Morgunblaðið - 03.09.1985, Síða 2
2
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
Iðnaðardeild Sambandsins á Akureyri:
Segir upp
30 manns
30 manns hefur verid sagt upp hjá
I&naðardeild Sambandsins á Akur-
eyri af um 340 manns sem starfa hjá
fyrirtækinu.
Jón Sigurðarson hjá Iðnaðar-
deildinni sagði í samtali við Morg-
unblaðið að uppsagnirnar væru til
komnar vegna endurskipulagn-
ingar á fyrirtækinu, þar sem auk-
in áhersla yrði lögð á markaðsmál
en á móti yrði hún minnkuð á
framleiðsluna, sem verið hefur í
endurskipulagningu á undanförn-
um árum.
Hann sagði fækkunina einkum
koma niður á stjórnendum, þ.e.
verkstjórum, starfsþjálfurum og
gæðaeftirlitsmönnum, en einnig
væri verkafólki í vefnaðardeild
fækkað vegna þess að verkefni þar
hefðu minnkað.
Axel Jónsson fyrrverandi
alþingismaður látinn
LÁTINN er í Reykjavík Axel Jóns-
son, fyrrverandi alþingismaður.
Hann fæddist í Reykjavík 8.
júní 1922, sonur Jóns Björnssonar,
klæðskera, og Láru Sigmundu
Þórhannesdóttur. Hann stundaði
gagnfræðaskólanám í Reykjavik
1937—38, en gerðist síðar bifreiða-
stjóri og bjó að Felli í Kjós frá
1945—53, er hann fluttist til
Kópavogs. Hann vann við Sund-
laugar Reykjavíkur til 1962 og var
forstöðumaður þeirra þrjú síðustu
árin. Axel varð fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
ins 1962 og gegndi því starfi til
1968, er hann gerðist fulltrúi hjá
Almannavörnum ríkisins. Því
starfi gegndi hann til 1971, er
hann gerðist framkvæmdastjóri
Sambands sveitarfélaga í Reykja-
neskjördæmi.
Axel gegndi margvfslegum
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Hann var formaður full-
trúaráðs Sjálfstæðisfélagana í
Kópavogi 1956—60 og varð bæjar-
fulltrúi og sat í bæjarráði 1962.
Þingmaður og varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins frá 1963.
Landskjörinn þingmaður 1974.
Axel gegndi ýmsum öðrum fé-
lagsstörfum. Hann var formaður
ungmennafélagsins Drengs í Kjós
1946—49 og formaður Ungmenna-
sambands Kjalarnesþings
1950-56. Sat í stjórn UMFÍ
1955-57 og í stjórn ISÍ 1959-64.
Sat í stjórn Landssambandsins
gegn áfengisbölinu frá stofnun
.1955. Formaður í Æskulýðssam-
bands íslands 1959—60. Kosinn í
áfengismálanefnd 1964 og i stjórn
atvinnuleysistryggingasjóðs 1974.
Axel kvæntist Guðrúnu Gísla-
dóttur frá írafelli í Kjós 17. júlf
1943.
Axel Jónsson
Morgunblaðið/Július
Harður árekstur varð á mótum Bústaðavegar og Grensásvegar seinnipartinn í gær er frambyggður
jeppi og strætisvagn rákust þar saman. Ökumaður jeppans var fluttur á slysadeild, en ekki var kunn-
ugt um meiðsli hans í gærkveldi.
Ný lög um framleiðslumark búvara:
Vantar 500 milljónir til
að framfylgja lögunum
UM 500 milljónir króna vantar til
niðurgreiöslna á landbúnaðarvörum
fram til áramóta, til þess að hægt
verði að framfylgja nýjum lögum um
framleiðslumark landbúnaðaraf-
urða. Er þetta að sögn Matthíasar Á.
Mathiesen viðskiptaráðherra vegna
þess að framleiðsluárið er frá 1.
september í ár til 31. ágúst næsta
árs, en niðurgreiðslur koma hins
vegar inn í fjárlagadæmið 1. janúar
1986, eða með fjárlögum næsta árs.
Viðskiptaráðherra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
niðurgreiðslurnar hefðu áður allt-
af komið inn 1. janúar ár hvert, en
nú væri verið að ræða með hvaða
hætti væri hægt að flýta þessum
greiðslum um 4 mánuði, þannig að
þær væru greiddar sama dag og
framleiðslan hefst, þ.e. 1. sept-
ember. Hér væri því einungis ver-
ið að leita leiða með hvaða hætti
hægt væri að flýta þessum greiðsl-
um um fjóra mánuði, f eitt skipti
fyrir öll.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, hefur Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra lýst
því yfir að þessi hálfi milljarður
sem nú vantar, sé ekki til i ríkis-
kassanum og því geti hann ekki
reitt þetta fé af höndum. Hann,
ásamt Matthíasi Á. Mathiesen
TVEIR menn voru staðnir að veiði-
þjófnaði í Laxá í Leirársveit snemma
á sunnudagsmorguninn. Það voru
stangveiðimenn sem voru að hefja
veiðar sem urðu varir við mennina
og létu lögregluna í Borgarnesi vita.
Þeir voru gripnir og voru þá með 19
viðskiptaráðherra, Halldóri Ás-
grímssyni sjávarútvegsráðherra
og Jóni Helgasyni landbúnaðar-
ráðherra, ræddu þessi mál nú ný-
verið á fundi og varð niðurstaða
þess fundar að fjármálaráðherra
tók að sér að ræða við formann
fjárveitinganefndar, Pálma Jóns-
son um með hvaða hætti þetta fé
verði útvegað.
laxa og netstubb í fórum sínum.
Sýslumannsemhættið í Mýra-
og Borgarfjarðarsýslu fer með
málið. Það munu vera menn úr
byggðarlaginu sem voru staðnir
að veiðunum.
Laxá í Leirársveit:
Gripnir með 19 laxa
Stefnan skílar betri kjörum
en skömmtunarstefnan
— segir dr. Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Kaupþings hf.
„ÉG GET TEKIÐ undir margt af því
sem fram kemur hjá Þorsteini,**
sagði Bragi Hannesson bankastjóri
Iðnaðarbankans, er hann var spurð-
ur álits á ræðu Þorsteins Pálssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins, sem
hann hélt á þingi Sambands ungra
sjálfstæðismanna á Akureyri um síð-
ustu belgi.
„Bankakerfinu hefur verið
miðstýrt þar sem ákvarðanir um
inn- og útlánsvexti hafa verið al-
farið f höndum Seðlabankans og
ríkisstjórnarinnar þar til á síð-
astliðnu ári. Við þetta bætist aö
við höfum búið við afurða- og
rekstrarlánakerfi sem hefur mis-
munað atvinnuvegunum, bæði
hvað snertir aðgang að lánsfé og f
kjörum. Jafnframt sátu bankarnir
ekki við sama borð hvað snertir
rétt til stofnunar útibúa og rétt til
verslunar með erlendan gjaldeyri.
Auk þess hefur ríkið verið í sam-
keppni við bankana um innláns-
kjör og hafa boðið betri kjör.
Þetta er lýsing á vanþróuðu
bankakerfi.
Þorsteinn minnist líka á að
þetta hafi bitnað á atvinnuvegun-
um. Ég vil frekar orða það þannig
að þetta hafi bitnað á uppbygg-
ingu atvinnulffsins og á lífskjör-
um fólksins í landinu.
Vanþróað bankakerfi hlýtur að
leiða til þess að það verður dýrara
í rekstri og það leiðir lfka til þess
að fjárfestingar verða ekki eins
vel undirbúnar og ella. Þetta álft
ég að sé maðkurinn f mysunni, þvf
þetta kerfi hefur boðið upp á að
við höfum ráðist í fjárfestingar
sem ella hefði ekki verið ráðist í
og hafa ekki skilað þeim arði sem
þurft hefði," sagði Bragi Hannes-
son bankastjóri.
Morgunblaðið leitaði einnig
álits dr. Péturs Blöndal fram-
kvæmdastjóra Kaupþings hf.
-Ég er sammála Þorsteini um
það að islenskur fjármagnsmark-
aður er ennþá vanþróaður. En
hann þróast óðfluga. Það er margt
sem hefur verið lagað að undan-
förnu, en þó er ennþá mjög margt
sem þyrfti að laga áður en hægt er
að tala um að fjármagnsmarkað-
urinn sé nægilega þjáll fyrir fs-
lenskt efnahagslíf," sagði Pétur.
„Hér á ég fyrst og fremst við
bankakerfið. Bankar eru mikið til
hreinar afgreiðslustofnanir. Þeir
sinna ekki stórum lántakendum
sem skildi og gæta ekki nógu vel
hagsmuna sparifjáreigenda. Það
sást t.d. f vetur þegar vextirnir
urðu mjög neikvæðir á almennum
sparisjóðsbókum. Þá heyrðist ekk-
ert frá bönkunum um að þetta
væri slæmt ástand. Nú er ljóst að
bankalögin taka gildi um áramót-
in og munu þau eflaust þvinga
bankana til að taka upp ný vinnu-
brögð í sambandi við afstöðu til
sparifjáreigenda og lántakenda.
Það ber allt of mikið á þvi að fs-
lenskir bankar skammti peninga í
stað þess að veita þeim f góðar
fjárfestingar sem þeir hafa trú á
og jafnvel þannig að þeir taki ein-
hverja áhættu. F dag tekur banki
helst ekki áhættu. Krafist er
góðra og tryggra veða í öllum
lánaviðskiptum. Þetta er kannski
það sem Þorsteinn hefur átt við,
að það vanti f rauninni á íslandi
útlánastarfsemi sem er fús til að
taka á sig áhættu.
Þær raddir hafa heyrst að
frjálsir vextir séu að sliga bæði
einstaklinga og fyrirtæki sem
lántakendur, en það er ljóst að
svona góðir vextir ættu að hvetja
til aukins sparnaðar. Enda hefur
sparnaður aukist verulega á síð-
ustu tveimur árum bæði vegna
verðtryggingar og hárra vaxta. Ég
hef trú á að þetta leiði til þess að
vextir muni lækka innan skamms.
Þannig skilar stefnan betri kjör-
um fyrir lántakendur en skömmt-
unarstefnan gerði.
Auðvitað ætti markaðsstefna að
ríkja á þessu sviði svo að pen-
ingarnir leiti f arðbærar fjárfest-
ingar. Það vill alltaf loða við þegar
peningar eru skammtaðir eins og
gert hefur verið hér í 40 ár, að þeir
leiti í gæluverkefni sem eru engan
veginn arðsöm fyrir þjóðina í
heild. Lántakandinn er alltaf best
fær að dæma um hvort fjárfesting
hans er arðbær. Og ef hann þarf
að borga háa vexti, þá hættir hann
við slæma fjárfestingu.
Eins og ég gat um hér að fram-
an hefur vantað áhættugleði á ís-
lenskum lánamarkaði og þetta
hefur staðið ungum arðvænlegum
fyrirtækjum fyrir þrifum, þar sem
þau hafa ekki getað fengið lán
vegna eðlilegs skorts á veðum."
Gunnar Helgi Hálfdánarson
framkvæmdastjóri Fjárfestinga-
félagsins sagðist vera sammála
því sem Þorsteinn Pálsson segir í
ræðu sinni f öllum megindráttum.
„Mér finnst Þorsteinn sýna víð-
sýni í ræðu sinni,“ sagði Gunnar.
„Hann sekkur sér hvorki ofan í
dægurþras né dregur eina at-
vinnugrein fram yfir aðra. Hann
heldur sér á þeim nótum sem mér
finnst að stjórnmálamenn ættu að
gera. Þeir eiga að skapa vfðan og
góðan ramma fyrir atvinnulífið.
Innan þess ramma geta einstakl-
ingarnir séð um að finna arðbær
og hagkvæm tækifæri til fjárfest-
ingar í landinu og þar með eflt og
treyst lífskjörin.
Eg er sammála því að peninga-