Morgunblaðið - 26.06.1985, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1985
íslandsmet Biraittu
sjöþraut um heígina
— hlaut 5225 stig. Bryndís Hólm önnur með 5192
• Birgitta Guðjónsdóttir úr
HSK setti islandsmet í sjöþraut.
Hér sést hún í langstökks-
keppninni.
BIRGITTA Guójónsdóttir úr
HSK setti glæsilegt islandsmet
í sjöþraut um helgina, er fyrri
hluti meistaramóts islands í
frjálsum íþróttum var haldinn í
Laugardal. Birgitta hlaut 5225
stig en Bryndís Hólm, ÍR, sem
varö önnur, hlaut 5192 stig.
Keppni milli þeirra var gífurlega
spennandi — og munaöi aöeins
hársbreidd aö Bryndísi tsskist
aö sigra.
i síöustu greininni, 800 metra
hlaupi, var spenna mikil. Bryndís
lagöi þá allt í sölurnar til aö sigra
meö nægilega miklum mun til aö
tryggja sér samaniagöan sigur.
Hún hljóp á 2:21,1 mín. Birgitta
hljóp vegalengdina á 2:22,7 mín.
og varö önnur. Sigur Bryndísar í
800 m hlaupinu nægöi ekki til
samanlagös sigurs. Báöar voru
stúlkurnar útkeyröar eftir 800
metra hlaupið — höföu gefiö allt
sem þær áttu og voru lengi aö
jafna sig eftir.
Bryndís átti gamla íslandsmet-
iö, 4994 stig.
Árangur Birgittu og Bryndísar í
sjöþrautinni var sem hér segir.
Fyrst Birgitta: hljóp 100 m
grindahlaup á 15,4 sek., stökk
1,60 m í hástökki, kastaöi kúlu
10,93 m, hljóp 200 metra á 26,4
sek., stökk 5,74 m í langstökki,
kastaöi spjóti 47,82 m og hljóp
800 m á 2:22,7 eins og áöur
sagöi. Fjórar fyrstnefndu grein-
arnar voru á laugardag, þrjár
hinar síöari á sunnudag. Birgitta
stórbætti árangur sinn bæöi í
langstökki og spjótkasti. Árangur
Bryndísar: Hljóp 100 m grind á
15,7 sek., stökk 1,65 í hástökki,
kastaöi kúlunni níu og hálfan
metra, og hljóp 200 m á 25,9 sek.
Hún stökk 5,81 í langstökki,
kastaöi spjóti 44,46 m og hljóp
síöan 800 m á 2:21,1 eins og áö-
ur sagöi.
I þriöja sæti í sjöþraut kvenna
á mótinu varö Ingibjörg ívars-
dóttir úr HSK meö 4389 stig.
Þorsteinn Þórsson úr ÍR sigr-
aöi í tugþraut meö 7019 stig.
Heföu hnémeiösli ekki sett strik i
reikninginn heföi hann örugglega
náö betri árangri. Annar í tug-
þrautinni var Auöunn Guöjóns-
son, ungur drengur úr HSK, meö
5765 stig.
Siguröur Pétur Sigmundsson,
FH, varö islandsmeistari í 10
kílómetra hlaupi mjög auöveld-
lega. Fékk hann tímann, 30:50,3
mín. Fyrstu níu hringi hlaupsins
aöstoöaöi Gunnar Birgisson Sig-
urö sem „héri“ — en eftir þaö
hljóp hann aöeins í keppni viö
klukkuna. Siguröur bætti sinn
fyrri árangur um 20 sekúndur og
ætti aö ógna islandsmeti Sigfús-
ar Jónssonar í sumar — en met
Sigfúsar er 30:10,0 mín. Már
Hermannsson úr Keflavík varö
annar í 10 kílómetra hlaupinu á
32,10,0 mín. og sló þar átta ára
gamalt unglingamet Ágústs Þor-
steinssonar og bætti þaö um 13
sek., en þetta var í fyrsta sinn
sem Már keppti í 10.000 m
hlaupi. Þriöji í hlaupinu varö
Bragi Sigurösson, Ármanni, sem
einnig hljóp 10 km í fyrsta skipti
þarna. Tími hans var 33:01,0
mín.
Morgunbtaötö/Gunrtaugur
• Siguröur Pétur SigmundMon hafði mikta yfirburði í 10 kflómetra hiaup-
inu. H|jóp í kapp viö tánarm og fylgdwt vai meö , Jceppinauf1 sínum ...
Morgunblaóíö/Qunnlaugur
Gillespie til Villa?
Cowans og Rideout aö öllum líkindum
seldir frá félaginu til Bari á Ítalíu
MIKLAR líkur eru á því að Gary
Gillespie, skoski varnarmaöurinn
hjá Liverpool, veröi keyptur til
Aston Villa — og flytjist því aftur
í Miölöndin eins og hann hefur
óskaö eftir.
Gillespie var fyrsti leikmaöurinn
sem Joe Fagan keypti eftir aö
hann varö framkvæmdastjóri Liv-
erpool fyrir tveimur árum. Borgaöi
þá Coventry 300.000 pund fyrir
hann. En Gillespie, sem er 24 ára,
náöi aldrei aö tryggja sér fast sæti
í liöinu og var aö eigin ósk settur á
• Gary Gillespie, skoski lands-
líösmaöurinn hjá Liverpool, er
líklega á förum frá félaginu. Fer
sennilega til Aston Villa.
sölulistann í lok siöasta keppnis-
tímabils.
Taliö er aö Villa muni greiöa
200.000 pund fyrir hann.
Cowans og Rideout
til Ítalíu?
Villa ætti ekki aö vera í neinum
vandræöum meö að greiða fyrir
Gillespie þar sem næstum öruggt
er að tveir leikmanna félagsins
veröi seldir til ítaliu. Þaö eru miö-
vallarieikmaöurinn snjalli Gordon
Cowans og framherjinn Paul Ride-
out. Þaö er félagið Bari, sem kom
upp í ítölsku 1. deildina nú í vor,
sem er á höttunum á eftir þeim
félögum. Báöir leikmenn fóru í
læknisskoöun hjá ítalska félaginu í
síöustu viku og Bruno Bolchi, einn
forráöamanna Bari, sagöi í samtali
viö eitt ensku blaöanna um helg-
ina: „Viö höfum verið í sambandi
viö þessa leikmenn í fáeina mánuöi
og ég tel líklegt aö viö munum
greiöa Villa 500.000 pund fyrir
hvorn leikmann. Tekjur Cowans
veröa 90.000 pund á ári en Ride-
out fær 45.000 pund.“
Fairclough til Real
Sociedad á Spáni?
John Toshack, sem nýlega
geröist þjálfari spánska liösins
Real Sociedad, hefur mikinn
áhuga á aö kaupa „súper-vara-
manninn" David Fairclough til fé-
lagsins. Þeir léku saman hjá Liv-
erpool fyrir nokkrum árum. Fair-
clough var þá þekktur fyrir aö
koma inn á í leikjum sem varamaö-
ur og skora mikilvæg mörk.
• Gordon Cowans, enski lands-
liösmaöurinn hjá Aston Villa. Fer
aö öllum líkindum til Italíu ásamt
Paul Rideout.