Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
39
Frábær, fimmfaldur skammtur
af Resurrection/Rez Band
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
manni gefst kostur á að fjalla um
Timm plötur einnar og sömu hljóm-
sveitarinnar í einu vetfangi. Slíkt
tækifæri bauðst mér fyrir nokkru
er ég fékk til umfjöllunar fimm
breiðskífur hljómsveitar, sem
nefnir sig Resurrection Band eða
Rez Band, og kennir sig við lítinn
Glenn Kaiser, virkilega lipur gít-
arleikari og vel í holdum að auki,
án þess það skipti máli. Sér tií
fulltingis hafa karlmennirnir
söngkonu eina hina ágætustu,
Wendi Kaiser. Hvort hún er eig
inkona eða systir áðurnefnds
Glenns veit ég ekki en hitt veit
ég, að hún getur sungið og fer
létt með það.
Lögin á Colours eru hvert öðru
betra og á henni er fáa veika
punkta að finna. „Pródúsjón" er
textarnir eru trúarlegs eðlis, en
e.t.v. er þessu þannig farið. Ef
þetta er tónlist, sem ekki nær
upp á yfirborðið, er bandarískur
rokkheimur að fara mikils á mis
í öllu því djöfladýrkunarfári og
ónáttúru, sem loðir orðið við
meirihluta nýrri þungarokks-
sveitanna þar um slóðir.
Resurrection Band
DMZ
Light/Jata
Ég sat dolfallinn er ég hlust-
aði á fyrsta lag þessarar plötu,
Military man, þar sem farið er
hörðum orðum um stríðsrekstur
hvar í heimi sem er. Military
man er eitt af þessum rokklög-
um, sem heltaka mann á augna-
bliki, og sleppa ekki takinu fyrr
en maður er nánast orðinn því
breyting hefur þó ekki náð að
beisla kraftinn í þeim félögum
og hann er áfram aðal sveitar-
innar ásamt sterkum lögum,
góðum söng og öruggum hljóð-
færaleik. Það er helst að bassinn
hljómi annarlega á stundum.
Hostage er mér ekki eins að
skapi og þær þrjár skífur Rez
Band, sem fjallað er um að fram-
an, en engu að síður mjög sann-
færandi plata. Þrátt fyrir breyt-
ingarnar á tónlistinni og nýju
áhrifin verða þau aldrei ríkjandi
og rokkið er ailtaf skammt und-
an.
Rez Band
Live Bootleg
Sparrow/Jata
Þessi tónleikaskífa Rez Band
er eins og punkturinn yfir i-ið í
trúarsöfnuð í Chicago-borg. Astæð-
an fyrir því að ég ætla að verja jafn
miklu rúmi í umfjöllun um þessa
sveit og raun ber vitni er einfald-
lega sú, að ég féll flatur fyrir tón-
listinni. Fyrir þá, sem hafa áhuga á
að nálgast plöturnar, er ekki í önn-
ur hús að venda en í verslunina
Jötu við Hátún að því ég best veiL
Resurrection Band
Colours
Light/Jata
Hafi menn haldið að trúarleg
tónlist væri einvörðungu flutt í
væmnum ástaróðum til frelsar-
ans eða þá í formi gospel-tónlist-
ar er það argasti misskilningur.
Sjálfur vissi ég reyndar að rokk
af ýmsu tagi var notað sem und-
irspil við útbreiðslu guðsorðs
víða um heim en það hvarflaði
aldrei að mér að jafn athyglis-
verð sveit og Resurrection Band
legði slíkt fyrir sig.
Tónlistin á þessari plötu sveit-
arinnar, sem tekin var upp 1981,
er eitthvert það kraftmesta
bandaríska rokk, sem ég hef
lengi heyrt. Slíkur er hamagang-
urinn á tíðum að jaðrar við pönk.
Boðskapur textanna er einfaldur
og skýr: trúið á Jesúm, frelsara
mannkynsins og fylgið honum.
Tónlistin og framsetning text-
anna, sem margir hverjir eru vel
saman settir, er svo blessunar-
lega laus við alla væmni eða
ofstæki að menn mega vera nán-
ast algerlega skyni skroppnir til
þess að hrífast ekki með. Slíkt er
enda vafalítið tilgangurinn.
t sjálfu sér veit ég lítið annað
um Resurrection Band en skipan
sveitarinnar en hún er lika allt
það sem þarf. Höfuðpaurinn er
reyndar ekki jafn rosaleg og á
mörgum bandarískum rokkplöt-
um nútímans en skilar sér engu
að síður vel.
Resurrection Band
Mommy don’t love daddy anymore
Light/Jata
Resurrection Band tekur upp
þráðinn þar sem frá var horfið á
Colours og heldur uppi boðskap
sínum undir drynjandi rokktón-
list. Rokkið á þessari plötu er
öllu heflaðra en á Colours auk
þess að vera allt einhvern veginn
fastmótaðra. Keyrslan hefur þó
lítið látið á sjá og krafturinn i
fimmmenningunum virðist tak-
markalitill.
Þótt rokkið sveiflist enn á
milli hard-rokks, pönks og
þungarokks á þessari plötu er
farvegurinn allur markvissari.
Gítarsóló betur upp byggð, milli-
kaflar eindregnari og meira
gripandi en fyrr og lagasmíðarn-
ar yfirhöfuð jafnvel ennþá betri.
Sannast sagna finnst mér erf-
itt að kyngja þeirri staðreynd að
e.t.v. skuli vera til fullt af plöt-
um á borð við þessar tvær fram-
angreindar með Resurrection
Band, sem maður hefur aldrei
heyrt minnst á fyrir það eitt að
háður. Svo er maður að hæla
sveitum á borð við WASP, Raven
og Ratt í hástert, fussusvei!
Þessi þriðja plata Resurrect-
ion Band á jafnmörgum árum og
útgefin 1983 er í senn sú þyngsta
og léttasta þeirra þriggja platna,
sem hér hefur verið fjallað um.
Á DMZ er að finna lög í þyngsta
kanti en einnig rólegri lög, sem
voru í algerum minnihluta á
fyrri plötunum tveimur, en þeg-
ar öllu er á botninn hvolft rök-
rétt framhald af Mommy don’t
love daddy anymore.
Rez Band
Hostage
Sparrow/Jata
Til þess að valda engum mis-
skilningi skal það tekið fram, að
Rez Band er sama sveitin og
Resurrection Band, sem fjallað
er um hér að framan. Með nafn-
inu virðast einnig hafa orðið
nokkrar breytingar á nöfnum
lagasmiðanna og þar með tals-
verðar breytingar á tónlistinni.
Rokkið, sem einkenndi sveit-
ina, er á Hostage slípað niður í
það sem oft er kallað „nútíma-
legra form“ með aðstoð hljóð-
gervla og annars slíks, gott ef
ekki trommuheila líka. Þessi
umfjöllun minni um þessa stór-
merku rokksveit. Tónleikamir
voru teknir upp á „heimavelli"
sveitarinnar í Odeon-höllinni í
Chicago að viðstöddu miklu fjöl-
menni, sem greinilega var vel
með á nótunum, en tónleikarnir
voru haldnir í fyrra.
Á þessari skífu er að finna
góða blöndu af yngri og eldri
lögum Rez Band og flest eru þau
geislandi góð. Upptakan er vel
heppnuð en hljómurinn kannski
ekki alltaf í góðu jafnvægi, þó
aldrei óskýr. Meðlimir Rez Band
eru í miklu stuði og ræða óspart
við áhorfendur á milli laga við
góðar undirtektir. Sumsé, ekta
tónleikaplata. Mjög vel þess
virði að eignast hana, rétt eins
og hinar fyrri plötur sveitarinn-
ar.
Þar með slæ ég botninn í þessa
umfjöllun en undirstrika ræki-
lega fyrir þá, sem enn eru efins,
að þótt boðskapurinn sé trúar-
legs eðlis er tónlistin hreinrækt-
að rokk, sem margar af þeim
hljómsveitum, sem nú eiga hvað
mestum vinsældum að fagna
vestanhafs, gætu verið stoltar
af.
MoruunblaOill/Bjarni
Frá tölvuráðstefnu Steríó er haldin
var í Kristalsal Hótels Loftleiða.
Tölvuráðstefna Steríó:
Kynntir mögu-
leikar tölvu-
neta viÖ kennslu
FYRIR SKÖMMU hélt verslunin
Steríó tölvuráóstefnu í Kristalssal
Hótels Lofteiða þar sem kynntir
voru möguleikar tölvuneta
BBC-tölva í skólastarfi.
Að sögn Þóroddar Skaftasonar
framkvæmdastjóra Steríó eru
BBC-tölvur nú í 39 skólum lands-
ins og þar af eru tiu skólar með
tölvunet. „Tölvunetunum fylgja
gífurlegir möguleikar sem víðast
eru ónýttir og því var nauðsynlegt
að kynna þá fyrir aðilum mennta-
kerfisins," sagði Þóroddur meðal
annars í samtali við Morgunblað-
ið.
Flestir þátttakenda komu úr
kennarastéttinni en aðalfyrirles-
ari ráðstefnunnar, Martin Lowe,
kom sérstaklega hingað til lands
frá breska tölvufyrirtækinu Ac-
orn. Hann er fyrrverandi kennari
og hefur sérhæft sig í notkun
tölvuneta við kennslu.
Á ráðstefnunni var einnig kynnt
landafræðiforrit sem nemendur í
Menntaskólanum í Hamrahlíð
hafa unnið. MH var fyrsti skólinn
sem festi kaup á BBC-tölvuneti.
Jón Jónasson, skólastjóri á Litlu
Laugum flutti einnig erindi um
töflureikni og Guðmundur Ragnar
Guðmundsson kynnti Logo-forrit-
unarmálið sem talið er heppi-
legasta tölvumálið fyrir yngstu
nemendurna.
Helgarskákmót
hefjast að nýju
HELGARSKÁKMÖTIN hefjast að
nýju um næstu helgi eftir langt hlé.
Síðasta helgarskákmót, það 29., fór
fram á Akranesi 1.-3. febrúar sl., en
þá var gert hlé vegna alþjóðlegra
skákmóta.
Dagana 6.-8. september fer 30.
helgarskákmótið fram á Hólmavík
og viku síðar, eða 13.-15. septem-
ber, á Djúpavogi.
Á þessum helgarskákmótum er
keppt um ýmis verðlaun og viður-
kenningar. Á Hólmavík verða eft-
irtalin verðlaun veitt:
1. verðlaun krónur 15.000 , 2.
verðlaun krónur 10.000 og 3. verð-
laun krónur 7.000.
1. verðlaun 1 öldungaflokki krón-
ur 5.000. 2. og 3. verðlaun eru boð
á næsta helgarskákmót.
1. verðlaun í kvennaflokki eru
krónur 5.000. 2. og 3. verðlaun eru
boð á næsta helgarskákmót.
Þá verða veitt a.m.k. þrenn
unglingaverðlaun, sem allt eru boð
á næsta helgarskákmót. Einnig
eru veitt bókaverðlaun.
Keppt er um aukaverðlaun í
hverri hrinu, en í hverri hrinu eru
5 mót. Að þessu sinni eru auka-
verðlaunin 40.000 krónur. Fram til
þessa hefur Helgi ólafsson hreppt
öll aukaverðlaunin.
Staðan eftir fjögur mót er sem
hér segir:
1. Haukur Angantýsson, 39 stig.
2. Karl Þorsteins, 35 stig.
3. Helgi ólafsson, 23 stig.
4. Ásgeir Þ. Árnason, 21 stig.
5. Halldór G. Einarsson, 21 stig.
6. Elvar Guðmundsson, 20 stig.
7. Sævar Bjarnason, 20 stig.
8. Egill Þorsteins, 20 stig.
9. Þröstur Þórhallsson, 16 stig.
10. Jón L. Árnason, 12 stig.
11. Dan Hansson 12 stig.