Morgunblaðið - 03.09.1985, Page 58

Morgunblaðið - 03.09.1985, Page 58
-> 58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985’ Egill Vilhjálmsson hf. og Davíð Sigurðsson hf.: Greiðslustöðvun - framlengd um tvo mánuði FYRIRTÆKIN Egill Vilhjálmsson hf. og I)avíð Sigurðsson hf. í Kópavogi, umhoðsaðilar fyrir American Motors og Fiat, hafa fengið greiðslustöðvun sína framlengda um 45 daga. Aður hafði skiptaráðandi veitt fyrirtækjun- um heimild til greiðslustöðvunar í tvo mánuði, frá 2. júlí til 2. september. Sveinbjörn M. Tryggvason, aðal- eigandi fyrirtækjanna, sagði að öt- ullega hefði verið unnið að því þessa tvo mánuði að rétta við hag fyrirtækjanna, en dæmið væri flók- ið og því þyrftu þeir lengri tíma. Hann sagðist þó vongóður um að einn og hálfur mánuður til viðbótar væri nægjanlegur tími. Sveinbjörn sagði að ekkert hefði enn verið selt af eignum fyrirtækj- anna, en það stæði til og væri bráð- nauðsynlegt. Hins vegar hefðu góð- ir samningar við Fiat-verksmiðj- urnar á Italíu skilað sér vel í sumar, því sala Fiat-bifreiða hefði stóraukist. Frá ráðstefnunni á Hótel Loftleiðum í gær. Morgunblaöið/Júlíus Ráðstefna um sjávarstrendur, ár og aurburö: Fjallað um áhrif eldsum- brota og jökuláa á þróun suðurstrandar íslands ALÞJOÐLEG ráðstefna um sjávar- strendur, ár og aurburð, er nú haldin að Hótel Loftleiðum og lýkur henni á miðvikudag. Megin viðfangsefni ráð- stefnunnar er um þýðingu aurburðar fyrir þróun stranda og árfarvega og flutning aursins eftir landgrunninu. Aðaihvatamaöurinn að þessari ráðstefnu er dr. Per Bruun, sem verið hefur prófessor bæði í Skand- inavíu og Bandaríkjunum en rekur nú alþjóðlega ráðgjafastofu um strandmannvirki í Danmörku. Á ráðstefnunni verður fjallað um áhrif sjávarstöðubreytinga á þróunina og hvaða áhrif mann- virkjagerð, bæði við strendur og við árfarvegi, getur haft. Þá verður einnig fjallaö um suðurströnd Is- lands, áhrif jökuláa og eldsum- brota á þróun hennar. Flutt verða yfir 40 erindi á ráð- stefnunni um þessi mál og þar af um 30 af erlendum ráðstefnugest- um. Fjalla erindin jöfnum höndum um vandamál við hagnýta mann- virkjagerð og um fræðilegan bakgrunn þeirra. Að ráðstefnunni á Hótel Loft- leiðum standa Háskóli íslands, Vita- og hafnarmálaskrifstofan, Orkustofnun, Landsvirkjun, Haf- rannsóknastofnun og Vegagerð ríkisins. Davíð Stefánsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, í ræðustóli við setningu 28. þings ungra sjálfstæðismanna Samband ungra sjálfstæðismanna: Vilhjálmur Egilsson kjörinn formaður VILHJALMUR Egilsson, hagfræð- ingur, var kjörin formaður Sam- bands ungra sjálfstæðismanna á þingi sambandsins sem lauk síð- astliðinn sunnudag á Akureyri. Ekki voru aðrir í kjöri. Á þinginu voru samþykktar tillögur um kerfisbreytingar í mennta-, heilbrigðis-, og trygg- ingarmálum. Þá var í stjórn- málaályktun þingsins skorað á þingmenn Sjálfstæðisflokksins að beita sér fyrir því að kjósend- ur verði jafnsettir og vægi at- kvæða verði jafnt, óháð búsetu. í ályktuninni er bent á að ýmsu hafi „miðað í rétta átt á tveggja ára valdatíma núverandni ríkis- stjórnar", en jafnframt sagt að ef stjórninni tekst ekki að stöðva erlenda skuldasöfnun og stjórna peninga- og lánsfjármálum þannig að utanríkisviðskipti verði hallalaus á næsta ári, muni hún hljóta þann dóm að henni hafi mistekist. Einnig eru ráð- herrar stjórnarinnar gagnrýndir Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur og nýkjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. fyrir karp, sem sagt er með öllu óþolandi og grafi undan trausti manna á ríkisstjórninni. Auk Vilhjálms voru kosnir eftirtaldir 23 fulltrúar kjör- dæma í stjórn SUS til næstu tveggja ára: Reykjavík: Anna K. Jónsdóttir, Auðun Svavar Sig- urðsson, Eiríkur Ingólfsson, Friðrik Friðriksson, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Hreinn Loftsson, Margrét Jónsdóttir, Sigurbjörn Magnússon, Sigurður Magnússon; Reykjanes: Árni M. Mathiesen, Guðrún Stella Giss- urardóttir, Haraldur Kristjáns- son, Svanlaug Jónsdóttir og Þór- arinn Jón Magnússon; Suður- land: Ásmundur Friðriksson og Fannar Jónasson; Austurland: Baldur Pétursson; Norðurland- eystra: Bjarni Árnason og Davíð Stefánsson; Norðurland vestra: Ari Jóhann Sigurðsson; Vest- firðir: Marselíus Guðmundsson; Vesturland: Benjamín Jósefsson. Einnig voru kosnir 12 varamenn í stjórn. Á undanförnum 100 árum hafa 200 íslendingar látist af völdum sérstæös erfðasjúkdóms RÁÐSTEFNA um arfgengi sjúk- dóms af völdum efnamyndunar Amyloids í miðtaugakerfinu hófst í gær í húsi geðdeildar Land.spital- ans. Á undanfornum 100 árum hafa um 200 íslendingar látið lífið af völdum þessa sérstæða sjúk- dóms og hafa rannsóknir sýnt að þeir hafa flestir verið af sömu ætt- unum, sem allar eru úr sýslunum í kringum Breiðafjörð. Ólafur Jensson, yfirlæknir Blóðbankans, sagði í samtali í í DAG, þriðjudaginn 3. september, kl. 20.30 sýnir Helgi Björnsson jarðeðlisfræðingur litskyggnur og talar um nýjustu niðurstöður af jöklamælingum á íslandi í Nor- ræna húsinu. Fyrirlesturinn er haldinn í ">■ tengslum við sýningu þá um jökla- rannsóknir, sem staðið hefur í gær að tilgangurinn með þess- ari ráðstefnu væri að kynnast nýjustu rannsóknum varðandi þennan sjúkdóm og náskyldum sjúkdómum. Sagði hann að í Hollandi, í Haag og Leiden, væru starfandi rannsóknahópar sem rannsökuðu sjúkdóma af svipuðum toga og þessum sem hér á landi væri við að eiga og einnig væri unnið að rannsókn- um á svipuðum sjúkdómum á vegum New York University anddyri Norræna hússins undan- farið, en henni lýkur fimmtudag- inn 5. september kl. 19.00. Helgi mun einkum fjalla um niðurstöður af mælingum með íssjá, en þar kemur ýmislegt at- hyglisvert fram um landslag undir jöklum landsins. Medical Center, og á vegum A. Barrett í Cambridge og J.H. Edwards í Oxford. Ólafur sagði að nú væru þessir menn hingað komnir til að kynna niðurstöður rannsókna sinna og stæðu vonir til að þing sem þetta yrði haldið árlega hér eftir. „Þessi sjúkdómur er alltaf að gera vart við sig og hefur þær afleiðingar í för með sér að sjúklingurinn verður fyrir heilaskemmdum eða heilablóð- falli og á þetta sér iðulega stað áður en viðkomandi nær fer- tugsaldri," sagði ólafur. „Á undanförnum árum hefur áhugi lækna beinst nokkuð að ýmsum hnignunum í æðakerfinu sem valda öldrunarbreytingum, eins og til dæmis Alzheimer-sjúk- dómnum og við ætlum hér á þessari ráðstefnu að leggja saman þá þekkingu sem við höf- Fjallað um jöklamælingar MorgunblaðiÖ/Júlíus Olafur Jensson læknir og forstödumaftur Blóftbankans vift nokkrar skýringa- myndir, sem notaftar voru á ráftstefnunni í gær. um á þessum sjúkdómum. Rannsóknir hafa beinst talsvert að því að finna efni sem greinir þessa efnamyndun Amyloids í heilaæðum þeirra sjúklinga sem taldir eru hafa aðra sjúkdóma í miðtaugakerfinu." Ólafur sagði að lokum að enn sem komið væri hefði ekki fund- ist neitt læknisráð sem haft hefði áhrif á sjúkdóminn en bú- ið væri að leggja grunn að stöð- ugum rannsóknum þeirra sem taka þátt í ráðstefnunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.