Morgunblaðið - 03.09.1985, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
25
Magnús Sigurjónaaon nýkjörinn
forraaður fjórdungssambandsins í
rædustól.
því að norðlenskir framleiðendur
og þjónustuaðilar taki höndum
saman um að auka kynningu á
starfsemi sinni með sameiginleg-
um vörusýningum, útgáfu kynn-
ingarbæklinga og með því að
koma á fót tölvuvæddri upplýs-
ingamiðstöð um þjónustu og fram-
leiðslu á Norðurlandi.
Ný stjórn
Þinginu lauk með því að kosin
var ný stjórn samkvæmt hinum
nýsamþykktu lögum. Hana skipa,
Magnús Sigurjónsson, Sauðár-
króki, formaður, Auður Eiríks-
dóttir, Hleiðargarði í Eyjafirði,
varaformaður, Magnús ólafsson,
Sveinsstöðum í Austur-Húna-
vatnssýslu, Bjarni Aðalgeirsson,
Húsavík, og Valtýr Sigurbjarnar-
son, Ólafsfirði.
Ákveðið var að næsta fjórð-
ungsþing verði á Siglufirði að ári.
Mjólkursamlagið
í Búðardal:
Ostakökurnar
vinsælar meðal
flugfarþega
Mjólkursamlagið í Búðardal hefur
í sumar framleitt mikið magn af
ostakökum fyrir Flugleiðir til notk-
unar í millilandaflugi flugfélagsins.
Þetta eru sömu kökur og samlagið
framleiðir fyrir Mjólkursamsöluna í
Reykjavík, sem settar voru á mark-
aðinn í fyrrahaust, en sérstaklega
skornar til notkunar í ferðapökkun-
um. Ostakökurnar eru með tveimur
bragðefnum, kirsuberjabragði og
bláberjabragði.
Að sögn Sigurðar Rúnars Frið-
jónssonar, mjólkursamlagsstjóra i
Búðardal, hafa kökurnar notið
mikilla vinsælda hjá farþegum
Flugleiða og seldu þeir Flugleiðum
meira magn i sumar en fór á inn-
lendan markað. Sigurður Rúnar
sagði að þeir hefðu gert samning
við Flugleiðir um að selja þeim
ostakökur a.m.k. út september, en
þá yrði tekin ákvörðun um fram-
haldið.
Mjólkursamlagið í Búðardal
hefur gengist fyrir ýmsum nýj-
ungum á sl. árum. Auk ostakök-
unnar framleiðir samlagið ostana
Dalayrju og Dalabrie, og fyrir
skömmu hófst þar framleiðsla á
nýrri mjólkurvöru, sem hlotið hef-
ur nafnið SmáMál, og er eins kon-
ar súrmjólkurbúðingur með jarð-
arberja- og vanillubragði. Þá er
væntanleg á markaðinn í haust
okstakaka með nýju bragði.
/\pglýsinga-
síminn er 2 24 80
„PRENTMYNDASTOFAN HF cr flutt í eigið húsnæði að SÚÐARVOGI 7 og nýja símanúmerið þeirra er 8 40 10
og þetta er auglýsing en ekki brandari “
ENNRÝFURNESCO
ORION 2A 33.900
ORION 2A er myndbandstæki sem hefur altt sem þú þarft, úrvalsgóða
mynd, fullkomna tækni og trausta byggingu. VHS-tæki á aðeins 33.900
krónur.
R FftONT iO*l>:*C *v*TE« 1 vus
maa 0(100 | ■080 wmmmmmmm
XENON 4B 39.900*
XENON 4B hefur alla sömu eiginleika og 3CN tækið, auk þess, sem það
hefur 12 stöðva forval, enn vlðtækara móttökusvið og stjórnborð af allra
nýjustu gerð. Stórglæsilegt tæki á aðeins 39.000 krónur.
XEN0N3CN 36.900*
XENON 3CN er enn fullkomnara og fjölbreyttara, með sjálfvirkri upptöku
fyrir fjórar stöðvar og ólfka dagskrárliði, minni og þráðlausri fjarstýringu,
auk venjulegra eiginleika. Glæsilegt tæki á aðeins 36.900 krónur.
0RI0NYM 47.900
ORION VM fjölnota myndþandstækið er hvort tveggja I senn fullkomið
heimilismyndbandstæki og ferðatæki með afnotarétti af myndtökuvél til
upptöku á eigin myndefni. Bráðsnjöll frambúðarlausn, sem hittir hvar-
vetna I mark, á aðeins 47.900 krónur. * Stgr. v.rí
LAUGAVEG110 .
SÍMI27788 /r\