Morgunblaðið - 15.06.1985, Qupperneq 7
Útifii ÍTÍ'UÍÍi .ÍÚ tj í ÍXít t >_ij /.J ,,ÍÍÍi.1..ÍC», 1íi fi'Jl.S
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. JÚNÍ 1985
7
Gróðursetningarferð að Reynivöllum í Kjós:
Verkefni fyrir
áhugafólk um
skógrækt blasa
hvarvetna við
— segir Vilhjálmur Sigtryggsson, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur
Skógræktarfélag Reykja-
víkur fer í sína árlegu gróð-
ursetningarferð að Reynivöll-
um í Kjós í dag. Lagt verður
af stað frá Skógræktarstöð-
inni í Fossvoginum kl. 11 í
langferðabíl og komiö aftur
til bæjarins kl. 16.00. Vonast
er til að sem flestir sjái sér
fært að leggja félaginu liö við
gróðursetninguna.
Það var árið 1983, sem hafist
var handa um gróðursetningu á
Reynivöllum og hafa þegar verið
gróðursettar 10 þús. plöntur í
skógræktargirðingunni. í ár er
stefnt að gróðursetningu 20 þús.
skógarplantna. „Þetta er alveg
sérlega gott land til skógræktar,"
sagði Vilhjálmur Sigtryggsson,
framkvæmdastjóri skógræktar-
félagsins, í gróðrarstöð Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur í Foss-
vogi. „Eftir að við friðuðum um
30 hektara lands á Reynivöllum
gjörbreyttist landið á skömmum
tíma og skógarplöntur, sem þar
hafa verið settar niður þrífast
mjög vel.
Öll aðstaða til skógræktar á
Reynivöllum er mun betri heldur
en þegar við byrjuðum að gróð-
ursetja í Heiðmörk eftir að hún
var friðuð 1950. Heiðmörk varð
til fyrir okkar tilstuðlan og hefur
verið undir okkar umsjón frá
upphafi. Þar hafa verið gróður-
settar á fimmtu milljón skógar-
plantna á okkar vegum og voru
þar að verki sjálfboðaliðar og
vinnuskóli Reykjavíkur auk
okkar starfsmannanna.
Á sínum tíma gáfum við fyrir-
tækjum og félagasamtökum kost
á að helga sér landspildur til
gróðursetningar og enn þá koma
„landnemarnir", sem voru miili
50 og 60 í upphafi, og sjá um sinn
reit. Nú hin síðustu ár hefur orðið
vakning, ef svo má að orði kom-
ast, og höfum við árlega úthlutað
um 10 nýjum „landnemum",
spildum til gróðursetningar.
Starfsmenn frá okkur leiðbeina
og aðstoða við gróðursetninguna
auk þess sem við útvegum plönt-
urnar."
— Hvaðan eru plönturnar?
„Skógræktarfélag Reykjavíkur
á og rekur gróðrarstöð í Fossvogi
þar sem plöntuuppeldi fer fram,
fyrst í gróðurhúsum og síðan í
útireitum. Hér eru um 900 fer-
metrar undir sáðfleti, sem gefa af
sér nærri 300 þús. plöntur á ári.
Á næstunni munum við stækka
stöðina því við stefnum að því að
geta framleitt hátt í milljón
plöntur á ári. Með það í huga höf-
um við byggt nýtt gróðurhús og
erum að koma þar til plöntum í
sérhönnuðum plastbökkum, sem
við byggjum miklar vonir við því
þeir koma til með að auka fram-
leiðslugetu stöðvarinnar og þá
um leið lækka gróðursetningar-
kostnaðinn."
— Á hverju byggir félagið af-
komu sína?
„Félagið byggir afkomu sína á
plöntusölu til einstaklinga, stofn-
ana og fyrirtækja auk þess sem
það hefur á undanförnum árum
unnið í náinni samvinnu við
Reykjavíkurborg og staðið að
gróðursetningu á hennar vegum í
Oskjuhlíð, Breiðholtshverfi og
Grænugróf. í sumar verður hald-
ið áfram við gróðursetningu í
landi Hólmsheiðar, sem byrjað
var á í fyrra. Landið hefur verið
hvílt í 10 ár og er vel undir skóg-
rækt búið.“
— Ykkur skortir greinilega
ekki verkefni.
„Nei, verkefni fyrir áhugafólk
um skógrækt blasa hvarvetna
við. Okkur til mikillar ánægju
hefur sá áhugi farið vaxandi á
undanförnum árum og má segja
að raunir frumkvöðlanna séu að
baki. Við búum nú að reynslu
fyrstu áranna og vitum meira um
hvaða plöntur henta við hvaða
aðstæður," sagði Vilhjálmur að
lokum.
AUKASYNING
MEÐ
R f Ó
í CCCADWAT
N K. SUNNUDAGSKVÖLD 16. JÚNÍ
Enn eru einhverjir sem
ekki hafa haft tækifæri til
aö sjá þá félaga, því gefa
þeir enn kost á sér vegna
fjölda áskorana.
ATH.:
Þetta er allra síöasta sýning. Láttu
þessa bæjarins bestu skemmtun ekki
fram hjá þér fara.
Tryggðu þér miöa og borö í dag í síma
77500.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19.00.
Stórhljómsveit Gunnars Þóröarsonar
ásamt Björgvin, Þuríöi og Sverri leika
svo fyrir dansi til kl. 03.00.
Bæjarins
besta
skemmtun er í
Þú finnur ánægjuna í Fríklúbbsferö meö Útsýn.
artiDxkf
Stórkostlegt tækifæri fyrir þig
í 6 manna hópi býöst þér 3000 kr.
kynningarafsiáttur fyrir feröafélagana
og frítt fyrir þig í 2 vikur í sól
og sumaryl!
Gildir aðeins til 18. júní fyrir nýjar
pantanir á fáum óseldum sætum til
Italíu, Spánar og Portúgal.
Austurstræti 17
símar:
26611 - 23510
Megum viö bjóöa þér
þaö besta á
Ítalíu —
Spáni og
Portúgal ? f