Morgunblaðið - 03.09.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
... allt
er geymt
Páll Magnússon fréttamaður
sýndi okkur sjónvarpsgestum
bjargsig í Bjarnarey nú á sunnu-
dagskveldið í myndinni Á ystu nöf.
Þakkaði ég mínum sæla fyrir að
sitja í sjónvarpsstólnum í stað
þess að hanga þarna á bjargsyll-
um, er ekki að efa að Hlöðver
(Súlli) Johnsen eyjarjarl hefir á
réttu að standa er hann telur góða
anda hafa vakað yfir sér í þá sex
áratugi er jarlinn hefir klifið
bergið. Fæ ég reyndar ekki með
nokkru móti skilið þá lukku er
hefir fylgt bjargsigsmönnum í
Bjarnarey, því mér virtist úr sjón-
varpsstólnum þetta vera mann-
drápsklifur og syllurnar vart ætl-
aðar nema fuglinum fljúgandi, en
þeim Vestmanneyingum er ekki
fisjað saman.
Samt lagði Hlöðver Johnsen nú
á það ríka áherslu í samtalinu við
Pál fréttamann, að í sjálfu sér
skipti hetjuskapurinn ekki öllu
máli í bjargsigi, öryggið væri fyrir
mestu. En í eyjunum er ekki bara
hoppað og skoppað um syllur og
ókleifa hamraveggi í eggjaleit, þar
er og að finna ástarhella — jafn-
vel fleiri en einn að sögn Hlöðvers
eyjarjarls og svo vinalega bústaði
þar sem menn njóta þess sem er
máski hvað dýrmætast í lífinu —
kyrrðar og fegurðar náttúrunnar.
Á slíkum stöðum geta lágfleygar
hugsanir og krímugar ekki þrifist.
Formyrkvunin
í einum hinna prýðilegu þátta
•r sýna okkur sjónvarpsgestum á
östudögum líf hins evrópska að-
ils var haft eftir Franz Josef prins
I — æðstráðanda í Liechtenstein:
iann var merkilegt sjúk-
lómstilfelli. Franz Josef átti hér
/ið Adolf Hitler, en prinsinn gekk
i fund Hitlers á sínum tíma og
lindraði þar með hernám Liecht-
rnstein að talið er.
íslenskir sjónvarpsáhorfendur
lafa undanfarin sunnudagskveld
itt þess kost að kynnast í þáttun-
ím Blut und Ehre hvernig hinn
iérstæði geðsjúkdómur er hrjáði
Adolf Hitler, lék þýsku þjóðina.
Get ég vart ímyndað mér áhrifa-
neiri lýsingu en hér gat á þeim
indlega sjúkdómi er nasismi nefn-
ist. En það var ekki bara sjálf
ýúkdómslýsingin er vakti athygli
mína heldur fyrst og fremst sú
itaðreynd að brengluð og háskaleg
hugmyndafræði í höndum svíns-
legra valdhafa, verður að heilög-
um sannleika í augum hins þögla
meirihluta með tíð og tíma. Þannig
virtist mér að minnsta kosti
meirihluti Þjóðverja fylgja hinni
sjúku hugmyndafræði nasistanna.
Það voru aðeins sérvitringamir og
undanvillingarnir er andæfðu.
Hinn þögli meirihluti virtist ætíð
fylgja hinum sterka leiðtoga, jafn-
vel fram á ystu nöf. í þessu sam-
bandi dettur mér i hug einkenni-
leg frétt er barst af skjánum fyrr
á sunnudagskveldið: Gorbachev
leiðtogi Sovétríkjanna segir sam-
sipti risaveldanna mjög viðkvæm
og flókin og hvenær sem er geti
„soðið uppúr ..." Þegar litið er til
þess að fyrir aðeins fjórum ára-
tugum nánast rústaði geðsjúkur
maður heimsbyggðinni ber okkur
að taka alvarlega slíkar yfirlýs-
ingar þess manns er hefir vald
til að styðja á rauða takkann,
einkum í ljósi þess að valdakerfi
það er bar Gorbachev í hinn æðsta
valdastól var að mestu grundvall-
að af andlegum náfrænda Hitlers,
agameistaranum Jósef Stalín. Eða
eins og Gunnar Dal orðar það I
ljóðinu Frá upphafi: Frá upphafi
lífsins/ allt er geymt/ í þér í lítilli
skrínu — Pardusdýr, asnar/ og
apamenn/ eru á þinni línu./ Og
dável þau flestöll/ dafna enn,/
dýrin í hjarta þínu. (Sjö skáld í
mynd, Svart á hvítu, ’83.)
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Charlie ásamt syni sínum.
Litast um í mannslíkamanum:
Nýjasta nýtt
í læknavísindum
■i Sjónvarpið sýn-
40 ir í kvöld ný-
— lega kanadíska
fræðslumynd um aðferðir
þær sem tiltækar eru til
að skoða líkami manna að
innan. í samanburði við
ýmsa þá tækni sem fundin
hefur verið upp á síðustu
árum virðast röntgen-
myndatökur frumstætt
fyrirbæri.
Þegar röntgenmynd er
tekin af manni er ekki
hægt að greina milli
mjúkra vefja, grátt
þykkni er það eina sem
sést. Með tölvustýrðri
sneiðmyndatöku má hins-
vegar greina milli fitu-,
vöðva- og taugavefja
vandkvæðalaust.
Segja má að með
splunkunýrri tækni eins
og segulómun og hátíðni-
hljóðum megi spretta
búknum upp án þess að
snerta á skurðarhnífnum;
læknar geta fundið flesta
venjulega sjúkdóma á
augabragði og með lítilli
fyrirhöfn.
Charlie:
Kvennamálin komin á rekspöl
■ í kvöld sýnir
15 sjónvarpið
— þriðja þáttinn
um einkaspæjarann
Charlie. Charlie hefur nú
kynnst nýju fólki gegnum
sakamálið sérstæða sem
hann flæktist inn í, meðal
annars ekkju þess sem
hann fann myrtan í fyrsta
þættinum. I síðasta þætti
rannsakaði Charlie at-
hæfi nokkurra verkalýðs-
foringja sem virðast
tengjast málinu.
Umræðuþáttur í sjónvarpinu:
Albert Guðmundsson spurður út úr
■I Albert Guð-
05 mundsson verð-
“ ur tekinn fyrir í
umræðuþætti í sjónvarp-
inu í kvöld. Páll Magnús-
son og Elías Snæland
Jónsson munu spyrja
hann út úr um athafnir
hans sem fjármálaráð-
herra, einkum það sem
mest hefur verið á döfinni
að undanförnu.
Albert Guðmundsson, fjár-
málaráðherra.
„Við ræðum um stjórn-
málin og hann sjálfan,"
sagði Páll í samtali við
Morgunblaðið. „Þátturinn
snýst allur um Albert því
auk þess að spyrja hann
verður skotið inn stuttum
viðtölum við fólk úti á
götu og jafnvel aðra
stjórnmálamenn um hvað
þeim finnist um Albert."
Vagg og velta
Þátturinn Vagg
00 og velta er á
~' dagskrá rásar 2
í dag klukkan tvö. Gísli
Sveinn Loftsson sér um
þann þátt og að venju
mun hann spila hin og
þessi dægurlög gömul og
ný.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
3. september
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. Morgunútvarpið. 7.20
Leikfimi. Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Guðvarð-
ar Más Gunnlaugssonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15
Veðurfregnir. Morgunorð: —
Guðmundur Hallgrfmsson
talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Glatt er ( Glaumbæ" eftir
Guðjón Sveinsson. Jóna Þ.
Vernharðsdóttir les (5).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagblað-
anna (útdr.). Tónleikar.
10.45 „Man ég það sem löngu
leið”.
Ragnheiður Viggósdóttir sér
um þáttinn.
11.15 i fórum mínum.
Umsjón: Inga Eydal. RÚ-
VAK.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 Inn og út um gluggann.
Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
13.40 Létt lög.
14.00 „Nú brosir nóttin”.
Æviminningar Guðmundar
Einarssonar. Theódór Gunn-
laugsson skráði. Baldur
Pálmason les (5).
14.30 Miðdegistónleikar.
Sinfónia nr. 40 i g-moll
K.550 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. Enska kamm-
ersveitin leikur; Benjamin
Britten stjórnar.
15.15 Ut og suður.
Endurtekinn þáttur Friðriks
Páls Jónssonar frá sunnu-
degi
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Upptaktur.
Guömundur Benediktsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 „Hversvegna, Lamla?” ■
eftir Patriciu M.St. John.
19.25 Ævintýri Olivers bangsa.
Annar þáttur. Franskur
teiknimyndaflokkur um lltinn
skógarbjörn sem fer á flakk
og kynnist mörgu. Þýöandi
Guðni Kolbeinsson. Lesari
með honum Bergdis Björt
Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Litast um I llkamanum.
(Nature of Things — Inside
Helgi Ellasson les þýðingu
Benedikts Axelssonar (11).
17.40 Siðdegisútvarp.
Sverrir Gauti Diego. Tónleik-
ar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Til-
kynningar. Daglegt mál. Sig-
uröur G. Tómasson flytur
þáttinn.
20.00 Sviti og tár.
Guðrún Jónsdóttir stjórnar
þætti fyrir unglinga.
20.40 Blót og þing.
Jón Hnefill Aðalsteinsson
flytur slðara erindi sitt.
21.05 Gftarleikur.
a. Chaconna eftir Johann
Sebastian Bach.
ÞRIÐJUDAGUR
3. september
Out.) Kanadlsk fræðslumynd
um þá tækni sem læknar
beita til að skoöa innviði
mannslikamans. allt frá
röntgengeislum til tölvu-
stýrðra sniömyndatækja.
Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
21.15 Charlie.
3. Sameinaðir stöndum vér
Breskur framhaldsmynda-
flokkur I fjórum þáttum. Aö-
b. Stef og tilbrigði eftir Fern-
ando Sor. Göran Söllscher
leikur á gitar.
21.30 Útvarpssagan:
„Sultur” eftir Knut Hamsun.
Jón Sigurðsson frá Kaldað-
arnesi þýddi. Hjalti Rögn-
valdsson les (8).
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Óperutónleikar.
Arlur og þættir úr óperum
eftir Wagner, Wolf-Ferrari,
Puccini, Leoncacvllo og
Verdi. Jess Thomas, Nicolai
Gedda, Katia Ricciarelli,
Placido Domingo og fleiri
syngja.
alhlutverk David Warner. I
slðasta þætti beindist ran-
nsókn Charlies að nokkrum
verkalýöstorkólfum. Góö
kynni hafa tekist með honum
og ekkju hins myrta. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
22.05 Umræðuþáttur — Albert
Guðmundsson situr fyrir
svörum. Umsjón Páll Magn-
ússon. Honum til aðstoðar
Ellas Snæland Jónsson.
23.00 Fréttir I dagskrárlok.
23.30 Tómstundaiðja fólks á
Norðurlöndum.
Finnland. Annar þáttur af
fimm á ensku sem útvarps-
stöðvar Norðurlanda hafa
gert. Umsjónarmaður: Risto
Pitkánen.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
3. september
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Stjórnandi: Gisli Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Meö sinu lagi
Lög leikin af islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.
Þriggja mínútna fréttir sagö-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
SJÓNVARP