Morgunblaðið - 11.10.1985, Side 13
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR11. OKTÓBER1985
13
Séð yfir soðstödina. Morgunblaaið/Friðþjófur
Morgunblaðid/Fridþjófur
Svona var þetta jafnvel i fyrra. Aðstaða vaktmanna í gömlu soðstöðinni.
Morgunblaóið/Fridþjófur
2,6 kflómetrar af ryðfríum rörum voru alls lagðir við endurnýjunina.
Verksmiðjuhús SR.
MorgunblaðiÓ/Friðþjófur
Breytingarnar ákveðnar
á haustmánuðum í fyrra
EFTIRFARANDI pistil um framkvæmdir og aðdraganda þeirra tok frettarit-
ari Morgunblaðsins á Siglufirði, Matthías Jóhannsson, saman:
Þann 27. nóvember 1984 var
haldinn fundur í stjórn Síldar-
verksmiðju rikisins og sátu hann
þeir Þorsteinn Gíslason formaður,
Jón Kjartansson, Júlíus Stefáns-
son, Guðmundur H. Jónsson og Jó-
hann G. Möller. Tekin var fyrir
athugun framkvæmdastjóra, Jóns
Reynis, og Geirs Þórarins Zoega
yfirmanns tæknideildar um fram-
kvæmdir vegna fyrirhugaðrar
soðstöðvar. Á þessum fundi var
samþykkt einróma að ráðast í þá
framkvæmd og skyldi verkinu
vera lokið fyrir loðnuvertíð 1985.
Verkefnastjórar voru þeir Geir
Þórarinn Zoega með yfirumsjón
fyrir hönd SR, Arne Skare, sem
var fyrir norska fyrirtækið SAAS
og Sveinn Frímannsson frá verk-
fræðistofu Rafhönnunar með stýr-
ingar, hugbúnað, tölvur og raf-
lagnir.
Hönnun og fyrirkomulag tækja
var i höndum Valtýs Gíslasonar
hjá tæknideild SR. Byggingar eru
teiknaðar af Ingimundi Sveinssyni
og burðarþol er hannað hjá Jóni B.
Stefánssyni hjá Forsjá. Sigurður
Ellertsen hefur annast fram-
kvæmdir við vélbúnað. Flokkstjór-
ar hafa verið þeir Steingrímur
Garðarson og Óskar Ellertsen.
Verkstæði SR á Siglufirði hefur
framkvæmt alla lagnavinnu og til
aðstoðar hafa verið vélsmiðir frá
Odda á Akureyri og Jóni og Erling
á Siglufirði. Verkstæði SR á Siglu-
firði hefur annast smíði á stórum
hlutum þess búnaðar sem nú er
verið að gangsetja eins og t.d.
ryðfría tanka og syklona.
Tæknilegur búnaður og þekking
starfsmanna hefur gert það að
verkum að hægt hefur verið að
vinna verkið á Siglufirði. Fyrir
húsbyggingunni hefur staðið
Kristján Hauksson húsasmíða-
meistari og hefur trésmíðaverk-
stæði SR ásamt Byggingarfélag-
inu Berg annast þær framkvæmd-
ir.
Forstjórar fyrir rafmagns-
framkvæmdum hafa verið þeir
Ingólfur Arnarson rafvirkjameist-
ari og Snorri Árnason. Norðlensk-
ir rafverktakar, NOR, hafa séð um
rafverktakavinnu. Töflusmíði var
í höndum norðlenskra rafverk-
taka.
Verksmiðjustjóri er Gísli Elí-
asson, vaktformenn eru Jens
Gíslason og Þórður Andersen.
Verkstjóri í löndun og þróm er Jó-
hann G. Möller og verkstjóri í
mjölhúsi er Steingrímur Magnús-
son.
Verksmiðjan var formlega sett í
gang sl. laugardag og gerði það
Jón Kjartansson. Hann byrjaði að
vinna hjá verksmiðjunni 1931, sem
verkamaður og eftir að hann hætti
vinnu hjá verksmiðjunni hefur
hann setið í stjórn hennar. Kostn-
aður við verkið er á bilinu 140 til
150 millj. kr.
ÞAR SEM FEROAMANNINUM ER
FAGNAO ALLAN ÁRSINS HRING
OG LOFTSLAGIO ER ÞÆGILEGA
MILT OG NOTALEGT.
■POfíTO DO MONIZ
'ACHADAS DA
-J^CfíUZ
fílBCIRA
■ DA JANELA
PONTA DE j
-^S JOfíGE
PONTA DELOADA
Madeira
— SÓLSKINSEYJA ÞAKIN GRÓORI
OG BLÓMASKRUDI UPP Á
EFSTU FJALLSBRÚNIR.
Madeira
— STAOUR FEGUROAR, FRIOAR
OG FRÁBÆRRAR GESTRISNI. aJ
Madeira
ILHA DF.
PORTO SANTO
PORTO
DACRUZ
PONTA DO
_ I PARGO
LANTANA
PONTAOB
L. LOURENCO
MACHICO
CURRAL
DAS FREIRAS\
PONTÁ^á
DO SOL
SANTA CRU2
RÉTTI STADURINN í VETUR.
RI8EIRÁ]
BRAVA
CABO
QIRAO
FUNCHAL
CÁMARA DE LOBOS
BROTTFÖR VIKULEGA FRÁ 23. JANÚAR.
FERÐASKRIFSTOFAN
'erra
LAUGAVEGI 28, 101 REYKJAvlK.
UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFUNNI I SIMA 29740 OG 62 17 40