Morgunblaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985 19 Núr björgunarbátur til Hornafjarðar BJÖRGUNARFÉLAG Hornafjaró- ar á Höfn hefur keypt nýjan, hraðskreiðan björgunarbát frá Danmörku og var báturinn fluttur áleiðis austur frá Reykjavík í gær. Myndin að ofan var tekin er bátur- inn var prófaður í Reykjavíkurhöfn en áður hafði Slysavarnaféiags- deildin í Sandgerði fengið slíkan bát. Sjóhæfni báta af þessu tagi er sögð afburða góð. Hann gengur 28—30 mílur, er búinn 165 hest- afla Volvo Penta-vél og sjálf- réttibúnaði og er að auki með talstöð, lóran- og miðunarstöð. Hann er 25 feta langur. Gert er ráð fyrir að á bátnum sé þriggja manna áhöfn en um borð má koma fimmtán manns svo vel fari um alla. Ver doktorsrit- gerð við Háskól- ann í Gautaborg JÓN Hjaltalín Ólafsson, læknir, ver í dag, 31. maí, doktorsritgerð sína „Cutaneous and Systemic Mastocyt- osis in AdulLs" við læknadeild Gautaborgarháskóla. Fjallar ritgerð Jóns um útbreiðslu, greiningu, ónæmisfræði, efnaumsetningu og meðferð sjúkdómsins mastocytosis, sem orsakast af óeðlilegri fjölgun vissra fruma í húð, en slík fjölgun getur einnig komið fyrir í öðrum líf- færum. Megineinkenni sjúkdómsins eru húðútbrot, sem líkjast ofnæmi, og kláði. Hjá eldra fólki ber stund- um á einkennum frá öðrum líffærum eins og meltingarvegi, lungum og hjarta. Stöku sinnum tekur sjúk- dómurinn á sig illkynja mynd. Jón lauk læknaprófi frá Há- skóla íslands 1976. Hann er sér- fræðingur í húð- og kynsjúkdóm- um og hefur stundað framhalds- nám og rannsóknir við húðsjúk- dómadeild Sahlgrenska-sjúkra- hússins í Gautaborg í Svíþjóð. Jón er sonur Ólafs heitins Jónssonar, stórkaupmanns, og Arnþrúðar Jónsdóttur. Hann er kvæntur Þór- Jón Hjaltalín Ólafsson unni Þórhallsdóttur, meinatækni, og eiga þau tvær dætur. Morgunbladid/Emelía Sennilega tala fslendingar þjóða mest í síma. Og þegar álagið er sem mest getur ekkert kerfi annað þeim. Er álagið á símanum of mikið? Símakerfið er alltaf að batna en ekkert kerfi er fullkomið — segir Ólafur V. Thorsteinssen hjá Pósti og síma UNDANFARNA daga hefur mörgum Reykvíkingum þott erntt að fa samband við ýmis símanúmer í bænum. Þarna er aðallega um að ræða númer á frá 25000—29000 en mörg fyrirtæki hafa símanúmer á þessu bili. Að sögn Þorleifs Björnssonar, yfírmanns bilanatilkynninga Pósts og síma, hefur töluvert verið kvartað yfír þessu við „símann". Það er þó engin ástæða til þess að örvænta, sagði Þorleifur í viðtali við blaðið, hér virðist aðeins hafa verið um að ræða álagstopp sem stóð í nokkra daga. „Slíkt kemur fyrir af og til, og í raun getur ekkert símakerfí verið svo fullkomið að það anni slíkum áiagstoppum," sagði Þorleifur. Mesta álagið á símakerfið i Reykjavík kemur á sama tíma tvisv- ar i viku. Það er á mánudögum og föstudögum milli kl. 10.30 og 14.30. Það er einmitt þá sem margir verða fyrir óþægindum, velja númer aftur og aftur en fá ekki hringingarsón. Þarna er línufæð um að kenna. „Símakerfið er samt alltaf að batna og verða fullkomnara,“ sagði Ólafur V. Thorsteinssen símvirkjameistari í Múlastöð Pósts og síma. „Ég held að þau tilfelli að það vanti línur séu hverfandi. Ætli Islendingar tali ann- ars ekki manna mest í síma.“ Símnotendur, sem hringja f númer er byrja á 6, hafa án efa kynnst þýðri konurödd sem kemur f símann ef númeri hefur verið lokað, það bil- ar eða er ekki til. Þessi nýjung fylgir stafrænu símstöðinni sem tekin var í notkun á síðasta ári. En hvað finnst þeim sem verða fyrir því að síman- um er lokað vegna vanskila, um það að tilkynnt sé um lokunina með þessum hætti? „Ég hef ekki orðið var við það að menn taki þetta óstinnt upp,“ sagði Þorleifur, „við höfum alltaf fylgt þeirri stefnu að veita upplýsingar um það ef sima- numeri hefur verið lokað, hvort sem það er vegna bilunar eða vanskila. Það minnkar að sjálfsögðu álagið ef fólk hringir ekki endalaust i þessi númer. Ef við fáum hinsvegar fyrir- spurn um það af hverju símanum hefur verið lokað reynum við bara að eyða talinu,“ sagði Þorleifur Björnsson, yfirmaður bilanatilkynn- inga að lokum. Ný hársnyrti- stofa á Bfldshöfða OPNUÐ hefur verið ný hársnyrtistofa að Bíldshöfða 18 og nefnist hún Klippihús Karólínu. Eigendur stofunnar eru Karólína Waldenhaug og Kjartan Kjartansson. Á stofunni er boðið upp á alla almenna hársnyrti- þjónustu, herra-, dömu- og barnaklippingu, permanent, hárlitun og að auki skeggsnyrtingu. (FrétutilkynninK.) Karólina Waldenhaug, annar eigandi stofunnar. HaUargarðwinn ui'ioi \/rnoi i iki a nikihi A D HUSI VERSLUNARINNAR BORÐAPANTANASÍMI HELGARINNAR 30400 ÖRN ARASON LEIKUR KLASSÍSKAN GÍTARLEIK FYRIR MATARGESTI ATH.: OPNUM KL. 18 F. LEIKHÚSGESTI ÞAO SEM MAT- REIÐSLUMENN OKKAR MÆLA MEÐ UM HELG- INA: Snigladiskur meö gljáöu brauöi. Reyktur áll meö hræröu eggi. Gufusoönar gellur með Saffransósu. Hcúlargaröurinn HUSI VERSLUNARINNAR Lambamolar meö 5 teg. pipars. Pekingönd a la Orange, Innbakaöur lambainnan- lærisvöðvi. grisakóteletta með perlu- lauk, sveppum og fleski. Heimalagaöur appelsínuís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.