Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985 Sveit Hvassa- leitisskóla Norður- landameistari Skák Karl Þorsteinsson Piltarnir í Hvassaleitisskólanum gerðu góða ferð á Norðurlandamót grunnskólasveita, sem haldið var samhliða flokki framhaldsskóla, í Tjele í Danmörku nú nýlega. Sveit- in, sem skipuð var þeim Þresti Þórhallssyni, Tómasi Björnssyni, Héðni Steingrímssyni, Magnúsi Kristinssyni og Tryggva Þorvalds- syni, varamanni, hlaut góðan sigur á mótinu hlaut 14'/2 vinning af 20 mögulegum. Þeir eru ótrúlegir yfirburðir tslendinga á unglingasviðinu gagnvart grannþjóðunum. Þær keppnir eru vart haldnar meðal Norðurlandanna að sigurvegar- inn komi ekki héðan frá Fróni, hvort heldur um sveitakeppnir eða einstaklingsmót er að ræða. Úrslitin nú staðfesta aðeins það sem kunnugir vissu. Ef orsaka er leitað mun nafnið ólafur H. Ólafsson vafalaust fljótt koma í hugann. Hann var fararstjóri hjá sveitinni nú og hefur verið í gegnum árin aðal driffjöður í þróttmiklu unglingastarfi hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Meðlimir Hvassaleitissveitarinnar eru því líklega kunnugir, enda voru þeir flestir í sigursælli sveit skólans á sama móti í fyrra. Taflmennska þeirra nú bar líka uppi merki reynslunnar. Vinninganna skyldi aflað á efstu borðunum, en jafn- tefli var viðunandi á þeim neðri. f fyrstu umferð voru Norð- menn ofurliði bornir og vinning- arnir skiptust 2'/b—l'/i. Þá kom auðveldur sigur á sænsku drengj- unum 3—1. Þröstur hrifsaði peð af andstæðingnum og sigraði. Tómas gerði það einnig á sann- færandi hátt, en Héðinn og Magnús gerðu jafntefli. Finnar og þá b-sveit Dana voru fórn- arlömbin í næstu umferðum. Báðar náðu sveitirnar 1% vinn- ing af þeirir íslensku og hafði hún því 10% vinning fyrir síð- ustu umferð. Hún varð jafn happadrjúg Hvassaleitissveit- inni og löndum hennar í eldri flokknum því piltarnir sigruðu allir dönsku andstæðinga sína í umferðinni. Svíar komu í öðru sæti í mótinu og hlutu 11 vinn- inga, en veittu Hvassaleitissveit- inni litla mótspyrnu. Þröstur og Tómas voru at- kvæðamestir í vinningaöflun sveitarinnar. Þeir hlutu báðir 4 % vinning af 5 mögulegum. Héðinn Steingrímsson hlaut 3% vinning og Magnús Kristinsson hlaut 2 vinninga. Þrátt fyrir góðan árangur í skákmótinu vakti fleira athygli útlendinganna. Svo slysalega vildi til að fararstjórinn ólafur H. hrasaði á götu skömmu fyrir brottför til Danmerkur og hand- leggsbrotnaði, og mætti í fatla á skákstað. Ekki var það nóg fyrir máttarvöldin, því í æstum knatt- spyrnuleik, fyrir síðustu umferð, fékk Héðinn, sem aðeins er tíu ára, slæman skell og viðbeins- 1. ísland 2. Svíþjóð 3. b-sv. Danmörk 4.—5. a-sv. Danmörk 4.—5. Noregur 6. Finnland Sveit Hvassaleitisskóla ásamt fararstjórum brotnaði. Þeir félagar vöktu því óskipt athygli í síðustu umferð er þeir mættu báðir í fatla. Kom nafngiftin „invalide klubben" fatla félagið þá frá einhverjum spaugaranum við góðar undir- tektir. Héðinn sýndi þó mikla keppnishörku og mætti vígreifur til leiks í síðustu umferð þrátt fyrir brotið og burstaði andstæð- ingsinn. Hvítt: Þröstur Þórhallsson Svart: Samuli Kaki (Finnl.) Þriggja riddara tafl. 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — 2%2 14% exd4, 4. Bc4 — Rf6,5.0-0 — Rxe4, 6. Hel — d5, 7. Bxd5 — Dxd5, 8. Rc3 — Da5, 9. Rxe4 — Be6, 10. Bd2 — Bb4, 11. Rxd4 — Rxd4, 12. Bxh4!? Allt er þetta góð og gild teóría hingað til. Flestir láta sér þó nægja að leika 12. c3 og eftir 12. — Be7,13. Cxd4 — Dd5 er staðan í jafnvægi. Leikur hvíts hefur allt önnur áhrif. Hann fórnar peði og vonast eftir sóknarfærum í staðinn. 12. — Dxb4, 13. c3 — Dxb2, 14. Dxd4 — 0-0,15. Habl Hvítur verður ekki sakaður um efnishyggju í þessari skák. 15. De5 kom þó einnig til greina. 15. — Dxa2,16. De5 — Hfc8? Hræðilega passíft. 16. — Dd5, 17. Dg3 — Kh8 hæfir betur svörtu stöðunni. Hvítur hefði þá líklega aðeins óljós sóknarfæri. 17. Hbdl! — b6, 18. Hd3 - Da5, 19. Dd4 — c5 Hvítur hótaði illþyrmilega 20. Hg3. En nú kemur önnur hug- mynd í ljós. 20. Rf6+! Riddarinn er eitraður t.d. 20. — gxf6, 21. Hg3+ — Kf8, 22. Dd6+ og mát í næsta leik. Framhaldið er því þvingað. 20. — Kh8, 21. Dh4 — Bf5, 22. Hg3? Var 22. Hf3 ekki sterkara? T.d. 22. - Bg6 þá 23. Rxh7 eða 22. - c4, 23. g4 og 22. - Hc6, 23. Hxf5 - Hxf6, 24. Hxf6 - Dxc3, 25. Dxe4 og vinnur. 22. — Hc6, 23. Dg5 — Bg6, 24. Dd5! Setur upp lúmska gildru. Eftir 24. — Hcc8, 25. Ðe5 er staðan óljós. 24. — Hac8??, 25. Dxc6! Svartur gafst upp. Hann tapar hrók því drottningin er friðhelg sökum máts upp í borði. Brids Arnór Ragnarsson Tafl- og brids- klúbburinn Eftir 3 kvöld í fjögurra kvölda hraðsveitakeppni TBK er staðan þessi: Sveit Gests Jónssonar 1714 Sveit Ingólfs Lillendahl 1634 Sveit Guðna Sigurbjarnars. 1600 Sveit Þórðar Sigfússonar 1623 Sveit Sveins Sigurgeirssonarl587 Hæstu skor hlutu sveitir: 608 Ingólfs Lillendahl 581 Gests Jónssonar 540 Sveins Sigurgeirssonar. Lokakvöldið verður spilað í Domus Medica næsta fimmtu- dagskvöld kl. 7.30, stundvíslega. Röggsamur keppnisstjóri er Anton Gunnarsson, upprennandi stjarna í þeim virðulega hóp. Bridsfélag Vestmannaeyja Nýlokið er hausttvímenningi félagsins er spilaður var 4 kvöld með þátttöku 16 para. Urðu úrslit sem hér segir: Jón Hauksson — Þorleifur Sigurlásson 397 Guðlaugur Gíslason — Hilmar Rósmundsson 368 Bjarnhéðinn Elíasson — Leifur Ársælsson 354 Friðþjófur Másson — Þórður Hallgrímsson 352 Benedikt Ragnarsson — Guðni Valtýsson 347 Magnús Grímsson — Sigurgeir Jónsson 345 Bridsdeild Sjálfsbjargar Mánudaginn 28. október lauk fjögurra kvölda Mitchell-tví- menningi. 18 pör tóku þátt í keppninni og varð röð efstu para þessi: Sigurrós Sigurjónsdóttir — Jónas G. Guðmundsson 1028 Gísli Guðmundsson — Ragnar Þorvaldsson 997 Bjarni Veturliðason — Sigríður Sigurðardóttir 967 Magnús Sigtryggsson — Rafn Benediktsson 943 Hlaðgerður Snæbjörnsdóttir — Ruth Pálsdóttir 927 Stefán Sigvaldason — Páll Sigurjónsson 926 íris Ástmundsdóttir — Ingimundur Elínmundars. 926 Meðalárangur 864 Mánudagskvöldið 4. nóvember hefst hraðsveitakeppni. Byrjað verður að spila kl. 19. Spilað er í hátúni 12. Keppnisstjóri er Ant- on Reynir Gunnarsson. Bridsfélag Hafnarfjardar Byrjað er á svokölluðum tölvuvæddum Mitchell, þar sem Vigfús Pálsson leikur á tölvuna en 22 pör á spilin. Hæsta skor fyrsta kvöldið. N—S Bjarni — Magnús 315 Guðni — Kristófer 313 Friðþjófur — Þórarinn 303 Birgir — Brynjar 303 A—V Halldór - Óskar 322 Ásgeir — Guðbrandur 304 Gylfi — ólafur 291 Hafsteinn — Jón Gísla 281 Blásarakvintett Reykja- víkur á Austfjörðum Blásarakvintett Reykjavíkur mun halda ferna tónleika á Austfjörðum nú um helgina. Laugardaginn 2. nóvember kl. 11.00 verður hljóðfærakynning og stutt efnisskrá í Egilsstaðaskóla fyrir nemendur. Kl. 17.00 verða tónleikar í Egilsstaðakirkju á vegum Tónlistar- félags Fljótsdalshéraðs og kl. 21.00 tónleikar á Neskaupstað á vegum Menningarnefndar Neskaupstaðar. Sunnudaginn 3. nóvember kl. 11 verður hljóðfærakynning og stutt efnisskrá í Tónlistarskóla Eski- fjarðar fyrir nemendur á Eskifirði og Reyðarfirði. Á efnisskránni eru verk eftir Beethoven, Þorkel Sigurbjörnsson, Ligeti, Sweelinck og Arnold, og auk þess tónlist af léttara taginu eftir Scott Joplin og Rimsky- Korsakov. Blásarakvintett Reykjavíkur, sem stofnaður var árið 1981, er skipaður Bernharði Vilkinson á flautu, Einari Jóhannessyni á klarinett, Daða Kolbeinssyni á óbó, Hafsteini Guðmundssyni á fagott og Joseph Ognibene á horn, og eru þeir allir starfandi í Sin- fóníuhljómsveit Islands. Kvintett- inn hefur haldið fjölda tónleika í Reykjavík og auk þess komið fram við ýmis tækifæri. I fyrra fór hann í hljómleikaferð til Frakklands og Sviss. Þessi tónleikaferð Blásarakvint- etts Reykjavíkur er að hluta til styrkt af fjárveitingu Mennta- málaráðuneytisins til Félags ís- lenskra tónlistarmanna. (Frótlatilkynning)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.