Morgunblaðið - 03.09.1985, Page 60
EUROCARD
l............J
* EITT KDRT AI15 SIMMR
Vetrardagskrá hefst 9. september.
ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Stækkun álversins í Straumsvík:
í
Kínverska alþýðulýðveld-
ið lýsir áhuga á samstaríi
Reiðubúinn að taka upp samningaviðræður, segir Sverrir Hermannsson
MÁLMIÐNAÐARSAMSTEYPA Kínverska alþýðulýðveldisins hefur lýst
áhuga á að taka upp viöræður við íslenzk stjórnvöld og forráðamenn Svissn-
eska álfélagsins um hugsanlega þátttöku í stækkun álversins í Straumsvík.
Sverrir Hermannsson skýrði frá þessu í samtali við Morgunblaðið seint í
gærkvöldi, en iðnaðarráðherra er nú staddur í Lundúnum. Þangað kom hann
eftir viðræður við forsvarsmenn Svissneska álfélagsins í Lúganó sl. föstudag.
1 yfirlýsingu, sem Morgunblað-
inu barst í gærkvöldi frá iðnaðar-
ráðherra, svissneska álfélaginu og
Kínverska alþýðulýðveldinu segir:
„Málmiðnaðarsamsteypa Kín-
verska alþýðulýðveldisins (The
Chinese National Nonferrous Met-
al Industry Corporation) hefur
lýst áhuga á því að kanna mögu-
leika á samstarfi við Svissneska
álfélagið um aukningu á álfram-
leiðslu á íslandi. Allir aðilar máls-
ins hafa lýst áhuga á að kanna það
frekar."
Sverrir Hermannsson, iðnaðar-
ráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að Kín-
verska alþýðulýðveldið, Sviss-
neska álfélagið og íslenzk stjórn-
völd væru reiðubúin til að taka
Morgunblaðið/Júlíus
Yngsta kynslóðin í mótmælagöngu
Foreldrafélag barna á dagvistunarheimilum borgarinnar fór í mótmæla-
göngu í gær frá Hallgrímskirkju á Skólavöröuholti að Lækjartorgi, þar
sem haldinn var útifundur. Tilgangurinn var að benda á erfiöleika við
rekstur dagvistarstofnana borgarinnar og voru borin spjöld með áletr-
unum eins og „Þetta eru börnin, sem erfa landiö" og „Davíð, fínndu
þér annan Golíat“.
upp samningaviðræður um 40 þús-
und tonna stækkun álversins í
Straumsvík, sem Kínverska al-
þýðulýðveldið væri eigandi að og
fjárfesti í og Svissneska álfélagið
mundi annast rekstur á. Sverrir
Hermannsson sagði, að hér væri
um einstætt mál að ræða og fyrsta
viðleitni Kínverja til þess að opna
gluggann að þessu leyti til Vestur-
landa.
„Ég fagna þessu mjög," sagði
Sverrir Hermannsson. „Það liggja
ótrúlegir möguleikar á kínverska
markaðnum, ef tekst að opna sam-
band við slíkt þjóðríki. Hins vegar
vil ég undirstrika, að þetta er ekki
sama og að samningar hafi tekizt
enda liggur nú aðeins fyrir vilja-
yfirlýsing um að samningar verði
hafnir. Kínverjar eru þekktir af
því að vera harðir samningamenn
ekki síður en stórkapítalistar á
Vesturlöndum en þetta er að
sjálfsögðu stórmerkur pólitískur
viðburður."
Skv. upplýsingum Morgunblaðs-
ins hefur Málmiðnaðarsamsteypa
kínverska alþýðulýðveldisins
sama valdsvið og ráðuneyti og hef-
ur með alla aðra málma að gera en
járn.
Olíuverð hækk-
ar í Rotterdam
— áhrifanna ekki
NOKKUR hækkun hefur verið að
undanfórnu á heimsmarkaðsverði á
olíu í Rotterdam. Stafar þaö meðal
annars af árásum á Kharg-eyju og
byltingu í Nígeríu. Talsverðar birgðir
eru til hér af olíu og hefur verðhækk-
unin ekki enn sem komið er áhrif á
verð þeirrar olíu, sem við kaupum af
Rússum, en verð á henni miöast við
verðskráningu í Rotterdam.
Árni Þorsteinsson, starfsmaður
Kosningasjón-
varp frá Noregi
og Svíþjóð
ÁKVEÐIÐ hefur verið að vera með
kosningasjónvarp frá Noregi að
kvöldi kosningadagsins þar í landi,
mánudagsins 9. september nk.
Sjónvarpað verður um gervihnött
milli kl. 22.00 og 23.00 og ef talning
gengur eðlilega ætti að vera komn-
ar afgerandi tölur á meðan á út-
sendingunni stendur.
Sjónvarpið hyggst einnig vera
með beina útsendingu frá Svíþjóð
þegar kosið verður þar, sunnudag-
inn 15. september nk. Þá hefst
gervihnattarútsendingin um kl.
21.30 og mun standa í 30-60 mínút-
ur.
farið að gæta hér
Olíufélagsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að í júlíbyrjun hefði
verð á gasolíu á Rotterdam-
markaði verið um 222 dollarar á
lestina, 8.800 krónur. Það hefði síð-
an farið stighækkandi til síðustu
mánaðamóta, meðal annars vegna
árásanna á Kharg-eyju, byltingar-
innar í Nígeríu og mikilla olíukaupa
Þjóðverja vegna hagstæðs gengis
marksins gagnvart dollar. Fyrir
mánaðamót'.n hefði verðið því verið
komið upp í um 250 dollara fyrir
lestina, 10.000 krónur.
Árni sagði, að nú væru til nokkr-
ar brigðir í landinu, keyptar á lága
verðinu. Erfitt væri að gera sér
grein fyrir áframhaldandi verð-
þróun, en olíuverð lækkaði sjaldn-
ast á haustmánuðum, þegar vetur
væri að ganga í garð. Svartolía
hefði ennfremur hækkað á þessum
markaði en bensínverð verið stöð-
ugra. Von væri á litlum olíufarmi
þann 10. september og síðan 18.000
lesta farmi þann 17. Verð á honum
væri innan við 250 dollara cif,
10.000 krónur fyrir hverja lest. Um
það verð hefði verið samið fyrir
nokkru en miðað væri við fob-verð í
hinum tölunum. Raunverð fyrir
olíuna, sem kæmi í þessum förmum,
væri því nokkru lægra en núverandi
markaðsverð í Rotterdam þar sem
flutningskostnaður og trygginga-
gjöld væru innifalin í verðinu.
Þing FIDE í Austurríki:
Evrópusamband í skák
Fjórir íslendingar hljóta útnefningu
TUTTUGU þjóðir í Evrópu stofnuðu
formlega með sér Evrópuskáksam-
band á þingi FIDE, Alþjóðaskák-
sambandsins, sem haldið var í Graz
í Austurríki um síðustu helgi. íslend-
ingar, ásamt öðrum Norðurlanda-
þjóðum, eru meðal stofnendanna. Á
sama þingi voru Helgi Ólafsson og
Jóhann Hjartarson útnefndir stór-
meistarar, og Karl Þorsteins og Sæv-
ar Bjarnason voru útnefndir alþjóð-
legir meistarar.
Að sögn Þorsteins Þorsteinsson-
ar, forseta Skáksambands íslands,
liggur ekki ljóst fyrir hvort stofn-
un Evrópusambandsins hafi i för
með sér úrsögn viðkomandi þjóða
úr FIDE. „Evrópusambandið er
stofnað sem mótleikur við þá
stefnu Campomanesar, forseta
FIDE, að gera veg Evrópuþjóða
minni en efni standa til. Það er
ekki meiningin að ganga úr FIDE,
en hins vegar er ómögulegt að
segja hvernig málin koma til með
að þróast,“ sagði Þorsteinn.
Sú ákvörðun Campomanesar að
halda næsta ólympíumót í Dubai í
Saudi-Arabíu hefur mælst illa
fyrir hjá mörgum Evrópuþjóðum,
því það útilokar líklega ísraels-
menn frá þátttöku. Forystumenn
skáklistarinnar meðal margra
Vestur-Evrópuþjóða eru alvarlega
farnir að ræða þann möguleika að
mæta ekki til leiks í Dubai. Sagði
Þorsteinn, að ef sú yrði niðurstað-
an, mætti búast við að haldið yrði
sérstakt Evrópumót í staðinn.
í Evrópusambandinu eru marg-
ar af sterkustu skákþjóðum
Vestur-Evrópu, en aðeins tvær
Austantjaldsþjóðir, Pólverjar og
Júgóslavar. Sagðist Þorsteinn
stofnað
vonast til að fleiri þjóðir bættust í
hópinn innan tíðar.
Með útnefningu Helga Ólafs-
sonar og Jóhanns Hjartarsonar
eru íslenskir stórmeistarar í skák
nú orðnir fjórir, en fyrir voru þeir
Friðrik Ólafsson og Guðmundur
Sigurjónsson. Alþjóðlegum meist-
urum fækkar hins vegar ekki að
sama skapi, því Karl Þorsteins og
Sævar Bjarnason hlutu báðir út-
nefningu sem slíkir á þinginu.
Helgi er stigahæstur fjórmenn-
ingana með 2515 ELO-stig, Jó-
hann næstur með 2505, þá Karl
með 2415 og Sævar er með 2385.
Hvalvertíð lokið:
27 hvalir
veiddust síðustu
þrjá dagana
SÍÐUSTU hefðbundnu hvalvertíð-
inni hér við land lauk um helgina.
Míkil veiði var síöustu þrjá dagana
og veiddust þá alls 27 hvalir.
Kristján Loftsson, forstjóri
Hvais hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hámarksveiði á
bát væru þrír hvalir á sólarhring
og hefðu þeir allir náð þeim fjölda
síðustu þrjá dagana. Þessa daga
hefði veiðin verið á sömu sióðum
og veiðarnar hefðu verið stundað-
ar í upphafi, við „Dömufótinn" og
„Boxhanzkann", á Selvogsbanka
og Grindavíkurdjúpi.
Nú hefur því verið fylltur sá
kvóti, sem alþjóða hvalveiðiráðið
úthlutaði íslendingum á þessu síð-
asta ári hefðbundinna hvalveiða,
161 langreyður og 38 sandreyðar.
Á næstu árum eru hvalveiðar
fyrirhugaðar í vísindaskyni. Á síð-
asta ári var fylltur leyfilegur
kvóti, 167 langreyðar og 95 sand-
reyðar. Veiðarnar nú tóku 74 daga
en 106 á síðasta ári.
Sihanouk
Sihanouk prins
í heim-
sókn til íslands
SIHANOUK prins frá Kambódíu
kemur í heimsókn hingað til
lands dagana 15.—18. september
nk. Eiginkona hans verður með
í forinni. Prinsinn mun hitta ís-
lenzka ráðamenn að máli og er
tilgangurinn með komu hans
hingað að kynna sjónarmið hans
og samherja hans varðandi
ástand mála í Kambódíu og
Suð-austur Asíu. Sihanouk hefur
heimsótt önnur Norðurlönd og
ferðast víða um heim til þess að
kynna málstað sinn.
Á síðasta allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna voru ís-
lendingar, Danir og Norðmenn
meðal flytjenda að tillögu sem
39. Allsherjarþingið sam-
þykkti, þar sem ítrekuð var
nauðsyn þess, að erlent herlið
hverfi á brott frá Kambódíu.