Morgunblaðið - 21.07.1985, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAQUR 21, JÚLÍ I985
47
Elztu stofnanir landsins — þjóðhátíð árið 2000
Þau hafa lengi staðið þessi öldnu hús, Dómkirkjan og þinghúsið, hlið við hlið í hjarta Reykjavík-
ur. Það fer vel á því. Það var á Alþingi árið 1000, sem þá var háð á Þingvöllum, sem íslendingar
játuðust sem þjóð undir kristinn sið.
Alþingi og þjóðkirkjan eiga því hlut að máli „þjóðhátíðar", sem haldin verður árið 2000, þegar
minnst verður 1000 ára afmaelis kristnitöku hér á landi.
„Hvor stofnunin fyrir sig minnist kristnitökunnar með sínum hætti,“ sagði forseti sameinaðs
þings við síðustu þinglausnir, „en sameiginlega hljóta þessir elztu stofnar landsins að standa að
þeirri þjóðhátíð sem haldin verður árið 2000.“
Þingtíðinda og spjaldskrár-
vinnslu. Gert er ráð fyrir að þessi
tölvubúnaður komi að gagni þegar
á næsta þingi. Með þessu verða
merk þáttaskil í vinnubrögðum
Alþingis.
Við höldum innreið inn í nýja
öld sem helzt má líkja við þegar
tekið var til við að skrifa lög
þingsins upp úr aldamótunum
1100 og þegar prentlistin var síðan
tekin í þjónustu þingsins."
GERÐ OG SKIPULAG
VIÐBÓTARBYGGINGAR
VIÐ ÞINGHÚSIÐ
Langt er síðan starfsemi Al-
þingis „sprengdi" hið aldna þing-
hús utan af sér, ef þann veg má
komast að orði komast. Forseti
þingsins sagði um þetta efni:
nÞá er unnið að úrbótum á húsa-
kosti Alþingis. Ákveðið hefir verið
að efna til samkeppni um gerð og
skipulag viðbótarbyggingar fyrir
starfsemi þingsins. Starf að sam-
keppni þessari er þegar hafið og er
það unnið í samvinnu við Arki-
tektafélag íslands. Dómnefnd hef-
ur verið skipuð og vinnur nú að
gerð útboðslýsingar. Stefnt er að
því að tillögur berist og sam-
keppni ljúki fyrir lok þessa árs.
Gert er ráð fyrir að í hinni nýju
byggingu verði sú starfsemi Al-
þingis sem eðli málsins sam-
kvæmt hefði átt að vera í alþing-
ishúsinu, ef rými þess hefði leyft.
Hér er um að ræða húsrými fyrir
fundaaðstöðu þingnefnda og þing-
flokka, skjalavörzlu, bókasafn,
mötuneyti, skrifstofuhald o.þ.h.
Miðað er við að áfast við nýbygg-
ingu þessa verði síðan komið upp
byggingu fyrir skrifstofur þing-
manna.
Forsetar annast undirbúning
þessarar keppni í samráði við
húsameistara rikisins og skipu-
lagsyfirvöld og unnið er í sam-
vinnu og með samráði við formenn
þingflokka. Það er síðan á valdi
Alþingis að ákveða hvort hús verði
byggt eftir teikningu sem út úr
þessari samkeppni kemur.
Efnt er til þessarar samkeppni
samkvæmt þingsályktun um
framtíðarhúsakost Alþingis, sem
samþykkt var á Alþingi 21. maí
1981. Þar er fram tekið, að sam-
keppnin verði við það miðuð að
heimkynni Alþingis skuli áfram
vera í núverandi þinghúsi svo og í
byggingum í næsta nágrenni þess.
Verður að líta svo á að hér hafi
verið mörkuð stefna fyrir næstu
framtíð. Er nú unnið að hönnun
nýrra innréttinga fyrir þingsalina
og er þar ekki einungis tekið tillit
til þeirrar fjölgunar þingmanna
sem kveðið var á um með síðustu
stjórnarskrárbreytingu heldur og
hafðar í huga þarfir til lengri
tíma.“
En ekki verður gert ráð fyrir að
okkar alþingishús verði það sama
um alla framtíð. Þess vegna verð-
ur að staðsetja þá viðbótarbygg-
ingu, sem við nú tölum um, þann-
ig, að ekki skerði þá möguleika,
sem kunna að vera fyrir hendi hér
á lóðaspildu Alþingis til að reisa
alþingishús framtíðarinnar. Við
höldum opnum öllum möguleikum
til ákvarðanatöku i framtíðinni,
hvort heldur alþingishús verði
reist hér eða annars staðar svo
sem á Þingvöllum, „ef þjóðarþrek
og þjóðarandi heimta þinghald á
Þingvöllum“, eins og komist hefur
verið að orði, svo að gagni verði að
flytja þingið."
ÞÚSUND ÁR FRÁ KRISTNI-
TÖKU ÍSLENDINGA
Loks vék forseti þingsins að
þúsund ára afmælis kristnitöku
árið 2000. Hann sagði:
„En við verðum að líta okkur
nær. Þær hugmyndir verða stöð-
ugt áleitnari að tengja Alþingi nú
þegar nánar Þingvöllum en verið
hefur síðan þinghald lagðist þar
niður. Hinir mætustu forustu-
menn þjóðarinnar hafa tengt slík-
ar hugmyndir minningunni um
stærstu stundir í sögu þjóðarinn-
ar. Má þar tilnefna á þessari öld
1000 ára afmæli Alþingis 1930 og
1100 ára afmæli íslandsbyggðar
1974.
Nú er framundan að minnast
eins þess atburðar sem hæst rís í
þjóðarsögunni, kristnitökunnar.
Árið 2000 verður þessa atburðar
minnst. Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið. Á vegum þjóðkirkjunnar
hefir þegar verið hafizt handa um
að móta hugmyndir um hvað gera
skuli. En hlutur Alþingis má ekki
eftir liggja. Raunar er 1000 ára
afmæli kristnitökunnar afmæli í
sögu Alþingis. Það verður minnst
merkustu löggafar sem Alþingi
hefur sett.
Forsetar Alþingis hafa mál
þetta til meðferðar. Spurningin er
hvernig Alþingi minnist þessa
merka atburðar með því að endur-
nýja tengslin við þingstaðinn þar
sem atburðurinn gerðist. Ber þá
við hugmyndina um að Alþingi
eigi sitt hús á Þingvöllum, sem
það noti til sinna þarfa svo sem til
að setja og slíta þingi og til há-
tíðafunda.
Minning kristnitökunnar árið
2000 er viðfangsefni sem nú er
þegar farið að fást við. Forsetar
Alþingis munu vinna að máli
þessu í samráöi við þingflokka,
ríkisstjórn og Þingvallanefnd og
málið verður rætt á vettvangi
samstarfsnefndar Alþingis og
þjóðkirkjunnar. Æskilegt er að
málið geti verið lagt fyrir Alþingi
í einu eða öðru formi á næsta
þingi.
Alþingi og þjóðkirkjan eiga hér
hlut að máli. Hvor stofnunin fyrir
sig minnist kristnitökunnar með
sínum hætti. En sameiginlega
hljóta þessar elztu stofnanir
landsins að standa aö þeirri þjóð-
hátíð sem haldin verður árið
2000.“
Framangreind atriði úr ræðu
þingforseta eiga vissulega erindi
um fjölmiðla til almennings, til
íhugunar.
Verslunin
Bella
22. júlí 1965 — 1985
í tilefni afmælisins verða allar vörur
verslunarinnar seldar með 20% afslætti
mánudaginn 22. júlí og þriðjudaginn 23.
júlí.
Bella
Laugavegi 60, s. 26015.