Morgunblaðið - 03.09.1985, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
Kire Willoch forsKtisriöherra meðal ungra kjósenda á yfirreið sinni vegna kosninganna til þings í Noregi næstkomandi mánudag.
Ný skoðanakönnun í Noregi:
Borgaraflokkarnir hafa
ÓM, 2. september. Frá Ju Erík Uure, frétu
„Nú gengur allt svo miklu betur*'
er nú hið óopinbera slagorð Hægri-
(lokksins í kosningabaráttunni. Og
nýjasta skoðanakönnunin, sem gerð
var opinber um helgina, bendir a.m.k.
til þess, að borgaraflokkunum gangi
allt í haginn.
Ef marka má þessa könnun, eru
úrslit kosninganna þegar ráðin.
Hægriflokkurinn, Miðflokkurinn,
Kristilegi þjóðarflokkurinn og
Framfaraflokkurinn auka fylgi sitt
r> MbL
og fá til samans 51,6% atkvæða.
Verkamannaflokkurinn, Sósíalíski
vinstriflokkurinn og Venstre hafa
tapað 1,3% fylgi og fá 45,9% sam-
anlagt samkvæmt könnuninni. Er
það a.m.k. 4% of lftið til þess að
fella stjórnina.
Samkvæmt könnuninni er fylgi
einstakra flokka sem hér segir:
Verkamannaflokkurinn fær 37,5%
(fékk 37,8% í sams konar könnun í
júnímánuði), Sósíalfski vinstri-
flokkurinn 5,7% (5,9%), Venstre
2,9% (3,7%), Hægriflokkurinn
32,8% (33,5%), Kristilegi þjóðar-
flokkurinn 8,9% (8,7%), Miðflokk-
urinn 5,8% (5,8) og Framfaraflokk-
urinn 4,1%.
Slagorðið „Nú gengur allt svo
miklu betur" er ættað úr skopþætti
f sjónvarpinu, þar sem flokkarnir
voru hafðir að skotspæni. I þættin-
um var Káre Willoch forsætisráð-
herra og formanni Hægriflokksins
teflt fram sem nokkurs konar Kim
meðbyr
11 Sung, þ.e. sem landsföður og ein-
ræðisherra, f áróðursmynd. Og
rauði þráðurinn í skopstælingunni
var þemað: „Nú gengur allt svo
miklu betur".
Þetta hefur fest svo rækilega
rætur í huga sjónvarpsáhorfenda,
að slagorðið hefur orðið Willoch og
flokki hans verulega til framdrátt-
ar. Má því búast við, að það eigi oft
eftir að heyrast og sjást nú í síð-
ustu viku kosningabaráttunnar.
Veður
víða um heim
Laagat Akurayri
Amsterdam 14
A þ#na Barcelona 20
B«fiín 8
BrUssel 10
Chécago 19
Dublin Feneyjar 10
Frankfurt 9
Qanl 17
Halsénki 14
Hong Kong 25
Jorúsatom 17
Kaupmannah. Las Palmas 12
Lissabon 19
London 13
Los Angoles Lúxemborg Mwfftgs Mallorca 33
Mtami 26
Montreal 15
Moskva 8
New Yorfc 14
Osló 10
aa f- rmw(S 13
Pefcing Reykjavík 18
Ríó da slaneiro 14
Rómaborg 14
Stokkhólmur 14
Stdney 11
Tókýó 27
Vtnarborg Pórshöfn 13
Hmt
S •kýjaö
1* hviöskírt
32 hMöakirí
27 tMiðskfrt
20 akýjað
22 akýjaS
28 akýjað
16 rigning
26 þokumóö
■t
24 akýjað
25 haióaktrí
18 akýjað
29 akýjað
25 akýjað
21 akýjað
25 MttakýjaA
31 haiftakfrt
17 akýjaO
31 akýjaO
16 akýjað
30 haiðakfrt
vantar
30 skýjaö
21 rigning
21 haiðakirt
23 haiðakýrt
18 skýjaö
21 akýjað
28 haiðakfrt
8 hélfskýjað
28 rigning
32 haiðskirí
19 skýjað
17 haiðskfrt
35 haiðskfrt
26 skýjað
8 héltskýjað
Franska leyniþjónustan:
Gömul æyintýri
gleymast seint
Pólitísk hneykslismál og fyrsta
flugrán í sögunni m.a. á sakaskránni.
Franska leyniþjónustan er þekkt fyrir að hafa nokkrum sinnum venð
viðriðin pólitísk morð- og hneykslismál. Vitað er, að hún hefur gripið til sinna
ráða til að beina erlendum málum inn á braut, sem franska ríkið getur
sætt sig við og á að vera ríkinu til góðs. Þess vegna þótti það ekki svo ýkja
ótrúlegt, að hún hefði ákveðið að sökkva Rainbow Warrior, flaggskipi
grænfriðunga, og koma í veg fyrir frekari aðgerðir þess gegn kjarnorku-
vopnatilraunum Frakka í Suður-Kyrrahafi. En sérstök rannsókn Bernards
Tricot leiddi í Ijós, að leyniþjónustan hafði ekkert með eyðilegginguna á
skipinu að gera.
Margir efast um réttmæti niður-
stöðu rannsóknarinnar en Laurent
Fabius, forsætisráðherra landsins,
segir gagnrýnendum hennar að
koma fram með gögn, sem sanni
að Tricot-skýrslan um Rainbow
Warrior-málið sé röng. Hann við-
urkennir, að nokkurs agaleysis
gæti innan frönsku leyniþjón-
ustunnar og ráðherrum hefur ver-
ið falið að kanna þetta mál frekar.
Og nú hefur verið ákveðið að ríkis-
stjórnin muni héðan í frá gefa
formanni varnarmálanefndar
þingsins skýrslu um njósnastarf-
semi Frakka á hverju ári.
Franska leyniþjónustan hét áð-
ur „Service de documentation ext-
erleure et de contreespionnage",
SDECE, og lenti í mörgum
hneykslismálum. Sósíalistar gagn-
rýndu hana oft þegar þeir voru í
stjórnarandstöðu og lögðu til árið
1972, að hún yrði lögð niður.
Seinna lögðu þeir til, að hún félli
beint undir forsetaembættið. Þeir
létu endurskipuleggja hana árið
1982, eftir að þeir komust í stjórn.
Það þótti ekki takast betur en svo,
að fyrsti stjórnandi erlendu deild-
arinnar, DGSE, Pierre Marlon,
sem var fyrrverandi yfirmaður Air
France og gamall vinur Charles
Hernu, varnarmálaráðherra, varð
að segja af sér eftir eins árs starf.
Lacoste, flotaforingi, tók við starf-
inu af honum.
Nú er leyniþjónustan skipulögð
þannig, að „Direction de la sur-
veillance du territoire", DST, á að
sjá um gagnnjósnir og starfa inn-
an Frakklands og í lögdæmum
þess erlendis en „Direction genér-
ale de la securite exterieure",
DGSE, starfar að upplýsingasöfn-
un, njósnum og aðgerðum erlendis.
Laurent Fabius, forsætisráðherra Ben Bella, fyrsti forseti Alsír.
Frakklands.
Verkaskiptingin á að vera svipuð
og hjá FBI og CIA í Bandaríkjun-
um og MI 5 og MI 6 í Bretlandi
en hún er ekki eins augljós í
Frakklandi og í þessum löndum
og stundum virðist annar armur
leyniþjónustunnar slæðast inn á
starfssvið hins.
DST fellur undir innanríkis-
ráðuneytið og er til húsa fyrir
aftan Elysée-höllina. Þar starfa
milli 2000 og 5000 manns. Talið er,
að um 2800 manns starfi hjá
DGSE. Höfuðstöðvar hennar eru
beint á móti sundlauginni Piscine
des Tourelles og eru þess vegna
oft kallaðar „La Piscine" eða sund-
laugin. DGSE fellur undir varnar-
málaráðuneytið en forsætisráð-
herra og forsetinn sjálfur bera þó
endanlega ábyrgð á gerðum henn-
ar.
Starfslið frönsku leyniþjón-
ustunnar þykir nokkuð fjölskrúð-
ugt. Þar starfa venjulegir opin-
berir starfsmenn með embættis-
titla og aðrir með hertitla. Fólk úr
öllum áttum sækist eftir starfi
hjá henni, sumir af hreinni ætt-
jarðarást en aðrir af ævintýraþrá.
Málaliðsmenn skjóta alltaf upp
kollinum af og til og einnig má
finna óuppdregna glæpahunda
innan leyniþjónustunnar.
Meðal verstu málanna sem hún
hefur lent í eru Ben Bella-hneyksl-
ið 1956, Moumié-málið 1960 og Ben
Barka-morðið 1965.1 fyrsta tilvik-
inu gerðist franska leyniþjónustan
svo fræg að framkvæma fyrsta
flugvélaránið í mannkynssögunni.
Allir helstu leiðtogar alsírsku
þjóðfrelsishreyfingarinnar, FLN,
voru á leið frá Casablanca í Ma-
rokkó til Túnis um borð í DC-3 vél
þegar franska leyniþjónustan
rændi vélinni og lét hana lenda í
Alsír 22. október 1956. Leiðtogarn-
ir voru handteknir og þeim varpað
í fangelsi. Ahmed Ben Bella, sem
varð forseti Alsírs eftir að landið
fékk sjálfstæði frá Frökkum, var
í hópi leiðtoganna. Þeir höfðu verið
á ferð í boði konungsins í Marokkó
og hann brást mjög illur við þess-
um aðgerðum Frakka og vináttu
Marokkó við Frakkland var stofn-
að í hættu. Málið olli einnig mikl-
um úlfaþyt í París þar sem stjórn-
völd voru einmitt á þessum tíma
að reyna að ná sáttum við þjóð-
frelsishreyfinguna.
óábyrgur liðsforingi var sagður
hafa staðið að málinu en síðar
hefur komið í ljós að yfirmenn
SDECE skipulögðu það og hátt-
settur embættismaður í varnar-
málaráðuneytinu lagði blessun
sína yfir það. f bókinni La Pis-
cine, eftir Roger Faligot og Pascal
Krop, kemur fram að það hafi
verið ákveðið strax í maí 1955 að
ræna Ben Bella og gera hann
óvirkan, sem þýðir væntanlega að
það hafi átt að drepa hann.
Felix Moumíe, læknir og and-
stæðingur stjórnarinnar ( Kamer-
ún, slapp ekki jafn vel og Ben
Bella. Forseta Kamerún hætti að
standa á sama um vinsældir
Moumié í byrjun árs 1960 og leitaði
til Frakka, vinaþjóðar Kamerún,
um hjálp. Franska leyniþjónustan
tók að sér að sjá um Moumié.
Starfsmanni hennar, „Grand Bill",
var falið að fara til Genfar í Sviss
og þykjast vera svissneskur blaða-
maður með áhuga á Moumié og
Kamerún og hitta stjórnmála-
manninn þegar hann var staddur
í Genf. „Grand Bill“ átti að byrla
honum eitrinu Thallium í svo litl-
um mæli að hann veiktist ekki
strax heldur kæmist heim til
Kamerún og dræpist þar án þess
að nokkur gæti séð að um eitrun
og morð væri að ræða.
Þeir hittust í Genf 15. október
1960 og snæddu saman kvöldverð.
Moumié pantaði sér drykk fyrir