Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 13

Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1985 13 Matthías Bjarnason samgönguráðherra: Kynnir samgöngumál á fundum um land allt SAMGÖNGURÁÐHERRA, Matthías Bjarnason, mun fara ferð um landið dagana 20.—27. júní nk. og kynna samgöngumál. Með í ferðinni verða nokkrir sérfræðingar og stjórnendur stofnana sem heyra undir samgöngu- ráðuneytið. Á árinu 1984 heimsótti Matthías Bjarnason, ráðherra, ýmsa staði á landinu ásamt stjórnendum og sér- fræðingum á sviði heilbrigðismála og kynnti það sem efst var á baugi í þeim málaflokki. Á þessum ferðum kom vel í ljós hversu mikil þörf er á að miðla upp- lýsingum og kynna almenningi starfsemi hinna ýmsu ríkisstofn- ana. Ferð ráðherra hefst á Selfossi fimmtudaginn 20. júní og lýkur á Egilsstöðum fimmtudaginn 27. júní. Selfoss 20. júní — Tryggvaskáli kl. 21.00. Samgöngumál, Matthías Bjarna- son samgönguráðherra. Vegamál, Jón Rögvaldsson yfir- verkfræðingur Vegagerðar ríkisins. Póst- og símamál, Guðmundur Björnsson forstjóri fjármáladeildar Póst- og símamálastofnunar. Flugmál, Haukur Hauksson að- stoðarflugmálastjóri. Hafnarfjöröur 21. júní — Gafl-Inn kl. 21.00. Samgöngumál, Matthías Bjarna- son samgönguráðherra. Vegamál, Jón Rögnvaldsson yfir- verkfræðingur Vegagerðar ríkisins. Póst- og símamál, Guðmundur Björnsson forstjóri fjármáladeildar Póst- og símamálastofnunar. Ferðamál, Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri. Borgarnes 22. júní — Hótel Borgarnes kl. 14.00. Samgöngumál, Matthías Bjarna- son samgönguráðherra. Vegamál, Jón Rögnvaldsson yfir- verkfræðingur Vegagerðar ríkisins. Póst- og símamál, Gústav Arnar yfirverkfræðingur Póst- og síma- málastofnunar. Ferðamál, Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri. ísafjörður 24. júní — Menntaskólanum kl. 21.00. Samgöngumál, Matthías Bjarna- son samgönguráðherra. Vegamál, Helgi Hallgrímsson for- stjóri tæknideildar Vegagerðar ríkisins. Póst- og símamál, Gústav Arnar yfirverkfræðingur Póst- og síma- málastofnunar. Siglingamál, Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri. Sauðárkrókur 25. júní — Safnahúsið kl. 21.00. Samgöngumál, Matthías Bjarna- son samgönguráðherra. Vegamál, Helgi Hallgrímsson for- stjóri tæknideildar Vegagerðar ríkisins. Flugmál, Leifur Magnússon for- maður flugráðs. Vita- og hafnamál, Aðalsteinn Júlí- usson vita- og hafnamálastjóri. Akureyri 26. júní — Sjálfstæðishúsinu kl. 21.00. Samgöngumál, Matthías Bjarna- son samgönguráðherra. Vegamál, Helgi Hallgrfmsson for- stjóri tæknideildar Vegagerðar ríkisins. Póst- og símamál, Guðmundur Björnsson forstjóri fjármáladeildar Póst- og símamálastofnunar. Flugmál, Leifur Magnússon for- maður flugráðs. Ferðamál, Kjartan Lárusson for- stjóri Ferðaskrifstofu rfkisins. Matthías Bjarnason Egilsstaðir 27. júnf — Menntaskólanum kl. 21.00. Samgöngumál, Matthías Bjarna- son samgönguráðherra. Vegamál, Helgi Hallgrímsson for- stjóri tæknideildar Vegagerðar rfkisins. Flugmál, Jóhann Jónsson fjár- málastjóri Flugmálastjórnar. Ferðamál, Kjartan Lárusson for- stjóri Ferðaskrifstofu ríkisins. (Fréttatilkynning frá sam- gönguráðuneytinu.) Útgöngubanni aflétt á Nýju- Kaledóníu Nounu, Nýju Kaledónfu. AP. STJÓRNVÖLD á Nýju Kaledóníu hafa tilkynnt að aflétt sé ströngu út- göngubanni sem hefur verið í gildi frá því í janúar. Engu aö sjður eru neyðarlög áfram í gildi. Útgöngu- bannið gilti frá 22 á kvöldin til 5 að morgni. Þessi ákvörðun er einn liður í viðleitni hæstráðanda Nýju Kale- dóníu, Fernand Wibaux, sem telst vera undir yfirráðum Frakka, til að koma lífinu í Nouma í eðlilegt horf. Nokkrir tugir hafa látist í pólitiskum óeirðum í Nýju Kale- dóníu frá því í nóvember. Wibaux tók við starfinu sem að- alumboðsmaður Frakka af Edgard Pisani sem lét af því um síðustu mánaðamót. Keisaratal Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Michael Grant: The Roman Emper- ors. A Biographical Guide to the Rul- ers of Imperial Rome 31 BC-AD 476. Weidenfeld and Nicolson 1985. Michael Grant starfaði lengst af við háskólann í Cambridge, einnig í Edinborg. Hann hefur skrifað fjölda bóka um rómverska sögu og er meðal merkustu fræðimanna í þeirfi grein. Meðal rita hans eru: The World of Rome, The Army of the Caesars, History of Rome, The Dawn of the Middle Ages ofl. ofl. í þessari bók er birt keisaratal Rómaveldis frá upphafi og allt til 476. Sumir þeirra voru aðeins keisarar að nafni til, aðrir voru það í raun, keisarar yfir fjölþjóða ríki, því víðlendasta sem menn vita. Róm hefur markað alla sögu meira og minna og þar með okkar sögu. Höfundurinn telur að dýrkeypt reynsla tuttugustu aldar manna af persónudýrkun hafi fjarlægt menn persónusögu eins og hún birtist í sumum rómverskum heimildum og að þessar sömu heimildir geri of lítið úr félagsleg- um, efnahagslegum og menning- arlegum hvötum að gangi sögunn- ar. Grant telur að þessi þættir hafi vissulega ráðið miklu um alla þróun eða framvindu. Sumir þess- ara svonefndu keisara voru líkast- ir soðbollum sem rak niður tímans straum og sem höfðu engin áhrif á það hvert miðaði. Aðrir mótuðu svo vissa þætti samtíðar sinnar, að fram hjá því verður ekki geng- ið, að þeir réðu framvindunni og mótuðu hana, og áhrifa þeirrar mótunar gætti um aldir. Hvað hefði gerst ef Oktavíanus, Markús Árelíus, Diokletianus og Konstantínus mikli hefðu ekki mótað gang atburða eins og þeir vissulega gerðu. Keisaranafnið var vissulega meira en nafnið tómt. það krafðist mikils áræðis að taka við þeim starfa og því telur höfundurinn að það sé í fremsta máta eðlileg for- vitni, að grennslast fyrir um per- sónuleika og gerð þeirra manna, sem hlýddu kallinu. Höfundur fjallar um 92 keisara raðað upp í tímaröð. 100 aðrir báru keisaratitil, en þeir réðu að- eins hluta ríkisins og oftast skamma stund. Heimildir samtíð- ar höfunda um þessa 92 eru oft af mjög skornum skammti. Birt er heimildaskrá í bókarlok, en auk þeirra heimilda hefur höfundur leitað upplýsinga í myntir sam- tímans, áletranir og fornleifa- rannsóknir. Birtar eru myndir af þeim höggmyndum sem til eru af keis- urunum og annars myndir þeirra af myntum. Frá hægri: Helen Knútsdóttir, Hanna Sampsted, Bergþóra Guðnadóttir. Eigendaskipti á Spörtu Hárgreiðslustofan Sparta hefur breytingar hafi verið gerðar á nýverið skipt um eigendur. stofunni. í fréttatilkynningu frá nýju eig- Hárgreiðslustofan er staðsett endunum segir að gagngerar við Norðurbrún 2. jörtbur IqarÖinn Nú er a«t ab »a 09 Hér laerðu altt sem þu --------------------- Garðplöntur: TrA oq runnar. Eigum Ito 5SSSS5K®***"í"i9a' gróöurskála. Blómum vióavcröW ioterBora Carðéburöur. Þunkaöur hæ^naekítur trá Holtabuinu. Oaröáhöld allskonar. líSgur.Gar^önnur. Útiker, svalaker. Veggp°ttar 1 utvai' Gróðurtrús/nu v«3 SlgtUn:S/mar36770-686340

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.