Morgunblaðið - 21.07.1985, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ1985
MITSUBISHI
L 300 4x4 faldrif)
8 sæta mini bus meö
torfærueiginieika.
Kjörinn bíll fyrir vinnuflokka
og stórar fjölskyldur.
Verö frá kr. 763.900.-
Lokaöur sendibíll meö renni-
huröum á báöum hliöum og
stórum dyrum á afturgafli.
Lipur og sparneytinn sendibíll.
Ákjósanlegur til vöruflutninga.
I Verö frá kr. 564.000.-
JL [hIhekia
J | H * 1 Laugaveg. 170 -172 &r
HF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
LITGREINING MEO
CROSFIELD
5 40
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN
IÞINGHLÉI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Ný þingsköp — ný viðbygging við þinghúsið:
Tengist Alþingi
nánar Þingvöllum?
Gluggað í ræðu þingforseta við þinglausnir
Þingslitaraeda Þorvaldar Garðars
Kristjánssonar, forseta Sameinaðs
þings, fjallaði m.a. um fjögur for-
vitnileg mál, sem ætla verður að
þorri þjóðarinnar hafi áhuga á:
• Ný þingsköp — starfsreglur —
Alþingis
• Tölvutækni í þjónustu þingsins
• Samkeppni um gerð og skipulag
viðbótarbyggingar við hið aldna
þinghús.
• Þúsund ára afmæli kristnitöku á
íslandi (árið 2000).
Það er ástæða til að fjalla um
þessi efnisatriði öll „I þinghléi“,
enda þótt ný þingsköp hafi áður
fengið nokkra umfjöllun á þessum
vettvangi. Pistillinn verður því að
þessu sinni að meginefni tekinn úr
þingslitaræðu forseta þingsins.
GAGNGERAR
BREYTINGAR
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti Sameinaðs þings, komst
m.a. svo að orði við þinglausnir:
„Á þessu þingi sem nú er að
ljúka hafa merkistíðindi gerzt í
þessu efni með samþykkt nýrra
laga um þingsköp Alþingis. Slík
heildarendurskoðun á þingsköpum
hefir ekki farið fram í nálega
hálfa öld. í hinum nýju þingsköp-
um felast gagngerar breytingar í
veigamiklum atriðum og algjör
nýmæli. Stjórn þingsins er efld
með skipulegum og markvissum
vinnubrögðum. Að þessu lúta
ákvæði um hlutverk forseta þings-
ins, svo sem að hafa umsjón með
starfi þingnefnda, sem gert er að
skipa afgreiðslu mála í tímaröð
svo að verkefnum þingfunda megi,
eftir því sem við verður komið,
dreifa sem jafnast á þingtímann.
Settar eru reglur um hnitmiðaðri
meðferð þingsályktunartillagna
en verið hefir. Breytt er reglum
um fyrirspurnir þannig að um-
ræðan er bundin við fyrirspyrj-
anda og viðkomandi ráðherra og
ræðutími styttur. Sett eru ákvæði
um umræður utan dagskrár sem í
senn greiða fyrir því að þingmenn
geti vafningalaust hreyft áhuga-
málum sínum og setja utandag-
skrárumræðum takmörk.
Það er ekki nægilegt að setja í
þingsköp slík og þvílík ákvæði.
Allt er að sjálfsögðu undir fram-
kvæmdinni komið. í því efni spáir
það góðu að hin nýju þingsköp eru
samkomulagsmál allra þing-
flokka. Allir þingflokkar eiga
óskipt mál um að vilja bæta
vinnubrögð þingsins. En það er
ekki nægilegt. Hér verður ríkis-
stjórn, hver sem hún er, einnig að
koma til. Það er höfuðatriði að
stjórnarfrumvörp dreifist sem
jafnast á þingtímann. Það getur
ekki gengið að þingið sé verkefna-
lítið lengi fram eftir þingtímanum
en stjórnarfrumvörp hlaðist upp í
lok þingsins ...“
TÖLVUTÆKNI í
ÞJÓNUSTU ALÞINGIS
Forseta Sameinaðs þings fórust
svo orð um þetta efni:
„Það er í fleiri horn að líta um
bætt vinnubrögð Alþingis en því
sem lýtur að þingsköpum sjálfum.
Alþingi þarf að tileinka sér nýja
tækni og framfarir hvarvetna sem
að gagni má verða í starfsemi
þess. Nú hefur verið ákveðið að
taka tölvutæknina í þjónustu Al-
þingis. Það verður gert í áföngum
eftir því sem þörf krefur og ástæð-
ur leyfa. Unnið er nú að fyrsta
áfanga. Þar er gert ráð fyrir rit-
vinnslu með tölvum og að skrár
verði tölvuunnar.
Ávinningurinn af þessari tölvu-
væðingu verða aukin afköst við
vélritun og leiðréttingar og meiri
sveigjanleiki í útgáfu þingskjala,
Stallone
hyggur á
hjónaband
í annað sinn
New York, 19. júlf. AP.
LEIKARINN þekkti Sylvester Stall-
one, sem m.a. lék aðalhlutverk í
„Rocky“ myndunum og „First
Blood“, hyggst ganga í hjónaband í
annað sinn, i þetta skiptið með
danskri fyrirsætu, Birgitte Nielsen,
samkvæmt fréttum úr dagblaðinu
New York Daily News.
Að sögn blaðsins bað hinn 39
ára leikari fyrirsætunnar sl. mið-
vikudag, en hjónaefnin munu ekki
hafa ákveðið hvaða dag brúðkaup-
ið fer fram. Stallone bíður þess
enn að skilnaður hans við fyrri
konuna, Sasha, nái fram að ganga.
Þau voru gift í 10 ár.
Þegar hin 23 ára gamla fyrir-
sæta heyrði að Stallone byggi á
hóteli á Manhattan-eyju, reyndi
hún að ná tali af honum í nokkurn
tíma, en það reyndist árangurs-
laust. Hún brá þá á það ráð að
senda ljósmynd af sér upp til leik-
arans og skipti hann þá snarlega
um skoðun og tók á móti stúlk-
unni.
Nýjasta kvikmynd Stallones,
„Rambo — First Blood Part II“,
hefur fengið mjög góðar viðtökur
og er ágóðinn af henni talinn vera
um 130 milljónir dollara. Búist er
við að sýningar á fjórðu myndinni
um hnefaleikarann Rocky hefjist í
nóvember nk.
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
AVEXTIR
IKUHMAR
— Appolsinur Out Span — Mwid-
arínur Uruguay — Epti Raué 8/A — Epli Rauð U8A — EpH Frðnak Rau» —
EpH Gran Oranny Smith Chila — EpH Frðnsk Qul — Sftrónur Out 8pan 11/1
og 1/i kðaaum — Qrmptruit Hvftt Out Span — Qraiptruit Rautt Out Span —
Vatnamatónur — Honay Daw Matónur — Maiónur Supar Marcado — Vtnbar
bló — Vfnbar gran — Parur Spénskar — Porur Capa — Parur Argantlna —
Ptómur Gular — Ptómur Rauðar — Farskfur — Naktarinur — Ananaa —
Kókoahnotur — Pómatoa — Klwl — Uma — Ugly Frult — Hnstur I skai
Ath.: Höfum úrval af íslensku grænmeti og
kartöflum
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 685300.
B4
Vatnssalerni
Kemisk vatnssalerni fyrir
sumarbústaöi, hjólhýsi
og báta.
Sendum í póstkröfu
Atlas hf
Borgartúm 24. — Simi 26755
105 Reykjavík
V^terkurog
kl hagkvæmur
auglýsingamiðill!