Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 15. JÚNl 1985
Kísilmálmyiimslan:
RTZ Metals
segir af eða á
á næstu vikrnn
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Stóriðjunefnd:
„Dagana 10.—13. júní dvöldust
hér á landi fulltrúar frá breska
fyrirtaekinu Rio Tinto Zinc Metals.
Tilgangur komunnar til Islands
var að kanna möguleika á eignar-
þátttöku RTZ Metals í Kísilmáim-
vinnslunni á Reyðarfirði. Fundir
voru haldnir með viðræðunefnd
Iðnaðarráðuneytisins um þátttöku
erlendra aðila í fyrirtækinu, svo
og með ráðgjafarverkfræðingum,
sem unnið hafa að áætlunum um
byggingu og rekstur. Ennfremur
fóru fulltrúar RTZ Metals til
Reyðarfjarðar til að kynna sér að-
stæður þar. Auk þess áttu full-
trúar fyrirtækisins stuttan fund
með iðnaðarráðherra. Ofangreind-
ir fundir voru fyrst og fremst í
þeim tilgangi að kynna RTZ Met-
als sem best allar áætlanir um
Kísilmálmvinnsluna. RTZ Metals
mun nú á næstu vikum vinna úr
þeim upplýsingum sem þeir hafa
aflað hér og munu innan nokkurra
vikna skýra íslenskum stjórnvöld-
um frá því, hvort þeir óski að
ganga til samningaviðræðna við
íslensk stjórnvöld um þátttöku í
fyrirtækinu."
Þorkell
Sýning
Elíasar
22. juni
í þættinum „Hvað er að ger-
ast um helgina“ í fóstudagsblaði
Morgunblaðsins í gær urðu þau
mistök, að sagt var að sýning
Elíasar B. Halldórssonar í vest-
ursal Kjarvalsstaða hæfist í dag.
Hið rétta er, að sýningin verður
opnuð laugardaginn 22. júní nk.
Morgunblaðið biðst afsökunar á
þessum mistökum.
Frá vinstri Ingi V. Jóhannsson, frá Húsnæðisstofnun rfkisins, Jóhann Einvarðsson, aðstoðarmaður ráöherra, Stefán Ólafsson, lektor Félagsvisindadeild
Háskólans, Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, Jón Rúnar Sveinsson, frá
Húsnæðisstofnun ríkisins, og Friðrík Jónsson, frá Félagsvísindadeild Háskólans.
Norrænir ónæmisfræðingar þinga í Reykjavík:
Nýlíftækni veldur straumhvörf-
um í heiibrigðisþjónustunni
NÚ STENDUR yfir í Menntaskólanum við Hamrahlíð í Reykjavík, 16.
áreþing norrænna ónæmisfræðinga og það fyrsta sem haldið er hérlendis. f
tengslum við þingið er haldið þriggja daga námskeið um sameindaerföafræði
og ónæmisfræði en þær mynda í sameiningu burðarás svokallaðrar „nýlíf-
tækni“, eins og segir í fréttatilkynningu frá undirbúningsnefnd ráðstefnunn-
ar.
1 samtali við Helga Valdimars-
son prófessor, sem sæti á í undir-
búningsnefndinni, kom fram að
margir telja að nýlíftæknin sé í
þann veginn að valda straum-
hvörfum á ýmsum sviðum heil-
brigðisþjónustunnar. Nefndi hann
sem dæmi, að nú þegar sé hægt að
koma í veg fyrir alvarlegar bækl-
anir vegna erfðagalla, með því að
greina gallana í fóstri á fyrstu
vikum meðgöngu, eða í foreldrun-
um og í náinni framtíð verði vænt-
anlega unnt að koma i veg fyrir
slíka sjúkdóma að mestu leyti.
Einnig kom fram hjá Helga að
þessi tækni eykur mjög verulega
skilning manna á eðli sjúkdóma
eins og krabbameins, hjarta- og
æðasjúkdóma, ofnæmis og liða-
gigtar. Sagði hann að menn teldu
nú litlar líkur á að þessi tækni
muni í náinni framtíð efla svo
skilning manna á orsökum og eðli
þessara sjúkdóma, að það valdi
viðlíka byltingu í baráttunni við
þá, eins og bakteríurannsóknir
ollu í baráttunni við smitsjúk-
dóma um síðustu aldamót.
Sem dæmi um árangur af rann-
sóknum á sviði nýlíftækni nefndi
Helgi að skyldleiki veirunnar, sem
veldur alnæmi (AIDS) annars veg-
ar og hinsvegar veirunnar sem
veldur visnu í sauðfé, hafi upp-
götvast með þessum aðferðum, en
þessi uppgötvun auki mjög skiln-
ing manna á báðum þessum sjúk-
dómum. Þetta dæmi sé þekktast
meðal almennings, en mörg fleiri
megi nefna.
Fram kom hjá Helga Valdi-
marssyni og öðrum úr undirbún-
ingsnefndinni, sem rætt var við í
gær, að þróun þessara mála er
óhemju hröð um þessar mundir og
því erfitt fyrir litla þjóð að fylgj-
ast með og hafi því verið efnt til
þessa námskeiðs, sem mun vera
hið fyrsta sinnar tegundar á Norð-
urlöndum. Fjöldi fyrirlesara er á
námskeiðinu, þeirra á meðal ýms-
ir af fremstu vísindamönnum á
þessu sviði, víða að úr heiminum.
Þátttakendur eru alls um 300, þar
af 70 Islendingar. Áformað er að
gefa alla fyrirlestrana út á bók.
Ráðstefnunni lýkur á sunnudag.
Fri þingi norrænna ónæmisfræðinga í Menntaskólanum við Hamrahlíð, þar sem einkum er rætt um möguleika þi sem felast í hinni s.k. „nýlíftækni".
Félagsmálaráðuneytið og Húsnæðisstofnun ríkisins:
Könnun gerð á hús-
næðisþörf ungs fólks
ÁKVEÐIÐ hefur verið að tilhlutan Húsnæðisstofnunar ríkisins og félags-
málaráðuneytisins að kanna húsnæðismál ungs fólks hér á landi. Sendur
hefur verið út spurningalisti til 1000 einstaklinga á aldrinum 18—29 ára og
þeir beðnir um að svara spurningum er varða viðhorf til þeirra valkosta, sem
bjóðast í húsnæðismálum.
Félagsvísindastofnun Háskóla
Islands mun sjá um framkvæmd
þessarar rannsóknar og hafa
starfsmenn hennar útbúið spurn-
ingalistann. Þeir munu síðan sjá
um að vinna úr þeim gögnum sem
berast. Vonast er til að sem flestir
taki þátt í þessari könnun og sendi
inn svörin hið fyrsta en stefnt er að
því að niðurstöður liggi fyrir í
haust.
Að sögn Alexanders Stefánsson-
ar, félagsmálaráðherra, hefur
könnun sem þessi ekki verið gerð
hér á landi áður og því ekkert vitað
um húsnæðisþarfir ungs fólks.
Niðurstöður könnunarinnar með
þeim upplýsingum sem þar fengj-
ust væru mjög nauðsynlegar ekki
síst þegar verið væri að marka
framtíðarstefnu í húsnæðismálum.
Á fundi með fréttamönnum kom
einnig fram að um 70% þeirra sem
sækja um lán til Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins væru á aldrinum 18 til
29 ára og að árið 1980 voru 46%
landsmanna undir 25 ára aldri.
Þetta er mun hærra hlutfail heldur
en á hinum Norðurlöndunum, þar
er það 30-37%.
Könnunin er liður í samnorrænu
verkefni á vegum norrænu hús-
næðisráðstefnunar, sem haldin er
árlega og fslendingar hafa verið
virkir þátttakendur að frá árinu
1982. Að tilhlutan Húsnæðisstofn-
unar ríkisins hefur húsnæðisstaða
ungs fólks verið tekin upp sem
verkefni innan ramma þessa nor-
ræna samstarfs og hefur Norræna
ráðherranefndin samþykkt að veita
395 þús. Nkr. til verkefnisins í
heild.
Fljótlega kom í ljós að íslend-
ingar stóðu hinum Norðurlanda-
þjóðunum að baki hvað varðar upp-
lýsingar um húsnæðisþarfir ungs
fólks og því var veitt 30 þús. Nkr.
aukafjárveiting til könnunarinnar
hér á landi.
Hafnarfjörður:
Undirskrifta-
söfnun vegna
áfengisútsölu
Undirskriftasöfnun stendur
nú yfir í Hafnarfirói þar sem
skorað er á bæjaryfirvöld að
kanna vilja bæjarbúa til opnun-
ar áfengisútsölu í bænum. Hóp-
ur manna stendur að könnun-
inni og hefur hann dreift undir-
skriftalistum á um 30 staði í
Hafnarfirði.
Þórarinn Jón Magnússon
ritstjóri sagði i samtali við
Morgunblaðið að þetta mál
hefði verið mikið rætt í Hafn-
arfirði hin síðari ár. Að undir-
skriftasöfnuninni stæðu menn
úr öllum flokkum. Þetta væru
aðeins tilmæli til bæjaryfir-
valda um að kanna hug fólks.
„Það er til marks um, hversu
aftarlega við erum á merinni,
að hér er verið að ræða um
heimild til opnunar áfengis-
útsölu meðan verið er að leyfa
bjórinn," sagði Þórarinn.
Hann kvaðst engar niðurstöð-
ur hafa úr undirskriftasöfnun-