Morgunblaðið - 11.10.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR11. OKTÓBER1985
5
Hlutabréfamarkaðurinn hf.:
Auglýsir kaup- og sölugengi hluta-
bréfa í 4 íslenskum hlutafélögum
HLUTABRÉFAMARKAÐURINN hf. hefur tekið upp þá nýjung í hluta-
bréfaviðflkiptum hér á landi að kaupa og selja hlutabréf í eigin nafni.
Hefur fyrirtækið nú auglýst kaup- og sölugengi hlutabréfa i fjórum
hlutafélögum, Eimskipafélagi íslands, Flugleiðum, Iðnaðarbanka Islands
og Verslunarbanka íslands.
A fundi með fréttamönnum,
þar sem þessar nýjungar voru
kynntar, kom meðal annars
fram, að ekki hefur áður verið
gerð tilraun til að koma á opnum
viðskiptum með hlutabréf hér á
landi á skráðum verðum. Hlut-
abréfamarkaðurinn hf. býðst nú
til að kaupa hlutabréf í Eimskip
á gengi sem er 2,4 sinnum nafn-
verð bréfanna og selur aftur á
gengi 2,5. Kaupgengi hlutabréfa
í Flugleiðum er 2,00 en sölugengi
2,10. í Iðnaðarbanka íslands er
kaupgengi 1,52 og hefur þá verið
tekið tillit til nýútgefinna jöfn-
unarhlutabréfa, en sölugengi er
1,57. Kaupgengi Hlutabréfa-
markaðarins á hlutabréfum í
Verslunarbankanum er 1,45 og
sölugengi 1,5.
Hlutabréfamarkaðurinn mun
endurskoða fyrrgreint gengi eft-
ir því sem framboð og eftirspurn
hlutabréfa og staða og horfur
viðkomandi hlutafélaga gefur
tilefni til. Kaup einstaklinga á
hlutabréfum í þessum hlutafé-
Morgunbladid/Emilía
SUrfsomi HluUbréfamarkaðarins hf. kynnt á fundi með frétUmönnum.
Frá vinstri: Stefán Svavarsson, Sigurður B. Stefánsson, Þorsteinn Har-
aldsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Baldur Guðlaugsson stjórnar-
formaður, Árni Vilhjálmsson og Ragnar S. Halldórsson.
lögum eru frádráttarbær frá
skatti að vissu marki, en Hluta-
bréfamarkaðurinn hf. mun að-
eins taka til sölu bréf í hlutafé-
lögum, sem uppfylla skilyrði um
skattafrádratt, og er að því
stefnt að birta kaup og sölugengi
hlutabréfa í fleiri hlutafélögum,
sem uppfylla þau skilyrði, eftir
því sem aðstæður leyfa. Að sögn
forsvarsmanna Hlutabréfa-
markaðarins er þess vænst, að
starfsemi fyrirtækisins verði til
að hér á landi þróist virk hluta-
bréfaviðskipti, eins og gerast
meðal nágrannaþjóða okkar.
Hlutabréfamarkaðurinn hf.
var stofnaður í sumar með það
markmið að stuðla að eflingu og
þróun hlutabréfaviðskipta hér á
landi og starfrækja hlutabréfa-
markað. Auk viðskipta með
hlutabréf í framangreindum
hlutafélögum mun fyrirtækið
annast verðmat hlutabréfa, út-
boð hlutafjár og almenna hluta-
bréfamiðlun og ennfremur veita
ráðgjöf og aðstoð við undirbún-
ing og stofnun nýrra hluta-
félaga.
Geir H. Haarde
verður að-
stoðarmaður
Þorsteins
Pálssonar
Óvissa meö aðra aö-
stoðarmenn ráðherranna
„ÉG er búinn að biðja Geir H.
Haarde, aðstoðarmann fjármálaráð-
herra að halda áfram því starfi, eftir
að ég tek við embætti fjármálaráð-
herra, og hann er búinn að samþykkja
það,“ sagði Þorsteinn Pálsson for-
maður Sjálfstæðisflokksins í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins I
gær, er hann var spurður hvort hann
hefði tekið ákvöröun um það hver
yrði hans aðstoðarmaöur þegar hann
tekur við embætti fjármaálaráðherra
nk. miðvikudag.
Að öðru leyti er ekki Ijóst á þessu
stigi hvað verður um aðstoðarmenn
sjálfstæðisráðherranna, þau Hrein
Loftsson, aðstoðarmann Matthíasar Á.
Mathiesen viðskiptaráðherra og Ingu
Jónu Þórðardóttur, aðstoðarmann
Ragnhildar Helgadóttur menntamála-
ráðherra, eftir því sem formaður Sjálf-
stæðisflokksins upplýsti.
Albert Guðmundsson, fjármálaráð-
herra verður iðnaðarráðherra nk. mið-
vikudag, og sagðist hann í samtali við
Morgunblaðið í gær vera með ákveðinn
mann í huga, sem hann hygðist biðja
um að vera aðstoðarmann sinn í iðnað-
arráðuneytinu, en hann vildi ekki upp-
lýsa um hvern væri að ræða, þar sem
hann hefði enn ekki rætt við manninn.
Prestarnir
fengu lögmæta
kosningu
SÉRA Örn Bárður Jónsson, aðstoðar-
prestur í Garðabæ, hefur verið kosinn
prestur í Grindavík og séra Sigurður
/Egisson, settur prestur á Djúpavogi,
hefur verið kosinn prestur þar.
Þetta var niðurstaðan þegar
atkvæði úr prestskosningum á stöð-
unum voru talin á Biskupsstofu á
fimmtudagsmorguninn. Þrír um-
sækjendur voru um brauðið í
Grindavík. Séra Baldur Rafn Sig-
urðsson á Bólstað í Húnavatnssýslu
fékk 182 atkvæði, séra önundur
Björnsson í Bjarnarnesi fékk 295
atkvæði og séra Örn Bárður Jóns-
son fékk 561 atkvæði. Á kjörskrá
voru 1411,1039 greiddu atkvæði og
eitt atkvæði var ógilt. Kjörsókn var
73,6% og hlaut séra Örn Bárður
lögmæta kosningu.
Á Djúpavogi var séra Sigurður
Ægisson eini umsækjandinn. Á
kjörskrá voru 389, 239 greiddu
atkvæði, eða 61,4%. Auðir seðlar
voru þrír, einn var ógildur en séra
Sigurður fékk 235 atkvæði og hlaut
þar með lögmæta kosningu, skv.
upplýsingum Biskupsstofu.
ÞAÐ ERVITI
BÚÐARKÖSSUNUM
FRÁSHARP!
■ ■ ■■ ■■ ■■
■■ JU
G M
Hl m ■■i ■■■ IU IU
■■i iii IU III
□PEL
n
ISUZU
VETRARSKOÐUN -1985
Gildistími 10. okt. - 1. des.
1. Mótorþvottur 2. Viftureim athuguð 3. Hleðsla og rafgeymir
mæld 4. Rafgeymasambönd hreinsuð 5. Skipt um kerti 6. Skipt
um platínur 7. Loftsía athuguð 8. Skipt um bensínsíu 9. Mótor-
stilling 10. Mælikerfi athugaðH. Frostþol mælt 12.Ljós yfirfarin
og stillt 13. Ruðuþurrkur athugaðar- settur á frostvari
14. Hemlar reyndir.
VERÐ: (m/söluskatti)
4 cyl. 2.598,-
6 cyl. 3.352,-
8 cyl. 3.882,-
INNIFALIÐ í VERÐI:
Vinna
Kerti
Platínur
Bensínsía
Frostvari fyrir rúðusprautu
BiLVANGUR sf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300