Morgunblaðið - 03.09.1985, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
49
gamall drengur að Álfatröðum. —
I hugum samherja og samferða-
manna mun minningin um heil-
steyptan og hugprúðan drengskap-
armann lengi lifa.
Friðjón Þórðarson
Þeim fækkar nú ört góðvinum
mínum úr Dölunum. Hinn 27.
janúar sl. lést í hárri elli á heimili
sínu í Reykjavík Hjörtur Ög-
mundsson, fyrrverandi bóndi og
hreppstjóri að Álfatröðum í
Hörðudal. Nú er nýlátinn í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akranesi, eft-
ir skamma legu. Baldvin Sveins-
son, vinur minn og uppeldisbróðir,
er jafnan var kenndur við Álfa-
traðir en þar var heimili hans og
starfsvettvangur í meira en hálfa
öld. Hann varður jarðsunginn frá
Snóksdalskirkju í dag.
Baldvin fæddist hinn 26. mars
1904 og var því á 82. aldursári er
hann lést. Foreldrar hans voru:
Sveinn Klemensson frá Gröf í
Miðdölum og kona hans Þuríður
Halldórsdóttir, bónda Péturssonar
á Leysingjastöðum í Hvamms-
sveit. Um ættir þeirra hjóna má
lesa í Æviskrám Dalamanna eftir
séra Jón Guðnason. Þau voru bæði
komin af kunnum bændaættum.
Sveinn ættaður úr Suðurdölum en
ættir Þuríðar flestar úr Vestur-
sýslunni.
Sveinn var bóndi á Ásgarði í
Dölum árin 1884—1891. Bjó síðar
í Gröf í Miðdölum, á Faxastöðum
í Breiðivík og víðar. Á þessum
tímum lá jarðnæði ekki á lausu,
oft hart í ári og mikil fátækt. Það
var því ekki auðvelt að sjá heimili
farborða með mikinn barnahóp.
Baldvin fæddist að Faxastöðum
og var yngstur í hópi 9 systkina
sem upp komust. Tvö þeirra eru
enn á lífi, Guðbjörg og Karl nú
bæði búsett í Reykjavík.
Með Sveini Klemenssyni og föð-
ur mínum Pétri Gunnlaugssyni
var vinátta með frændsemi. Það
var m.a. af þeirri ástæðu að Bald-
vin kom til dvalar hjá foreldrum
mínum 1916, þá 12 ára gamall. 7
ára aldursmunur var á okkur. Er
ég fór að vaxa úr grasi var hann
mér sem nærgætinn eldri-bróðir,
bæði á sorgar- og gleðistundum. Á
ég því margar góðar minningar úr
barnæsku um þennan fósturbróðir
minn.
Baldvin var föður mínum ómet-
anieg stoð og stytta við búskapinn
í Álfatröðum, sem eftir lát móður
minnar árið 1918, var að vísu smár
í sniðum. Faðir minn var oft lang-
dvölum fjarverandi að vetrarlagi
vegna farkennslu í öðru héraði.
Baldvin varð því að annast búskap-
inn einn síns liðs, þótt ungur væri.
Gerði hann það af mikilli trú-
mennsku. Væri honum ætlað verk
var það ætíð vel af hendi leyst.
Hann var hörkuduglegur, knár,
fylginn sér og útsjónarsamur við
öll störf.
Þegar faðir minn dó árið 1926
skildu leiðir. Ég fór alfarinn úr
Dölunum en Baldvin varð kyrr í
Álfatröðum og vistaðist hjá Hirti
Ögmundssyni og Kristínu konu
hans, sem þá fluttist þangað.
Dvaldi hann hjá þeim alla þeirra
búskapartíð og „lagði sitt starf við
þeirra af mikilli fórnfýsi", eins og
segir í minningargrein um Hjört
Ögmundsson í Morgunblaðinu frá
3. febrúar sl. Telst mér svo til, að
Baldvin hafi starfað við búskap í
Álfatröðum í meira en hálfa öld.
eða samfleytt um 55 ára skeið. I
Dalasýslu átti hann heima til
dauðadags, nú síðast sem vist-
maður á Dvalarheimili í Búðardal.
Allir sem kynntust Baldvini
Sveinssyni reyndu hann að mann-
kostamanni og góðum dreng. Hann
var einstaklingshyggjumaður að
eðli og uppeldi. Vel viti borinn,
greindur, fróður um málefni hér-
aðs síns. Hafði mikinn áhuga á
þjóðmálum og landshögum og
ákveðnar skoðanir í þeim efnum.
Trygglundaður var hann og góð-
viljaður, ráðhollur og hjálpsamur
sveitungum sínum. Nutu þess
margir bæði skyldir og vandalaus-
ir.
Ég og fjölskylda mín þökkum
honum nú að leiðarlokum órofa
vináttu og tryggð í okkar garð og
biðjum honum blessunar guðs.
Hvíli hann í friði.
Gunnlaugur Pétursson
Betri eða verri eftir
brotthlaup Malmsteen?
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
Alcatrazz
Disturbing The Peace
Capitol/Fálkinn
Mönnum ber hreint ekki sam-
an um hvort brotthlaup hins
sænska Yngwie Malmsteen hafi
verið hljómsveitinni Alcatrazz,
þar sem Graham Bonnet sér um
sönghliðina, til góðs eða ills. Er-
lendir gagnrýnendur eru á þeirri
skoðun að fyrir vikið sé Alca-
trazz nú miklu heilsteyptari en
áður. Mér finnst sveitina hins
vegar vanta þann brodd sem var
í tónlist hennar á meðan sá
sænski var innanborðs.
Þeim gekk illa að hemja skap
sitt, þar sem þeir voru saman
Graham Bonnet og Yngwie
Malmsteen. Báðir vildu fá sitt
fram en tókst eðlilega sjaldan.
Þó var engu líkara en þessar erj-
ur þeirra mögnuðu sveitina upp
til frekari átaka og lögin voru
flest hver einn allsherjar slagur
um athygli hlustandans. Oft fór
Malmsteen með sigur af hólmi
en þau lög voru líka til, þar sem
hin kröftuga rödd Bonnet naut
sín svo rækilega að sá hinn
sænski varð undan að víkja með
hinn grenjandi sóló sinn.
Hann heitir Steve Vai sem
hefur leyst Malmsteen af hólmi í
Alcatrazz og skilar sínu hlut-
verki með sóma þótt hann beiti
við það allt öðrum aðferðum en
hinn. Sóló hans skera sig ekki út
úr lögunum heldur falla vel inn í
þau og fyrir vikið verður yfir-
bragð sveitarinnar heilsteypt-
ara. Hvort þetta er svo það sem
Bonnet er að leita að er svo allt
önnur saga.
Fyrir minn smekk hafði ég
meira gaman af Alcatrazz á
meðan Malmsteen var innan-
borðs. Á þessari plötu finnst mér
aðeins þrjú laganna verulega
góð; Wire and Wood, Stripper og
Desert Diamond. Það síðasttalda
er rólegt og fallegt. En það þarf
meira en þrjú góð lög til að
skapa heilsteypta plötu.
Þú getur meira að segja sofið í honum.
Hægt er að leggja sætisbökin niður til að skapa
svefnaöstöðu I neyö.
Okkur tókst það sem Dönum hefur ekki tekist, að fá lúxus-gerðina af
Skoda á frábæru afsláttarverði og skutum þeim þar með ref fyrir rass.
Skoda 120 LS er sérlega hentugur fjölskyldubíll,
búinn hagkvæmum eiginleikum.
KOMDU, SKOÐAÐU
OG SKELLTU PÉR í PRUFUTÚR!
1700 litra farangursrými.
Með þvf aö leggja aftursætið fram næst möguleiki
á aö flytja ýmislegt með sér I bilnum svo
sem barnavagn eins og hér sést.
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600
Al I T bFTTA Vél120058dinhö.
1 1 1 ^ 55 amperstunda alternator.
FÆRÐU I Alltaö 17001 farangursrými.
Q K H A Fellanleg sætisbök afturf.
10HI O ^ Halogenframljós.
120 LS Þokuljósaftan.
Læst bensfnlok.
Spegill utan H/V.
Rafmagnsrúöusprautur
Barnalæsingar.
Geymsluhólf v/gírstöng.
óskubakkar í afturhurðum.
Lúxus hljóðeinangrun.
Aflhelmlar.
Tannstangarstýri.
Afturrúðuhitari.
Sportfelgur.
Snúningsmælir.
Hert öryggisgler.
Plussáklæði á sætum.
Aövörunarljósf. bensín.
Stillanlegir höfuðpúðar.
Daily trip recorder ferðamælir.
Styrktargrind í farþegarými.
2ja hraða miðstöð.
Vindskeið ,,spoiler"
framan og aftan.
Hallanleg sætisbök á framstólum.
Sjálfstæð gormafjöðrun við hvert hjól.
Lungamjúkir radial hjólbarðar (165 SR 13).
SK<0DA
Á AÐEINS
19.900.-