Morgunblaðið - 31.05.1985, Síða 20

Morgunblaðið - 31.05.1985, Síða 20
MOBGUNBLAÐID, FÖSTUPAOUR 31. MAf 1985 Kristján Sveins- son — Minning Sú sorgarfrétt barst mér seinni hluta dags þ. 23. maí aö föðurbróð- ir minn Kristján Sveinsson hefði látist. Bar þetta að mjög svo skyndilega í kaffiboði, sem haldið var 50 ára og eldri stúdentsár- göngum. Kristján var með fullu starfi til hinztu stundar og lézt eins og hann hefði helst kosið sjálfur — eins og slökkt hefði ver- ið á kerti. Kristján frændi minn var alda- mótabarn f. 8. febrúar árið 1900 við Ríp í Hegranesi, Skagafirði, sonur síra Sveins Guðmundssonar og Ingibjargar Jónasdóttur — afa míns og ömmu. Ég ætla mér ekki í þessari minningargrein að tína allt til í ævi þessa stórmerka manns, en stikla fremur á því helsta, sem mér finnst að skipti máli. Að loknu læknisprófi frá HÍ 1927 vann hann sem staðgengill héraðslækna á Norðurlandi og Vesturlandi og skipaður héraðs- læknir Dalamanna frá 1929—1932. Á þeim tíma vann hann markvisst að undirbúningi síns lífsstarfs. Hann setti strax markið hátt — ákveðinn í að afla sér bestu menntunar sem völ var á í augn- lækningum á þeim tíma, á Allge- meine Krankenhaus í Vínarborg. Á þeim árum var sjúkrahús þetta talið eitt besta og virtasta sjúkra- hús veraldar og Vínarborg þá tal- in Mekka læknisfræðinnar. Faðir minn var um sama leyti við framhaldsnám í skurðlækn- ingum og minntist Kristján oft þessa tímabils með mikilli gleði og jafnframt söknuði. Hvers vegna valdi Kristján augnlækningar sem sitt framtíð- arstarf? Vafalaust kom margt til. Tvennt kemur mér til hugar. Á þeim tíma er Kristján tekur sína ákvörðun er aðeins einn starfandi augnlæknir á landinu — einnig hitt að tíðni á blindu hefur vafa- lítið verið mjög há á þessum tíma. Þarna hefur hinn ungi læknir fundið sér hinn rétta starfs- grundvöll þ.e. að draga úr tíðni blindu á Islandi og viðar með það besta veganesti sem nokkur lækn- ir getur öðlast, þ.e. góð undir- stöðumenntun, góðar gáfur, manngæzka, sálarstyrkur og læknishendur. Allt þetta hafði Kristján fengið I vöggugjöf og einnig í góðu og ástríku uppeldi þar sem hlúð var að þessum eigin- leikum. Viðurkenningu sem sérfræðing- ur í augnlækningum hlaut Krist- ján 8. febrúar 1933 á afmælisdegi sínum. Frá þeim tíma starfaði hann á Landspítalanum, fyrst sem sérfræðingur og stundakennari og dósent við læknadeild Hl frá 1959-1973. Kristján hélt þó áfram að starfa sem einasti sér- fræðingur í augnlækningum á Landspítalanum, en hætti þeim störfum fyrir tveimur árum. Auk fyrrgreindra starfa stundaði hann sínar lækningar áratugum saman á St. Jósefsspítala í Reykjavík og Elliheimilinu Grund og sem fyrr greinir var hann starfandi á lækn- ingastofu sinni í Pósthússtræti 17 til dauðadags. Allir sem þekktu vissu um hinn langa vinnudag Kristjáns eða frá 7 f.h. til 9.30—10 e.h. en hitt vissu færri, eða aðeins hans nánasta fjölskylda og kollegar, að í gegn- um árin skrifaði Kristján einhver býsn af vísindalegum ritgerðum, þar sem hann byggði á sinni löngu reynslu. 1 síðustu birtu grein sinni í virtu erlendu læknatímariti (1982) lýsir hann tíðni ákveðins augnsjúk- dóms hjá 21.500 íslendingum sem Kristján hafði fylgst með í 50 ár. Frá læknisfræðilegu sjónarmiði verður þetta að teljast meiri hátt- ar þrekvirki hjá 82 ára gömlum manni. Kristján var ættfróður og minnugur með afbrigðum og leit- aði oft sjúkdóma með þessum eig- inleikum sínum. Efast ég um að tölvur hefðu gert öllu betur. Kristján var þegar orðinn all- þekktur meðal erlendra kollega sinna fyrir 25—30 árum. Marg- sinnis var honum því boðið til fyrirlestrahalds á erlendum vett- vangi. Ég minnist þess oft seinni árin, að hann ték mig afsíðis og sýndi mér fjöldann allan af bréf- um frá erlendum kollegum, þar sem þeir báðu um afrit af greinum hans. Aldrei minnist ég við slík tækifæri að hann fylltist stærilæti yfir velgengni sinni heldur auð- mýkt og þakklæti aö einhver teldi sig þess virði að spyrjast fyrir um augnheilsu þessa litla lands norð- an við heimskautsbaug. Þá var ég stoltur af frænda mínum. Kristján var mikill hamingju- maður í sinu einkalífi. 1936 kvæntist hann Maríu Þorleifsdótt- ur Thorlacius og eignuðust þau tvö börn, Kristján tannlækni kvæntur Katrínu Þorgrímsdóttur og eiga þau tvö börn — Þorgrím og Maríu Kristínu — og Guðborgu gift Bjarna Marteinssyni arkitekt. Börn þeirra eru María, Kristján, Kristín og Þóra Björk. Fljótlega eftir að Kristján hóf störf í Reykjavík byggði hann heimili á Oldugötu 9, ekki ein- göngu fyrir sjálfan sig, heldur einnig foreldra sína, tvær systur, tengdaforeldra og tvo systursyni sína. Frá því að ég man eftir mér var Öldugata 9 mitt annað heimili. Má segja að heimilisbragur hafi ekki verið ósvipaður og á prestssetri með óhemju miklum gestagangi — ekki ósvipað því og Kristján og systkinin voru alin upp við í æsku og á unglingsárunum. Öldugata varð fljótlega miðdepill í lífi föðurfjölskyldu minnar og að- dráttaraflið var mikið. Maja, en svo var María nefnd innan fjöl- skyldunnar, var stórkostlegur persónuleiki — stórglæsileg og góð kona, sérstök móðir, eiginkona og húsmóðir á þessu mannmarga heimili. Því miður lézt hún um aldur fram aðeins 52 ára gömul. Þetta var mikið áfall fyrir Krist- ján, börnin og alla fjölskylduna. Eftir fráfall Maju tók Guðborg dóttir Kristjáns að sér húsmóð- urhlutverkið á Öldugötunni og hefur staðiö sig með miklum sóma. Hefur þeim feðginum með góðum stuðningi Kristjáns sonar Kristjáns heitins og tengdabarna tekist að halda uppi gömlum hefð- um og viðhalda tengslum fjöl- skyldunnar. Ég veit að Kristján mat þetta mikils. Barnabörnin sex að tölu veittu honum ómælda hamingju. Sem dæmi um vinsældir Krist- jáns minnist ég atviks er ættingj- ar síra Sveins fóru norður til Árn- ess, Strandasýslu, í tilefni 100 ára aldarafmæli hans. Var m.a. stans- að í Hólmavík og snæddur hádeg- isverður. Samkvæmt áætlun var reiknað með 1 klst. viðkomu. Þeg- ar á staðinn var komið biðu tugir sjúklinga eftir Kristjáni. í stað þess að byrja á hádegisverði fór hann samstundis i sjúkraskýlið og lauk sínum „skyldustörfum“ á 1 klst. Ánægjan að hafa getað orðið einhverjum að liði var honum meira virði en hádegisverður, sem þá var orðinn kaldur og af skorn- um skammti. Kristján var mikill húmoristi, jafnvel á örlagastundum. Minnist ég þess er Kristján lá á hjarta- deild Landspítalans fyrir nokkr- um mánuðum, eftir hjartaáfall. Ung stúlka, tæknifræðingur, setti hjartaritstengingu á brjóst Kristjáns. Með þessu var hægt að fylgjast með hjartslættinum í vaktherberginu. Kristjáni fannst mikið ti) þessarar tækni koma og sagði við stúlkuna: „Elskan mín, ef þetta hefði átt sér stað fyrir 2—3 öldum hefðirðu sennilega verið brennd á báli fyrir galdra vegna allra þessara tæknikúnsta." Ég held að Kristján hafi gert sér fulla grein fyrir að lífshlaupið var að renna út siðustu mánuðina. Ekki gat maður þó merkt þetta í hans fari. Fyrir nokkru hitti ég eldri borgara á Landspítalanum og tók- um við að ræða um daginn og veg- inn. Barst talið að Kristjáni frænda mínum. Endaði maðurinn samræðurnar með þessum orðum: „Ég held, Haukur minn, að sé eitthvað til sem kallast gæti Guð, þá sér maður þetta allt í honum Kristjáni Sveinssyni." Með Kristjáni frænda mínum er farinn einhver göfugasti maður, sem ég hefi kynnst. Haukur Jónasson Með Kristjáni Sveinssyni augn- lækni er fallinn í valinn einn ágætasti maður sem ég hef kynnst. Ég átti því láni að fagna að verða vígður aðstoðarprestur föður hans, og var það fyrsta ár míns prestsskapar norður í Árnesi á Ströndum. Eitthvað um mánað- ar tíma dvaldi ég á heimili hinna eftirminnilegu prestshjóna sr. Sveins og frú Ingibjargar Jónas- dóttur áður en þau fluttu hingað suður til Reykjavíkur og áttu síð- an heima í húsi Kristjáns sonar síns á Öldugötu 9. Eftir um sjö ára prestsskap á Ströndum þar sem ég hafði eignast konu og þrjá syni fluttist ég til Þingeyrar við Dýra- fjörð. Þar tók á móti mér og mín- um frú Elínborg símstjóri, dóttir séra Sveins, og maður hennar ólafur Jónsson húsasmiður. Átt- um við hjón margar glaðar og góð- ar stundir á heimili þeirra sæmd- arhjóna næstu árin eða álfka tima og vera mín var í Árnesi. Eftir það lá leiðin líka hingað í borg. Sr. Sveinn var þá látinn fyrir nokkr- um árum. Og svo vildi til að bú- staður minn var á næstu grösum við hús Kristjáns læknis, þar sem móðir hans og tvær systur áttu einnig heima. I því húsi átti maö- ur siðan fjölda margar góðar stundir. Kona mín er af ætt góð- vina prestshjónanna í Árnesi. Sr. Sveinn hafði bæði skírt hana og fermt. Og hér var hún tíður gestur á heimili frú Ingibjargar og dætra hennar og eins eftir að móðir þeirra var fallin frá. Hvíld var það henni að koma á það heimili. Þar var ró og friður. Finnst mér líka að þetta góða og trygglynda fólk frá Árnesi hafi tekið mér eins og ég væri einn af fjölskyldunni. Þetta var mér mikils virði. Daginn fyrir andlát Kristjáns fékk kona mín hjá honum ný gleraugu. Með sömu rósemi og nákvæmni og hann var vanur að vinna sín verk rannsakaði hann augu hennar og sjón. Þarf víst ekki að geta þess að engan eyri tók hann fyrir þetta. Á engu var unnt að merkja að dagar hans voru þá taldir. Vitaskuld er hins góða föður, tengdaföður, afa og bróður sárt saknað. En þakklætið fyrir að hafa átt hann sem slíkan mun samt öllu ofar. Hans nánustu munu líka vita að ekki kveið Kristján vistaskiptunum. Konan, sem átti allt hans hjarta, var fyrir all löngu á undan farin. Kristján talaði fátt um trú sína. En vonin um endurfundi mun samt hafa bú- ið í hjarta hans — og getur þar tekið undir orð skáldsins, sem kvað: Anda sem unnast fær aidregi eilífð að skilið. Ég þakka honum og fólki hans órofa vináttu fyrr og síðar. Þorsteinn Björnsson „Þú gætir aldrei sagt of gott um hann, hvað sem þú segðir ... Þetta sagði kona á dögunum við þann, sem þetta skrifar. „Sá iifði aldeilis fögru og hreinu lífi,“ sagði önnur manneskja, granni hins látna við Kirkjutorg, sem sá hann nálega á hverjum degi. Það er hamingja út af fyrir sig — lífshamingja — að hafa kynnzt manni eins og Kristjáni heitnum Sveinssyni, augnlækni. Að hitta hann á förnum vegi — næstum alltaf í hjarta borgarinn- ar — var eins og að stiga inn í biblíusögu ellegar að upplifa endurtekningu á biblíusögu — og að finna hlýtt handtak hans og góðleik streyma til sín gerði mann að nýrri og betri manni í hvert skipti sem slíkt gerðist og gaf trú á það bezta í lífinu. Að sjá hann rétt við Dómkirkj- una á leið í hádegismat úr vinn- unni örfáum dögum fyrir andlát hans og heyra góðar óskir af vör- um hans gaf manni meira og hald- betra veganesti í lífinu en orð fá lýst, og að sjá andlátsfrétt um hann i Morgunblaðinu rifjaði kynni af honum óslitið frá því fyrir herrans mörgum árum. Það var ævintýri líkast að koma á stofuna til hans og láta hann líta eftir augum manns. Það var sko ekkert venjulegt. Veröldin leit öðru vísi út eftir á. Fyrir fimm árum varð undirskráður fórnar- dýr augnkvilla, sem fór eins og eldur í sinu um hluta af Norður- amtinu. Þetta gerist norður í Skagafirði ellegar á Skagaströnd. Það var bagalegt í marga mánuði. Kristján heitinn að viðbættum tveim öðrum kollegum sínum, sér- fróðum, græddu sárin af prýði — og ekki sízt Kristján — að hinum ólöstuðum. Hann gaf dropa í aug- un annað veifið — einhverja töfra- formúlu. Og sjá — sjónin skýrðist — og eins og alkunna er, þá eru augun hluti sálarinnar. Hann kallaði undirskráðan frænda sinn — og það er gott að finna til stolts og heiðurs yfir því að teljast til frændsemi við slíkan mann og snilling sem Kristján var (hann og faðir greinarhöfundar voru þéttingsskyldir og perluvinir og hittust oft og blönduðu geði saman). Bróðir Kristjáns, Jónas Sveins- son læknir, var líka öndvegismað- ur — ýmsir vita, að hann var á undan samtíð sinni. Fáir menn sögðu betur frá en hann, sbr. æviminningar hans, Lífið er dá- samlegt, sem kom út eftir andlát hans. Þau systkinin voru af hinni stórbrotnu Skarðsætt (nægir að benda á formóðurina Ólöfu ríku) og I ofanálag af húnvetnskum uppruna. Faðir þeirra var prestur og ólust þau systkin upp við menntun og víðsýni og ýmsar merkar hefðir, sem mótuðu skap- höfnina. Skarðsverjar og Skarðsverjur hafa sterk ættareinkenni — eins og allir vita, sem þeim hafa kynnzt — og öðrum þræði er þetta sérlundað fólk, sem fer sínar eigin leiðir. Þetta eru höfðingjar. Hinn húnvetnski ættarmeiður Kristjáns er líka stórlyndur — en af ýmsum talinn mannlegur og jafnframt gæddur sterkri sjálfs- virðingu. Kristján stundaði læknisstörf lengur en flestir kollegar hans, lífs og liðnir. Hann var langtum meira en venjulegur læknir — hann var græðari og mannvinur, sem ten- draði sálarfegurð og líf og ljós í hjörtum sjúklinga og samferða- manna sinna og lengdi því sitt eig- ið líf og líf þeirra og gaf lífi fólks tilgang. Að Hæðardragi, Rvík, Steingrímur St.Th. Sigurðsson. Á skammri stund skipast veður í lofti. Fimmtudaginn í fyrri viku sátu 50 ára stúdentar og eldri samsæti á Elliheimilinu Grund. Þar vorum við fjórir bekkjarbræð- ur og stúdentar frá árinu 1922, all- ir á níræðisaldri, en glaðir og hressir að vanda. í lok samsætis- ins þyrmdi skyndilega yfir Krist- ján okkar Sveinsson og var hann látinn, er hann kom á sjúkrahús skömmu síðar. Kristján hafði kennt sjúkleika undanfarið ár og vissi að andlát hans gæti borið að með skyndilegum hætti. Við þessa andlátsfregn setti flesta Islendinga, sem komnir eru til vits og ára, hljóða. Þjóð vor á Kristjáni Sveinssyni augnlækni meira að þakka en flestum öðrum. Sá vinahópur, sem harmafregn- in sló einna harðast, er æskuvin- irnir. í æviminningabók Kristjáns segir hann frá því að fundum okkar hafi fyrst borið saman 1904 á skipsfjöl á Sauðárkróki, hann á ieið til Flateyjar á Breiðafirði með fjölskyldu sinni, en ég með for- eldrum mínum til Reykjavíkur. Síðan segir Kristján: „Jæja. Mörgum árum seinna, þegar ég er kominn í fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík — þá er þessi sami strákur í bekk með mér. Þetta var Gunnlaugur minn Briem, fyrrverandi ráðuneytis- stjóri. Með okkur tókst ævilöng vinátta, sem aldrei hefur borið skugga á.“ Á námsárum okkar stúdent- anna frá 1922 var félagslíf með ágætum í Menntaskólanum og Háskólanum, og áttum við þar góða og glaða daga. Skemmtanir voru á þessum árum fábreyttari en síðar varð og urðum við að vera sjálfum okkur nógir í þeim efnum. í grein er Bjarni læknir Bjarna- son ritaði árið 1973 segir svo: „Samheldni og vinátta innan bekkjarins okkar, sem útskrifaðist úr Menntaskólanum 1922, hefur löngum verið viðbrugðið. Tengslin hafa haldist mjög náin gegnum öll þessi ár, og seinast í vor fundum við að allt var þetta ófölskvað á 50 ára stúdentsafmæli okkar. Út úr stúdentaárganginum frá 1922 kristallaðist dálítill hópur sem batzt alveg sérstökum tryggða- og vináttuböndum, og gerði sér það að reglu að hittast jafnan, stundum oft á ári, og svo er enn, þó að fundum hafi nú fækkað í seinni tíð, vegna þess hvað stór skörð hafa verið höggvin í hópinn okkar hin síðari ár.“ Þessi orð eru vissulega sann- mæli, og má í því efni minnast kvæðisins „Æskuvinir" eftir séra Sigurð skáld Einarsson, samstúd- ent okkar, en kvæðið er helgað stúdentunum frá 1922. Að öðru leyti vísa ég til Ævi- minningabókar Kristjáns frá 1982 um skólaár okkar, en bók hans varð metsölubók á sinum tíma. í bók þessari skýrir Kristján skilmerkilega frá ættum sinum, námsferli og læknisstörfum. Skapgerð Kristjáns var slík, að öðlingsnafnið bar hann með sóma. Drengskap hans, góðvild og hjartahlýju dáðum við og traustur var hann sem bjarg er á reyndi. Alvara var ríkur þáttur í eðlisfari hans, en hverjum manni var hann skemmtilegri í vinahópi, ef gleði var á ferðum, gamansamur og fyndinn. Árið 1936 gekk Kristján að eiga ágætiskonu, Maríu Þorleifsdóttur. Leitun var á samhentari hjónum. María, góð og glæsileg, bjó manni sínum fagurt og notalegt heimili, þar sem ættfólki og vinum var tekið með rausn og hlýju. í minningabókinni segir Krist- ján: „Vorið 1965 virtist María konan mín hraust og glöð eins og hún var vön að vera. En þegar sumarið nálgast, hef- ur hún orð á því, að hún sé ekki jafn góð til heilsunnar og hún eigi að sér. „Skjótt hefur sól brugðið sum- ri“, segir Jónas Hallgrímsson í ljóði sínu um Bjarna Thorarensen. Það kom eins og reiðarslag, þeg- ar hún við nána rannsókn reyndist vera heltekin banvænum sjúk- dómi.“ María andaðist 15. október 1965, 53 ára gömul. Síðar segir hann: „María var mér sannkölluð heillastjarna. Hennar hef ég sárt saknað." Þau María og Kristján eignuð- ust tvö börn, Kristján tannlækni og Guðborgu, og hafa þau tekið að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.