Morgunblaðið - 26.06.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNl 1985
Bensín hækkar um 16,5% í dag:
Bensínlítrinn kostar
nú 31 kr. og 10 aura
57,5 %af bensínverðinu renna beint í ríkissjóð, eða 17 krónur og 90 aurar
VERÐLAGSRÁÐ ákvað á fundi sín-
um í gær að heimila olíufélögunum
að hækka verð á bensínlítranum um
4,40 krónur, en það jafngildir 16,5%
hækkun. Hækkunin tekur gildi I
dag. Lítrinn fer því úr 26,70 krónum
í 31,10 krónur. Ráðið hefur fundað
mikið um þessa beiðni olíufélaganna
og til stóð að afgreiða hana á fundi
ráðsins í fyrradag, en þá var ákveðið
að fara betur yfir ákveðin gögn, áður
en endanlega yrði frá málinu gengið.
Þessi hækkun skiptist þannig að
innflutningsverð hækkar um 1,42
krónur á hvern lítra, opinber gjöld
hækka um 2,26 krónur á hvern
lítra, álagning hækkar um 68 aura
á hvern lítra og tillag til inn-
kaupajöfnunarreiknings hækkar
um 4 aura á hvern lítra.
Það vekur athygli, þegar skipt-
ingin á þessu nýja verði á bensín-
lítranum er skoðuð, að 57,5% af
verðinu rennur beint í ríkissjóð,
eða 17,90 krónur. Innkaupsverðið
er 9,04 krónur, álgningin er 3,17
krónur, verðjöfnunargjald er 39
aurar og tillag til innkaupajöfn-
unarreiknings 60 aurar.
Samkvæmt upplýsingum
Georgs ólafssonar verðlagsstjóra
var hlutdeild ríkissjóðs fyrir
hækkun þá sem gengur í gildi í
dag 58,5%. Sagði Georg að hlut-
deild ríkissjóðs hefði í mörg ár
verið á bilinu 55% og allt upp í
59% af verði hvers bensínlítra.
Samningar undirritaðir í Moskvu í gær:
Aukin kaup Rússa á lag-
meti og heilfrystum fiski“
— sagdi Matthías Á. Mathiesen vidskiptarádherra
FIMM ÁRA viðskiptasamningur íslands og Sovétríkjanna var undirritaður í
Moskvu í gærmorgun. Það voru viðskiptaráðherrar landanna, þeir Matthías
Á. Mathiesen og Nikolai S. Patolichev, sem undirrituðu samninginn, en pað
var gert strax og samningur Sfldarútvegsnefndar og Prodintorg um sfldar-
kaup Rússa á 200 þúsund tunnum hafði verið undirritaður. Sfldarsölusamn-
ingurinn gerir ráð fyrir því að Rússar fái sfldina fyrir 13% lægra verð en þeir
fengu hana í fyrra, en upphaflega kröfðust Rússar 45% verðlækkunar.
„Eftir að við höfðum átt viðræð-
ur við aðstoðarviðskiptaráðherra,
viðskiptaráðherra og aðstoðarfor-
Trygginga-
bætur hækka
um 7%
BÆTUR almannatrygginga
hækka um 7,5% þann 1. júlí
næstkomandi og frítekjumark
hækkar um 30% frá sama tíma,
að því er segir í frétt frá heil-
brigðis- og tryggingarráðuneyt-
inu. Matthías Bjarnason, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
gaf í gær út reglugerðir um
hækkunina.
Frá 1. júlí verða upphæðir
einstakra bótaflokka eftirfar-
andi: Elli- og örorkulífeyrir kr.
5.003. Hjónalífeyrir kr. 9.005.
Full tekjutrygging einstakl-
inga verður 7.331 króna og
hjóna 12.393 krónur. Heimilis-
uppbót verður 2.205 og barna-
lífeyrir vegna 1 barns krónur
3.063. Mæðralaun vegna 1
barns verða 1.920, vegna 2
barna 5.030 krónur og þriggja
barna kr. 8.922. Ekkjubætur 6
mánaða og 8 ára verða kr.
6.269 og 12 mánaða 4.701. Fæð-
ingarorlof verður kr. 22.369.
Vasapeningar samkvæmt 19.
grein verða 3.084 krónur og
samkvæmt 51. grein 2.592
krónur.
sætisráðherra Sovétríkjanna
komust viðræður á milli Síldar-
útvegsnefndar og Rússanna í gang
á nýjan leik,“ sagði Matthías Á.
Mathiesen i samtali við Morgun-
hlaöið í gær, „og seinni partinn í
gær var Ijóst að samningar myndu
takast.“
Matthías sagði að mjög vel hefði
verið unnið að því að ná samning-
um um síldarsöluna eftir að hann
kom til Moskvu. „Ég held að Síld-
arútvegsnefnd og framkvæmda-
stjóri hennar hafi gert sér grein
fyrir því hvað hér um ræddi og
þannig hafi skapast skilningur á
þeirri nauðsyn að ná saman.“
Matthías var spurður hvort ein-
hver nýmæli hefðu verið tekin upp
í þessum fimm ára viðskiptasamn-
ingi iandanna og sagði hann þá:
„Við óskuðum eftir því að litið yrði
á aukin kaup Sovétríkjanna í ár á
lagmeti, auk þess sem við óskuð-
um eftir því að þeir keyptu meira
af heilfrystum fiski. Þau mál eru
bæði í athugun, en það er óhætt að
segja að þessum óskum okkar var
jákvætt tekið.“
Matthías sagði að jákvætt and-
rúmsloft hefði verið í þeim við-
ræðum sem hann hefði tekið þátt í
og sagði hann að það hefði satt að
segja komið sér á óvart þegar síld-
arsöluviðræðurnar sigldu í strand,
því jákvæður tónn hefði einnig
verið í viðræðunum í apríl sl. hér
heima. Niðurstaðan þá hefði verið
okkur íslendingum í hag.
„Eins og staðan er tel ég að hér
sé um það að ræða að við höfum
gert hagstæöan viðskiptasamning
við Sovétríkin," sagði viðskipta-
ráðherra, „það er meira magn af
síld selt núna og meira magn af
frystum fiski í þessum fimm ára
samningi.“
Helstu kvótar fyrir vörutegund-
ir sem seldar verða til Sovétríkj-
anna hækka talsvert. Til dæmis
verður kvótinn fyrir freðfiskflök
20 til 25 þúsund tonn í stað 12 til
17 þúsund tonna, sömuleiðis salt-
síldarkvótinn. Kvóti fyrir ullar-
vörur hækkar í 5 til 6,5 milljónir
dollara, úr 4 til 4,9 milljónum doll-
ara. Aðalkaupin frá Sovétríkjun-
um eru á olíuvörum, og er þar gert
ráð fyrir svipuöum viðskiptum og
undanfarin ár. Er búist við að við-
skiptahalli við Sovétríkin fari
minnkandi með þessum nýja
samningi, en nokkur halli hefur
verið á þessum viðskiptum eftir að
olíuverðið fór hækkandi á 8. ára-
tugnum.
HorgunblaðiA/Friðþjðfur
PresUr ganga fylktu liði úr Menntaskólanum í Reykjavík til Dómkirkj-
unnar. Fremst eru séra Helga Soffla Konriðsdóttir og Sigurður Ægis-
son, sem vígðust í Dómkirkjunni 16. júní síðastliðinn.
Limaskýrslan aðal-
efni prestastefnu
„AÐALEFNI prestastefnu nú er Limaskýrslan, sem er árangur af ára-
tuga löngu starfi innan kirkjunnar um allan heim. Þessi skýrsla fjallar
um skírnina, altarissakramentið og þjónustu kirkjunnar. Hún var sam-
þykkt í Lima í Perú og tekur nafn sitt af borginni," sagði Bernharður
Guðmundsson, blaðafulltrúi þjóðkirkjunnar, í samtali við Morgunblað-
ið. Prestastefnan er að þessu sinni haldin í Reykjavík og sækja ’nana á
milli 90 og 100 prestar víðs vegar að af landinu.
„Limaskýrslan var lögð fyrir mundsson.
heimsþing Alkirkjuráðsins árið
1983 og þaðan send til allra að-
ildarkirkna til umsagnar og ber
að skila niðurstöðum fyrir næstu
áramót. Dr. Einar Sigurbjörns-
son hefur þýtt Limaskýrsluna á
íslenzku og hefur hún verið til
umfjöllunar í söfnuðum iandsins
og á kirkjulegum fundum og
verður á dagskrá kirkjuþings í
haust,“ sagði Bernharður Guð-
t gær fluttu inngangserindi
séra Bolli Gústavsson í Laufási
um skírnina, séra Heimir
Steinsson flutti erindi um altar-
isgönguna, dr. Einar Sigur-
björnsson, prófessor, flutti er-
indi um þjónustuna og séra
Dalla Þórðardóttir á Dalvík
flutti erindi um Limaskýrsluna í
safnaðarstarfinu. Prestastefnu
iýkur á morgun.
Verkbann færeyska skipstjórasambandsins:
Hefur engin áhrif
á ferdir Norröna
— segir Ole Hammer forstjóri SmyriJ Line
F/EREYSKA skipstjóra- og stýrimannasambandið hefur reynt að stöðva
ferðir ferjunnar Norrönu með því að setja stýrimanninn í verkbann. Ástæðan
er sú að ekki hefur náðst samkomulag um það hvort nýgerðir samningar um
vinnu sjómanna á kaupskipum gildi um vinnu á farþegaskipum. „Það fær
ekkert raskað ferðum Norrönu, hún siglir á réttum tíma,“ sagði Ole Hamm-
er forstjóri Smyril Line í Þórshöfn.
Gerðardómur úrskurðaði nýlega
að samkomulagið um vinnu á
kaupskipum gilti ekki um far-
menn á farþegaskipum, og er það
með tilvísun til þessa sem verk-
bannið er sett á. Vinnuveitendur
hafa beöið um umhugsunartima
og telja að skoða þurfi málið bet-
ur. Ole Hammer vildi sem minnst
úr deilunni gera. Norröna sigldi
frá Noregi í gær og er væntanleg
til Þórshafnar kl. 14.00 í dag. „Við
leggjum úr höfn á áætlun,“ sagði
Hammer, „Norröna kemur til
Seyði8fjarðar á fimmtudagsmorg-
un, ég ábyrgist það.“
Rannsóknir á krabbameinstíðni múrara:
Uggvænlegar niður-
stöour fyrir stéttina
— segir formaður Múrarafélags Reykjavíkur
„NIÐURSTÖÐUR þessara annsókna eru vissulega uggvænlegar fyrir
stéttina og við munum leggja áherslu í að flnna einhverjar leiðir til
úrbóta,“ sagði Helgi Steinar Karlsson, formaður Múrarafélags Reykja-
víkur, er hann var inntur álits á niðurstöðum rannsókna á dánarmeinum
islenskra múrara. Frá þeim var sagt í frétt Morgunblaðsins á sunnudag-
inn og kom þar m.a. fram, að múrurum er tvöfalt hættara við að deyja úr
lungnakrabbameini en öðrum íslenskum körlum. Helgi Steinar sagði, að
skýrsian nefði verið kynnt félagsmönnum félaga innan Múrarasambands
íslands og send ásamt bréfl raeð varnaðarorðum til allra félagsmanna í
Múrarasambandinu.
Helgi Steinar sagði að stjórn
og trúnaðarmannaráð sam-
bandsins hefði fjallað um þessar
niðurstöður og í framhaldi af því
hefði öllum félagsmönnum verið
sendur útdráttur úr skýrslunni
og bréf, þar sem múrarar eru
sérstaklega hvattir til að sýna
aðgát við vinnu sína. í bréfinu
segir meðal annars:
„Við viljum beina því til allra
múrara, að þeir kynni sér vel
efni skýrslunnar og treystum
því, að þeir verði sér betur með-
vitandi eftir en áður, um nauð-
syn þess að umgangast efni þau,
sem þeir vinna með, með þeirri
gát sem nauðsynleg er, þar til
frekari niðurstöður rannsókna á
vinnuumhverfi múrara liggur
fyrir. Við viljum brýna fyrir fé-
lögum okkar að leitast við að
draga svo sem unnt er úr ryk-
mengun á vinnustað, svo sem
með loftræstingu og gætni við
meðferð á þurru sementi. f öðru
lagi að nota rykgrímur þar sem
ekki er unnt að halda rykmeng-
un niðri. Að nota hlffðarfatnað
og annað, sem varið getur húð-
ina fyrir snertingu við sement og
steypulögun eftir því sem við
verður komið. Að leita læknis
þegar húðsjúkdómar eða sjúk-
dómar f öndunarfærum gera
vart við sig.“ í niðurlagi bréfsins
segir síðan: „Þótt skýrslan lytji
okkur válegan boðskap skulum
við ekki fyllast svartsýni heldur
leggja hver um sig þá lóð á vog-
arskálina, sem nægt getur til að
gera vinnuumhverfi múrara
sambærilegt við það, sem al-
gengast er, til að snúa til betri
vegar þvf sem farið hefur úr-
skeiðis."
Á mánudagskvöld var fundur í
Múrarafélagi Reykjavíkur, þar
sem Vilhjálmur Rafnsson íækn-
ir, sem ásamt Soffíu G. Jóhann-
esdóttur vann að fyrrgreindum
rannsóknum, gerði grein fyrir
efni skýrslunnar og sat fyrir
svörum. Vilhjálmur hefur áður
verið á slíkum fundi með stjórn-
ar- og trúnaðarmönnum Múr-
arafélags Reykjavíkur. „Við Ift-
um þetta mál mjög alvarlegum
augum og í ljósi áframhaldandi
rannsókna verður reynt að finna
leiðir til að draga úr þessari
hættu svo sem kostur er,“ sagði
Helgi Steinar Karlsson.