Morgunblaðið - 11.10.1985, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.10.1985, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR11. OKTÓBER1985 11 Tvær sýningar Myndllst Valtýr Pétursson Tvær sýningar eru sem stendur í Norræna húsinu. Önnur í innri sal og hin í aðals- al í kjallara. Þessar sýningar eru eiginlega af sama meiði, en samt gerólíkar í eðli sínu. Það er sænsk listakona, sem hefur safnað póstkortum af miklum móð, sett upp í innrammaðar myndraðir og þannig dregið fram í dagsljósið samfélagsleg- ar staðreyndir, sem lesnar verða úr innihaldi bréfspjald- anna. Þar eru á ferð andstæður, sem sýna eiga ólíka afstöðu til kynjanna, og verður hver og einn að leggja sinn skilning í boðskapinn. Þetta eru miklar sýningar, og veggirnir í Nor- ræna húsinu eru hvergi nægi- legir til að skila efninu til áhorfenda á skilmerkilegan hátt. Annaðhvort eru þessar sýningar of stórar fyrir húsið, eða húsið of lítið fyrir sýning- arnar. Það hálfa af því magni, sem á veggjum hangir, hefði verið nægilegt. Bréfspjöldin á þessum sýn- ingum, sem heita „KARLAR" og „KONUR KARLA", eru úr öllum áttum. Þarna má finna ýmislegt mjög forvitnilegt og einkennilegt. Kynlíf kemur nokkuð við sögu, og er ekkert við því að segja, en hér er þetta allt notað til að sýna fram á fáránlegheit hjá mannfólkinu. Ég ætla mér ekki þá dul að skilja og geta greint allar hlið- ar þeirrar ádeilu, sem felst í þessum myndum, né heldur ástæðurnar fyrir því, að þetta er notað í þeim tilgangi, sem þarna kemur fram. Sýningar sem þessi eru svo sjaldgæfar, að þær hljóta að vekja tilætlaða eftirtekt. Því er þarna um mikið og öruggt áróðurstæki að ræða, sem Carin Hartmann, hin sænska listakona, hefur komið auga á og kann að not- færa sér. Þetta er ekki listsýn- ing í venjulegum skilningi og hefur miklu meira með sam- búðarvandamál að gera en myndlist. Það er enn einu sinni á ferð þessi eilífa saga — kynin elskast og hatast á víxl. Þessar sýningar eru svo sér- stæðar, að ég man ekki eftir að hafa séð neitt í slíka veru áður. Þær eru skemmtilegar á köflum og forvitnilegar í meira lagi, en maður verður að gefa sér góðan tíma til að skoða þann gífurlega fjölda af bréf- spjöldum, sem þarna eru, og til að gera sér grein fyrir innihaldi myndraðanna. Ég mæli með því, að fólk skoði þessar sýning- ar sér til heilsubótar og ánægju. Ég hafði gaman af að sjá þessar sýningar, þótt ekki detti mér í hug, að hinn sam- félagslegi boðskapur, sem Car- in Hartmann vill koma á fram- færi, hafi skilað sér fyllilega í heilabú mitt. þvX E/sIDInJ^/J SkXPTX-R J~LL MlkLLC- MÁLX y- ... Gæft cc, Gob HoNhJuLhJ TRÍCcócTA ™oTA^L, 'BxluM LAt^lúcAhJ T. . v LXFTXMA PESSX RoSTA'R R90 j>ÚS. 9** X SOLLLSkO£>U./\l A MOTUÍiUM BfuLM ER FARXi> X SAUMAk/A 'a ÖlLUM HLLL7UM - OC* CcERT VID þAb SEM ^ARFkIAST - VXf>6cER£AR . 7*3 S “Bor&AR 90 ÚT OCL CcETTCR SVO FEÆJ&Tb AF&AsJálhJ/J w LÁnJAöAnJ X Y tr f HEXLT 'AR f ÞECcAR þu, kAuPlR níotaDAn) Bxl - ÆTTIRÐU. AL ATHUXiA SElXAHOAHnJ V ____________ JAFnI VEL BX LXfslNj 0Cc 77/3V TOYOTA Nybylavegi 8 200 Kopavogi S. 91-44144 essemm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.