Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
Leikarar og aðrir starfsmenn Leikfélags Reykjavíkur komu saman I upphafi nýs leikárs í gær þar sem kynnt vorn verkefni vetrarins. Morgunbia«ið/Rax
Leikfélag Reykjavíkur:
Fjóröungsþing
Vestfírðinga:
Atvinnumálin
í brennidepli
Fjórðungsþing Vestfirðinga var
haldið að Reykhólum í Austur-
Barðastrandasýslu nú um helgina.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
var sérstaklega fjallað um ástand
og þróun í atvinnumálum fjórð-
ungsins. Erindi fluttu Einar
Kristinn Guðfinnsson i Bolung-
arvík um sjávarútveg og fiskiðnað,
Engilbert Ingvarsson bóndi á
Tyrðilmýri um landbúnað, og
Sturla R. Guðmundsson tækni-
fræðingur hjá Iðntæknistofnun
tslands um almennan iðnað.
Þá var lögð fram á þinginu
skýrsla Samgöngunefndar Vest-
fjarða, sem Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra skip-
aði í samgönguráðherratið sinni.
Starfsfólk
barnaheimila
mótmælir
Tvö ný íslensk verk
frumsýnd nú í vetur
NÝTT leikár er hafið hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og verða þrjár frumsýn-
ingar í vetur. Tvö verkanna eru ný
islen.sk verk, „Land míns röður“,
söngleikur eftri Kjartan Ragnarsson
við tónlist eftir Atla Heimi Sveins-
son, sem frumsýndur verður í lok
september og „Svartfugl“ eftir
Gunnar Gunnarsson í nýrri leikgerö
Bríetar Héðinsdóttur, sem frumsýnt
verður í fyrri hluta febrúar. Þriðja
verkefnið er „Allir í einu“, breskur
gamanleikur eftir þá Conney og
Chapman og verður leikritið frum-
sýnt milli jóla og nýárs.
Æfingar á „Land míns föður"
eru þegar langt komnar að sögn
Stefáns Baldursson leikhússtióra
og mun þetta vera eitt viðamesta
verkefni, sem Leikfélag Reykja-
víkur hefur ráðist í til þessa. Leik-
endur eru 30 á öllum aldri og er
um helmingur þeirra af yngri
kynslóðinni, leikarar sem ekki
hafa sest oft áður, auk tveggja
dansara og 6 manna hljómsveitar,
sem tekur þátt í sýningunni.
Leikurinn gerist á hernámsár-
unum og hefst daginn, sem breski
herinn stígur á land og lýkur á
friðardaginn. Þetta er fjölskyldu-
saga, þar sem reynt er að fjalla
um áhrif hersetunnar á íslenskt
þjóðlíf og þær sviptingar sem þá
áttu sér stað. „Það má segja að við
séum að tefla mjög djarft með því
að ráðast í jafn fjárfrekt verkefni
og þetta. Fjárhagsstaða leikfé-
lagsins er slæm, sem meðal ann-
ars má rekja til erfiðleikanna við
að reka leikhús af þeirri stærð,
sem Iðnó er,“ sagði Stefán. „Hins
vegar viljum við gjarnan vera
undir það búin að leika í stærra
húsi og því fannst okkur freist-
andi að glíma við þetta vcrkefni og
undirbúa okkur þannig undir
flutninginn í stærra hús, sem von-
ir standa til að geti orðið eftir tvö
til þrjú ár.“
Annað verkefnið, breski gaman-
leikurinn „Allir í einu“ er dæmi-
gerður misskilningsfarsi, þar sem
allir rekast á alla þá, sem þeir eiga
ekki að rekast á þegar hvert parið
af öðru fær þá flugu í höfuðið að
nota sömu íbúðina til ástarleikja.
Leikritið, sem Karl Guðmundsson
hefur þýtt og Jón Sigurbjörnsson
mun leikstvra, náði miklum vin-
sældum í Bretlandi þegar það var
sýnt þar fyrir nokkrum árum.
Þriðja verkefnið, „Svartfugl"
eftir Gunnar Gunnarsson í nýrri
leikgerð Bríetar Héðinsdóttur, er
síðasta verkefnið sem frumsýnt
verður á þessu leikári. „Þetta
verður fjölmenn og stór sýning
þar sem lýst er uppgjöri ungs
prests við ákveðin lífsviðhorf eftir
að hann flækist inn í eitt frægasta
sakamál íslandssögunnar, morðið
á „Sjöundá" á síðustu öld,“ sagði
Stefán. Bríet Héðinsdóttir leik-
stýrir verkinu en tónlist er eftir
Hagstofan hefur reiknað út
launavísitölu til greiðslujöfnunar
fasteignaveðlána einstaklinga,
sem tekin eru til öflunar íbúðar-
húsnæðis til eigin nota. Er það í
samræmi við lög nr. 63 frá í vor.
Ræðst greiðslujöfnunin af mis-
munandi breytingum launavísitöl-
unnar og lánskjaravísitölu eða
byggingarvísitölu.
I 6. gr laganna eru eftirfarandi
Jón Þórarinsson.
Sýningar á „Ástin sigrar" eftir
Ólaf Hauk Símonarson, sem frum-
sýnt var í vor verða fljótlega tekn-
ar upp aftur á miðnætursýningum
í Austurbæjarbíói. Höfundur og
leikstjórinn, Þórhallur Sigurðs-
son, hafa unnið að endurbótum á
leiknum í sumar að fenginni
reynslu í vor.
1 tilefni listahátíðar kvenna,
sem haldin verður í lok september
hefur Bríet Héðinsdóttir sett sam-
an lesna, leikna og sungna
ákvæði um útreikning launavísi-
tölunnar:
„Hagstofa íslands skal reikna
út og birta mánaðarlega launa-
vístölu til greiðslujöfnunar.
Launavísitalan skal miðuð við
upphaf hvers mánaðar og gilda við
útreikning greiðslumarks lána frá
og með fyrsta degi næsta mánað-
ar. Vísitala þessi skal að jöfnu
samsett úr vísitölu atvinnutekna á
dagskrá úr verkum Jakobínu Sig-
urðardóttur, sem fimm leikarar
taka þátt í. Frumsýnt verður í
Gerðubergi og ein sýning hefur
verið ákeðin á Kjarvalsstöðum.
Óvíst er um framhaldið sem ræðst
af aðsókn en við uppsetningu sýn-
ingarinnar er miðað við að hægt
verði að sýna hvar sem er.
Fastráðnir starfsmenn hjá
Leikfelagi Reykjavíkur eru 35, þar
af 19 leikarar, og að auki eru laus-
ráðnir um helmingi fleiri starfs-
menn á hverju leikári.
mann og vísitölu meðalkauptaxta
allra launþega. Vísitala atvinnu-
tekna skal byggð á áætlunum
Þjóðhagsstofnunar um mánaðar-
legar breytingar atvinnutekna á
mann. Launavísitalan skal sett
100 í júní 1979 og reiknuð fyrir
hvern mánuð frá þeim tíma.“
Á meðfylgjandi töflu er þróun
launavísitölunnar sýnd fram til 1.
september í ár.
„STARFSFOLK dagvistarheimila í
Reykjavík hefur margítrekað bent á
það alvarlega ástand, sem skapast
hefur í starfsmannahaldi heimilanna
og jafnframt bent á leiðir til úrbóta,“
segir meðal annars í ályktun sem
sameiginlegur fundur stjórnar
Fóstrufélags íslands og trúnaðar-
manna 11. deildar Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar og starfs-
fólks dagvistarheimila samþykkti
nýverið.
Þar segir enn fremur:
„Borgaryfirvöld hafa ekki
brugðist við sem skyldi þó svo að
ákveðnar leiðréttingar hafi átt sér
stað s.s. varðandi vistgjöld fyrir
börn starfsfólks.
Fréttaflutningur borgaryfir-
valda og Dagvistunar barna hefur
verið afar villandi og borið þess
vitni að lítið mark hefur verið
tekið á aðvörunum starfsfólks um
stöðuna 1. sept.
Þó heimilin séu enn opin, er
starfsfólk víða að bjarga málum
með bráðabirgðalausnum eins og
viðgengist hefur undanfarna mán-
uði.
Starfsfólk dagvistarheimiia
skorar enn og aftur á borgaryfir-
völd að viðurkenna þann vanda,
sem við er að etja og væntir þess
að tafarlaust verði skipaður við-
ræðuhópur allra þeirra aðila sem
málið varðar þ.e. Fóstrufélag ís-
lands, Foreldrasamtökin, viðkom-
andi stéttarfélög og borgaryfir-
völd, í von um að leiðir finnist til
úrbóta."
Sumarstarfi
Árbæjarsafns
lauk nýlega
SUMARSTARFSEMI Árbæjar-
safns lauk nýverið. Safnið var
opnað 1. júní að venju og þann
16. júní var sumarsýning safnsins
opnuð. Að þessu sinni fjallaði hún
um grænlenska báta, qajaq og
umiag, og er farandsýning frá
þjóðminjasafni Grænlendinga í
Nuuk.
Veitingar voru seldar í Dill-
onshúsi og var kaffigestum
boðið upp á gítartónleika með
kaffinu á sunnudögum. Þann
4. ágúst voru haldnir stuttir
tónleikar fyrir safngesti í kirkj-
unni. Mæltist það vel fyrir og
komust færri að en vildu.
Yfir vetrarmánuðina er safn-
ið opið eftir samkomulagi.
Hægt er að hringja í síma
84412, mánudaga til föstudaga
milli kl. 9 og 10, og panta tíma.
LAUNAVlSITALA TIL GREIOSLUJÖFNUNAR SAMKV. 6. GR. LAGA NR. 63/1965.
VÍ9itölur,g11dl9<im1 fri 1.hv9r9min9Í9r. 1. Jún 1 1 9 7 9 »10 0
1979 1980 198 1 1962 198 3 19 8 4 1985
1. Jnnúnr 140 207 325 468 676 835
1. fnbrúnr 140 208 326 491 676 870
1. m ar 9 140 208 326 491 683 ' 870
1. a p r 11 152 232 355 558 716 913
1. m a í 152 232 355 558 716 913
1. Júni 100 152 232 355 558 716 947
1. Júli 111 167 258 384 621 741 973
1. égÚ9t 112 167 258 397 621 741 1009
1. jeptember 112 173 258 408 621 741 1043
1. október 123 184 284 436 621 757
1. nóvembar 123 164 284 436 676 757
1. desember 123 197 298 436 676 790
Fasteignaveðlán:
Launavísitala til greiðslujöfnunar