Morgunblaðið - 26.06.1985, Blaðsíða 48
TIL DAGLEGRA NOTA
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
María Markan hyllt á áttræðisafmælinu
„ÞAKKA ykkur hjarUnlega fyrir að gleðja mig með komu ykkar. Það lyftir
manni upp að hitta svona marga vini og kunningja og yljar manni um
hjartarætur að eiga svona mikið af góðum vinum,“ sagði María Markan
ópenisöngkona í afmælishófi, sem Kvenfélag Laugarnessóknar ásamt nem-
endum hennar hélt henni í Domus Medica í gær.
Þar komu saman fjölmargir vinir Maríu og söngnemendur og samglödd-
ust henni á áttræðisafmælinu. Aage Lorange lék á píanó undir fjöldasöng,
sem María tók vel undir. Hluti ijóðakórsins ásamt nemendum söng nokkur
lög undir stjórn Garðars Cortes og Elín Sigurvinsdóttir söng við undirleik
Sigfúsar Halldórssonar nokkur lög, meðal annars lag eftir afmælisbarnið.
Gamlir vinir rifjuðu upp fyrri tíma og fluttu frumsamin Ijóð ort til afmælis-
barnsins.
Meðal gesta voru söngkonurnar sem hér sjást á myndinni. Frá vinstri:
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Þuríður Pálsdóttir, afmælisbarnið, María
Markan, Elín Sigurvinsdóttir og Svala Nielsen ásamt Unni Valfells, sem
var veislustjóri.
Samanburður á raforkuverði á Norðurlöndum:
Raforka 148 % dýrari í
Reykjavík en Stokkhólmi
ÍBÚAR Reykjavíkur borga 148% hærra verð en íbúar Stokkhólms í Svíþjóð
fyrir raforku vegna heimilisnotkunar. Raforkuverð til iðnfyrirtækja er einnig
almennt hærra hér en á öðrum Norðurlöndum, 17% hærra en í Kaupmanna-
höfn, þar sem það er mun dýrara en annars staðar í Danmörku. Raforkuverð
í landbúnaði hérlendis er hins vegar svipað hér og í Svíþjóð og lægra en það
verður lægst í Danmörku.
Vestmannaeyjan
150 manns
vantar í
vinnsluna
— Góður afli berst
á land og togarar
verða að sigla
Vestmannaeyjum, 25. júní.
HÁLFGERT vandræðaástand
er að skapast hér vegna góðs
afla báta og togara og mikillar
manneklu í frystihúsunum.
Krystihúsmenn telja að það
vanti um 150 manns til starfa í
fiskvinnsluna og tilfinnanlegast
konur í pökkunarsali húsanna.
Það er orðið árvisst að slíkt
ástand skapist yfir sumarmán-
uðina þó svo að á þessum árs-
tíma komi mikill fjöldi unglinga
til starfa í frystihúsunum.
Samkvæmt lauslegri könnun
sem nýlega var gerð, er um helm-
ingur starfsfólks frystihúsanna
um þessar mundir á aldrinum
14—20 ára. Vegna manneklunnar
ræðst ekki lengur við að vinna
allan þann afla sem á land berst.
Hefur orðið að grípa til þess ráðs
að senda einn af togurunum í
söluferð til Englands og er fyrir-
sjáanlegt að tveir til þrír af sjö
togurum Eyjaflotans verði að
vera í stöðugum siglingum með
afla næstu tvo mánuðina, eða
landa aflanum annars staðar en í
heimahöfn.
Togararnir hafa aflað mjög vel
að undanförnu og mikill þorskur
verið í afla þeirra. Bátaaflinn
hefur einnig verið mjög góður en
talsverðum hluta hans hefur ver-
ið landað í gáma til útflutnings.
Afli bátanna sem landað er til
frystihúsanna er talsvert meiri
en á sama tíma undanfarin ár,
þrátt fyrir gámaútflutninginn.
Er skýringar á því helst að leita í
aukinni sókn bátanna. Góð út-
koma úr gámaútflutningnum hef-
ur hleypt nýju lífi í bátaútgerð-
ina yfir vor- og sumarmánuðina.
Þá hefur mikil vinna verið við
saltfiskpökkun og stöðugar út-
skipanir. Er búið að skipa út
tæplega 2 þúsund tonnum af ver-
tíðarframleiðslunni, sem var um
3 þúsund tonn.
Þetta kemur fram í áfanga-
skýrslu raforkuverðsnefndar, sem
skipuð var 19. október á síðasta
ári „til að kanna orsakir verð-
myndunar á raforku til almenn-
ings“, eins og sagði í skipunarbréfi
nefndarinnar. Formaður hennar
er Júlíus Sólnes prófessor en aðrir
nefndarmenn eru Gamalíel
Sveinsson viðskiptafræðingur og
Bergsteinn Gizurarson verkfræð-
ingur. Guðrún Skúladóttir deild-
arstjóri í iðnaðarráðuneytinu var
skipuð ritari nefndarinnar.
Teknir voru fjórir viðmiðunar-
hópar á Norðurlöndunum. f fyrsta
lagi var kannaður raforkukostn-
aður heimila, þá kostnaður við að
kynda hús með raforku, síðan raf-
orkukostnaður meðalstórra iðn-
fyrirtækja í höfuðborgunum og
loks rafmagnsverð vegna notkun-
ar í landbúnaði, þ.e. heimili, hitun
og búrekstur. Könnun nefndarinn-
ar leiddi í ljós, að skattlagning
raforku er mjög mismunandi á
Norðurlöndunum, mest í Dan-
mörku.
Útsöluverð á raforku til heimil-
isnotkunar er hæst á íslandi, 4
krónur á kílówattstundina,
skattahlutfall 40%. f Stokkhólmi
er verðið 1,61 króna, skattahlutfall
26%, í Helsinki 1,67 krónur,
skattahlutfall 10%, í Osló 1,76
krónur, skattahlutfall 31% og í
Kaupmannahöfn 3,38 krónur,
skattahlutfall 53%.
Raforkuverð til iðnfyrirtækja
var einnig hæst í Reykjavík, 3,25
krónur á kílówattstundina
(skattahlutfall 40%), í Stokkhólmi
1,55 krónur (18% skattahlutfall),
2,07 krónur í Helsinki (7,8%), í
Osló 1,52 krónur (9%) og í Kaup-
mannahöfn 2,77 krónur (25%).
Raforkuverð til upphitunar
íbúðarhúsa var 1. febrúar sl. hæst
í Danmörku, 2,10 krónur (skatta-
hlutfall 81%), þá í Reykjavík, 1,84
krónur (—9%), þá í Svíþjóð, 1,54
krónur (27%) og loks í Noregi, 0,91
króna (11%). í áfangaskýrslu
nefndarinnar, sem lögð hefur ver-
ið fyrir iðnaðarráðherra, segir að
íslenska verðið sé næsthæst, „en
þó ekki nema 19% hærra en í Sví-
þjóð, samanborið við 148% hærra
raforkuverð vegna heimilisnotk-
unar“. Segir síðan, að með nánari
samanburði komi i ljós að notandi
með rafhitun á Islandi greiði
nærri sama verð og í Svíþjóð á
meðan notandi með heimilisraf-
magn eingöngu greiðir 148%
hærra verð. „Þykir sumum því
fulllangt gengið með verðjöfnun
og niðurgreiðslur."
Samanburður á raforkuverði i
landbúnaði leiddi í Ijós, að á fs-
landi borga bændur 1,58 krónur
fyrir hverja kílówattstund (hlut-
fall skatta neikvætt um 10%),
sænskir bændur borga 1,53 krónur
(skattahlutfall 26%), í Noregi
borga bændur 1,13 krónur (skatta-
hlutfall 13%) og danskir bændur
borga mest, eða 1,74 krónur
(skattahlutfall 58%). Neikvæð
skattlagning hérlendis stafar af
niðurgreiðslum ríkisins vegna
hluta rafhitunar í búrekstri og
niðurfellingu á verðjöfnunargjaldi
og söluskatti.
Siðan segir í áfangaskýrslunni
að af þessu megi draga þá ályktun,
að „þegar kvartað er undan háu
raforkuverði á fslandi í saman-
burði við verð á hinum Norður-
löndunum, á það aðeins við um al-
mennan heimilistaxta og raforku
til iðnfyrirtækja. Verð raforku til
notenda á rafhitunarsvæðum
RARIK og Orkubús Vestfjarða og
annar staðar, þar sem raforkan er
greidd niður til húshitunar, svo og
verð raforku til bænda er mjög
sambærilegt við það, sem lægst
gerist á hinum Norðurlöndunum.“
hkj
Tilvist varnarliðsins eyk-
ur öryggi farþegaflugsins
segir Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri
„FLUGVÖLLURINN hér hefur ákveðna sérstöðu, þar sem hér er jafnframt
herstöð. En burtséð fri því er viðbúnaður gagnvart hvers konar hryðju-
verkastarfsemi góður, miðað við víða annars staðar," sagði Pétur Guð-
mundsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli, er hann var spurður um
viðbúnað á vellinum í Ijósi þeirrar hryðjuverkaöldu, sem gengið hefur yfir
beiminn að undanfornu.
Pétur sagði að eftirlit á Kefla-
víkurflugvelli væri mjög strangt,
ekki síst með tilliti til herstöðvar-
innar. Hvað varðaði almenna um-
ferð um völlinn sagði hann að eft-
irlit væri í strangara lagi, svo sem
vopnaleit og eftirlit með flug-
hlaði. Á flughlaði væri bæði lög-
reglu- og tollvakt, vopnaleit færi
fram með hefðbundnum hætti og
að öðru leyti væri eftirlit á vellin-
um samkvæmt ströngustu al-
þjóðareglum í þessum efnum.
Pétur sagði að til væri áætlun
um, hvernig bregðast skuli við
flugránum, sprengjuhótunum og
annarri hryðjuverkastarfsemi.
Reyndar hefði reynt á þessar
áætlanir fyrir nokkrum árum
þegar vél frá TWA lenti á Kefla-
víkurflugvelli með flugræningja
innanborðs. Ennfremur hefði
reynt á þetta skipulag varðandi
sprengjuhótanir og í báðum til-
fellum hefði það reynst mjög vel.
Lögregla og Tollgæslan hafa um-
sjón með almennu eftirliti auk
þess sem varnarliðið annast eftir-
lit á flugvallarsvæðinu.
„Ég er þeirrar skoðunar að til-
vist varnarliðsins hér á vellinum
auki mjög öryggið í þessum efnum
og að við séum betur settir en
margir aðrir í þessum efnum,“
sagði Pétur ennfremur. „Auk þess
er tiltölulega auðvelt fyrir okkur
að fylgjast með ferðum útlend-
inga inn og út úr landinu þar sem
flestir útlendingar, sem hingað
koma, fara um Keflavíkurflug-
völl.“ Aðspurður um það, hvort al-
þjóðareglur um eftirlit á flug-
völlum yrðu hertar í kjölfar
hryðjuverkaöldunnar sagði Pétur
að slíkt færi eftir aðstæðum á
hverjum stað. Hvað varðaði
Keflavíkurflugvöll væri ekki talin
ástæða til að auka eftirlit að svo
stöddu, enda teldu menn að við-
búnaður þar væri í góðu lagi.