Morgunblaðið - 15.06.1985, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 15.06.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAPtÐ, LAUGARDA&UR 15.-JÚNÍ 1385 Fær Pétur tilboð f rá FC Barcelona? „Allt óákveðið“ — segir Atli Eðvaldsson Atti Eðvaldsson Janus Guðlaugsson „Já, það er rétt, þjálfari frá Barcelona fylgdist með landsleiknum við Spánverja undir 21 árs. Eftir leikinn tal- aöi hann við mig, en þaö hef- ur ekkert komið meira út úr því enn sem komið er,“ sagöi Pótur Arnþórsson, miðvallarleikmaðurinn snjalli hjá Þrótti þegar við bárum þaö undir hann hvort erlendur þjálfari hefði haft samband við hann eftir leik- inn. Pétur sagöi aö þjálfari Barcelona heföi rætt viö sig eftir leikinn og sýnt því áhuga aö fá hann til liösins og sagt • Pétur Arnþórsson aö hann myndi hafa samband viö hann aftur síöar. Pétur tók þessu nokkuð létt og sagöi aö þaö kæmi bara í Ijós hvort hann heföi samband aftur, hann virtist ekki vera búinn aö gera það upp viö sig hvort hann ætlaöi í atvinnumennsk- una ef tilboö kæmi. Samkvæmt heimildum Morgunblaösins haföi þessi þjálfari einnig gætur á öðrum íslenskum leikmanni en ekki tókst aö staöfesta þá frétt. Þaö er því Ijóst aö Spánverjar viröast hafa áhuga á ungum íslenskum knattspyrnumönn- um. — Ég veit ekki enn hvað verö- ur, hvort ég verð áfram hjá For- tuna DUsseldorf eða fer eitthvert annað. Ég veit heldur ekki hvort ég fer til Italíu. Þetta er allt nokk- uð óljóst ennþá, en málin skýrast fljótlega. Samningar mínir eru lausir og það er alltaf óvissa með hvaö tekur við þegar svo er, sagði Atli Eðvaldsson, en samningur hans viö DUsseldorf er runninn út. En þaö eru fleiri en Atli sem eru meö lausa samninga. Janus Guö- laugsson hættir hjá Fortuna Köln og kemur heim; mun aö öllum lík- indum leika meö FH. Pétur Pét- ursson er meö lausan samning hjá Feyenoord, Magnús Bergs kemur heim, hættir hjá Braunschweig. Hann mun hafa í hyggju aö hætta allri knattspyrnuiðkun. Þá höfum viö skýrt frá því aö Teitur Þóröar- son hættir að leika í Sviss og fer til Öster í Svíþjóö. Þá er ekki ólíklegt aö Sigurður Grétarsson skipti um félag og hætti sem atvinnumaöur í Grikk- landi. Þaö veröa því aðeins, ef aö líkum lætur, Ásgeir Sigurvinsson og Siguröur Jónsson sem leika meö sömu félögum á næsta keppnistímabili. • Spánverjar tóku engum vettlingatökum á landsliðemönnum íalands |>egar þjóðirnar mættust í landsleik I knattspyrnu. Guömundur Steinsson lék síðustu mínútur leiksins en þaö nœgöi til að hann brákaðist. Hér má sjá hvernig einn varnarmanna Spánverjanna brýtur á Guðmundi. — leikur þó líklega gegn Víði í dag „ÞAÐ ER möguleiki á að ég geti leikiö á morgun (í dag) gegn Víöi,“ sagöi Guömundur Steins- son, sóknarmaðurinn knái hjá Fram í stuttu viðtali við Morgun- blaöiö í g»r. Útlit var fyrir að hann gæti ekki leikiö því hann meiddist í leiknum gegn Spán- verjum á miðvikudaginn, brákaöi bein í heröablaöi. Guömundur fór í gær til læknis og lét athuga meiöslin og sagöi eftir þá heimsókn aö nokkrar líkur væru á því aö hann gæti leikið meö. „Eg reikna meö aö hita upp fyrir leikinn og þaö veröur síöan aö koma í Ijós hvort ég get leikiö eöa ekki. Annars er þaö Ásgeir sem ræöur því, en þaö kemur sem sagt í Ijós rétt fyrir leikinn hvort ég treysti mér til aö leika." Sverrir Einarsson, fyrirliði Fram, hefur einnig átt viö meiösli aö stríöa. Hann fékk spark í leiknum við Val og hann er mikiö bólginn á kálfanum. „Ég hef veriö í lagi á æfingu og vona aö ég veröi í lagi i leiknum viö Víöi, annars er þaö As- geir sem ákveöur hvort þaö eru not fyrir mig,“ sagöi fyrirliði Fram í gær. „Það er ekki búið aö undirrita samninginn, en þaö er óhætt að segja aö þetta sé nokkurn veginn • Einar leikur á Spáni næsta keppnistímabil. 100% öruggt,“ sagöi Einar Þor- varðarson, markvöröur Vals og íslenska landsliösins, þegar við spurðum hann í gær hvört búið væri að ganga frá samningi hans og Tres de Mayo frá Kanaríeyjum. Einar sagöi, aö þaö ætti aðeins eftir aö ganga frá smáatriöum og hann bjóst viö aö þaö yröi gert í næstu viku. Hann sagöi aö for- ráðamenn liösins kæmu hingaö til lands aö ganga frá samningnum og ef af þessu yrði, þá reiknaöi Einar meö aö fara út þann 20. júlí og hefja æfingar. „Þaö leggst mjög vel í mig aö fara þangaö út til aö æfa og leika handbolta. Það veröur mjög gam- an að fara aö stunda handbolta almennilega," sagði Einar. Því má bæta hér viö, aö Sigurð- ur Gunnarsson, sem lék með Tres de Mayo á síöasta keppnistímabili, mun leika áfram meö liöinu. Hann fékk gott tilboö frá félaginu og ákvaö þá aö leika þar áfram í staö þess aö fara til Þýskalands eins og til stóö. Jim Bett til Aberdeen WEST HAM hefur nú krækt sér í sóknarmann sem þeir vonast til aö skori mikið af mörkum fyrir liðið. Sá sókn- djarfi heitir McAvenie og West Ham keypti hann frá StMirren fyrir 340.000 pund é fimmtudaginn. Luton var á eftir stráknum en stjórl West Ham snaraði sér til Skot- lands og samdi um kaup é drengnum á aöeins einni klukkustund. • Arnald Muhren, sem nú er 34 ára gamall, hefur nú gert þriggja ára samning viö Ajax í Hollandi og er því ioksins kominn heim, en eins og flest- ir muna hefur hann leikiö meö Man. Utd. síöustu þrjú ár en hann er frá Hollandi. • Jim Bett hefur nú loksins undirritaö samning viö Ab- erdeen í Skotlandl en hann hefur leikið meö Lokaren f Belgíu. Þaö voru fleiri á eftir Bett, þar á meöal Glasgow og Southampton, en svo virðist sem heimaslóöirnar hafi tog- aö i hann. • John Gregory hjá QPR hefur óskaö eftir sölu frá fó- laginu og Brighton hefur sýnt honum áhuga. Elnn galli er þó á þessu öllu, QPR vill fá 200.000 pund fyrir kappann en Brighton er ekki reiöubúiö aö greiða svo mikiö fyrir hann. Gregory þessi var keyptur fyrir 4 árum frá Brighton til QPR fyrir 400.000 pund. • Arthur Graham hefur gengið frá samningi viö Brad- ford City en hann lék áöur meö Man. Utd. • Stjóri Portsmouth, Alan Bail, er ekki mjög hress þessa dagana því hinn ungi og efni- legi markvöröur féiagsins vill nú losna og komast eitthvert annaö, helst til 1. deildarfé- lags. Alan Knight heitlr piltur- inn og er markvöröur lands- liös Engiands skipuöu leik- mönnum undir 21 árs. Raddlr eru uppi um að Arsenal vilji kaupa strák. • Lawrie McMenemy, fyrr- verandi stjóri Southampton, fékk heldur betur gott tilboö í gær. Sunderland bauð hon- um starf sem stjóra hjá þelm til fjögurra ára og á hann að fá fyrir þaö 250.000 pund. McMenemy dvelur nú i Bandaríkjunum i sumarleyfi þar sem hann ætlar aö hug- leiða þessi mál en hann sagöi að þetta tilboö frá Sunder- land freistaöi sín mikiö. Guðmundur brákaður Einar til Spánar — leikur líklega með Tres de Mayo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.