Morgunblaðið - 26.06.1985, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1985
43
Spilamennskan getur
orðið að fíkn
Sveinsína Jónsdóttir skrifar:
Ég var að bíða eftir strætis-
vagni inn í biðskýli á Lækjartorgi
einn daginn. Þá kemur til mín
telpa 9—10 ára og biður mig að
gefa sér tíu krónur. Ég spyr hvað
hún ætli að gera við peningana.
Hún segist ætla að spila í Rauða
kross kassa, sem var stutt frá. Ég
benti henni á að hún hefði ekki
aldur til þess, það væri bannað
bðrnum innan 16 ára.
Þarna í sælgætisbúðinni á torg-
inu voru fullorðnir og börn að
spila í þessum kössum. Ég spyr:
Er þetta góðgerðarstarfsemi að
hafa svona peningaspilakassa á
almannafæri? Ég hef fylgst dálít-
ið með hverjir það eru sem spila á
þessa Rauða kross kassa og mín
niðurstaða er að það séu ellilífeyr-
isþegar, sjúklingar og börn.
Ég vil beina þeim tilmælum til
barnaverndar og alþingismanna
að það verði athugað náið hvers
konar ginningar eiga sér þarna
stað.
Spilamennska getur orðið að
fíkn og að hafa þessa kassa á al-
mannafæri finnst mér ekki gott
fordæmi frá þeim fullorðnu.
Ég get ekki séð að það þjóni góð-
gerðarstarfsemi hjá Rauða kross-
inum að fara í vasa fólks með
þessum hætti. Ég veit að þeir sem
spila á þessa kassa lifa ekki í alls-
nægtum.
Þreytt fimmmannaklíka
Kæri Velvakandi.
Við erum hér fimm stelpur úr
Efra-Breiðholti og erum orðnar
ansi þreyttar á þessum Duran
Duran-skrifum. Af hverju, kæru
Duran Duran, U2, Wham og fleiri
aðdáendur, mælið þið ykkur ekki
bara mót niðri á Lækjartorgi,
Hlemmi eða einhvers staðar og
rífist um þetta „hver sé besta
hljómsveitin" og svo framvegis í
staðinn fyrir að vera að taka
svona mikið pláss á síðum dag-
blaðanna.
Það er engin hljómsveit betri en
aðrar. Allir hafa sinn hljómsveit-
arsmekk. Okkur fyndist samt að
það mætti kynna fleiri hljómsveit-
ir á rás 2, svo sem Toto, Alpha-
ville, Depéche Mode, Scotchs og
fleiri hljómsveitir.
Helga María Mosty,
Áslaug Helgadóttir,
Svandís Jónsdóttir,
Heiga G. Guönadóttir,
E. Indra Ragnarsdóttir.
„Dead or Alive“
í sjónvarpið
9816-6950 skrifar:
Ég vil biðja sjónvarpsmenn að
sýna í sjónvarpinu hljómleika með
hljómsveitinni „Dead or Alive“.
Mér finnst synd að þessi frábæra
hljómsveit hafi ekki meira fylgi að
fagna hérlendis og erlendis því
þeir spila rosalega vel.
í lokin vil ég hvetja alla Dead or
Alive-aðdáendur að láta í sér
heyra.
Prince
70104407 skrifar:
Til forráðamanna Listahátíðar:
Hvers vegna fáið þið enga al-
mennilega hljómsveit á Listahátíð
eins og Duran Duran, Wham eða
Prince í staðinn fyrir einhverjar
fáránlegar hljómsveitir.
Ég vil biðja rokkaðdáendur að
hætta að væla um þungarokk á
rás 2. Hjustið bara á kanann eða
spólur. Á flestum virkum dögum
milli klukkan 23.00 og 2.00 eru
þungarokksþættir í kananum.
ASEA
rafmótorar
Nú eru ASEA rafmótorar í næsta nágrenni viðskiptavina sinna: —
AUSTURLAND: Rafmagnsverkstæði Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði
VESTMANNAEYJAR: Geisli, Vestmannaeyjum.
SUÐURNES: Rafiðn, Keflavík
VESTFIRÐIR: Póllinn, Isafirði
NORÐURLAND: Raftækni, Akureyri.
Söiumenn okkar veita frekari upplýsingar ef óskað er.
.JTRÖNNING similfdOöb
RÖNNNG^.
Tilkynning frá
Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur
ísak Hallgrímsson læknir mun starfa sem
heimilislæknir í Reykjavík frá 1. ágúst 1985.
Gottskálk Björnsson læknir mun starfa
sem heimilislæknir í Reykjavík frá 1. sept-
ember 1985.
^ÖLUBOÐ
& Lísukex 240 gr Bourbon súkkulaðikrem 240 gr
V Hveiti 2 kg
V Spaghetti Bologna ^ jjlh kg Spaghetti Bologna \\- 400 gr Snabb makkarónur 450 gr U-makkarónur
500 gr
/2)> Niðursoðin jarðaber 850 gr
Tómatsósa 340 gr
...vöruveró í lágmarki SAMVINNUSOUIÖQDNR tt '