Morgunblaðið - 31.05.1985, Side 41
MORGUNBLAÐID, FÓSTUDAGUR 31. MAÍ 1985
41
Gunnar Bjargmunds-
son — Minning
% *
Birgir mertal verka sinna.
Birgir Schiöth
sýnir í Eden
Hver»gfrrti, 20. maí.
BIRGIR Schiöth teiknikennari
opnaði sýningu á teikningum sínum
í Eden í Hverageröi þ. 28. maí og
stendur hún til 10. júní nk. Er þetta
6. einkasýning listamannsins og eru
myndirnar allar til sölu.
Myndefnið sem er mjög fjöl-
breytt er mikið sótt til sjávarsíð-
unnar en Birgir er uppalinn í sjáv-
arplássi og segir að það hafi ætíð
haft áhrif á sig. Myndirnar eru
flestar gerðar með blýanti og
flestar gerðar á þessu ári og engin
eldri en tveggja ára.
Birgir er fæddur og uppalinn á
Siglufirði, en flutti til Reykjavík-
ur fyrir 12 árum og er hann kenn-
ari í myndmennt við Flataskóla í
Garðabæ.
Sigrún.
Landsfundur friðar-
hreyfingar kvenna
í dag verður til moldar borinn
Gunnar Bjargmundsson, áður
húsvörður í Hlíðaskóla í Reykja-
vík, en hann andaðist á dvalar-
heimilinu Hrafnistu í Reykajvík
23. maí sl. Gunnar fæddist á ísa-
firði 4. maí árið 1900 og varð því
rétt 85 ára fyrir andlátið. Með
Gunnari er horfinn mikill heiðurs-
maður með langa og stranga
starfsævi að baki eins og títt er
um þá er hófu starfsferil sinn á
fyrri hluta aldarinnar. Hann var
vélstjóri að mennt og stundaði það
starf á yngri árum bæði á togur-
um og línuveiðurum en um 1940
réðst hann til vélsmiðjunnar
Hamars í Reykjavík þar sem hann
starfaði í nær tvo áratugi.
Starfsemi Hlíðaskóla hófst árið
1954 þar sem nú er leikskólinn
Eskihlíð og hóf Gunnar
húsvarðarstarf þar árið 1958 og
gegndi því til 1978 eða samfellt í
20 ár. Leiðir okkar Gunnars lágu
fyrst saman árið 1%1 er ég kom
þar til starfa. Störf húsvarðar í
fjölmennum skóla eru margvísleg.
Fer þar saman umsýsla um hús og
muni, stjórnun hreingerninga,
lagfæringar, umsjón með viðgerð-
um auk margháttaðra samskipta
við skólastjórn, kennara og nem-
endur.
Gunnar var einstakur maður í
Fæddur 10. júlí 1911
Dáinn 22. maí 1985
Gunnar var sonur hjónanna
Herdísar Guðmundsdóttur frá
Stykkishólmi og Péturs Bjarna-
sonar, skútu- og síðar togaraskip-
stjóra frá Fjarðarhorni í Bæjar-
hreppi, Strandasýslu.
Sjö ára gamall missti Gunnar
og átta systkini hans móður sína.
Faðir hans hélt eftir lát konu
sinnar heimilinu í horfi með að-
fenginni aðstoð. Tæpum þremur
árum síðar kom skip hans að landi
með hann fárveikan og andaðist
hann 15. febrúar 1921.
Foreldralausum 9 vetra dreng
var komið það vor í fóstur austur í
Árnessýslu. Hann sætti þar að-
búð, sem hann undi ekki og strauk
á sama árinu aftur til Reykjavík-
ur. Hjalti Jónsson (Eldeyjar-
Hjalti) hafði verið vinur föður
hans og lét hann nú mál Gunnars
til sín taka. Hann kom Gunnari i
fóstur að Odda á Rangárvöllum til
sr. Erlends Þórðarsonar og konu
hans, Önnu Bjarnadóttur.
Gæfa Gunnars var mikil, að
vera tekinn í fóstur á þetta fræga
menningarsetur, til þess gegna og
góða fólks sem staðinn sat. Hann
varð þar fljótt sem sonur og bróðir
í fjölskyldunni og átti þar ham-
ingjusöm æskuár, sem hann
minntist alltaf með fögnuði og
þakklæti. Samskipti hans og sr.
Erlends og Önnu voru eftir þetta
jafnan eins og milli sonar og for-
eldra meðan öll lifðu.
Sr. Erlendur hvatti Gunnar til
náms og það hóf hann að Laugar-
vatni. En sjórinn heillaði — í æð-
um hans rann blóð sæfara. Hann
nam loftskeytafræði, lauk prófum
í þeirri grein árið 1932 og hóf þá
strax siglingar á farskipum.
Árið 1940 kvæntist Gunnar
frænku minni, Kristbjörgu Jóns-
dóttur frá Sjólyst í Grindavík,
dóttur Jóns Jónssonar frá Rafns-
húsum í Grindavík, og Sigríðar
Guðmundsdóttur frá Grímsstöð-
um í Landeyjum. Hjónaband
þeirra varð farsælt. Þau létu sér
einkar umhugað um ættmenni og
vini og voru samhent í hvívetna.
Þeim varð fjögurra barna auðið.
Þrjú þeirra lifa, Gunnar, hagfræð-
ingur, búsettur í Kanada, Hjördís
og Sigríður, sem báðar starfa hjá
utanríkisráðuneytinu.
Gunnar stundaði siglingar sem
atvinnu til ársins 1945, lengst af á
starfi sínu við Hlíðaskóla og dáður
af öllu samstarfsfólki sem og nem-
endum. Allan þennan starfstíma
minnist ég þess ekki að hann hafi
átt í samskiptaörðugleikum við
nokkrun mann en hann gat verið
fastur fyrir ef því var að skipta og
bar hann þá ætíð hag skólans
fyrir brjósti.
Samviskusemi hans og trú-
skipum Eimskipafélagsins. Þann-
ig sigldi hann öll stríðsárin, mest
milli íslands og Bandaríkjanna.
Oft bárust ógnir vígvéla úthaf-
anna allt að síðum skips hans,
þegar siglt var í skipalestum og
margur hildarleikurinn gerðist í
sjónmáli frá borðstokknum.
Vökur áhafna skipanna voru
langar og tóku á taugar og ekki
mennsku er viðbrugðið. Hann kom
í skólann daglega helga daga sem
virka til eftirlits og mætti ætíð
fyrstur manna á morgnana og fór
síðastur heim að kvöldi.
Gunnar naut þess að eiga sér við
hlið ástrika eiginkonu er gekk til
verka með honum í Hlíðaskóla af
nærgætni og hugulsemi. Þau
Gunnar og Margrét hugsuðu um
hús, muni og fólk eins og væri
þeirra eigið heimili og fjölskylda
enda voru þau virt og dáð af öllum
starfsmönnum skólans.
Sem yfirkennari og skólastjóri
um langt skeið átti ég mikið sam-
starf við þau bæði og þó Gunnar
sérstaklega og minnist ég þess
með mikilli þökk og virðingu.
Síðustu árin hafa þau bæði átt
við mikla vanheilsu að stríða og
fyrir stuttu varð Gunnar fyrir því
óhappi að fótbrotna.
Ég hitti Gunnar síðast á Land-
spítalanum fyrir þremur vikum og
ræddum við um menn og málefni
liðinna daga í Hlíðaskóla. Það var
slegið á létta strengi og Gunnar
spurði margs um gamla félaga.
Orkan var horfin en það var
glettni í svip og augum þessa
aldna heiðursmanns.
Það verða daprir dagar fram-
undan hjá þér, Margrét mín, svo
mjög sem þú unnir Gunnari en
minningin lifir.
Það er eftirsjá að slíkum manni
sem Gunnar var en við getum öll
verið þakklát fyrir þær stundir
sem við fengum að njóta samvista
við hann.
Ásgeir Guðmundsson
síður á taugar ástvina, sem heima
biðu og fengu aldrei að vita hve-
nær og hvort skipið sem beðið var
kæmi af hafi, fyrr en það var á
ytri höfninni í Reykjavík.
Gunnar bar gæfu til þess að
komast úr þessum hildarleik
óskaddaður.
Árið 1946 réðst hann sem
loftskeytamaður til Veðurstofu ís-
lands og varð síðar deildarstjóri
fjarskiptadeildar. Þar starfaði
hann þangað til hann náði há-
marksaldri opinberra starfs-
manna.
Störfum sínum sinnti Gunnar
af óbrigðulli skyldurækni. Utan
starfs var Gunnar jafnan sjálfum
sér nógur, sinnti heimili sínu og
hugðarefnum öðru fremur. Hann
gaf sig lítið að torgfundum og
hópsamkomum þjóðféíagsins.
Konu sína, blinda hin siðustu
ár, leiddi hann í myrkri hennar og
sjúkdómsraunum á þann hátt,
sem birtu stafaði af.
Gunnar var vörpulegur maður
og vel á sig kominn, bjartur yfir-
litum. Svipurinn lýsti drenglund
og viljastyrk. Vinum sínum var
hann sannur vinur.
Foreldrar mínir og fjölskylda
voru í hópi þeirra, sem nutu vin-
áttu hans og tryggðar. Fyrir það
flyt ég Gunnari einlæga þökk á
kveðjustund.
Eiginkonu hans og afkomendum
flyt ég samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Gunnars Péturssonar.
Sveinbjörn DagFinnsson
ANNAR landsfundur Friðar-
hreyfingar íslenskra kvenna verð-
ur haldinn laugardaginn 1. júní kl.
1 e.h. að Hamragörðum við Hofs-
vallagötu. Á landsfundinum munu
Helga Jóhannsdóttir og Una Berg-.
mann segja frá „friðarferðinni
miklu“ sem þær tóku þátt í í vor,
þar sem friðarhópar ýmissa sam-
taka í Evrópu ferðuðust milli
landa og lögðu fram almennar
spurningar um friðarvilja forsæt-
is- og utanríkisráðherra aðildar-
ríkja SÞ. Einnig verður flutt
fræðsluerindi og kynnt næsta
stóra verkefni hreyfingarinnar.
Það er að safna undirskriftum
meðal íslenskra kvenna undir al-
mennt friðarávarp, sem sent verð-
ur á ráðstefnu sem haldin er í Na-
irobi í sumar vegna loka kvenna-
áratugarins. Á fundinum verður
Prófpredik-
anir í háskóla-
kapellu
VÆNTANLEGIR guðfræðikandi-
datar, sem Ijúka prófum í vor, flytja
lokapredikanir sínar í kapellu Há-
skóla íslands í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Þeir nemendur, sem predika,
eru: Friðrik Ól. Schram, Helga
Soffía Konráðsdóttir, Heri J.
Joensen, Sigurður Ægisson og Sól-
veig Anna Bóasdóttir.
skýrsla miðstöðvar flutt, reikn-
ingar lagðir fram, kosið í mið-
stjórn og önnur málefni tekin
fyrir. Allir eru velkomnir og
hvattir til að leggja fram hug-
myndir sem til heilla horfa.
Frétutilkyaaing.
Háskólafyrírlestur:
Victor Hugo
og hafið
PIERRE CALLET, yfirfræðslustjóri
í franska menntamálaráðuneytinu,
flytur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands
föstudaginn 31. maí kl. 16:30 í
Skólabæ, Suðurgötu 26.
Fyrirlesturinn nefnist „Victor
Hugo et lá Mer“ (Victor Hugo og
hafið) og verður fluttur á frönsku.
ÖUum er heimill aðgangur.
Pierre Callet er sagnfræðingur
að mennt en hefur auk þess há-
skólapróf í lögfræði, þjóðfélags-
fræði og bókmenntum. Hann hef-
ur kennt við Institut des Etudes
Politiques í París og stundað
rannsóknir og er þekktur fræði-
maöur á sínu sviði.
Sama dag að loknum fyrirlestr-
inum verður opnuð sýning um
Victor Hugo í húsakynnum Alli-
ance Francaise á Laufásvegi 12, en
í þessum mánuði eru 100 ár liðin
frá dauða hans.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ólafIa k. sveinsdóttir,
fré Hruna, Ólatsvík,
verður jarösungin mánudaginn 3. júni kl. 10.30.
Athöfnin fer fram frá Fossvogskirkju.
Blóm og kransar eru vinsamlega afbeöin.
Þóröur Guömundsson,
Kristín Guömundsdóttir,
Aöalheiöur Guömundsdóttir,
María Guðmundsdóttir,
Nanna Guömundsdóttir,
Guörún A. Guömundsdóttir,
Guömundur Guömundsson,
Guömundur G. Þórarinsson,
Dagmar Clausen,
Magnús Kr. Jónsson,
Kristján Jósteinsson,
Matthildur Þ. Matthfasdóttir,
Anna B. Jónsdóttir.
Lokað
frá hádegi í dag vegna jaröarfarar
MARINÓS ÓLAFSSONAR.
Prjónastofan löunn hf,
Skerjabraut 1, Seltjarnar-
nesi.
Lokaö
i dag föstudag vegna útfarar KRISTJÁNS SVEINSSONAR.
Arkitektastofan
viö Austurvöll,
Pósthússtræti 17.
Lokað
vegna jaröarfarar föstudaginn 31. maí frá kl. 13.00 til
15.30. Gleraugnaverzl. Optik sf. Hafnarstræti 20.
Gunnar Pétursson,
loftskeytamaöur