Morgunblaðið - 11.10.1985, Síða 34

Morgunblaðið - 11.10.1985, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR11. OKTÓBER1985 t HELGI HELGASON, Hjallavagi 3, Ytri-Njarðvík, veröurjarösunginnfráYtri-Njarövíkurkirkju laugardaginn 12. októ- berkl. 14.00. Margrét Kriatjónsdóttir, Bára Helgadóttir, Halldór Arason, Jenný Jónsdóttir, Grétar Helgason, Guðrún Þorsteinsdóttir, Valgeir Helgason, Guðlaug Bergmann, Sævar Helgason, Ragnheiður Skúladóttir, Guðjón Helgason, Sveinborg Daníelsdóttir, Jón Helgason, Valdís Tómasdóttir og barnabörn. t Systir mín, mágkona og frænka, HULDA LÝDSDÓTTIR, Vitataig 4, Akranasi, verður jarftsunginfrá Akraneskirkju, laugardaginn 12.okt. kl. 11.30. Hjálmar LýAsson, Katrín Karlsdóttir, Lýður Hjálmarsson, Esther Hjálmarsdóttir, Gunnar ö. fsleifsson, Valur Karl Hjálmarsson, Hafdís Björg Hjálmarsdóttir, Hulda Mekken Hjálmarsdóttir. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, SIGURÐUR V. GUÐMUNDSSON frá Staó, Grindavík, Efstasundi 27, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Sauöárkrókskirkju laugardaginn 12. október kl. 15.00 aöósk hinslátna. Eygló Þorgrímadóttir, Sigrún Siguróardóttir, Gunnlaugur Vilhjálmsson og barnabðrn. t Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir og amma, ÁSGERÐUR BJARNADÓTTIR, Háaleitisbraut 30. veröurjarösunginfráHáteigskirkjuidag,föstudag 11.okt.,kl. 13.30. Bjarni Jónsson, Þuríóur Stefánedóttir, Herdís Jónsdóttir, Stefán Rögnvatdsson, Snaebjórn Jónsson og barnabörn. t Þakka auösýnda samúö og hlýhug viö fráfall og útför míns ástkæra sonar, BERGMUNDAR BÆRINGS ÓLAFS KJARTANSSONAR, Varmahlíö 14, Hverageröi. Sérstakar þakkir til samferöafólks míns, sem var á Spáni dagana 11. sept.-2. okt., fyrir einstaka umönnun og hlýhug i minn garö. Fyrir hönd aöstandenda. Kjartan Guöjónsson. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, ÞORLEIFS TH. SIGURDSSONAR, Básenda 8. María Eyjótfsdóttir, Jóhenna Þorteifsdóttir, Yngvinn Gunntaugsson, Guóiaug Þorleifsdóttir, Heiga Þorlerfsdóttir, og barnabörn. t Einlægar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug i minningu eigin- konu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu, PETREU GEORGSDÓTTUR frá Sandi, Lyngbrekku 15. Guö blessi ykkur öll. Oddur Jónsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: Björgúlfur Sigurðs- son verslunarmaður í dag verður jarðsunginn vinur minn og gamall pólitískur sam- herji Björgúlfur Sigurðsson versl- unarmaður og er mér bæði ljúft og skylt að minnast hans á þessari kveðjustund því hann göfgaði aðra menn með orðum sínum og hjarta- hlýju. Er til betra hlutskipti en það? Björgúlfur fæddist á Patreks- firði en ólst upp í Flatey á Breiða- firði. Faðir hans var Sigurður J6- hannesson frá Höfða í Eyrarsveit, var hann lengst af skipstjóri í Flatey og síðast starfsmaður i Útvegsbankanum. Sigurður lést 1962. En móðir Björgúlfs var Halldóra R. Jónsdóttir fædd 1886 í Flatey og andaðist hún 1969. Að baki Björgúlfi standa sterkir stofnar og kunnar breiðfirskar ættir. Einn bróðir á Björgúlfur og er það Jón Júlíus Sigurðsson nú- verandi bankastjóri Vesturbæjar- útibús Landsbankans. Björgúlfur fluttist ungur að árum til Reykjavíkur og átti þar heima upp frá því. Hann stundaði nám i Gagnfræðaskóla Reykjavík- ur og síðar við Samvinnuskólann og brautskráðist þaðan 1934 og fékkst hann eftir það við verslun- arstörf og verslunarrekstur og þar með bókhaldssýslu. Björgúlfur var víðlesinn og hafði jafnan yndi af bókum. Björgúlfur hóf störf hjá Verslun 0. Ellingsen og var þar i áratug eða frá 1935—45 en varð þá versl- unarstjóri hjá KRON á Skóla- vörðustígnum og gegndi þvi starfi á þriðja áratug eða frá 1945—68. Eftir það tók hann að sér fram- kvæmdastjórn við vikublaðið Nýtt land, frjálsa þjóð, sem varð mál- gagn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna og sinnti því með ágætum uns blaðið hætti að koma út 1974 sökum flokkslegra erfið- leika og upplausnar hjá Samtök- unum. Að endingu vann hann hjá Innkaupasambandi bóksala um nokkurra ára skeið uns hann sett- ist í helgan stein. Heilsufarið var ekki alltof gott síðustu árin og háði honum einkum sjóndepra. Björgúlfur stóð á sjötugu þegar hann féll frá, hann fæddist 3. júlí 1915. Hann kenndi sér meins á útmánuðum sem reyndist svo iil- kynjað að um heilsubót var ekki að ræða. Sjálfur hefur hann án efa vitað að hverju stefndi þótt hann hefði ekki orð á því en hann barð- ist eins og hetja við dauðann og féll í valinn æðrulaus eins og sigur- vegari. Það var Björgúlfi líkt. Björgúlfur tók virkan þátt í fé- lagsstörfum. Hann sat í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavík- ur 1945—47 og í stjórn Landssam- bands íslenskra verslunarmanna 1957—67. Kom hann við sögu þegar Verslunarmannafélagi Reykjavík- ur var breytt úr félagi verslunar- eigenda og búðarþjóna í hags- munafélag launþega. Sú saga verð- ur ekki rakin hér en sýnt er að Verslunarmannafélag Reykjavík- ur hefur kunnað að meta störf hans því að hann var gerður að heiðursfélaga árið 1981 fyrir mikið og gott starf í þágu félagsins. Nefna má að Björgúlfur bar mikinn hlýhug til æskustöðva sinna og sýndi þeim ræktarsemi með því að leggja Breiðfirðingafé- laginu lið á margvíslegan hátt einkum fyrr á árum. Björgúlfur fylgdist alla tíð af lífi og sál með stjórnmálum og var lengst af ævinnar virkur félagi i stjórnmálahreyfingum. Kynni okkar hófust þegar Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna voru stofnuð undir forystu Hannibals Valdimarssonar og við urðum brátt nánir samherjar og vinir og rofnaði aldrei vinátta okkar þótt Samtökin liðu út af og við hyrfum hvor í sínu lagi til ólíkra starfa. Björgúlfur var eindreginn fé- lagshyggjumaður og réttlætis- kennd hans var honum eins og ólg- andi uppspretta. Allt frá ferming- araldri háði hann heilagt stríð gegn félagslegum ójöfnuði og mis- munun í samfélaginu og hann bar sífellt fyrir brjósti hag lítilmagn- ans og þeirra sem stóðu af ein- hverjum ástæðum höllum fæti í lífsbaráttunni. Hann hafði sjálfur af eigin raun kynnst högum fólks á kreppuárunum og allar götur siðan sló hjarta hans heitt með því fólki. Björgúlfur var stríðs- maður réttlætisins. En Björgúlfur var ekki niður- rifsmaður, þvert á móti vildi hann hyggja upp, bæta þjóðfélagið með því að höfða til réttsýni og sann- girni. Hann treysti á manneskjuna og manngildið og það gaf skoðun- um hans yl og birtu og veitt honum um leið styrk til að endurmeta pólitísk viðhorf f Ijósi reynslunnar og sætta sig við ótal vonbrigði sem hugsjónamaður hlýtur ævinlega að verða fyrir í stjómmálum. Hann var ávallt bjartsýnn þrátt fyrir allt og treysti því staðfast- lega að fyrr eða síðar myndi hið góða sigra hið illa. Björgúlfur var hégómalaus maður, i framkomu var hann hæglátur og hýr í viðmóti. Hann var prúðmenni. Hann var einarður í skoðunum en aldrei framhleyp- inn, tók ekki til máls á fundum nema hann hefði mikið til málanna að leggja og þá var hlýtt á hann með athygli og mark á honum tekið. Og hann flutti orð sín af blíðu. Hvarvetna sem Björgúlfur lagði hönd á plóginn vann hann sér óskorað traust félaga sinna og hann eignaðist marga trygga vini á langri stjórnmálaævi, sem stundum var stormasöm. En það segir sína sögu um Björgúlf að mörgum andstæðingum hans í Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmæKs- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Lokað Lokaö í dag frá kl. 12.00-14.00 vegna jaröarfarar ÁSGERÐAR BJARNADÓTTUR. Hannyrðaverzlunin Mólý. stjórnmálum þótti ekki síður vænt um hann en samherjum. Því olli mildi hans og sanngirni. Björgúlfur var tillögugóður og öfgalaus. Hann var orðvar og bar andstæðinga sina ekki þungum sökum eins og iðulega vill brenna við í hita stjórnmálabaráttunnar. Hann leitaði jafnan hins betra í fari manna. Þess vegna var hug- ljúft að vera I návist Björgúlfs og hlýða á mál hans. Menn fóru betri af fundi hans en þeir komu. Eiginkona Björgúlfs er Ingi- björg Þorleifsdóttir og voru þau hjón mjög samhent. Eins og nærri má geta er þungur harmur kveðinn að henni og syni þeirra Sigurði og hans fjölskyldu. Vil ég votta þeim og öðrum ættingj um samúð mína. Ég veit að nú sakna margir vinir og samherjar góðs drengs og þykir skarð fyrir skildi. En Björgúlfi hefði þótt sér misboðið ef menn hefðu um of lagst I sorg og sút. Þess vegna heiðrum við best minn- ingu Björgúlfs Sigurðssonar með því að starfa í anda hugsjóna hans, vinna að velsæld öllum til handa og stuðla að réttlátu samfélagi. Bjarni Guðnason Björgúlfur Sigurðsson, sem and- aðist 1. þ.m., var heiðursfélagi Verzlunarmannafélags Reykjavík- ur. Björgúlfur Sigurðsson vann við verzlunarstörf frá 1935 eða i 50 ár. Hann kom mikið við sögu Verzlun- armannafélags Reykjavíkur og var einn af frumkvöðlum félagsins í baráttu fyrir réttindamálum verzlunar- og skrifstofufólks. Bjðrgúlfur lét mikið til sín taka í réttindamálum launþega áður en VR varð hreint launþegafélag árið 1955. Fram að þeim tíma voru vinnuveitendur einnig í félaginu en 1945 var stofnuð afgreiðslu- mannadeild í félaginu og var Björgúlfur kosinn formaður henn- ar. Björgúlfur Sigurðsson var í samninganefnd félagsins, sem undirritaði fyrsta kjarasamning- inn, sem félagið gerði við vinnu- veitendur árið 1946. Björgúlfur var mikill baráttumaður fyrir því að VR yrði hreint launþegafélag. Hann gerði sér fulla grein fyrir því, að VR gæti aldrei orðið sá vettvangur baráttu launþega i verzlunarstétt fyrir bættum kjör- um, sem nauðsynlegt væri, fyrr en félagið hefði tekið á sig fullkomna mynd launþegafélags. Hann sá þann draum rætast 1955. Björgúlfur var um langan tíma i trúnaðarmannaráði VR, m.a. þeg- ar félagið varð hreint launþega- félag. Hann var einnig i undirbún- ingsnefnd fyrir stofnun Lands- ambands isl. verzlunarmanna, sem stofnað var 1957. Með stofnun þess voru verzlunarmenn vítt um landið sameinaðir í ein hagsmuna- samtök, sem aukið hefur styrk þeirra i baráttunni i sókn til bættra lífskjara. Björgúlfur sá fleiri hagsmuna- mál, sem hann barðist fyrir, ræt- ast. Má þar nefna stofnun Lifeyr- issjóðs verzlunarmanna árið 1956, sem nú er einn af stærstu lífeyr- issjóðum landsins. Á þessum tfma voru mjög fáir lífeyrissjóðir starf- andi á félagslegum grundvelli. Það

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.