Morgunblaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985
43
Kristján Sveinsson — Minning
gæti nærst eitthvað, og hann var
að til miðnættis. Góður vinur lýsti
því þegar Kristján kom í augn-
lækningaferð til Patreksfjarðar
fyrir allmörgum árum. Hann
hafði þá komið þar í augnlækn-
ingaferðir í tæp 20 ár, en aldrei
unnist tími til að skoða Látra-
bjarg. Læknirinn taldi þetta með
öllu ótækt, en Kristján tók því
víðsfjarri að þet.ta væri hægt.
Blessað fólkið væri farið að bíða.
Þessi vinur minn sýndi það hug-
rekki að fara ekki að vilja
Kristjáns (þeir sem þekktu hann
vel vissu að hann gat orðið skap-
ríkur), en vék sér svo lítið bar á
fram á biðstofuna, hvíslaði í eyru
fólksins að sig langaði til að sýna
Kristjáni Látrabjarg og bað það
að heilsa upp a kunningja í pláss-
inu og koma aftur síðar um dag-
inn. Þannig náði Kristján að sjá
Látrabjarg!
Eftir að Kristján var orðinn
heilsutæpur hin síðustu ár gerði
ég stundum tilraunir til að fá
hann til að taka sér hvíld frá
vinnu og einu sinni gerðist ég svo
bjartsýnn að stinga upp á að hann
tæki sér viku sumarfrí. Slíkum til-
mælum svaraði Kristján með
kankvíslegu brosi, klappaði mér á
öxlina og sagði: „Þú læknar þetta
elsku drengurinn" og skipti síðan
um umræðuefni.
Það væri lengi hægt að segja
sögur af Kristjáni Sveinssyni. All-
ar eru þær á einn veg, lýsa ein-
stökum öðlingi. Hann krafðist
mikils fyrir aðra, einskis fyrir
sjálfan sig. Það er hluti af lífs-
hamingju að geta sagt: Ég þekkti
Kristján Sveinsson.
Deila menn um mál að vonum,
en mætur er sá, þegar lýkur hildi,
og allir muna eftir honum,
sem átti’ei flekk á sínum skildi.
Lifi æ hjá landsins sonum
læknanafnið hans: hinn mildi.
(S.S.)
Tryggvi Ásmundsson
Það var hinn 20. febrúar 1975,
sem borgarstjórn Reykjavíkur
kaus einróma Kristján Sveinsson,
lækni, heiðursborgara Reykjavík-
ur og var þá aðeins sr. Bjarni
Jónsson, vígslubiskup, sem bar
þann heiðurstitil.
Það var ekki að ástæðulausu að
svo var. Kristján hafði þá gegnt
læknisstarfi í yfir 40 ár við fá-
dæma vinsældir og öllum var ljóst
að þar fór sérstakur mannkosta-
maður, sem Reykjavíkurborg var
heiður í að bæri þennan titil.
Kristján var fæddur 8. febrúar
1900 og voru foreldrar hans sr.
Sveinn Guðmundsson, prestur í
Árnesi á Ströndum, og kona hans,
Ingibjörg Jónasdóttir. Er öllum
ljóst sem til þekktu, að hann erfði
mannkosti þeirra hjóna. Yfirveg-
un og lærdómsþorsta föður síns og
kraft og dugnað móður sinnar.
Þessa arfleifð ávaxtaði Kristján
með þeim ágætum að störf hans
og lífsferill varð svo mörgum sam-
borgurum hans til gæfu.
Hann lauk læknisnámi við Há-
skóla íslands 1927 og framhalds-
námi í augnlækningum í Vín 1932.
Það var ekki heiglum hent að
ljúka svo glæsilegum námsferli á
þeim tímum, en Kristján kom svo
heim og hóf starf í Reykjavík
1932.
Hófst þá hinn stórbrotni lækn-
isferill hans. Þar fór saman frá-
bær kunnátta i augnlækningum og
einstök manngæði, sem hvort
tveggja þarf til að ná svo glæstum
árangri.
Síðan hafa tugþúsundir Islend-
inga notið árangurs þessa heið-
ursmanns. Þar var veitt frábær
þjónusta af kunnáttu og kost-
gæfni, oftast án þess að hugsa ná-
ið um það, hvort gjald kæmi fyrir.
Vinnudagurinn varð því oft lang-
ur, því alltaf var öllum sjúklingum
veitt þjónusta, þó að kvöld væri
komið.
Augnsjúkdómar hafa verið sér-
staklega tíðir hér á landi og blinda
var algengari hér en tíðkaðist í
nágrannalöndum. Það var því
ómetanlegt að svo snemma skyldu
koma hingað heim frá framhalds-
námi mjög hæfir augnlæknar,
með Kristján Sveinsson í broddi
fylkingar, sem sneru vörn í sókn
og björguðu sjón fjölmargra ís-
lendinga.
í endurminningabók Kristjáns
augnlæknis eru ómetanlegar
minningar um ferðir hans, þar
sem hann getur margra ferða út á
land, sem urðu til þess að margir
sjúklingar áttu kost á að njóta
læknisstarfa hans, sem ekki hefði
annars orðið, þar sem samgöngur
voru þá ekki eins greiðar og nú.
Það er mikil gæfa hverjum
manni að fá að starfa langa og
farsæla ævi að verkefni, sem tekur
hug manns allan og sjá slíkan
árangur af starfi sínu.
En þrátt fyrir langan og anna-
saman starfsdag á lækningastof-
unni að Skólabrú og við vanda-
samar augnaðgerðir á Landakots-
spítala og Landspítala framan af,
þá vannst honum tími til að ann-
ast kennslu verðandi lækna í
augnsjúkdómum um 20 ára skeið.
Var þar ekki aðeins um frábæra
kennslu á vandasamri grein lækn-
isfræði að ræða, heldur var ekki
síður mikilvægt, hve slíkur
mannkostamaður hefur mikil
áhrif persónulega á verðandi
lækna og kenna þeim hvernig á að
annast sjúklinga og gera þeim sem
mest gagn. Þar hafa fáir gert eins
vel og Kristján Sveinsson á sinni
löngu starfsævi.
Þar kom honum vel, hve ótrú-
lega hann var mannglöggur og
þekkti sjúklinga sína með nafni,
þó að langt liði milli heimsókna.
Ég hefi þekkt Kristján frá því
að ég var barn, því að þeir voru
skólabræður faðir minn og Krist-
ján. Var slík einlæg vinátta á milli
stúdentanna frá MR 1922, að ég
hefi ekki þekkt annað eins.
Gleði þeirra á samfundum var
einstök, og kom þá vel fram hin
létta lund Kristjáns þegar hann
þar lék á als oddi. Þá minntust
þeir liðinna ánægjustunda'á glað-
væran hátt og hin glettna og góð-
viljaða frásagnargáfa Kristjáns
naut sín best.
Kristján var mikill gæfumaður í
sínu einkalífi. Hann kvæntist
Maríu Þorleifsdóttur árið 1936 og
bjuggu þau í hamingjusömu
hjónabandi í tæp 30 ár til 1965, er
María lést. Syrgði Kristján mikið
hina ágætu eiginkonu sína, en þá
naut hann mikils stuðnings barna
þeirra, Kristjáns og Guðborgar, og
vina sinna.
Starfið hélt áfram og allt til síð-
ustu stundar, því Kristjáni hlotn-
aðist slík starfsgleði og hæfni að
hann tók á móti sjúklingum og
veitti þeim þjónustu allt til síð-
ustu stundar.
Það er ánægjulegt að hafa
kynnst slíkum mannkostamanni í
starfi og leik, sem alltaf var
mannbætandi og öllum vildi gott
gera.
Reykvíkingar og landsmenn all-
ir eiga Kristjáni Sveinssyni mikl-
ar þakkir að færa nú að loknu
tæplega 60 ára starfi, þjónustu-
starfi.
Fyrir hönd borgarstjórnar
Reykjavíkur vil ég bera fram.
þakkir um leið og við flytjum sam-
úðarkveðjur til barna hans og fjöl-
skyldna.
Páll Gíslason læknir,
forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur.
Fallinn er frá hinu góða mann-
lífi í Reykjavík öðlingurinn og
heiðursborgari Reykjavíkur,
Kristján Sveinsson. Honum var
ljúft að kynnast — hann gerði
ávallt mikið fyrir marga og krafð-
ist litillar umbunar. Hann stóð á
vaktinni til síðustu stundar. Slík-
um manni var gott að kynnast og
okkur, sem yngri erum, hollt að
minnast. Með innilegustu kveðju
til allra aðstandenda.
Þorkell Valdemarsson
VANT
EITlí
HVAl
Hvern vantar ekki ódýrt, ekki að tala um þegar það er líka gott
Á Vöruloftinu Sigtúni 3, 2. hæö, hafa oröiö miklar breytingar og þar er nú mjög góöur
stórútsölumar kaöu r
Opið alla daga frá kl. 10—18 (6)
Tilboösverð á herrafötum
í minni
númerum
föstudaga frá kl. 10—19 (7)
laugardaga frá kl. 10—16 (4)
A börnin
í sveitina
Úlpur frá kr. 195
Peysur frá kr. 195
Gallabuxur frá kr. 99
Strigaskór kr. 299
Gúmmístígvél kr. 299
Blússur frá kr. 450
íþróttasokkar frá 59
Jogging-gallar barnast. kr. 380
Bolir í úrvali
Á herra Samfestingar hvítir kr. 650 Vinnusloppar kr. 350
Stakir jakkar kr. 1.575 Vinnublússur kr. 350
Herrabuxur kr. 540 Vinnubuxur kr. 450
Herrablússur kr. 995 Rafsuöugallar kr. 990
Skyrtur kr. 190 Sokkar kr. 50
Herrarúskinnsjakkar kr. 2.500 Gúmmístígvél kr. 350
Stakir jakkar kr. 995 Reiðstígvél kr. 389
Ný sending af jogging-göllum. Stæröir S-M-L
Aklæði
og
gardínuefni
i miklu
úrvali
A dömur
Dömublússur nýjar kr. 350—450
Rykfrakkar kr. 2.500
Dömusamfestingar kr. 900—1.550
Greiöslusloppar kr. 685
Kvenskór frá kr. 295
Dömubuxur frá kr. 450
Mikið úrval af snyrtivörum.
Karnabær — Belgjagerðin — Vöruloftið