Morgunblaðið - 11.10.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR11. OKTÓBER1985
21
Þingkosningar í Belgíu á sunnudag:
Jafnaðarmönnum
spáð auknu fylgi
Brussel, 1«. olOóber. AP.
ALMENNAR þingkosningar verða í
Belgíu á sunnudag og er útlit fyrir að
jafnaöarmenn muni auka nokkuð
fylgi sitt á kostnað stjórnarflokk-
anna, sem eru mið- og hsgriflokkur.
Helstu kosningamálin eru aðhalds-
söm efnahagsstefna Wilfried Mart-
ens, forsætisráðherra, en úrslit
kosninganna gætu einnig haft áhrif
á uppsetningu meðaldrsegu eldflaug-
anna í Belgíu.
Skoðanakannanir benda til að
jafnaðarmenn muni auka fylgi sitt
nokkuð á kostnað stjórnarflokk-
anna, sem ráða nú 113 þingsætum
af 212 en um það virðist borin von,
að nokkur stjórnmálaflokkanna 12
fái hreinan meirihluta. 33. ríkis-
stjórnin í Belgíu á 41 ári mun því
verða samsteypustjórn.
Ef jafnaðarmannaflokkur holl-
enskumælandi Belgíumanna, sem
spáð er auknu gengi verður aðili að
næstu stjórn mun það geta haft
áhrif á uppsetningu meðaldrægu
eldflauganna. 16 hefur nú þegar
verið komið upp en 32 á að setja
upp árið 1987. Karel van Miirt,
formaður hollenskumælandi jafn-
aðarmanna, vill hins vegar fjar-
lægja þær allar.
Ríkisstjórn Martens tók við völd-
um í desember 1981 og beitti sér
strax fyrir aðhaldssamri stefnu í
efnahagsmálum. Skattar voru
lækkaðir á fyrirtækjum og gripið
til annarra ráða, einnig til að örva
iðnaðinn og efnahagslífið. Búist er
við að hagvöxturinn í ár verði 2%
og tekist hefur að koma verðbólg-
unni niður fyrir 5%. Ríkisstjórnin
þakkar sér það einnig að fleiri ný
störf hafa orðið til á hennar tíma
en fyrrverandi stjórna, auk þess
sem opinber lántaka hefur verið
minnkuð úr 15,5% í 12% af þjóðar-
framleiðslu. Jafnaðarmenn segja
hins vegar að atvinnuieysið hafi
aukist í tíð stjórnarinnar, úr 10,1%
GENGI
GJALDMIÐLA
London, 10. október. AP.
DOLLARINN hækkaði örlítið í verði
í dag og er það rakið til mikillar
eftirspurnar ýmissa fyrirtækja eftir
gjaldmiðlinum.
Þegar gjaldeyrisviðskiptum lauk
í dag fengust fyrir dollarann 217,00
jen á móti 214,32 í gær. Þá kostaði
pundið 1,4215 dollara en 1,4155 í
gær. Fyrir dollarann fást nú:
□ 2,6550 vestur-þýsk mörk (2,6460).
□ 2,1765 svissneskir frankar (2,1680).
□ 8,0800 franskir frankar (8,0425).
□ 2,9960 hollensk gyllini (2,9740).
□ 1.789,00 ítalskar lírur (1,783,00).
□ 1,3685 kanadískir dollarar (1,3640).
Gullið var í kvöld skráð á 325
dollara únsan og hafði þá lækkað
um dollara frá deginum áður.
í 13,4% og launin lækkað.
Stjórnmál í Belgíu eru mjög flók-
in vegna þess að næstum allir
flokkar skiptast í tvennt eftir tung-
umálum. Þannig er í raun um tvo
jafnaðarmannaflokka að ræða,
hollensku- eða flæmskumælandi og
frönskumælandi og allmikill mun-
ur á stefnu þeirra. Þetta gerir
skoðanakannanir flóknari fyrir en
svo virðist sem ríkisstjórnarflokk-
arnir muni halda sínu í Vallóníu í
suðri, meðal frönskumælandi fólks,
en tapa nokkru í Flæmingjalandi.
Einvígið í járnum
Skák
Margeir Pétursson
FJÓRTÁNDU einvígisskák þeirra
Karpovs og Kasparovs lauk með
jafntefli í Moskvu í gær eftir að
leiknir höfðu verið 32 leikir. Karp-
ov, sem hafði hvítt tefldi byrjunina
nýstárlega og blés snemma til
sóknar á kóngsvæng. Sóknin varð
þó aldrei að veruleika, því Kasp-
arov náði gagnfærum í miðtaflinu
og hafði frumkvæöið eftir öfluga
peðsfórn í 22. leik. Staða Karpovs
var þó afar traust og heimsmeistar-
inn var aldrei í nokkurri taphættu.
Jafntefli var síðan samið eftir 32
leiki, þá höfðu orðið svo mikil upp-
skipti að tilgangslaust var að halda
taflinu áfram.
Staðan í einvíginu er því enn-
þá jöfn, nú hafa báðir hlotið sjö
vinninga. Eftir á að tefla tíu
skákir og verður sú fimmtánda
tefld á morgun. Þá hefur Kasp-
arov hvítt. Takist áskorandanum
ekki að vinna a.m.k. eina af þeim
tíu skákum sem eftir eru, heldur
Karpov titlinum, því honum
nægir 12—12 jafntefli til þess.
Fjórtánda einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov.
Sikileyjarvörn
l.e4 - c5, 2. Rf3 - e6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rc6, 5. Rc3
Karpov hefur löngum haft
mikið dálæti á 5. Rb5 í þessari
stöðu, en í 12. skákinni jafnaði
Kasparov auðveldlega taflið með
nýjung í áttunda leik: 5. — d6, 6.
c4 - Rf6, 7. Rlc3 - a6, 8. Ra3 —
d5!?
d6, 6. g4!?
Nú er komið að Karpov að
koma á óvart. Þessi djarfa peðs-
framrás er þekkt þegar svartur
hefur leikið Rg8 — f6 í staðinn
fyrir Rb8 — c6, og þá kölluð
Keres-árásin.
7. h6, 7. h4.
Karpov teflir upp á að ná yfir-
burðum í rými á kóngsvæng.
þa6, 8. Bg2 — Be7, 9. Be3 — Rxd4,
10. Dxd4 — e5, 11. Ddl — Be6,
12. Rd5
Stórmeistararnir í Moskvu
töldu byrjunina hafa heppnast
vel hjá Karpov. Hann hefur
rýmri stöðu og ræður yfir
d5-reitnum.
12. — Hc8, 13. c3 — Rf6, 14. Rxe7
— Dxe7, 15. g5 — hxg5, 16. hxg5
— Hxhl-f, 17. Bxhl — Rg4, 18.
Bd2 - DÍ8!
Svarti riddarinn á g4 virtist
vera alveg úti að aka, en með því
að koma drottningu sinni yfir á
h-línuna, tekst Kasparov að
skapa sér gagnsóknarfæri á
kóngsvængnum.
19. Df3
Hér kom einnig vel til greina
að leika 19. De2 og svara 19. —
Dh8 með 20. 0—0—0 með það
fyrir augum að koma riddaran-
um á g4 í vandræði.
9.1)h8, 20. Bg2 — Dh4, 21. b3.
21. — d5!, 22. Dg3.
Eftir drottningarkaupin
stendur svartur ágætlega að
vígi, því eftir þau verður ekki
sett á riddarann á g4 með peði.
Það var hins vegar afar slæmt
að drepa á d5, 22. exd5? — Bxd5!,
23. Dxd5 - Dxf2+, 24. Kdl -
Hd8 og svartur vinnur.
22. - I)xg3, 23. fxg3 - Hd8, 24.
Ke2 — Ke7, 25. Bcl! — d4, 26.
Ba3+ — Ke8, 27. cxd4 — cxd4, 28.
Hhl.
Nú virðast báðir samtaka um
að fá fram dauða jafnteflisstöðu,
en biskupapar hvíts vó hvort eð
var fyllilega upp á móti svarta
frípeðinu á d4.
28. Re5, 29. Hh8+ — Kd7, 30.
Hxd8+ — KxdS, 31. Bb2 — Bg4+,
32. Kd2 — Rf3+ og hér var samið
um jafntefli, því hvítur á ekkert
betra en 33. Bxf3.
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
^ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins veröa til viötals í Valhöll,
k Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekið á
móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boöiö aö notfæra sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 12. október veröa til viötals Ragn-
ar Júlíusson formaöur fræösluráös og launa-
málanefndar og Málhildur Angantýsdóttir fulltrúi
í atvinnumálanefnd og félagsmálaráöi.
ALLTAF Á LAUGARDÖGUM
¥ jhT'
M«U mm
NÝJA TÓNLISTAR-
HÖLLIN í NICE
í Nice hefur veriö byggt tónleika- og óperuhús, sem
er afburöa fagurt aö utan og innan, og hljómburö-
urinn eins og hann gerist beztur.
MEÐ KÖKUKEFLI, TANN-
BURSTA OG KÍTTISSPAÐA
AÐ VOPNI
Kristín Sveinsdóttir ræöir viö Eydísi Lúövíksdóttur
leirlistakonu, sem sýndi á Kjarvalsstööum í sumar.
ÓLAFUR ÓLAFSSONÁ
KÓNGSBERGI
Grein um gagnmerkan islending, sem fyrstur varö
húsameistari hérlendra manna svo vitaö sé.
J
Vönduð og menningarleg helgarlesning