Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 29

Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 29 NATO: Yfirherstjórnin til Bandaríkj- anna og Kanada Brii«Hel, 2. september. AP. A sunnudag mun yfirherstjórn NATO fara í 10 daga heimsókn til herstöðva í Bandaríkjunum og Kanada. sagði í tilkynningu frá NATO í dag, mánudag. Er þetta liður í reglulegum heim- sóknum herstjórnarinnar til hinna 16 aöildarlanda Norður-Atlants- hafsbandalagsins. í yfirherstjórninni eiga sæti full- trúar allra aðildarlandanna nema Frakklands og íslands. Ekki er sagt frá ferðaáætlun herstjórnarinnar fyrir fram. Norrænir ferða- menn og gíslar í Búlgaríu Ósló, 2. september. Frá J»n Erik Laure, frétUrítmra Morgunbladsins. UM HELGINA voru 109 norskir og finnskir ferðamenn gíslar búlg- arskra yfirvalda. Var ástæðan sú, að norsk ferðaskrifstofa, sem varð gjaldþrota, skuldaði búlgarska ríkis- flugfélaginu milljón norskar krónur (um 5 millj. ísl. kr.). Harðneitaði flugfélagið að flytja ferðamennina heim fyrr en greiðsla bærist. Ferðafólkið hafði ekki hið minnsta á móti „nauðungardvöl- inni“ við Svartahafið, enda var það á lúxushóteli og naut lífsins í sólinni. Eftir einn sólarhring tókst ferðaskrifstofunni að útvega tryggingu fyrir skuldinni og ferða- mennirnir komust heim heilu og höldnu, enn þá brúnni en ef ferða- skrifstofan hefði ekki farið yfir matinn og „Grand Bill“ setti Thall- ium-eitrið útí glasið. En Moumié hafði frá svo miklu að segja að hann drakk ekki drykkinn. Þeir pöntuðu sér vín með matnum og „Grand Bill“ setti Thallium í rauð- vínsglas Moumié. Hann drakk vínið, þeir fengu sér kaffi og spjöll- uðu saman áfram þangað til Moumié tók ósnerta drykkinn, sem enn stóð á borðinu, og skellti honum í sig. Viðbótareitrið virkaði strax og læknirinn sagði: „Mér hefur verið byrlað Thallium" áður en hann lést. Það var sannað við krufningu og „Grand Bill“ var fundinn sekur um morð. Einu við- brögð frönsku leyniþjónustunnar voru að ávíta starfsmann sinn fyrir að hafa ekki komið fyrri eitraða drykknum undan svo að stjórnmálamaðurinn gæti ekki drukkið hann. Franska leynilögreglan var síð- ast bendluð við pólitískt hneykslis- mál í lok ársins 1965 en það er enn ekki fullljóst hvaða rullu hún spil- aði. Mendi Ben Barka, leiðtoga stjórnarandstæðinga í Marokkó, var rænt á götu í París 29. október 1965 og hann kyrktur eða barinn til dauða í miðstöðvarkjallara í borginni. Franska leyniþjónustan hafði fylgst með hverju skrefi Ben Barka í París en gat þó ekki bjarg- að lífi hans. Vitað er að starfsmenn hennar höfðu átt náin samskipti við þá sem undirbjuggu og frömdu morðið. Innanríkisráðherra og yfirmaður öryggismála í Marokkó höfðu lýst því yfir áður að Ben Barka væri hættulegur og það þyrfti að stöðva hann með ein- hverjum ráðum. Jacquier hers- höfðingi, yfirmaður SDECE á þessum tíma, sagði að leyniþjón- ustuna hefði ekki getað grunað að Ben Barka yrði rænt í Frakklandi. Charles de Gaulle, forseti, sagði að málið kæmi frönsku leyniþjón- ustunni ekkert við en rak þó Jac- juier úr embætti. Bernard Tricot var einmitt einn nánasti sam- ítarfsmaður de Gaulles á þessum árum. ab í stuttu máli Ætluðu að svindla sér inn á Rambo Gloacester, 1. september. AP. Um fimmtíu unglingar reyndu að ryðjast inn á sýningu á kvikmyndinni Rambó á laugardag og í átökum við lögreglu særðust tveir lögreglumenn. Að sögn lögreglunnar borgaði eitt ung- mennanna aðgangseyri og opnaði síðan neyðarútgang til aö hleypa hinum inn í troðfullt kvikmyndahúsið í Gloucester á Englandi. Þegar innbrotsmennirnir vildu ekki fara með góðu var lögreglan kvödd á vettvang og fjarlægði hún þá við illan leik. Lögreglubíll var gereyðilagður og tveir lög- reglumenn særðust lítillega. Vélarhlífina vantaði ( ahníilly, VirKÍnía, I. scptember. BREIÐÞOTA af gerðinni Boeing 737-100 varð að nauðlenda í Washington nokkrum minutum eftir að hún hóf sig á loft vegna þess að einn farþega tók eftir því að hluta af vélarhlífinni vantaði. Talsmaður bandarísku flugmálastjórnar- innar sagði að flugvélin hefði ekki verið í hættu, þótt hlífin hefði fallið af: „Það má líkja þessu við að aka eftir þjóðveginum án vélarhlífar. Það er ekki falleg sjón, en hefur engin áhrif á vélina.“ Nýtt leikrit eftir Shaffer London, 2. september. AP. YONADAB nefnist nýtt leikrit eftir Óskars- verðlaunahafann Peter Shaffer, sem frum- sýnt verður í þjóðleikhúsinu í London fjórða desember. Peter Hall leikstýrir verkinu og John Bury gerir búninga og leiksvið. Þeir settu leikritið Amadeus eftir Shaffer einnig upp, bæði í London og á Broadway, og vann sú uppsetning til einórma lofs og fjölda verð- launa. Yonadab gerist í Jerúsalem 1000 árum fyrir Kristsburð og segir frá því er Tamar, einu dóttur Davíðs konungs, er nauðgað af bróður sínum, Amnon. Féll af Berlínar- múrnum Vestur-Berlia, 2. scptember. AP. UNGLINGSSTULKA frá Vestur-Berlín missti í gær jafnvægið á Berlínarmúrnum og féll yfir í Austur-Berlfn. Hún var handtekin samstundis af austur-þýskum landamæravöröum. Atburðurinn átti sér stað f franska hluta borgarinnar og reyndu franskir hermenn að fá stúlkuna látna lausa, en allt kom fyrir ekki og var hún flutt inn í Austur-Berlín. Varð fyrir svifflugu Ik'lgrad, 2. september. AP. EIN kona lést og önnur slaðsaðist er svif- flugvél nauðlenti á akri um 100 kílómetra frá Belgrad á sunnudag. Konurnar voru að huga að kúnum þegar sviffluguna bar að. Svifflugmanninn sakaði ekki. SUZUKI FOX PICKUP Bíll sem býður upp á marga mögulelka Aflmikill og lipur jeppi og umfram allt ótrúlega sparneytinn. ísparaksturskeppni BIKfí og DV9. júnísl. eyddi Suzuki Fox 413 aðeins 6.2 Itr. pr. 100 km. Nú getum við boðið upp á vönduð trefjaplasthús á Suzuki Fox pickup. Þar sem Fox pickupinn er 57 cm lengri en Fox jeppinn, þá hentar hann mjög vel fyrir alla þá sem þurfa á miklu farangursrými að halda. Verð: Suzuki Fox 410 pickup 4 gíra kr. 349.000.- Suzuki Fox 413 pickup 5 gíra kr. 398.000.- Trefjaplasthús kr. 68.000.- Reynsluakið SUZUKI FOX Því meira sem þú ekur SUZUKI - því meira sparar þú Opið virka daga frá kl. 9-18 - laugardaga frá kl. 13-17. SVEINN EGILSSON HF. Skeifunni 17. Sími 685100. PÁV ■ Prcntsmidja Árna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.