Morgunblaðið - 03.09.1985, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 03.09.1985, Qupperneq 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 Skemmtun og fræðsia sameinuð í „Hana-nú-klúbbnum“ „MARKMIÐIÐ hjá okkur í „Hana nú“ hópnum í Kópavogi er að skemmta okkur saman, ná í fræðslu á afslappaðan hátt, jafnframt því að aðlagast hækkandi aldri,“ sagði Ásdís Skúladóttir, félagsfræðingur hjá Kópavogsbæ og skipuleggjandi Hana-nú, sem er 340 manna fólks á aldrinum 50 ára og eldri. Stofnendur voru 12 talsins árið 1983. Hugmyndin kom fyrst fram hjá starfsmönnum Félagsmála- stofnunar Kópavogs og var ætlun- in að koma á fót félagsstarfi með eldra fólki. Ásdís sagði að stað- reyndin væri sú að þegar fólk hefði náð 67 ára aldri væri oft of seint að breyta til og byrja nýja lífshætti. Því fyrr sem byrjað væri að hugsa til breyttra aðstæðna vegna aldurs þeim mun betra. Ásdís sagði að frumkvöðull stofnunarinnar hefði verið Hrafn Sæmundsson, atvinnumálafulltrúi Kópavogs. „Hann kynntist því af eigin raun hve erfitt er að vera atvinnulaus, þó ekki væri nema skamman tíma. í hans tilviki var um atvinnuleysi að ræða vegna fötlunar. Þegar hann hóf störf við Félagsmálastofnun Kópavogs hitti hann fólk sem var í sömu stöðu og hann hafði verið í og vissi að það þurfti andlega og líkamlega upp- lyftingu á þessu tímaskeiði og þurfti ekki hvað síst að hafa góðan félagsskap sér til andlegrar upp- örfunar. I upphafi var ætlunin að hópurinn stundaði náttúruskoðun og gönguferðir, en hópurinn hefur stækkað mjög ört frá stofnun og hefur það kallað á skipulagsbreyt- ingar í starfinu öllu. Þróunin varð sú að farið var að skipta hópnum upp í smærri klúbba, sem fólk skráir sig sérstaklega í, auk þess sem það er í heildarsamtökuunm," sagði Ásdís. Reynt er að gefa öllum félags- mönnum kost á einhverju til skemmtunar að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Hefur sú starfsemi einkum beinst í þá átt að fara í ferðalög til nærliggjandi byggðarlaga. Þannig hefur hópur- inn m.a. heimsótt Seltjarnarnes, Bessastaðahrepp, Akranes, Stokkseyri og Eyrarbakka, Mos- fellssveit og verða Suðurnesin sótt heim von bráðar. í hverri ferð hafa framámenn sveitarfélaga tekið á móti hópnum og veitt fræðslu um viðkomandi sveitarfé- lag og að auki boðið upp á kaffi og meðlæti af miklum höfðingskap, að sögn Ásdísar. Fararstjórar eru með í hverri ferð sem bera sögu- lega eða jarðfræðilega þekkingu á því svæði sem farið er um. Hópurinn hefur m.a. farið í heimsókn á Kjarvalsstaði, haldnir hafa verið dansleikir þar sem harmónikkuleikarar „Hana-nú“ hafa sjálfir dregið upp nikkur sín- ar, en félagar sjá að mestu sjálfir um öll skemmtiatriði og kaffiveit- ingarnar og meðlæti kemur úr eldhúsum félagsmanna. Sl. vetur var boðið upp á námskeið í fram- sögn og myndlist fyrir alla félaga í samvinnu við Nárnsflokka Kópa- vogs og Leikfélag Kópavogs. Smærri klúbbar, sem starfandi eru innan „Hana-nú“, eru til dæm- is náttúrskoðunarklúbbur, bók- menntaklúbbur, hljómplötuklúbb- ur og gönguklúbbur, sem hafa bæði skemmtun og fræðslu á stefnuskrá sinni. „Fólk úr öllum þjóðfélagshópum er samankomið þarna og einnig er kynslóðabilið vel brúað því félagsmenn geta boðið vinum og vandamönnum með á hinar ýmsu uppákomur inn- an klúbbanna og sjást oft á tíðum heilu fjölskyldurnar saman í starfi og leik innan „Hana-nú“,“ sagði Ásdís að lokum. Verið að leggja í bæjarferð til Seltjamarness. „Hana-nú“-félagar fjölmenntu f það skiptið. Ásdís sagði að hún hefði verið búin að tala um að 40 manns kæmu f heimsókn, en um 80 manns mættu. CÁMKý •m Það getur verið að ekkert sé nýtt undir sólinni, en í /rlandi hinnar rísandi sólar7', virðist sífellt hægt að gera betur. Toyota Camry er ^ fullkomið dæmi þess.Hann virðist við fyrstu sýn ósköp venjulegur 5 manna fjölskyIdubílI, en við nánari kynni kemur annað í Ijós. Þverstæð vél og framhjóladrif gera það að verkum að innanrými er geysimikið. Sætin eru 1. flokks, (t.d. er hægt að stilla bílstjórasætið á 7 mismunandi vegu). Farangursrými í Camry Liftback er 1,17 m3, sem er meira en margir stationbíiar geta státað af. Veltistýri, 5-gíra skipting (eða 4 stiga sjálfskipting), loftbremsur, gasdemparar, tannstangarstýri, gott miðstöðvarkerfi og annar búnaður hafa líka sitt að segja um þægindi og góða aksturseiginleika. 1,8 eða 2,0 lítra bensínvél með rafstýrðri „beinni innspýtingu'' og 1,8 lítra dieselvél með forþjöppu, hafa snerpu og kraften eru auk þess hljóð- lálar og eyðslugrannar. Verð frá kr. 529 þús. Fer inn á lang flest heimili landsins! TOYOTA Nvbýlaveqi8 200Kópavogi S. 91-44144.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.