Morgunblaðið - 31.05.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1985
25
HARMLEIKURINN í BRUSSEL
Ungmenni brenndu
fána Bretlands í Torino
Kóm og Torino, 30. maí. AP.
ÍTÖLSK ungmcnni brenndu breska
fána og gerðu aðsúg að verslunarmið-
stöð Breta í Torino í dag til að láta í .
Ijós óhug sinn og reiði vegna atburð-
anna á Heysel-velli í Brussel í gaer.
Torino er heimaborg knattspyrnuliðs-
ins Juventus, sem keppti við enska
liðið Liverpool í hinum afdrifaríka
leik á vellinum.
Fánar blöktu víðast hvar í hálfa
stöng í Torinio í dag og þegar
liðsmenn Juventus sneru heim um
hádegisbil tóku aðeins fimmtíu
þögulir áhangendur á móti þeim.
Itölsk blöð voru ómyrk í máli um
atburðinn í Brussel. Kvöldblaðið
Stampa Sera sagði í fyrirsögn yfir
þvera forsíðu í gær: „Morðingar í
áhorfendastúku." í forystugrein
blaðsins sagði að breskur skríll
væri að ganga að knattspyrnu og
unnendum hennar dauðum.
Stærsta dagblað ftalíu Corriere
Della Sera í Mílanó kallaði Eng-
lendingana í Brussel „villimenn".
Enskir knattspyrnuáhangendur
hafa illt orð á sér í Torino. Þegar
Belgíumenn og Englendingar léku
þar í Evrópukeppninni árið 1980
lentu ensku áhorfendurnir í hörð-
um átökum við stuðningsmenn
Belga. Varð lögregla í borginni að
beita táragasi til að stilla til friðar.
ftalskir knattspyrnuáhangendur
hafa sjálfir ekki hreinan skjöld.
Þegar skoska liðið Glasgow Celtics
lék á móti Juventus í september
1981 réðust áhangendur ítalska
liðsins á einn af stuðningsmönum
skoska liðsins, stungu hann með
hníf og særðu alvarlega.
Áhorfendastúkan á
knattspyrnnleikvanginum f Bradford í
Englandi í björtu báli. 53 létu lífið af völdum eldsins.
Slys og ofbeldi á
knattspyrnuleikjum
Londoo, 30. maí. AP.
HÉR FER á eftir skrá yfir helstu ótíðindi á knattspyrnukappleikjum síðustu
ára, fyrir uppþotin á miðvikudagskvöld:
5. mars 1985: 23 slösuðust og 100 voru handteknir í óeirðum sem urðu í
('helsea í vesturhluta Lundúnaborgar eftir leik í ensku deildakeppninni.
15. mars 1985: 47 manns slösuð-
ust í áflogum eftir leik í Luton, um
40 km fyrir norðan London. Áhang-
endur útiliðsins, Millwall, hófu
ólætin.
10. maí 1985: A.m.k. 10 útlend-
ingar og lögreglumaður slösuðust í
óeirðum í Peking, er Kína beið
ósigur fyrir Hong Kong i heims-
meistarakeppninni.
11. maí 1985: 53 létu lífið, er eld-
ur kom upp i áhorfendastúku á
knattspyrnuleikvanginum í Brad-
ford i Norður-Englandi. Þar var
ekki um ofbeldisatburð að ræða.
27. maí 1985: Átta manns létu
lífið og yfir 50 slösuðust er mann-
fjöldi ruddist inn á knattspyrnu-
leikvang í Mexíkóborg.
28. febrúar 1984: Breskir knatt-
spyrnuáhangendur ollu yfir 40
milljóna króna tjóni á Parc de
Princes-leikvanginum í París eftir
landsleik. Frakkar unnu Breta
2-0.
8. maí 1984: Áhangandi enska
liðsins Tottenham Hotspur skotinn
til bana og 200 stuðningsmenn liðs-
ins teknir höndum er þeir fóru
ruplandi og rænandi um götur
Brussel eftir leik Tottenham og
Anderlecht.
30. september 1984: Maður sem
veifaði fána aðkomuliðs i Mílanó á
Ítalíu stunginn til bana. Fjöldi
knattspyrnuáhugamanna slasaðist
í óeirðum, sem urðu í nokkrum
borgum á Ítalíu eftir helgarleiki.
18. nóvember 1982: 24 létu lífið
og yfir 200 slösuðust í uppþoti í
Cali í Colombíu eftir leik milli Dep-
ortivo Cali og Club America.
17. ágúst 1980: 12 táta lífið og
yfir 100 slasast í óeirðum sem urðu
meðan á knattspyrnuleik stóð I
Kalkútta í Indlandi.
14. ágúst 1979: 24 láta lífið í átök-
um eftir knattspyrnuleik í Lagos í
Nígeríu.
4. desember 1975: Þrír knatt-
spyrnuáhangendur létu lífið er þeir
tróðust undir æstum múg á leik
milli La Plata og Rosario Central i
Estudiantes de la Plata í Argent-
ínu.
2. janúar 1971: 66 manns fórust
er stigi hrundi á leik Glasgow
Rangers og Celtic í Glasgow í
Skotlandi.
1969: Þúsundir falla í svokallaðri
„knattspyrnustyrjöld" E1 Salvador
og Honduras. Hún hófst eftir um-
deildan knattspyrnuleik milli land-
anna. Styrjöldin stóð stutt.
17. september 1968: 40 láta lífið
og yfir 600 slasast I átökum eftir 2.
deildar knattspyrnuleik í Kayseri í
Tyrklandi.
24. maí 1964: 300 láta lífið og
nærri 300 slasast I Lima i Perú eft-
ir sigur Argentínu yfir Perú með
marki á síðustu minútu i undan-
keppni Ólympiuleikanna.
Veður
víöa um heim
Lægst Hasat
Akureyri 6 skýjaó
Arnsterdam 10 20 bjart
Aþena 18 30 skýjaó
Barcelona 22. mistur
Berlín 12 20 skýjaó
Brússel 10 23 bjart
Chtcago 7 24 rigning
Dublin 5 18 bjart
Feneyjar 26 bjart
Frankfurt 12 14 rigning
Genf 11 18 rigning
Helsínki 13 24 bjart
Hong Kong 25 26 skýjaó
Jerúsalem 15 23 bjart
Kaupm.höfn 12 16 bjart
Las Palmas 23 skýjaó
Lissabon 12 15 rigning
London 9 17 bjart
Los Angeles 15 24 skýjaó
Luxemborg vantar
Malaga 23 hólfskýjaó
Mallorca 26 skýjaó
Miami 26 30 skýjaó
Montreal 7 22 bjart
Moskva 13 28 bjart
New York 15 22 bjart
Osló 7 18 bjart
París 10 22 skýjaó
Peking 15 22 skýjaó
Reykjavik 7 léttskýjaó
Rio de Janeiro 18 31 skýjað
Rómaborg vantar
Stokkhólmur 13 28 bjart
Sydney 13 20 skýjað
Tókýó 13 19 bjart
Vínarborg 16 27 skýjað
Þórshöln 9 rigning
^GENGI^
GJALDMIÐLA
Dollar
lækkar
DOLLAR féll í verði gagnvart öll-
um helstu gjaldmiðlum í dag eftir
að helstu hagvísar Bandaríkjanna
lækkuðu minna en búist hafði ver-
ið við. Hafði verið reiknað með 0,5
prósent lækkun í maí, en útkoman
var 0,2 prósent. Breska pundið
seldist í kvöld á 1,2745 dollara, en
kostaði daginn áður 1,2642 doll-
ara.
Lítum á stöðu dollars gagn-
vart nokkrum mikilvægum
gjaldmiðlum og er miðað við
einn dollar, en tölur í svigum
eru frá miðvikudegi:
Vestur-þýsk mörk 3,0110
(3,0890), svissneskir frankar
2,5940 (2,6035), franskir frankar
9,3787 (9,4400), hollensk gyllini
3,4675 (3,4935), ítalskar lírur
1,965.50 (1,975.50) og kanadískir
dollarar 1,3760 (1,3815).
Gull lækkaði einnig þrátt
fyrir að dollar hafi lækkað,
trójuúnsan seldist undir kvöldið
á 314,00 dollara, en á miðviku-
daginn kostaði hún 316,50 doll-
ara.
Lestunar- áætlun
Skip Sambandsins munu ferma til íslands
á næstunni sem segir: HULL/GOOLE: hér
Dísarfell 3/6
Dísarfell 7. 17/6
Dísarfell 1/7
Dísarfell 15/7
ROTTERDAM:
Dísarfell 4/6
Dísarfell 18/6
Dísarfell 2/7
Dísarfell 16/7
ANTWERPEN:
Dísarfell 5/6
Dísarfell 19/6
Dísarfell 3/7
Dísarfell 17/7
HAMBORG:
Dísarfell 7/6
Dísarfell 21/6
Dísarfell 5/7
Dísarfell 19/7
HELSINKI:
Hvassafell 20/6
LARVÍK:
Jan 24/6
Jan 8/7
GAUTABORG:
Jan 11/6
Jan 25/6
Jan 9/7
KAUPMANNAHÖFN:
Jan 12/6
Jan 26/6 |
Jan 10/7 !
SVENDBORG:
Jan 13/6 i
Jan 27/6 |
Jan 11/7
ÁRHUS:
Jan 13/6
Jan 27/6
Jan 11/7
GLOUCESTER, MASS.:
Jökulfell 19/6
PORTSMOUTH:
Jökulfell . 22/6
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
1