Morgunblaðið - 07.08.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
Ef ekki
væri_______________
Bogi Arnar Finnbogason kom
að máli við undirritaðan nú
um helgina og tjáði honum að
smámisskilnings hefði gætt í síð-
ustu fjölmiðlagreininni þar sem
því var haldið fram að hann væri
yfirþýðandi sjónvarpsins. Hið
rétta væri að Pálmi Jóhannesson
gegndi starfa þessum en hann
hefði ásamt Þórhalli Guttorms-
syni haft mikil og góð áhrif á hið
mikla þýðingarstarf sem unnið er
á 8jónvarpinu. Um leið og ég
þakka Boga Amari Finnbogasyni
sjónvarpsþýðanda fyrir upphring-
inguna, en hún leiddi huga minn
að þeirri staðreynd að aðeins
húmorslausir menn eru óskeikulir,
þá vil ég leyfa mér að benda for-
ráðamönnum ríkisfjölmiðlanna á
málfarslegt skítseiði er hefir
sloppið í gegnum möskva mál-
farsráðunauta ríkisútvarpsins.
Hér á ég við texta dægurlags er nú
hefir skriðið uppí sjöunda sæti
vinsældalista rásar 2. Ekki veit ég
hvaða klámraftar sameinast í bæn
um að fyrrgreint lag sé leikið á
rás-II, en ef bænaskrá sú á að
gilda sem einhverskonar hæsta-
réttardómur ofar siðrænum lög-
málum samfélagsins, þá erum við
á leið til skrílmennskunnar. Mál-
farsráðunautar ríkisútvarpsins
telja máski að þeirra hlutverk sé
einvörðungu að passa uppá að
norðlensku gæti í framburði þula
og að menn á þeim bæ brjóti ekki
grundvallarlögmál tungunnar, en
ég vil minna menn á að Blöndal
karlinn skilgreindi orðið klám
þannig: utugtige, smudsige Ord,
obskone Udtryk. 1 ónefndri orða-
bók merkir orðið smudsig óhreinn;
seyrður, viðbjóðslegur, klæminn.
Það er kannski til fullmikils
mælst að málfarsráðunautur fylg-
ist með dægurlagaglamri, en þá
kröfu er vissulega hægt að gera til
yfirmanns rásar 2.
Kaffiilmurinn sœti
Að kveldi verslunarmannafrí-
dagsins var á dagskrá kvikmyndin
Þegar verslunin er frjáls. Þessi nýja
íslenska heimildarmynd var gerð
að undirlagi samtaka verslunar-
manna og annaðist fyrirtækið Lif-
andi myndir verkið. Umsjón hafði
Sigurður Sverrir Pálsson en þulur
var Ólafur Ragnarsson. Fórst
þeim félögum verkið bara vel úr
hendi en þó var sá hængur á að
myndin spannaði fullvitt svið.
Þannig hefði mér fundist við hæfi
að gera þrjár 25 mínútna myndir í
stað einnar um áhrif verslunar-
frelsis á þjóðarhag okkar íslend-
inga. í fyrsta þætti hefði til dæmis
mátt greina ítarlega frá áhrifum
einokunarverslunar á þjóðlifið. í
öðrum kafla frá versluninni sem
einum þætti þjóðarbúskaparins. í
þriðja og síðasta þætti h&fði siðan
mátt rabba svolítið við verslunar-
fólk um kaup og kjör og starfs-
hætti alla. Álít ég raunar að hér sé
mikið verk óunnið af hálfu öflug-
asta fjölmiðils þjóðarinnar, hvort
sem það verk verður unnið innan
stofnunar eða utan, þvi verslunin
hefir nú einu sinni afgerandi áhrif
á velfarnað okkar er hér hírumst á
eyskerinu við hið ysta haf. Álit ég
persónulega bráðnauðsynlegt að
upplýsa alþjóð betur um starfs-
hætti ekki bara verslunarmanna
heldur og hinna ýmsu aðila er
tengjast versluninni beint eða
óbeint svo sem bankanna, auglýs-
ingameistaranna, neytendasam-
takanna og verðlagseftirlitsins.
En slíkum fróðleik verður ekki
komið til skila á innan við hálf-
tíma, svo mikið er vist.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Fimmti
þáttur
Kyrrahafs-
landa
■■■H Á dagskrá sjón-
nA35 varps strax að
afloknum frétt-
um, auglýsingum og dag-
skrá er 5. þáttur Kyrra-
hafslanda, bresks fram-
haldsmyndaflokks i 8
þáttum. Þessi þáttur
nefnist Guð hefur ótal
andlit. í Kyrrahafslönd-
um tíðkast margvísleg
trúarbrögð. Kristnir trú-
boðar vinna mikið starf á
þeim slóðum og þar með
verða hin austrænu trú-
arbrögð fyrir vestrænum
áhrifum. Meðfylgjandi
mynd er tekin úr þættin-
um i kvöld. Hún sýnir
búddamunk i hofi i
Shanghai biðjast fyrir.
íslensk tónlist
■■■■ Á dagskrá út-
| A 30 varps kl. 14:30
14-” er íslensk tón-
list. Fyrst verður leikinn
seilókonsert eftir Jón
Nordal. Erling Blöndal
Bengtson leikur með Sin-
fóníuhljómsveit Islands.
Stjórnandi er Jean Pierre
JacquiIIat. Þá verður leik-
inn sellókonsert eftir
Þorkel Sigurbjörnsson,
„Ulisse Ritorno". Hafliði
Hallgrímsson og Sinfón-
íuhljómsveit íslands leika
en stjórnandi er Guð-
mundur Emilsson.
Popphólfið
■ Á dagskrá út-
30 varpsins kl.
— 16.30 er þáttur-
inn Popphólfið í umsjá
Bryndísar Jónsdóttur.
„Þetta verður með sígildu
sniði. Ég geri mér far um
að blanda saman gömlum
góðum lögum og þeim sem
vinsæl eru hverju sinni. f
þættinum i dag hyggst ég
spila lög með Led Zeppel-
in, Stairway to Heaven,
en það er klassískt í tón-
listarheiminum. Here
Comes the Rain Again með
Eurythmics en það var
býsna vinsælt í fyrra.
Kannski ég spili eitt lag
með hljómsveitinni Am-
erica. Rúsínan í pylsuend-
anum er svo hinn eigi
þvengmjói Meat Loaf. Eg
ætla að spila hans vinsæl-
asta lag til þessa, Para-
dise by the Dashboard
Light,“ sagði Bryndís
Jónsdóttir umsjónarmað-
ur Popphólfsins.
Margt brallað
í Texas
■1 Strax að lokn-
40 um fimmta
““ þætti Kyrra-
hafslanda verður tengt yf-
ir til Texas þar sem ófyr-
irleitnir olíufurstar, vask-
ir sveinar og vænar meyj-
ar, spranga um í sólinni.
Ættmóðirin Ellie virðist
loks geta sætt sig við frá-
fall eiginmanns síns þeg-
ar stofnaður er sjóður I
minningu hans til að
styrkja efnileg ungmenni
til náms. Sem fyrr eru
Cliff karlinn Bames og
J.R. hinir verstu óvinir og
allt gengur sinn vanagang
í Texas. Þátturinn í kvöld
nefnist Erfðaskrá Jocks.
Þýðandi þáttanna er
Björn Baldursson.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
7. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. Morgunútvarpiö. 7.20
Leikfimi. Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur Siguröar G. Tóm-
assonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorð — Vilt>org
Schram talar.
9.00 Fréttir.
94» Morgunstund barnanna:
.Matthías" eftir Barbro
Lindgren. Sigrlður Sigurö-
ardóttir les pýöingu slna (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugreinar
dagblaöanna (útdr.). Tón-
leikar.
10.45 Islenskar skáldkonur.
Drlfa Viöar.
Umsjón: Margrét Blöndal og
Sigrlöur Pétursdóttir. RÚV-
AK.
11.15 Morguntónleikar
Tónlist eftir Marcello, Mozart
og Beethoven.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 Inn og út um gluggann
Umsjón: Heiödls Norðfjörð.
RUVAK.
13.40 Létt lög
14.00 „Larnb" eftir Bernard
MacLaverty. Erlingur E. Hall-
dórsson byrjar lestur pýö-
ingar sinnar.
14.30 Islensk tónlist
a. Sellókonsert eftlr Jón
Nordal. Erling Blöndal
Bengtson leikur meö
Sinfónluhljómsveit Islands:
Jean-Pierre Jacquillat stjórn-
ar.
b. „Ulisse Ritorno", selló-
konsert eftir Þorkel Sigur-
björnsson. Hafliöi Hallgrlms-
son og Sinfónluhljómsveit Is-
lands leika; Guðmundur Em-
ilsson stjórnar.
15.15 Staöur og stund —
Þóröur Kárason. ROVAK.
1545 Tilkynningar. Tónleikar.
19.25 Aftanstund
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni. I Söguhorni
segir Kristln Steinsdóttir sög-
una um Pylsurnar tlu I þýö-
ingu Vilbergs Júllussonar.
Kanfnan með köflóttu eyrun,
Dæmisögur og nýr teikni-
myndaflokkur frá Tékkó-
slóvaklu, Maður er manns
gaman, um vinina Hlyn og
Hlunk.
19J0 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
1650 Popphólfiö — Bryndls
Jónsdóttir.
174» Fréttir á ensku
17.05 Barnaútvarpiö
Stjórnandi: Ragnheiöur
Gyða Jónsdóttir.
17.45 Slödegisútvarp — Sverr-
ir Gauti Diego.
Tónleikar. Tilkynningar.
1845 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
194» Kvöldfréttir. 19.40 Til-
kynningar.
Málræktarþáttur. Ólafur
Oddsson flytur.
20.00 Sprotar
Þættir af unglingum fyrr og
7. ágúst
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Kyrrahafslönd
(The New Pacific)
5. Guö hefur ótal andlit
Breskur heimildarmynda-
flokkur I átta þáttum.
I Kyrrahafslðndum tlðkast
margvlsleg trúarbrögð.
Kristnir trúboðar ýmissa
safnaöa vinna þar mikiö
starf og verða hin austrænu
trúarbrögö fyrir áhrifum vest-
rænna siða.
Þýöandi og þulur Óskar Ingi-
nú. Umsjón: Slmon Jón Jó-
hannsson og Þórdls Mós-
esdóttir.
2040 Sumartónleikar I Skál-
holti
Laurence Dreyfus og Ketil
Haugsand leika sónötur eftir
Johann Sebastian Bach á
vlólu da gamba og sembal.
2150 Ebenezer Henderson á
ferö um Island sumarið
1814. Fimmti þáttur: A leiö
til Snæfellsness. Umsjón:
Tómas Einarsson. Lesari
meö honum: Valtýr Óskars-
son.
22.05 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
marsson.
2140 Dallas
Erfðaskrá Jocks
Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur.
Þýöandi Björn Baldursson.
22.30 Ur safni Sjónvarpsins
Maöur er nefndur Sigurbjörn
Þorkelsson
Sverrir Þóröarson ræöir viö
Sigurbjörn Þorkelsson I Vlsi.
Aöur á dagskrá 25. ágúst
1970.
23.10 Fréttir I dagskrárlok
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 Svipmynd
Þáttur Jónasar Jónassonar.
RÚVAK.
244» Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
1400—15.00 Eftir tvö
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
154»—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hættl hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
164»—17.00 Bræöingur
Stjórnandi: Eirikur Ingólfsson
17.00—18.00 Ur kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eða samir
af konum.
Stjórnandl: Andrea Jóns-
dóttir.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR