Morgunblaðið - 15.06.1985, Blaðsíða 50
50---------------------------------------— ..............................................................................................................................................................................'MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNl 1985
nw\mn
„É9 v«it ofo dcmcxr)ta.r endast til
eiirtöar. En hvc& dittu sem du^ir
1 tvo mánu&t?"
3 -2.7
© 1985 Universal Press Syndicate
... að endurtaka
það aftur og aftur
Kjötið sé vel steikt, vínið með
réttu hiUstigi og sósan jafn-
þykk og svo af stað!
HÖGNI HREKKVlSI
Auðvitad eiga kjarnorkuvopn
^ \ J-il er á að Rússar séu að ná án
ekki að vera til 11,1 s,ij'
Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrif-
ar:
Heiðraði Velvakandi!
Það kemur mér hálf broslega
fyrir, þegar verið er að tala um
kjarnorkuvopnalaus svæði, eins og
t.d. hafið umhverfis ísland. Hver
skyldi hugsa sér að sjá um og leita
í hafinu? Ekki má bæta við eftir-
litsflugvélum hjá varnarliðinu og
helst ekkert gera sem telst til
varna meira en orðið er og þykir
mörgum nóg gert af hernaðar-
brölti Bandaríkjamanna, eins og
Alþýðubandalagið og Kvenna-
listakonur líta á varnaraðgerðir
til að þvinga Rússa til að ganga til
samninga um útrýmingu kjarn-
orkuvopna.
Auðvitað eiga kjarnorkuvopn
ekki að vera til. Samt finnst mér
það furðuleg fásinna að halda það,
að Bandaríkjamenn spyrji okkur
að því hvort hér megi vera kjarn-
orkuvopn, ef til átaka kæmi og
ekki búið að semja um að kjarn-
orkuvopn skuli aldrei notuð. Ég
býst ekki við að það hefði heldur
nokkurn tilgang að flytja hingað
kjarnavopn eftir að styrjöld væri
skollin á. Allt mundi gerast með
svo miklum hraða, að ekki væri
farið að standa í samningastappi
um ákvarðanir við einn eða neinn.
Fyrir það fyrsta er skipafloti
einskis virði. Það sýndi sig í Falk-
landseyjastríðinu. Hefðu Argent-
ínumenn átt nóg af þessum nýju
flugskeytum, sem sögð voru smíð-
uð í Frakklandi, þá hefðu þeir get-
að sökkt öllum brezka flotanum.
Skipafloti mun verða lítils virði,
því þeim myndi hreinlega verða
sökkt.
Flugvélar og kafbátar verða
tækin sem gera mestan usla, ef til
styrjaldar kæmi. Drápstækin eru
orðin gífurlega öflug og missa ekki
marks nema varnarbúnaður af
einhverju tagi verði fundinn upp
til að trufla stefnu þeirra og hætta
Kafbátar hafa innanborðs
kjarnavopn sem geta gereytt lönd-
um og heilum álfum á stuttum
tíma. Auk þess eru til líklega í
þúsundatali langdrægar eldflaug-
ar sem geta borið kjarnavopn eða
sprengjur, sem skotið er frá eld-
flauginni um stór svæði. Vegna
alls þessa er til lítils að tala um
kjarnorkuvopnalaus svæði á landi
eða á sjó, allra sízt ef ekki má
fjölga flugvélum til eftirlits. En til
þess þarf margar flugvélar af full-
komnustu gerð.
Hugmyndin um kjarnorkulaus
svæði er eingöngu Rússum í vil. Þá
geta þeir beitt sér af alefli gegn
Bandaríkjamönnum og geta verið
óhræddir fyrir árásum annars
staðar frá og er þeim ómetanlegt
hagræði — og vonarneisti um sig-
ur.
Það þarf að gera allt sem hægt
er til að þvinga Rússa til að ganga
til samninga um eyðingu kjarna-
vopna.
Þessir hringdu . .
Kattareðli
íslendinga
S.KrJ. hringdi:
íslendingar geta ekki farið eft-
ir neinum reglum. Mér finnst
vera hálfgert kattareðli i okkur
íslendingum. í umferðinni troð-
ast þeir hver fram fyrir annan
en komast samt ekkert úr spor-
unum og svína fyrir næsta bíl
bara til að reyna að pota sér
áfram nokkur hænufet. Af þessu
tilefni datt mér í hug ein vísa:
Ekki mun ég aka greitt
öðru þótt ég fórni,
er sem kattareðlið eitt
umferðinni stjórni.
Af hverju
ekki gíró?
Öryrki hringdi:
Við, ellilífeyrisþegar og ör-
yrkjar, fáum fellda niður eina
afborgun af fasteignagjöldum
okkar. Mér finnst af og frá að
þurfa yfirleitt að borga af þess-
um eignum þegar maður er
hvort sem er orðinn ófær um að
vinna en búinn að standa i eld-
línunni við framleiðslustörf og
við að ala upp sín börn allt sitt
líf.
Einnig vil ég láta I ljós reiði
mína út af því hvernig ég fæ
þessa reikninga, fasteignagjöld-
in, send heim frá gjaldheimt-
unni. Bæði í ár og í fyrra kom
„express“-maður með rukkunina
og síðan þurfti ég að kvitta fyrir
þessu. Sendiferðin kostaði gjald-
heimtuna 291 krónu. Því í ósköp-
unum er okkur ekki sendur gíró-
seðill?
Gangið betur um
Öldungur í Hafnarfirði
hringdi:
Ég vil endilega brýna fyrir
fólki að ganga hreinlega um.
Frekar finnst mér leiðinlegt
að aka á eftir fólki sem hendir
sælgætisbréfum út um gluggana
á bílum sínum og ætlast síðan til
að aðrir hirði upp eftir það.
Einnig hefur það oft skeð á
þvottaplönum að tvistar, olíu-
brúsar og annað drasl liggur út
um allt þó að ruslatunnur séu I
þriggja metra fjarlægð.
í útvarpinu 12. júní var sagt
eitthvað á þá leið að Reykjavík
væri fegurst borga norðan Alpa-
fjalla. En mér finnst mikið
vanta á fegurðina og umgengn-
ina áður en við förum að státa
okkur af svona löguðu.
Ég fór til Svíþjóðar um daginn
og hreinlega hálfskammaðist
mín þegar maður ber saman um-
gengni hjá þessum nágranna-
þjóðum.