bretlandi og Frakklandi, en fækkaði aftur á móti í Hollandi, Danmörku og Belgíu. Okkar verð eru Allt á útigrillið Grill- pinnar Grill- kótilettur Kryddlegnar lærisneiöar Kótilettur Pylsur Ham- borgarar Kryddleginn framhryggur Nautasteikur í úrvali ) Vörumarkaðurinnhf. Armúla 1 A S.: 686111 Eiöistorgi 11 S.: 622200 AF STAÐ! li er ótrúle irgi i þ ar er í séi ga fjö Fiokki. Hjá Bílato þjónustan Þú kemur og ... • skoðar bílana inni í björtu og rúmgóðu húsnæði, • ræðir við sölumenn okkar • og ef þú vinnur rétta bílinn, þá sjáum við um að láta skoða hann og umskrá, en það er nýjung í þjónustu bílasala sem sparar þér umtalsverða fyrirhöfn ... Nú er bara að drífa sig af staðí úrval góðra bíla og „ Neóst í Nóatúni eru viðskiptavinir okkar efstir á blaði. “ BILATORG NÓATÚNI 2 ■ SÍMI: 621033 (4 línur)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.