Morgunblaðið - 31.10.1985, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
13
Skrattakollarnir
hans Spielberg
Hrekkjalómar eni full sakleysislegt nafn i þessum makalausu kindum. sem hér eru að syngja jólalög fyrir frú
Deagle. Skrattakollar eru n*r lagi.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Austurbæjarbíó:
Hrekkjalómarnir — Gremlins ***
Leikstjóri Joe Dante. Handrit
Columbus. Tónlist Jerry Gold-
smith. Kvikmyndataka John Hora.
Framleiðandi Steven Spielberg.
Aðalhlutverk Zach Galligan,
Phoebe Cates, Hoyt Axton, Scott
Brady, Polly Holliday. Bandari.sk,
frá Warner Bros, gerð 1984. 111
mín.
Spielberg hefur reynst álíka
farsæll framleiðandi sem leik-
stjóri. Það mætti halda að það
eitt nægði að hann legði nafn
sitt við hlutina, og hókus, pókus,
þeir breyttust í gull. En það fer
ekki á milli mála að hann gerir
gott betur, hvað svo sem hann
lætur hafa eftir sér. Fyrsta
myndin sem hann hafði umsjá
með, fjármagnaði að nokkru leyti
en leikstýrði ekki var Poltergeist,
(’82), ein vinsælasta mynd allra
tíma. Síðan kom Gremlins ’84, og
núna í sumar urðu tvær Spiel-
berg-myndir geysi vinsælar, þær
Goonies, leikstýrð af Richard
Donner, (Superman), og Back to
the future, leikstjóri Robert
Zemeckis, (Romancing the Stone).
Fyrirbrigðinu Gremlins mun-
um við eftir úr Twilight Zone, The
Movie , reyndar ekki úr kafla
Dantes, heldur George Millers,
um þann flughrædda og skratta-
kollinn á vængnum, sem var
forveri þessara bráðskemmti-
legu, illyrmislegu fígúra.
Að þessu sinni rekst mislukk-
aður uppfinningamaður, Rand
Pletzer, (Hoyt Axton), á furðu-
kvikindi nokkuð í Chinatown og
gefur það syni sínum, Billy, (Zach
Galligan), í jólagjöf. En því
fylgja nokkrar, strangar um-
gengnisreglur: 1. Það þolir ekki
sterka birtu. 2. Má ekki komast
i vatn. 3. Ekki má, undir neinum
kringumstæðum, gefa því að éta
eftir miðnætti! Er skemmst frá
því að segja að fyrr en varir er
búið að þverbrjóta allar reglurn-
ar með hroðalegum afleiðingum;
við snertingu vatns fjölgar kvik-
indunum sem þar á ofan breytast
úr vinalegum gæludýrum í smá-
djöfla við nætursnarl!
Gremlins breytist á einu andar-
taki úr dæmigerðri, hugljúfri
fjölskyldumynd, sem gerist á
jólahátíðinni sjálfri í fallegum
og friðsælum smábæ, í þræl-
magnaða, bráðfyndna hrollvekju
fyrir börn, fullorðna og gamal-
menni. Smáskrattarnir halda
hressilega uppá tilurð sína,
ganga sannkallaðan berserks-
gang og breyta vinalegum þorps-
bragnum í martröð. Endar
myndin með sögulegum skæru-
hernaði á milli Billys og smá-
skrattanna, (sem höfðu þá fjölg-
að sér ískyggilega í sundlaug),
sem fer fram inní kvikmynda-
húsi — að sjálfsögðu — þar sem
árarnir una sér hið besta, slomp-
fullir og útbelgdir af sælgæti,
undir sýningu Mjallhvítar og
d verganna sjö!
Undarlegur samsetningur, a
tarna, en hefur lukkast með ólík-
indum vel. T.d. grenjuðu allir
kvikmyndahúsagestir úr hlátri
þegar skrattakollarnir gerðu ár-
ás á húsmóðirina og hún fór að
verja sinn helgasta reit, eldhúsið,
með „rambó-aðferðum“ bústýr-
unnar! Og eitthvert margslungn-
asta og fyndnasta atriði sem
undirritaður hefur séð lengi,
kolgeggjað fylliríispartý á þorps-
kránni, þar sem áramir kneyfa
ölið ósleytilega, spila peninga-
spil, éta og reykja á milli þess
sem þeir láta hnefa og byssur
tala, er svo ismeygilega vel gert
og hnyttið að það ætti ekki að
hneyksla neinn á aldrinum átta
til áttræðs.
Gremlins er full af tilvitnun-
um í gamlar myndir, kúnstugum
persónum, eins og kerlingar-
norninni frú Deagle, sem fær
makleg málagjöld hjá smá-
skröttunum, ef maður fylgist vel
með er sífellt eitthvað hressilegt
að gerast á tjaldinu. En skratta-
kollarnir eru bestir. Þeir Spiel-
berg og hjálparmenn hans, leik-
stjórinn Joe Dante og hönnuður
leikbrúðanna, Chris Walas, hafa
hitt naglann á höfuðið, eina ferð-
ina enn. Gaman, gaman!
Ætlarðu aö MISSA PHILIPS LITASJÓNVARPIÐ út úr höndunum á þér?
ÚTBORGUN er aðeins 7.000,- kr. (SJÖ ÞÚSUND!!!) og það verður EKKERT MÁL að semja um afborganir.
GRÍPTU það meðan tæri gefst.
<ö>
Heimilistæki hl
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- S: 2750: