Morgunblaðið - 26.06.1985, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNl 1985
19
Hafnarbúðir
— eftir Friðrik
Einarsson
ólafur örn Arnarson, yfirlækn-
ir, segir í Morgunblaðinu 22. júní:
„Eg álít að Landakotsspítali eigi
fullan rétt á því að taka við rekstri
Hafnarbúða."
Ekki er nú lítið tekið upp í sig!
Ekki hefir Borgarspítalinn gefið
í skyn, að hann ætli að hætta
rekstri þessarar deildar, eða ann-
arra deilda spítalans. Fjarri fer
því.
Hér fer á eftir samþykkt stjórn-
ar sjúkrastofnana Reykjavíkur-
borgar frá því 11. janúar 1985:
„Stjórn sjúkrastofnana Reykja-
víkurborgar telur ekki að það leysi
neinn vanda hjúkrunarsjúklinga í
Reykjavík, þó að Hafnarbúðir
yrðu fengnar Landakotsspítala í
hendur, þar sem rúmafjöldi í heild
eykst ekki við það. Það myndi aft-
ur á móti raska starfsemi hjúkr-
unardeilda, sem langan tíma hefir
tekið að byggja upp og eru vel
reknar, í samræmi við upphafleg-
an tilgang og markmið. Besta
lausnin er að hraða byggingu B-
álmunnar, svo að fleiri sjúkrarúm
fáist til hjúkrunar aldraðs fólks í
borginni. Stjórn sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar er, af samtöl-
um við forráðamenn Landa-
kotsspítala, ljós hinn mikli skort-
ur á vistunarrými þar, og er fús til
samstarfs um aukna hlutdeild
sjúklinga þaðan í vistun á öldurn-
ardeildum B-álmu Borgarspítal-
ans.“
Og í framhaldi af þessari bókun
14. júní 1985:
„Stjórnin telur, að misráðið sé
að breyta út af samþykkt þessari.
Tilboð það, sem komið hefir fram
til kaupa á Hafnarbúðum er mjög
ófullnægjandi, bæði miðað við
Friðrik Einarsson
verð og greiðslumáta. Myndi það
ekki hjálpa verulega til að ljúka
við B-álmu Borgarspitalans vegna
lágrar útborgunar og langs
greiðslutíma.
Það er því eindregin ósk stjórn-
ar sjúkrastofnana Reykjavíkur-
borgar að Hafnarbúðir verði
áfram reknar með sama hætti og
verið hefur. Það hefur reynst vel.“
Sama álit kemur fram í greinar-
gerð læknaráðs Borgarspítalans í
Morgunblaðinu 16. júní 1985.
Ennfremur hefir 51 manns starfs-
lið Hafnarbúða sent hverjum ein-
stökum borgarstjórnarmanni og
varamanni eiginhandar undir-
skrifaða áskorun um að hverfa
ekki að þessu óráði, enda „höggvi
þá sá er hlífa skyldi“ (Mbl. 22. júní
1985).
Rekstur hjúkrunar- og endur-
hæfingadeildar Borgarspítalans í
Hafnarbúðum er i fullum gangi.
Hvert legurúm (25 talsins) full-
skipað lasburða gamalmennum,
þar sem meðalaldur er 84 ár, og
starfslið fullskipað. Ennfremur
dagdeild með um 25 öldruðum,
Aðalfundur Búseta
í Reykjavík
sem skipt er í tvo hópa: 12—13 í
hvorum. Annar hópurinn er 3
daga vikunnar en hinn 2. 4 legu-
rúm kvenna eru notuð fyrir
skammtímainnlagnir, til þess að
hvíla heimili, þar sem eru las-
burða gamalmenni og heimilin að
sligast undan umönnun þeirra.
Þessar innlagnir eru i nánu sam-
starfi við heimilishjálp og heima-
hjúkrun og hefir getað veitt nokk-
uð á fjórða hundrað heimilum
hjálp í a.m.k. einn mánuð i senn.
Eg hefi oft óskað þess að geta
ráðstafað a.m.k. helmingi legu-
plássanna í þessu skyni, svo brýn
er þörfin þarna. En til þess þyrfti
deildin að vera um helmingi
stærri.
Skortur á hjúkrunar- og endur-
hæfingaplássum fyrir gamalt fólk
er eitt af brýnustu vandamálum
heilbrigðisþjónustunnar í dag. Um
það þarf ekki að fjölyrða hér. Það
er ekkert — alls ekkert, sem bend-
ir til þess að nein lausn fengist á
þessum vanda, þótt plássin væru
tekin af Borgarspítalanum og
fengin Landakotsspitala. Þetta er
ekki í þágu gamla fólksins.
Eg vil nú skora á þá sterku
menn, sem standa að baki sjálfs-
eignarstofnuninni Landakotsspít-
ala, að koma sér upp hjúkrunar-
og langlegudeild, en gera það á
þann hátt að plássum fjölgi, en
séu ekki bara tekin frá öðrum
spítölum.
Eg hefi ekki í höndum samþykkt
borgarstjórnar eða loforð, sem
gerð mun hafa verið á sínum tíma
um að selja ekki Borgarspítalann.
Hafnarbúðir eru hluti af Borg-
arspítalanum, alveg eins og t.d.
Grensásdeild og hjúkrunardeild i
Heilsuverndarstöðinni. Eg held að
ekki ætti að selja og afhenda
neina af þessum deildum, hvorki
einkaspítala, né öðrum. Eg trúi
ekki að borgarstjórn standi að
slíkum óvinafagnaði.
Höfundur er fyrnr. læknir
Hafnarbúða.
AÐALFUNDUR BúseU í Reykjavík
var haldinn fyrir skömmu. A fundin-
um flutti formaður félagsins, Jón
Rúnar Sveinsson, skýrslu stjórnar
og formaður byggingarnefndar, Páll
Gunnlaugsson, kynnti fyrirhugaðar
byggingarframkvæmdir. Urðu mikl-
ar umræður um þessi mál á fundin-
um og mikill áhugi á framgangi
hagsmunamála Búsetafélaganna.
Fundurinn samþykkti eftirfar-
andi ályktun:
„Aöalfundur Búseta ítrekar þá
brýnu nauðsyn sem orðin er á því
að taka allt húsnæðiskerfið til
gagngerrar endurskoðunar, hvort
sem það er fjármögnunin, fram-
kvæmdamátinn. nýtingin eða
eignarhaldið. Islenska húsnæði-
kerfið er í rúst og það verður að
fara að takast á við framtíðar-
skipan þessara mála, jafnframt
því sem lausn er fundin á stundar-
vanda húsbyggjenda og kaupenda.
Ef húsnæðismálin eru áfram látin
reka á reiðanum munu íslend-
ingar í þúsundatali flytjast af
landi brott á næstu árum ekki síst
ungt fólk, og þeir sem nú eru bú-
settir erlendis koma ekki til lands-
ins af sömu ástæðum."
Einnig samþykkti fundurinn
eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur Búseta í Reykjavík
haídinn 16. maí 1985 skorar á Al-
þingi og ríkisstjórn að koma á
1 grein um Norræna samvinnu í
New York í Morgunblaðinu í gær á
blaðsíðu 28, er ranglega farið með
nafn eins aðila í myndartexta.
Heitir hann réttu nafni Edda
húsaleigustyrkjum til láglauna-
fólks hið allra fyrsta, enda er það
eini möguleiki aldraðra, öryrkja
og annarra svokallaðra forgangs-
hópa til að nýta sér búsetu-
réttarkerfið eða aðrar félagslegar
leiðir til húsnæðisöflunar." Stjórn
Búseta í Reykjavík var öll endur-
kjörin, en hana skipa: Jón Rúnar
Sveinsson formaður og meðstjórn-
endur: Ásdís Ingólfsdóttir, Auður
Styrkársdóttir, Birna Þórðardótt-
ir, Gísli Hjaltason, Guðni Jóhann-
esson og Jón Ásgeir Sigurðsson.
Varamenn í stjórn eru: - Páll
Gunnlaugsson, Sigurjón Þorbergs-
son, Guðmunda Helgadóttir, Guð-
ríður Haraldsdóttir og Harpa
Njálsdóttir. Endurskoðendur eru
Ingi Valur Jóhannsson og Jón
Kjartansson.
Þá kaus fundurinn þriggja
manna byggingarnefnd og er Páll
Gunnlaugsson formaður hennar.
í fundarlok var stjórnar-
mönnum og öðrum sem unnið
höfðu frábær störf í þágu félags-
ins allt frá stofnun þakkað sér-
staklega fyrir unnin verk, þrátt
fyrir erfiðar ástæður. Búseti rekur
skrifstofu í Hamragörðum að Há-
vallagötu 24 í samvinnu við hið
nýstofnaða landssamband hús-
næðissamvinnufélaga og starfs-
maður er Reynir Ingibjartsson.
(ílr rrr-IUljlkTnninjfu)
Stefánsdóttir Magnússon, en ekki
Edda Magnúsdóttir. Hlutaðeig-
endur eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Leiðrétting
Mótsgjald er kr. 200 fyrir 12 ára og eldri.
Ókeypis fyrir börn.
Hægt veröur aö kaupa allan mat eöa einstakar máltíöir.
Þeir sem vilja geta haft meö sér nesti.
Kaffitería veröur á staönum, sjoppa og bóksala.
Mótsgestir hafi meö sér viöleguútbúnaö og skjólgóöan
fatnaö.
Vatnaskóá
28.—30. júní
1985
Kristilegar samkomur alla helgina, auk þess Biblíulestur,
söngvasamkoma og síöast en ekki síst kristniboössam-
koma þar sem Jónas Þórisson kristniboöi og fjölskylda,
sem eru nýkomin frá Eþíópíu, segja glænýjar fréttir.
Boöiö verður upp á barnasamkomur fyrir börnin og barna-
gæzlu á meöan foreldrar eru á samkomu. Auk þess veröur
bátaleiga, leikir og íþróttir og hin fallega náttúra Vatna-
skógar er tilvalin til gönguferöa og útivistar.
Samband íslenzkra kristniboösfélaaa.
Almenna
mótíðí
Kristniboðsþing 1.—3. júlí
LANDSBANKINN
Banki alliv landsmaiiita