Morgunblaðið - 26.06.1985, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JUnI 1985
Madonna hættir
meyjarstandinu
New York, 25. júní. AP.
ROKKSTJARNAN Madonna ætlar að fara að gifta sig og sá
lukkulegi er leikari að nafni Sean Penn. Madonna, sem er 24
ára gömul, sagði frá þessum gleðitíðindum í viðtali við The
New York Daily News en brúðkaupið á að fara fram í ágúst.
Búist við breytingum
á ítölsku stjórninni
Madonna, sem heitir fullu
nafni Madonna Louise Ciccone, er
einhver vinsælasta rokkstjarna
vestra nú um stundir og er það
fyrst og fremst frumleg fram-
koma hennar sem trekkir að en
ekki söngurinn. Nú nýlega hélt
hún tónleika í Útvarpstónlistar-
höllinni í New York og seldust
allir miðarnir upp á hálftíina sem
er met. Madonna hefur líka leikið
í kvikmynd, sem heitir „Örvænt-
ingarfull leit að Susan“, og fengið
mjög lofsamlega dóma fyrir
frammistöðuna. Þau Penn hafa
nú á prjónunum að leika saman í
mynd sem á að heita „Olíuleiðsl-
an“ og er sögusviðið olíusvæðin í
Alaska.
Madonna hefur mótað alveg
nýja tísku meðal aðdáenda sinna,
sem aðallega eru kynsystur henn-
ar, en þar ber mest á blúnduverki
alls konar, lífstykkjum, sem ekki
eru höfð innst helstur yst fata og
svo er hún ber fyrir ofan lífstykk-
ið og upp undir brjóst.
Liv Ullman
Liv Ullman
í það heilaga
Ósló, 25. júní. AP.
NORSKA leikkonan Liv Ullman
og bandaríski fasteignasalinn
Donald L. Saunders munu ganga
í það heilaga þann 8. september í
haust. Frændi Ullmann, Viggo
Ullmann, sem býr í Lillchammer
í Noregi, staðfesti þetta í gær.
Liv Ullman fæddist í Tókýó í
Japan 16. desember árið 1938
og kom fyrst fram á leiksviði í
Rogalandsleikhúsinu í Staf-
angri árið 1957. Hefur hún
leikið i norskum, sænskum og
bandarískum kvikmyndum, en
kunnust er hún fyrir leik sinn í
myndum Ingmars Bergman.
Liv Ullman er 46 ára gömul en
mannsefnið hennar stendur á
fimmtugu.
Rómaborg, 25. júní. AP.
LÍKUR benda nú til þess að breyt-
ingar á ríkisstjórn Ítalíu sigli í kjölfar
kjörs Francescos Cossiga, sem heyrir
Kristilegum demókrötum til, í emb-
ætti forseta í gær. Cossiga fékk mik-
inn meirihluta atkvæða, en þingið kýs
forseta landsins.
Það, sem kom þó mest á óvart við
kjör Cossigas, var að kommúnistar
studdu hann. Létu kommúnistar að
því liggja að stuðningur þeirra við
stjórnmálamann úr flokki kristi-
legra demókrata geti markað upp-
haf að frekari samstarfi þessara
flokka.
Cossiga hlaut alls 752 atkvæði af
979 mögulegum.
Benito Craxi forsætisráðherra
lýsti því yfir að hann myndi segja
af sér eftir að Cossiga sver embætt-
iseið sinn, 8. júlí. Hins vegar er bú-
ist við því að Craxi verði falið að
gegna áfram forsætisráðherraemb-
ættinu, en að dómi fréttaskýrenda
má ætla að hann geri einhverjar
breytingar á stjórn sinni.
Sósíalistar studdu einnig Cossiga
í forsetakjörinu, og telja margir
stjórnmálamenn að einingin um
hinn nýja forseta muni leiða til
meira jafnvægis í ítölskum stjórn-
málum.
í stuttri ræðu sem Cossiga hélt
eftir kjör sitt sagðist hann telja sig
fulltrúa kennara, starfsfólks í heil-
brigðisþjónustunni og verksmiðj-
um, hinna sjúku og atvinnuleys-
ingja: „Ég er úr hópi þessa fólks, ég
hef umboð stjórnarskrárinnar og
þingsins til að vinna með því og
fyrir það.“
Cossiga, sem er mjög virtur með-
al stjórnmálamanna úr öllum
flokkum, er nú forseti öldunga-
deildar þingsins. Hann hefur einnig
tvívegis verið forsætisráðherra og
einu sinni innanríkisráðherra.
Vélmenni í stað
þjónustufólks
TALSVERÐAR líkur eru nú taldar
á því að opnaður verði skyndibita-
staður í New York-borg, þar sem
vélmenni munu þjóna gestum.
Forráðamenn fyrirtækisins Hugh-
es International, sem framleiðir
hamborgara, segjast bjartsýnir á
að staðurinn verði opnaður í lok
þessa árs eða í byrjun næsta árs.
Samkvæmt áætlun fyrirtæk-
isins munu vélmenni ekki ein-
ungis taka við pöntunum, elda
og færa gestum mat sinn, heldur
einnig taka við og skipta pen-
ingum, og síðan þakka „pent“
fyrir sig með bros á vör.
Að sögn markaðssérfræðinga
á þessi hugmynd um fullkom-
lega vélvæddan skyndibitastað
örugglega eftir að draga að sér
þúsundir viðskiptavina, enda
þótt það væri ekki nema fyrir
forvitni sakir.
Rokkstjarnan Madonna
SPARISKIRI I INI RIKISSJOÐS
ERU EKKI ÖLL EINS
Ein gerðin er innleysanleg strax 10. júlí á næsta ári og samt með háu vöxtunum
og fullkomlega verðtryggð.
Vextirnir eru meðaltal vaxta 6 mánaða verðtryggðra reikninga viðskiptabankanna
og 50% vaxtaauki þar á ofan.
DÆMI UM ÁVÖXTUN:
10. jan - 10. aprfl
voru vextir og verðtrygging af 100 þús. kr. spariskírteini m/hreyfanlegum vöxtum
kr. 11.292.-
sem gerði á ári
kr. 53.747.-_____________________________
♦Miðað er við sömu vísitölubreytingar og voru jan.-apríl 1985.
semvexogvex
Sölustaðir eru:
Seðlabanki (slands, viðskiptabankamir, sparisjóðir, nokkrír verðbréfasalar og pósthús um land allt.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS