Morgunblaðið - 31.05.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ1985
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
ny ujATnhi''aa'ij ir
Hvöt, félag Sjilfstæöiskvenna, heldur skemmtun.
Þakklæti til Hvatar
Kæri Velvakandi.
Bið þig vinsamlegast að birta
eftirfarandi fyrir 78 ára gamla
móður mína:
Mig langar til að færa stjórn
Hvatar, félags sjálfstæðis-
kvenna, innilegar þakkir fyrir
boð þeirra laugardaginn 18. mai
sl. Þessar góðu konur buðu
okkur eldri félagskonum á
skemmtun í Sjálfstæðishúsinu.
Þarna stóðu þær og tóku á móti
okkur gömlu konunum, brosandi
og alúðlegar. Okkur var boðið
upp á heimabakaðar kökur og
kaffi, formaður flokksins flutti
sérstaklega hlýlega og góða
ræðu, við vorum fræddar um
tryggingamál aldraðra. Söngur
og gamanvísur voru fluttar. Við
skemmtum okkur mjög vel og
áttum þarna indæla dagstund.
Svona eiga stjórnmálaflokkar að
vera. Hvöt sýndi þarna að ekki
er bara hugsað til okkar gamla
fólksins rétt fyrir kosningar til
stuðnings flokknum.
Ég vil ítreka þakkir mínar til
þessara góðu kvenna í stjórn
Hvatar. Oska ég þeim og Sjálf-
stæðisflokknum allra heilla í
framtíðinni.
Virdingarfyllst,
f.h. Guðmundu Helgadóttur
Margrét Sveinsdóttir
Þessir hringdu . . .
Þrautleiðinlegt
skaf tpottaglamur
Kona af Akureyri hringdi:
Ég er alveg sammála konunni,
sem skrifaði í Velvakanda um
daginn og sagði að nýju auglýs-
ingastefin í útvarpinu væru
þrautleiðinlegt skaftpottaglam-
ur. Ég var t.d. að telja þau nú
síðasta klukkutímann og fóru
þau upp í sex. í eitt skiptið ætl-
aði Jóhannes Arason að segja
hvað klukkan væri. Hann var
bara búinn að segja „klukkan
er ... “ og þá var þessu leiðinlega
stefi slengt á. Það er allt of mik-
ið gert af þessu. Ég vil helst ekki
hafa nein stef, heldur ætti að
hafa þetta eins og það áður var.
Ég veit eiginlega ekki hverju
þetta þjónar.
Stuðningur
við Hagvirki
Kinar hringdi:
Mig langar til að lýsa yfir
stuðningi við fyrirtækið Hag-
virki og þeirra áform um að
leggja veg til Akureyrar með
bundnu slitlagi. Einnig vil ég
lýsa óánægju minni með þá
stjórnmálamenn, sem eru á móti
þessu. Að lokum vil ég hvetja
alla þá, sem áhuga hafa á mál-
inu, til að láta frá sér heyra.
Fegurðarsam-
keppni er líka
fyrir karlmenn
Anna hringdi:
Ég vil endilega að haldnar
verði fegurðarsamkeppnir fyrir
karlmenn í eins formi og fyrir
kvenmenn. Karlmennirnir eiga
sama rétt á að spreyta sig eins
og kvenmennirnir. Mér finnst
svona fegurðarsamkeppnir mjög
jákvæðar, en það er mikil mis-
munun kynjanna að halda þær
einungis fyrir stelpur.
Leyfið köttunum
að vera heima
Svanlaug hjá Kaltavinafélaginu
hringdi:
Okkur er kunnugt um að kett-
ir hafa oft týnst frá sumarbú-
stöðum og lent í miklum hörm-
ungum. Það eru því vinsamleg
tilmæli til kattaeigenda að þeir
fari ekki með ketti sína í sumar-
bústaði eða í önnur ferðalög
heldur leyfi þeim að vera heima.
Þó er fólk hvatt til þess að láta
Kattavinafélagið vita ef eitthvað
hendir ketti þeirra.
Taktu flag
í fóstur
Rikki í Höfnum hringdi:
Ég er að reyna að halda fram
áróðri fyrir því að fólk taki flag í
fóstur. Venjan hefur verið sú að
þegar fólk grisjar í görðum sín-
um pakkar það því sem henda á í
poka og hendir því í sorpeyð-
ingarstöðina. Hins vegar vil ég
endilega að fólk taki þessa af-
ganga úr görðum sínum og í stað
þess að henda þeim ætti það að
gróðursetja meðfram Reykja-
nesbrautinni. Mér finnst sóun að
henda þessu í sorpið.
Ég hef reynt að gera þetta
sjálfur og er ég mjög hrifinn af
árangrinum. Fólk ætti að velja
sér moldarflag og setja þær jurt-
ir, sem eru duglegar við að fjölga
sér í flagið meðfram Reykjanes-
brautinni.
Þungarokk inn-
an um léttmetið
Rokkunnandi hringdi:
Mér finnst Skonrokk orðið dá-
lítið leiðigjarnt. Það mætti
gjarnan vera meira um þunga-
rokk innan um léttmetið. Síðast-
liðna þrjá þætti hefur ekki eitt
einasta þungarokkslag verið
spilað, og er það fyrir neðan all-
ar hellur miðað við það að þátt-
urinn á að þjóna sem flestum
tónlistarunnendum, en ekki bara
léttmetis-smáfólkinu. Þvi segi ég
að reglan ætti að vera: A.m.k.
eitt þungarokkslag á Skonrokks-
dag kemur skapinu í lag.
Að lokum vil ég þakka Sjón-
varpinu fyrir „Hótel Tindastól",
sem ég tel vera bestu gaman-
þætti sem sjónvarpið hefur sýnt.
Vonandi fáum við að sjá fleiri
þætti þegar þessi fyrsta þáttaröð
rennur sitt skeið á enda.
Dún og fiöur
Guðrún hringdi:
Ég vil gjarnan skila kæru
þakklæti til starfsmanna versl-
unarinnar „Dún og fiður" fyrir
mjög góða þjónustu og lipurð í
alla staði. Ég bý út á landi og
það sem ég pantaði úr verslun-
inni var komið til mín eftir einn
sólarhring.
FLYMO
SVIFNÓKKVARNIR
Fisléttir
hraðvirkir
meðfærilegir
Flymo rafsvifnökkvinn er besta,
léttasta og viðhaldsfríasta
sláttuvélin fyrir litla og
meðalstóra grasfleti,
100 m2 - 500 m2.
Flymo
rafsvifnökkvinn
er sá ódýrasti á
markaðinum.
Verð frá aðeins kr. 7.900,-
20 metra löng snúra fylgir.
Flymo svifnökkvann er auðvelt að
leggja saman og hengja upp á vegg
eftir notkun.
llálluvéla
markaóurinn
Smiðjuvegur 30 E-gata,
Kópavogur Simi 77066
Flymo
Látið JOKI vinna verkió
meö styrk og lipurð
JOKI færibandamótorar vinna nær hvaða verk sem
er án erfiöis, án hávaða, án afláts.
Lokaðir, oliukældir og sjálfsmyrjandi útiloka þeir
bæði raka og óhreinindi.
Þess vegna er hreinsun auðveld og allt viðhald ein-
faltog ódýrt.
í verksmiðjum, verslunum eða fiskvinnslustöðum
eru JOKI færibandamótorar trygging fyrir hreinlæti
og hagkvæmni í rekstri. JOKI er fáanlegur með
stiglausri hraðastillingu.
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN SELJAVEGI 2 SlMI 24260 REYKJAVlK
Bladburöarfólk
óskast!
Vesturbær
Faxaskjól
Kópavogur
Birkihvammur
Kópavogur
Hraunbraut
Úthverfi
Ðlesugróf