Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 40

Morgunblaðið - 03.09.1985, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 FORTÍÐ, NÚTÍÐ OG FRAMTIÐ Það hefur nú loks fengist opin- berlega staöfest aö David Lee Roth er hættur sem söngvari í hljómsveitinni Van Halen. í hans staö hefur veriö ráöinn Sammy Hagar en gera má ráö fyrir aö hann komi einnig til meö aö taka eitthvaöígítarinn. Af Roth er þaö aö frétta aö hann hyggst nú reyna fyrir sér á leik- sviöinu og er þess víst skammt aö bíöa aö hann leiki í sinni fyrstu kvikmynd en auk þess mun hann vera að undirbúa gerö sólóplötu. í framhaldi af því aö þrír eftirlif- andi meðlimir Led Zeppelin komu fram saman í fyrsta skipti á Live Aid-tónleikunum, frá því hljóm- sveitin hætti, hefur veriö uppi orörómur um aö þeir hyggist koma saman aö nýju og vinna saman í framtíöinni. Orörómi þessum hefur nú veriö staöfast- lega neitaö. Robert Plant er um þessar mundir aö enda viö mikla hljóm- leikareisu um Bandaríkin og hann mun fara inn í stúdió í september til þess aö vinna aö nýrri Honey- drippers-plötu. Hvort aö Page veröur meö í því verkefni er ekki vitaö en hann mun á sama tíma hefja upptökur á nýrri breiðskífu meö hljómsveit sinni The Firm. Marc Almond, fyrrum söngvari Soft Cell og sá sem nýlega flutti lagið I Feel Love með Bronski Beat, hefur nú sent frá sér nýja smáskífu meö laginu Stories of Johnny og samnefnd breiöskífa mun svo væntanlega í september. Er þaö önnur breiöskífa sem hann sendir frá sér síöan hann hætti meö Soft Cell en hin fyrri, Vermine in Ermine, kom út fyrir síöustu jól og mun sömu hljóðfæraleikarar og voru þar meö honum aöstoða hann á nýju plötunni. Hljótt hefur verið um hljóm- sveitina Madness frá því aö þeir sendu á síðasta ári frá sér plötuna Keep Moving en um svipað leyti og hún kom út hætti hljómborös- leikarinn Mike Barson. Vöknuöu þa spurningar um framtíð hljóm- sveitarinnar, þar sem Barson samdi mörg af vinsælustu lögum þeirra, jafnframt því sem hann var, aö minnsta kosti framan af, besti hljóöfæraleikarinn af þeim. Nú hefur hins vegar frést aö Madness sé meö nýja plötu á næsta leiti og lítil plata mun aö minnsta kosti vera aö koma út þessa dagana. Hefur einn af blaðamönnum NME, sem hefur fengiö aö hlýöa á upptökurnar lýst yfir hrifningu sinni með árangur- inn og þá sérstaklega vegna þess aö hljómsveitin virðist sífellt færa sig nær pólitískum boöskap í textum sínum. Breska þjóölaga-rokksveitin The Pouges hefur þegar sent frá sér nýja breiðskífu, sem heitir Rum, Sodomy and The Lash en þaö var enginn annar en Elvis Costello sem sá um upptöku- stjórnina. Mjög vel hefur veriö af piötu þessari látiö og hafa flestir breskir gagnrýnendur gefið henni sína hæstu einkunn. Svo þykir sem heldur lítiö hafi komiö fram á sjónarsviöiö af nýj- um og góöum hljómsveitum í Bretlandi þaö sem af er þessu ári. Upp á síökastiö hafa þó birst greinar og umsagnir um hljóm- sveit sem flestir gagnrýnendur viröast vera sammála um aö eigi eftir aö ná miklum vinsældum jafnframt því sem hún sé aö fást viö góöa tónlist. Þetta er hljóm- sveitin Colourbox, sem er skipuö þeim bræörum Steve og Maryn Young og meö þeim syngur blökkusöngkonan Debbie. Þau hafa þegar sent frá sér sína fyrstu breiöskífu og af henni hefur veriö gefiö út á lítilli plötu lagiö The Moon Is Blue og er báöum þessum skífum spáö miklum vin- sældum. Gagnrýnendur segja aö þau flytji einhverja bestu popp- og danstónlist sem lengi hefur heyrst og þeir hafa gripiö til margra stórra lýsingaroröa til þess aö segja álit sitt á gæöum Colourbox. Gagnrýnandi MM segir til aö mynda í dómi sínum um stóru plötuna: „Þetta er hljóm- urinn sem viö höfum beöið eftir. Þaö er lifandi hljómur fortíöarinn- ar í nútíöinni, sem gefur fyrirheit fyrirframtíöina." Svo mörg voru þau orö og þá er bara að bíöa eftir aö Colourbox birtist í hljómplötuverslunum hér- lendis. RtodMM, komnir af stoö aA nýju. Lítakaaainn maö athyglisvaröa plötu. brauðbúðin opnuð Egilsstaðir: Fyrsta i^ilwitóAum, 28. ájfúst. NU í vikunni var opnuð brauðbúó í húsi HéraAsprenLs aA Tjarnar- braut 21 þar sem skóverslunin Krummafótur var áAur til húsa. Mun þetta vera fyrsta brauAbúAin hér um slóAir. Það er Bakarí Þ. Snædals hf. í Fellabæ sem rekur brauðbúðina. Þ. Snædal hf. hóf brauðgerð fyrir tveimur mánuðum — en það eru bræðurnir Magnús og Kristján Snædal og fjölskyldur þeirra sem reka brauðgerðina auk heild- verslunar. Að sögn Magnúsar hefur brauðgerð þeirra verið vel tekið af neytendum og hefur fram- leiðsla aukist verulega á þessum tveimur mánuðum. Snædals- brauðin fást nú í verslunum allt frá Djúpavogi til Vopnafjarðar. Við brauðgerðina vinna nú um 6 manns. Bakari er Eyjólfur Haf- steinsson. Brauðbúð Þ. Snædals á Eg- ilsstöðum verður opin virka daga frá klukkan 9 til 17 og á laugar- dögum kl. 13—17. Þar verða ávallt á boðstólum hvers kyns heilsubrauð og annað meðlæti beint úr bakaríinu — auk þess sem svonefndir Jó-jó-hringir verða steiktir á staðnum eftir óskum viðskiptamanna. Bakarí Þ. Snædals fær allt hráefni til brauðgerðarinnar frá Ragnars-bakaríi í Keflavík. Þar er deigið handleikið og síðan fryst og flutt sjóleið í frystigám- um til Reyðarfjarðar og þaðan landveg til Fellabæjar. Þar tekur bakari Þ. Snædals við og hand- leikur hráefnið eftir kúnstarinn- ar reglum ásamt öðrum starfs- mönnum fyrirtækisins. Héraðsbúar virðast kunna að meta brauðbúð Þ. Snædals — því að nánast örtröð hefur verið í búðinni síðan hún opnaði. — Ólafur. Úr brauðbúð Þ. Snædals MorKunblaðiA/ Olafur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.