Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 35

Morgunblaðið - 15.06.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ1985 35 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar \ húsnæöi ] c óskast í Húsnæði óskast Eldri maður óskar eftir stóru herb. eða 2 minni í mið- eöa vesturbæ fyrir 1. júlí. Uppl. í síma 19950. Dyresímar — Raflagnir Gestur rafvirkjam., s. 19637. Skerpingar Skerpi handsláttuvélar, hnífa, skæri og önnur bitjárn. Vinnustofan Framnesvegi 23, sími 21577. Almenn bænasamkoma kl. 20.30. Bæn, lofgjörö og þakkar- gjörö. Heimatrúboð leikmanna, Hverfisgötu 90. Almenn samkoma á morgun, sunnudag, kl. 20:30. Allir velkomnir FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferöir Feröafélagsins: 15. júni, kl. 13. - Viöey - Verð kr. 100. Fararstjóri: Lýöur Björnsson. Brottför frá Sunda- höfn. 16. júní, kl. 10. Selvogagatan - Herdíaarvík - gömul gönguleiö. Fararstjóri: Siguröur Kristjáns- son. Verö kr. 400. 16. júni, kl. 13. Eldborgin - Geitahlíö - Herdiaarvík. Farar- stjóri: Þórunn Þóröardóttir. Verö kr. 400. 17. júni, kl. 13. Selatangar - Grindavík. Selatangar eru gömul verstöö milli Grlndavikur og Krísuvíkur Allmiklar verbuöa- rústir eru þar. Þarna er stórbrotiö umhverfi og má einkum nefna Katlahraun vestan viö Tangana. Fararstjóri: Hjálmar Guömunds- son. Verö kr. 400. Miövikudag 19. júni er kvöldferö kl. 20. Ekiö aö Skeggjastööum í Mosfellssveit, gengiö þaöan aö Hrafnhólum og áfram í Þverárdal. Verö kr. 250. Brottför i allar ferö- irnar frá Umferöarmiöstööinni, austanrnegin (í Viöey frá Sunda- höfn). Fritt fyrir börn i fylgd fulloröinna. Feröaféiag íslands. ÚTIVISTARFjRÐlR Sólstööuferðin f Viöey veröur fimmtudaginn 20. júni kl. 20.00. Leiösögumaöur: Lýöur Björns- Útivistarferöir Sunnudagur 16. júnf kl. 10.30, Geitafell - Strandagjé Góöur utsýnisstaöur Fariö verö- ur um Krisuvik og Herdisarvík. Auöveld ganga fyrir alla. Verö kr. <•00. Fritt fyrir börn meö fullorön- Miövíkudagur 19. júnf kl. 20.00. Kvöldganga út í bláinn. Sjáumst. Utivist. Ménudagur 17. júnf kl. 13.00. 17. júní ganga á Esju Tilvaliö aö halda upp á þjóöhátiö- ardaginn meö góöri Esjugöngu. Gengiö á Þverfellshorn meö út- sýni yfir sundin blá. Verð kr. 300. Brottför frá BSi bensinsölu. KROSSINN ÁLKHÓLSVEGI 32 - KÓPAVOGI Samkomur á laugardögum kl. 20.30. Samkomur á sunnudög- um kl. 16.30. Blbliulestur á laug- ardögum kl. 20.30. V raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar fundir — mannfagnaöir Aðalfundur Almenns lífeyrissjóös iönaöarmanna veröur haldinn mánudaginn 1. júlínk.kl. 16.00 ífund- arsal landssambands iönaöarmanna Hall- veigarstíg 1 Reykjavík. Dagskrá: 1. Breytingar á reglugerö sjóösins. 2. Venjuleg aöalfundarstörf. 3. Önnur mál. Stjórnin. ýmislegt Matsveinafélag SSÍ í samvinnu viö Hótel- og veitingaskóla íslands efnir félagiö til námskeiös fyrir þá félaga, sem lengi hafa starfaö sem matsveinar en hafa ekki starfsréttindi. Námskeiöiö verður haldiö 12.-16. ágúst. Upplýsingar í símum 21815 og 35171. Innflutningur/útleysingar Get annast útleysingar á vörum gegn gjald- fresti. Tilb. sendist augl.deild Mbl. fyrir 21. júní merkt: „Innflutningur". húsnæöi i boöi Húsnæði Ármúla Til leigu er rúmlega 400 fm skrifstofuhúsnæði sem leigist í einu lagi eöa smærri einingum. Upplýsingar í síma 81996 á skrifstofutíma. Til leigu verzlunarhúsnæöi 225 fm við Skipholt. Laust strax. Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaös- ins fyrir 20. júní merkt: „H — 3571“. Ágætt til afslöppunar Hljómplötur Siguröur Sverrisson Það er lítid lát á velgengni Commodores-söngflokksins þrátt fyrir brotthlaup Lionel Richie. Á þessari nýjustu plötu fimmmenninganna halda þeir nokk sínu striki en hafa þó greinilega ekki farið varhluta af þeirri þróun, sem orðið hefur í undirleik hin síðari misseri. Trommu- heili og hljóðgervlar eru nefnilega mjög ráðandi, allt of að mínu viti, á þessari plötu. Sem fyrri daginn er tónlistin hjá Commodores með rólegu yf- irbragði. Sum laganna státa þó af „milli-tempói" ef manni leyf- ist að nota slíkt, mezzo-forte væri kannski betra, og ná að brjóta heidarsvipinn eilítið upp. Þó fer ekki hjá því að tónlist þeirra félaga verði þreytandi til lengdar. Lögin verða öll meira og minna samhljóma, ekki síst fyrir ofnotkun á trommuheila og moog-bassa. Þó má eflaust segja sem svo, að tónlist Commodores sé tilval- in til þess að slappa af við eftir eril hversdagsins. Konan mín, sem hefur aldeilis allt annan tónlistarsmekk en ég, var t.d. á því að svo væri. Snerist þó á sveif með mér undir lokin er hún sagði: „Hún verður dálítið einhæf til lengdar þessi tónlist." Áberandi besta lag plötunnar er að mínu viti hið feikivinsæla Nightshift, til minningar um Marvin Gaye og Jackie Wilson. Walter „Clyde" Orange á heið- urinn af því ásamt einhverjum tveimur utanaðkomandi. Með- limir Commodores eiga annars minnihlutann af lögunum 9 á plötunni en þrátt fyrir marga lagahöfunda tekst einhvern veg- inn að láta þetta allt saman hljóma svo að segja eins. Má vafalítið kenna þar um „of- pródúseringu" að einhverju levti. Fyrir þá, sem eru að leita sér að einhverju þægilegu til að hlusta á er Nightshift sennilega ágætis gripur, en sjálfur gef ég fremur lítið fyrir hana. MEL OG ADOLF Mel Brooks þarf að bregða sér í ýmis gervi í To Be or Not To Be, þ. á .m. þetta. Myndbönd Ámi Þórarinsson Ein af þeim bíómyndum sem ná verulegri útbreiðslu og vin- sældum á myndbandamarkaðn- um hérlendis áður en þær komast á tjald kvikmyndahúsanna er nýj- asta afsprengi Mel Brooks-geng- isins, To Be or Not To Be. Mynd- in er gerð 1983 og býðst á mynd- bandaleigunum undir merki CBS/FOX. Bíóréttinn hefur hins vegar Nýja bíó sem æ ofan í æ verður að horfa á eftir myndum sínum inní heimilisbíóin áður en þær ná á tjaldið. Mel Brooks var framan af ferli sínum á síðasta áratug annar helsti trúður bandarískr- ar kvikmyndagerðar, ásamt Woody Allen. Myndir eins og Blazing Saddles og Young Frankenstein voru a.m.k. í ein- stökum atriðum bráðfyndnar í grófri skopstælingu sinni á við- teknum kvikmyndahefðum. Eldri myndir eins og The Pro- ducers voru svo enn betri. En í seinni tíð hefur hallað undan fæti. Brooks hefur skort hug- myndaflug og óöguð, úthverf kímnigáfa hans hefur smátt og smátt koðnað niður, án þess að kunnátta hans á leikstjórn og kvikmyndatækni yfirleitt hafi tekið miklum framförum. Þessi lægð sást best á History of the World Part II, sem ekki tókst að kalla fram fleiri brosviprur en eina eða tvær þrátt fyrir ör- væntingarfullan bægslagang. Afturámóti stóð Brooks að framleiðslu úrvalsmynda ann- arra leikstjora, eins og Fíla- manns David Lynch. Og með To Be or Not To Be horfist hann í augu við þessa þróun. Brooks leikur að vísu aðalhlutverkið, ásamt eiginkonu sinni Anne Bancroft, en handritið er verk annarra og leikstjórinn er Alan Johnson, sem hannað hefur ýmis dansatriðin í myndum Brooks, eins og hið fræga „Springtime For Hitler“ atriði í The Producers. To Be or Not To Be sækir einmitt efni sitt á svipuð mið og það atriði. Mynd- in er endurgerð sígildrar gam- anmyndar Ernst Lubitsch með sama nafni frá árinu 1942 og skartaði Jack Benny og Carole Lombard í aðalhlutverkunum. Sögusviðið er Pólland í seinna stríði. Brooks og Ban- croft leika leikhússtjórahjón sem flækjast inn í stríðs- ástandið þegar þau og leik- flokkur þeirra þurfa að snúa á fulltrúa Hitlers á staðnum, for- ingjann Charles Durning og njósnarann Jose Ferrer. Báðir þessir leikarar fara á kostum í myndinni, en yfirspenntur farsaleikstíll hennar skilar í heild ekki miklu meira en 50% árangri. Brooks sjálfur túlkar þó leikhússtjórann, togstreitu vanmáttar og monts, með óvenju yfirveguðum hætti. To Be or Not To Be er hin þokka- legasta afþreying, en ekki mik- ið meira. Stjörnugjöf: To Be or Not To Be ★★

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.